Japanska þjóðin er að skreppa saman, þeim fer fækkandi. Hvað er að gerast???

Hvers má vænta þegar þjóðfélög skreppa saman, fleiri deyja en fjöldi fæðinga??? Hvaða vandamál blasa við minnkandi þjóðfélögum???

Japanska þjóðfélagið er að minnka, þeim fækkaði um eina milljón frá 2008 til 2015 og með sama áframhaldi mun þeim fækka um 20 milljónir frá 2015 til 2040. Árið 2015 voru Japanir 127 milljónir og áætlað að þeir verði 87 milljónir árið 2060. Vandamál Japana er ekki hvað síst að fjöldi ellilífeyrisþega er að stóraukast á kostnað þeirra sem yngri eru. Hlutfall 65ára og eldri er 25% og þar að auki lifir fólk mun lengur, því mun hlutfall þeirra aukast mjög hratt. Þeirra sem eru á vinnumarkaði og halda þjóðfélaginu gangandi í formi skattgreiðslna stefnir í að verða minnihluti innan fárra áratuga.

Þetta sama vandamál mun íslenska þjóðin þurfa að horfa uppá verði ekki hugarfarsbreyting hjá okkur. Í stað þess að eyða/deyða börn í móðurkviði, ættum við að hvetja til aukinna barneigna, þar sem fjöldi barna væru ekki færri en þrjú á fjölskyldu og helst fleiri.

Fóstureyðingum þarf að útrýma og ríkisvaldið á nú þegar, STRAX, hætta að greiða fyrir þær aðgerðir.

Á myndbandinu hér fyrir neðan er fjallað um vanda Japana og er athyglisvert að heyra áhyggjur þeirra og sjá hvað þeir eiga við að glíma.


Þeir sem hæst hafa!!!

Ungbarnadauði var mikill hér á landi alveg framundir þarsíðustu aldamót. Slæmur aðbúnaður, léleg heimkynni og farsóttir voru helstu ástæður þess hversu mörg börn dóu í bernsku. Nú á tímum er aðbúnaður mun betri og farsóttir hafa ekki verið að hrella ungviðið í sama mæli og áður fyrr.

Stærsta ógn sem blasir við ungviði okkar í dag erum við, mannfólkið, þar sem yfir eittþúsund börn deyja árlega af manna völdum, fyrir hendi þeirra sem eiga að verja þau og hlúa að þeim. Fósturmorð er hið mesta böl sem blasir við yfir þúsund einstaklingum á ári hverju.

Margir sem eru í fararbroddi þeirra sem berja sér á brjóst yfir bágindum barna erlendis og þeim hörmulegu skilyrðum sem þau búa við, vegna stríðs og af öðrum orsökum, eru þeir hinir sömu sem tala hvað hæst fyrir því að börnin okkar séu tekin af lífi í móðurkviði.


mbl.is Ungbörn fjórðungur þeirra í garðinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. nóvember 2018

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 161294

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband