Hryllingurinn sem við höfum öll lokað augum okkar fyrir

Margt fólk, konur og karlar, hafa tekið þátt í að eyða börnum í móðurlífi. Augu sumra þessara einstaklinga hafa opnast fyrir hryllingnum sem þau hafa tekið þátt í, en aðrir eru kaldlindir og sjá ekkert rangt við það sem það er að gera, jafnvel þegar börnin koma lifandi út og hægt væri að bjarga þeim, þá eru þau bara látin deyja eða þau tekin af lífi strax í fæðingunni.

Þetta er hryllingur sem verður að stöðva. Sorglegt er að margir þeirra sem hugsa með hryllingi til glæpa sem eiga sér stað í stríðsátökum og eru sannarlega hryllilegir, sjá ekkert athugavert við morðin sem framin eru í skjóli laga og "heilbrigðiskerfis".

Myndböndin hér fyrir neðan segja sína sögu, þau eru öll á ensku. Mörg önnur myndbönd eru til sem fjalla um þann hrylling sem fóstureyðingar eru og sum þeirra treysti ég mér ekki til að birta á bloggi mínu.

 

 

 

 


Nokkuð sem íslensk stjórnvöld þurfa að leiða hugann að

Það hlýtur að vera akkur íslenskra stjórnvalda að dregið verði verulega úr alþjóðlegu ráðstefnuhaldi hér á landi. Á alþjóðaráðstefnur kemur fólk víða að og flestir ef ekki allir koma fljúgandi, ýmist með farþegaflugi en allmargir á einkaþotum.

Með komu alls þessa fólks hingað til lands á ráðstefnur sem skila margar hverjar engu eða litlu fyrir heimsbyggðina, en þeim mun meir af CO2 í andrúmsloftið, sem okkur er talið trú um að sé stórhættulegt.

Eins held ég að Sameinuðu þjóðirnar hljóti að draga verulega úr ráðstefnum á sínum vegum sem haldnar eru víðsvegar um heiminn af sömu ástæðu. Það má þakka fyrir ef fólk kemst lifandi á og frá þessum ráðstefnum, því sú vá sem er fyrir dyrum er svo alvarleg.

Að sama skapi geri ég ráð fyrir að Al Gore leggi einkaþotu sinni sem hann hefur farið vítt og breitt um heimskringluna, til að segja öllum hversu hættulegt það er fyrir andrúmsloftið að notast við loftför á ferðalögum og hann skilið eftir sig koltvísýringsspor út um allt.

Best væri ef allir sætu bara heima og létu lítið fyrir sér fara og gæta þess í leiðinni að losa ekki loft því jú einnig það er CO2 sem fer út í andrúmsloftið.

Hér fyrir neðan eru myndir af húsunum sem Al Gores á.

Fyrst er það húsið í Nashville, Tennessee. Áætlað er að fasteignin sé rúmir 3000fm og orkan sem hann notar á ársgrundvelli meiri en 21 venjulegt heimili í Bandaríkjunum notar.

 

 

 

Hitt húsið sem Al Gore á er í Montecito, Kaliforníu. Þetta hús notar orku á við 20 venjuleg heimili í Bandaríkjunum. Engir smá orkureikningar sem hann þarf að borga.

 


mbl.is Losun CO2 frá flugi eykst mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrjú ár í pólitík hljómar eins og heil eilífð.

Angela Merkel segist ætla að hætta í pólitík eftir þrjú ár.

Menn segja gjarnan að vika í pólitík sé langur tími hvað þá þrjú ár, það hljómar eins og heil eilífð. Eftir þrjú ár gæti fylgi flokks Angelu Merkel verið komið niður á svipaðar slóðir og fylgi Sjálfstæðisflokksins, en fylgi hans er í sögulegu lágmarki.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki gert annað en að tapa fylgi alveg frá því núverandi formaður hans tók við völdum þar á bæ. Ekki hefur Bjarni Ben séð ástæðu til að stíga til hliðar þrátt fyrir ítrekað tap flokks hans.

Þeir formenn sem ríghalda í stólana geta vart verið að hugsa um hag flokka sinna, það hlýtur eitthvað annað að hanga á spýtunni, myndi ég ætla.


mbl.is Merkel hyggst hætta 2021
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þungunarrof???? hvað er það??????

Að fága fósturmorð með því að nota orðið "þungunarrof" er ekkert annað en blekkingarleikur. Með því að notast við orðalag sem á að láta fólki líða vel með þann ljóta atburð sem morð á einstaklingum í móðurlífi er er hræsni á hæsta stigi. Fósturmorð er ekkert annað en að verið er að fórna lífi einstaklinga á altari félagshyggjunnar. Við lesum um það í Biblíunni að það voru einmitt slíkar fórnir sem ollu því að Guð vildi eyða þeim þjóðum sem slíkt iðkuðu. En guðir þeirra voru kallaðir Baal og Mólok, fólk fórnaði börnum sínum þessum guðum til heilla.

Er íslenskt þjóðfélag virkilega að sigla inn í slíkt hryllings tímabil að auka eigi þjáningar þeirra sem ekki fá að fæðast og verða nýtir þjóðfélagsþegnar okkar á meðal??????????? Er Alþingi Íslendinga virkilega svo skyni skroppið að það gerir ekki greinarmun á réttu og röngu þegar kemur að lífi og heilsu þjóðfélagsþegna???????????????? að drepa landann áður en hann getur varið sig og orðið gegn þjóðfélagsmeðlimur. Glæpamenn þurfa ekki að líða það sem börn þurfa að gera er þau eru sundurlimuð í móðurlífi. HRYLLINGUR!!!!!!!!!!

Jesaja spámaður skráir svo í bók sína:

11Vei hinum óguðlega, honum mun illa vegna, því að honum mun goldið verða eftir tilgjörðum hans.

12Harðstjóri þjóðar minnar er drengur, og konur drottna yfir henni. Þjóð mín, leiðtogar þínir leiða þig afleiðis og villa fyrir þér veginn.

13Drottinn gengur fram til að sækja sökina, hann stendur frammi til að dæma þjóðirnar. 14Drottinn gengur fram til dóms í gegn öldungum lýðs síns og höfðingjum hans:

"Það eruð þér, sem hafið etið upp víngarðinn. Rændir fjármunir fátæklinganna eru í húsum yðar. 15Hvernig getið þér fengið af yður að fótum troða lýð minn og merja sundur andlit hinna snauðu," - segir hinn alvaldi, Drottinn allsherjar.

Í Jesaja segir ennfremur:

20Vei þeim, sem kalla hið illa gott og hið góða illt, sem gjöra myrkur að ljósi og ljós að myrkri, sem gjöra beiskt að sætu og sætt að beisku.

21Vei þeim, sem vitrir eru í augum sjálfra sín og hyggnir að eigin áliti.

22Vei þeim, sem kappar eru í víndrykkju og öflugar hetjur í því að byrla áfengan drykk, 23þeim sem sýkna hinn seka fyrir mútur og svipta hina réttlátu rétti þeirra.

24Fyrir því, eins og eldsloginn eyðir stráinu og heyið hnígur í bálið, svo skal rót þeirra fúna og blóm þeirra feykjast sem ryk, af því að þeir hafa hafnað lögmáli Drottins allsherjar og fyrirlitið orð Hins heilaga í Ísrael.

25Þess vegna bálaðist reiði Drottins í gegn lýð hans, og hann rétti út hönd sína móti honum og laust hann, og fjöllin skulfu og líkin lágu sem sorp á strætum.

Allt fyrir það linnir ekki reiði hans og hönd hans er enn þá útrétt.

Ekki óska ég ráðamönnum þess að falla í hendurnar á lifanda Guði, en eitt skulu þeir vita að Hann lætur óréttlætið ekki óhegnt.

Í Opinberunarbókinni stendur eftirfarandi:

11Og ég sá mikið hvítt hásæti og þann, sem í því sat. Og fyrir ásjónu hans hvarf himinn og jörð og þeirra sá engan stað. 12Og ég sá þá dauðu, stóra og smáa, standa frammi fyrir hásætinu, og bókum var lokið upp. Og annarri bók var lokið upp og það er lífsins bók. Og hinir dauðu voru dæmdir, eftir því sem ritað var í bókunum, samkvæmt verkum þeirra. 13Og hafið skilaði hinum dauðu, þeim sem í því voru, og dauðinn og Hel skiluðu þeim dauðu, sem í þeim voru, og sérhver var dæmdur eftir verkum sínum. 14Og dauðanum og Helju var kastað í eldsdíkið. Þetta er hinn annar dauði, eldsdíkið. 15Og ef einhver fannst ekki skráður í lífsins bók, var honum kastað í eldsdíkið.

og ennfremur:

8En fyrir hugdeiga og vantrúaða og viðurstyggilega og manndrápara og frillulífismenn og töframenn, skurðgoðadýrkendur og alla lygara er staður búinn í díkinu, sem logar af eldi og brennisteini. Það er hinn annar dauði.

En eitt er víst, það er ekki vilji Guðs að nokkur maður glatist, heldur að allir iðrist synda sinna, snúi sér frá sínum vondu vegum og eignist lifandi samfélag við skapara sinn. Guð er fús til að fyrirgefa og endurreisa sérhvern þann er til Hans kemur í einlægni.

Í Esekíel stendur:

11Seg við þá: Svo sannarlega sem ég lifi, - segir Drottinn Guð - hefi ég ekki þóknun á dauða hins óguðlega, heldur að hinn óguðlegi hverfi frá breytni sinni og haldi lífi. Snúið yður, snúið yður frá yðar vondu breytni! Hví viljið þér deyja, Ísraelsmenn [Íslendingar]?

Ég vil leggja til að þessu frumvarpi verði breytt þannig að bann verði lagt við eyðingu (deyðingu) ófæddra barna. Það stefnir nú þegar í óefni fyrir þjóð okkar vegna þeirra sem þegar hafa verið deydd.


mbl.is Þungunarrof verði heimilt út 22. viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig á að bregðast við öldrun þjóða?????

Skaðleg áhrif fóstureyðinga er óðum að koma í ljós.

Hlutfall aldraðra eykst á kostnað þeirra sem ungir eru. Það stefnir óðum í að fjöldi þeirra sem ekki teljast ellilífeyrisþegar, á móti fjölda hinna öldruðu, verður svo fáir að þeir geta ekki haldið kerfinu gangandi.

Hvað verður þá til ráða???? Mun þá kerfið telja eðlilegt að fækka í hópi ellilífeyrisþega og byrja þá á þeim sem komu í veg fyrir að halda þjóðinni ungri???? þ.e. ellieyðing í stað fóstureyðingar?????  Mér er spurn!!!!!


mbl.is Verða að bregðast við öldrun þjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vaðlaheiðar­vega­vinnu­verk­færa­geymslu­skúr­slyklakippu­hring­ur­inn.

Ekki er nema vona að það hafi þurft háa tölu með mörgum núllum til að klára það verk sem þessi "Vaðlaheiðar­vega­vinnu­verk­færa­geymslu­skúr­slyklakippu­hring­ur­inn" tilheyrði.embarassed


mbl.is Lengsta orð íslenskunnar á ljósmynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítur Xi Jin­ping for­seti Kína á sig sem guð???????

Þar sem Ísland hefur nú tekið sæti í Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóanna í stað Bandaríkjanna, ætla þá íslensk stjórnvöld í krafti valds síns að tukta Kínversk stjórnvöld og koma þeim til að skilja að svona gera menn ekki??????

Xi Jin­ping for­seta Kína er orðinn einn valdagráðugasti maður heims, fyrr og síðar. Fólki er gert skylt að sverja honum hollustu sína og trúa á hann sem guð.

Það eru ekki einvörðungu uighur-múslímar sem eru ofsóttir og beittir órétti. Í Kína eru tugir milljóna kristinna sem verða að iðka trú sína á laun, vegna yfirgangs valdhafa. Hið merkilega er að þrátt fyrir ofsóknir, þá er gífurleg vakning í Kína og fjöldinn allur sem er að snúa sér til Jesú Krists er fólk áttar sig á því að Hann er frelsari heimsins, en ekki Xi.

Mestu vakningar í heiminum, þar sem fólk er að snúa sér að trúnni á Jesú Guðs syni sem frelsara okkar, eru þar sem mestu ofsóknir gegn kristnum eiga sér stað.

Festa kyrr­setn­ing­ar­búðir uig­h­ur-múslima í lög

Uighur-múslimar í Urumqi fylgjast með kínversku öryggislögreglunni standa vörð við ...
Uig­h­ur-múslim­ar í Ur­umqi fylgj­ast með kín­versku ör­ygg­is­lög­regl­unni standa vörð við inn­gang­in að hverfi uig­h­ur-múslima í borg­inni. AFP

mbl.is Festa kyrrsetningarbúðir í lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnvöld í Kína eru að herða tökin á almenningi

Frá því Xi Jinping fékk aukin völd á síðasta þingi Kínverska kommúnistaflokksins, hafa stjórnvöld þrengt að almennum borgurum og meira að segja þeim sem voru frægir og framalega á sjónarsviðinu.

Kristnir, múslímar og aðrir trúarhópar eiga undir högg að sækja. Krossar eru teknir af kirkjubyggingum, myndavélar settar upp í kirkjubyggingum þannig að hægt er að fylgjast með þeim sem þangað sækja. Kirkjum er bannað að syngja Guði lof eða hylla Jesú nafn. Kirkjurnar eiga að hylla kommúnistaflokkinn og Xi forseta.

Xi Jinping hefur orðið jafnmikil völd, ef ekki meiri völd, en Maó forðum. Nú vill hann fá alla dýrðina, að hann sé lofaður og þolir greinilega ekki ef einhver nær að bera skugga á hann.

Þetta minnir greinilega á það sem stendur í Heilagri Ritningu um það sem verða mun á hinum síðustu dögum.

Í Postulasögunni lesum við um það að Heródes var hylltur sem guð og lét hann sér það vel líka. Hann datt skyndilega niður dauður og var ormétinn.


mbl.is Hvað gerði Meng af sér?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er vont að vera afhjúpaður.

Þegar fólk er staðið að óheiðarleika og þarf að standa skil af gjörðum sínum en vill ekki játa yfirsjónir sínar og rangindi þá getur verið erfitt að halda aftur af tárunum sama hversu þjálfaður maður er í þeim efnum.

Dianne Feinstein hefur farið fyrir Demókrötum í aðförum þeirra að útnefningu Bret Kavanaugh í embætti dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna.

Forystumenn Demókrataflokksins lýstu því yfir að þeir myndu aldrei samþykkja útnefningu Trumps í embætti dómara Hæstaréttar, áður en hann opinberaði tilnefningu sína, sama hvern hann útnefndi.

Það eitt og sér er furðulegt athæfi af hálfu þeirra sem eiga að vinna af heiðarleika og sanngirni á þingi.

Gjörðir Feinsteins eru að koma henni í koll þar sem hún er ber af óheiðarleika í störfum sínum. Slíkt kemur manni alltaf í koll, fyrr eða síðar. Nú er hún að súpa seiðið af eigin gjörðum.

Það er vont að vera afhjúpaður.

Hér fyrir neðan er myndband sem sýnir Feinstein glíma við hugsanir sínar og tilfinningar á meðan koleggi hennar Chuck Schummer er að tala við fréttamenn.


Óumflýjanlegt rask vegna framkvæmda við nýbyggingar Landspítalans við Hringbraut

Mér er spurn!!! Verður sjúklingum vært á Landspítalanum við Hringbraut meðan á framkvæmdum stendur, þ.e. til ársins 2024?????

Hér sést hvar bílastæðin eru í dag.

Hér sést hvert bílastæðin muni færast.

 

 


mbl.is Óumflýjanlegt rask við spítalann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Okt. 2018
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 784
  • Frá upphafi: 162077

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 495
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband