Hvað er til ráða þegar við höfum gleymt drengjunum og stúlkum okkar.

Vandi drengjanna okkar og stúlkna er vandi þjóðarinnar allrar.

Hér áður fyrr léku börn sér úti, meir en nú er gert, mörg fóru snemma að vinna t.d. í fiski, sum voru í sveit á sumrin, þau höfðu ýmislegt til að dunda sér við og þá helst úti við.

Í dag eru börn á unga aldri sett framan við sjónvarpið, síðan kemur tölvan, svo koma allskonar óæskilegar bíómyndir og tónlist sem er krefjandi á að hlusta.

Fæst börn eru uppfrædd í Guðs Orði, kenndar bænir eða farið með þau í kirkju og sunnudagaskóla. Biblíusögur og kristinfræði hafa verið fjarlægð úr skólunum, ekki má gefa skólabörnum Nýja Testamentið, en hinsegin fólki hleypt í skólana þess í stað með sinn heilaþvott og áróður á börnin.

Upplausn heimila og hjónaskilnaðir hafa vissulega áhrif á börnin og í mörgum tilfellum mjög djúpstæð áhrif.

Allt þetta hefur áhrif á stöðu fólksins í landinu og þó einkum ungviðis okkar. Þegar Guð er tekinn út úr samfélaginu er ekki von á góðu. Þegar sá sem gefur frið er tekinn út og sá sem fyllir fólk ófriði, stressi og streitu, óhemjuskap og græðgi fær yfirhöndina, þá uppsker þjóðfélagið það sem til er sáð.

Alþingi getur ekki breytt þjóðfélaginu, en þingmenn geta sett fordæmi með sínum eigin gjörðum og verið fyrirmynd fyrir samfélagið allt.

Leitum fyrst Guðs ríkis og Hans réttlætis, þá munum við njóta blessana Hans.


mbl.is Höfum við gleymt drengjunum okkar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Falskar skoðanakannanir hjá fölskum fréttamiðlum.

Tvö ár eru síðan forsetakosningarnar voru í Bandaríkjunum, þegar "fréttahaukarnir" hjá stóru "fréttamiðlunum" mættu spenntir í verin, búnir að kalla til sín fullt af "sérfræðingum" til að fjalla um kosningarnar.

Allir biðu þeir spenntir eftir því að geta tilnefnt Hillary Clinton forseta Bandaríkjanna, jú allar skoðanakannanir sýndu sem ekki væri um villst að hún myndi ná kjöri. Smám saman minnkaði brosið á "fréttahaukunum", sigur Hillary yrði ekki eins stór og þeir áttu von á. Að lokum urðu þessir sjálftilnefndir sérfræðingar vandræðalega að játa að Hillary hafði alls ekki unnið, heldur Donald Trump sem var svo óvinsæll að engin myndi kjósa.

En hvað gerðist?? hvað fór úrskeiðis????

Þessir sömu "fréttahaukar" hjá þessum sömu "fréttastöðvum" eru enn við sama heygarðshornið, þeir hafa ekkert lært. Nú eiga Demókratar, samkvæmt útreikningum "fréttahaukanna" að vinna stórt og ná yfirhöndinni í fulltrúadeildinni.

Ég er hræddur um að þessir sömu "fréttahaukar" ásamt Demókrataflokknum eigi eftir að þurfa að horfast í augu við þeirra eigið getuleysi við að rembast við að telja Bandaríkjamönnum trú um að þeir verði að kjósa Demókrata og þeir verði sjálfum sér til skammar.

Ég spái því að það verða Repúblikanar sem munu vinna stórt og halda velli í fulltrúadeildinni og jafnvel bæta við sig þar.

Bandarískur almenningur er farinn að sjá í gegnum Demókrataflokkinn á sama tíma og þeir eru að upplifa betri tíð með Trump sem forseta en Obama, Bush feðga og Clinton. Fólk finnur það á eigin buddu og sér hversu Trump hefur og er að standa við loforð sín. Hann hefur nú þegar, á tveggja ára valda tíma sínum, áorkað meira ein Obama á þeim átta árum sem hann var í Hvíta húsinu.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, á kosningafundi í Missouri-ríki í gær.


mbl.is Þjóðaratkvæði um störf Trumps
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þær lifðu af, dauðinn varð að gefa eftir.

Mikið er talað um sjálfsákvörðunarrétt kvenna og að þær ráði yfir eigin líkama, réttindi kvenna þurfi að hafa í heiðri, en hvað um réttindi þeirra kvenna sem deyddar eru í móðurlífi? Konan hefur þann rétt að hafna því að hafa mök við einhvern af hinu kynin, það er hennar réttur, hún gæti orðið ólétt, þau konan og maðurinn ættu að hafa það í huga. Konan hefur ekki rétt til að ákveða að líf annarrar persónu sé ekki þess virði að leyfa þeim einstaklingi að lifa. Barn sem verður til í móður kviði er ekki konan sjálf, barnið er sjálfstæður einstaklingur sem hefur lífsgöngu sína í kviði móður sinnar.

Fóstureyðingar eru á sama plani og útburður barna var hér á öldum fyrr, eða þegar sveinbörn átti að myrða á þeim tíma þegar Móses fæddist, eða þau börn sem myrt voru á hrottalegan hátt um það leiti sem Jesús Kristur fæddist. Getur verið að fóstureyðingar á okkar tímum segi okkur eitthvað um þann tíma sem við nú lifum? Erum við sem einstaklingar tilbúnir að vera þátttakendur í þeim hildarleik sem fóstur víg eru? erum við tilbúin að vera sett á sama stall og Hitler, Stalín og Maó??????????

Fósturmorðin eru ljótur og hræðilegur atburður sem ekki ætti að eiga sér stað í "siðuðu" þjóðfélagi.

Bæn mín til Guðs almáttugs er sú að augu Svandísar Svavarsdóttur og allra þeirra sem taka undir með henni opnist og þau sjái hversu illar þessar aðgerðir eru.

Hér fyrir neðan eru myndvönd er fjalla um tvær konur sem lifðu fóstureyðingu af. Það sem þær hafa að segja ættu allir að heyra.

Fyrsta myndbandið sýnir er Gianna Jessen talar fyrir bandarískri þingnefnd og síðasta myndbandið er einnig með Gianna þar sem rætt er við hana og hún segir sína sögu.

Annað myndbandið er viðtal við Melissa Ohden, en móðir hennar vissi ekki að hún hafði lifað fóstureyðinguna af, þær hittust árum síðar.


mbl.is Sjálfsákvörðunarréttur kvenna sé skýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaldhæðni örlagana

Yfirlæknir á spítalanum, Jeffrey Cohen, þar sem Bowers fékk aðhlynningu var sá sem fór fyrir teyminu sem hlúði að honum. Læknirinn er gyðingur og meðlimur Tree of Life safnaðarins þar sem ódæðið átti sér stað. Bowers fékk bestu aðhlynningu sem völ var á og það úr hendi eins þeirra sem hann hefði hugsanlega drepið, hefði hann ekki staðið vaktina á sjúkrahúsinu þegar glæpurinn átti sér stað.

Kaldhæðnislegt!?!?!

Jesús sagði: "Elskið óvini yðar, biðjið fyrir þeim sem ofsækja yður".


mbl.is Neitar sök í skotárás í bænahúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Nóv. 2018
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30  

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 784
  • Frá upphafi: 162077

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 495
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband