Færsluflokkur: Bloggar

Eitthvað er bogið við hagvaxtartölur Bandaríkjanna

Ekki eru allir á einu máli um ágæti Bandarísks efnahagslífs eða horfurnar framundan.

Í The Weekly Standard segir frá því að nærri 1 af hverjum 4 Bandaríkjamönnum á aldrinum 25-54 ára sé atvinnulaus.  Þessar tölur eru sláandi og lýsir ekki uppgangi efnahagslífsins vestra.  

Mér finnst eitthvað bogið við fréttir um hagvöxt uppá 4,6% á sama tíma og verið er að loka verslana og verslunarmiðstöðva og gífurlegrar aukningar fátæktar í Bandaríkjunum.

En í þessum tölum um atvinnuleysi er ekki tekið tillit til þeirra sem eru í hlutastarfi og/eða á launum sem við mundum telja undir lágmarkslaunum.

Þá er ekki talað um gífurlega skuldaaukningu bandaríska ríkisins, en skuldir þeirra hafa vaxið meira undir Obama en allra forseta til samans á undan honum.

 

1 in 4 Americans 25-54 Not Working

 

A new chart from the minority side of the Senate Budget Committee shows a startling fact: Almost 1 in 4 Americans between the ages of 25-54 (or prime working years) are not working. 

Here's a chart showing those in that age group currently employed (95.6 million) and those who aren't (28.9 million):

"There are 124.5 million Americans in their prime working years (ages 25–54). Nearly one-quarter of this group—28.9 million people, or 23.2 percent of the total—is not currently employed. They either became so discouraged that they left the labor force entirely, or they are in the labor force but unemployed. This group of non-employed individuals is more than 3.5 million larger than before the recession began in 2007," writes the Republican side of the Senate Budget Committee.

"Those attempting to minimize the startling figures about America’s vanishing workforce—workplace participation overall is near a four-decade low—will say an aging population is to blame. But in fact, while the workforce overall has shrunk nearly 10 million since 2009, the cohort of workers in the labor force ages 55 to 64 has actually increased over that same period, with many delaying retirement due to poor economic conditions.

"In fact, over two-thirds of all labor force dropouts since that time have been under the age of 55. These statistics illustrate that the problems in the American economy are deep, profound, and pervasive, afflicting the sector of the labor force that should be among the most productive."

 

mbl.is Meiri hagvöxtur í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjum er greiði gerður með að sniðganga Ísraelskar vörur

Til er sá hópur "vina Palestínu" sem vill banna viðskipti við Ísraelskt fyrirtækið SodaStream, vegna þess að það er staðsett í Júdeu [Vestur-bakkanum].  Það á semsagt að refsa þessu fyrirtæki fyrst og fremst af því það er í eigu Ísraelskrar fjölskyldu og vegna staðsetningar fyrirtækisins.

Þessum blessuðu svo kölluðu "vinum Palestínu" virðist ekki vera ljóst að 500 starfsmenn fyrirtækisins eru "Palestínumenn" sem fá fjórum sinnum [x4] hærri laun en "Palestínumenn" sem þiggja laun frá "Palestínskum" stjórnvöldum.  Í fyrirtækinu vinna einnig um 350 Ísraelskir arabar og um 300 gyðingar. 

Allt þetta fólk er á sömu launum, hvort heldur það eru gyðingar eða arabar, "Palestínumenn" eða ekki "Palestínumenn".  Réttindi allra eru þau sömu, hvað varðar frí, veikindi, orlof eða annað.  Vinnumórallinn er góður og virðast allir njóta þess að vinna hjá SodaStream, gyðingar með aröbum og arabar með gyðingum.

Ég hef áður skrifað um þetta á bloggsíðu minni, er segir frá SodaStream og viðtöl við "Palestínumenn" sem vinna hjá fyrirtækinu.

Ég held að svo kallaðir "vinir Palestínu" ættu að hugsa sinn gang áður en þeir vilja sniðganga Ísraelskar vörur, vegna þess að oftar en ekki hefur það áhrif á "Palestínska" verkamenn nú eða araba með Ísraelskt ríkisfang.

Það væri kaldhæðni örlaganna ef Íslenskir "vinir Palestínu" yrðu þess valdandi að svo kallaðir vinir þeirra í "Palestínu" misstu vinnu sína og þar með góðar tekjur, þeirra vegna.  Talið er að minnsta kosti vinni 15000 "Palestínumenn" hjá Ísraelskum fyrirtækjum og líkar það vel.

Með því að loka á Ísraelskar vörur, eru "vinir Palestínu" að loka á launagreiðslur til margra "Palestínumanna", svokallaðra vina þeirra.

Netslóð á fyrri færslu mína um SodaStream er hér fyrir neðan

 http://tibsen.blog.is/blog/tibsen/entry/1352621/


mbl.is Beitir sér ekki fyrir þvingunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandamál Bandaríska hagkerfisins er að falla þungt á Bandarísku þjóðina.

Bandaríkin eru illa á vegi stödd.  Nú um nokkurra áratuga skeið hafa þeir flutt úr landi helstu framleiðslu landsins og flutt síðan inn þær vörur sem þeir voru vanir að framleiða sjálfir.  Jú, mikil ósköp, til að byrja með voru vörurnar ódýrari en þegar þær voru framleiddar í USA, en þar á móti missti fjöldi manns atvinnu sína.  Í stað þess að kaupa Bandaríska bíla sneri fólk sér í auknum mæli að kaupa Japanska bíla, síðan Evrópska.  Þar kom að stjórnvöld lögðu mikla fjármuni í að bjarga bílaframleiðendum, en það dugði ekki til, nema til að bjarga kaupaukum forstjóranna.  Detroit sem þekkt var fyrir bílaframleiðslu er nú nánast draugaborg.  Borgin var lýst gjaldþrota á síðasta ári.

Fyrir hrunið 2008 þegar bankarnir, sem ætluðu að lána íslensku bönkunum, fóru á hausinn, lagði ríkið til gífurlegar fjárhæðir til að bjarga sumum meðan aðrir voru látnir rúlla. 

Í aðdraganda hrunsins voru íbúðalánasjóðirnir, bandarísku, búnir að dæla út milljörðum dollara sem vitað var að fólk myndi aldrei geta borgað til baka.  Íbúðakaup og allskonar neysla var fjármögnuð með ódýrum lánum, en þó langt fram yfir greiðslugetu lánþega.

Ég hef farið nú í tvígang með stuttu millibili til Bandaríkjanna og notaði tækifærið til að versla á mig föt og fleira.  Ekkert af því sem ég verslaði var framleitt í USA allt var það framleitt í Kína, Bangladess, Pakistan, Gvatemala eða El-Salvador.

Atvinnuleysi í Bandaríkjunum er mun meira en opinberar tölur gefa til kynna.  Þeir einir sem eru enn innan tímaramma þess að geta skráð sig atvinnulausa eru taldir, fjöldinn allur sem hefur gefist upp á að bíða í röðum til að skrá sig eða finnst það of niðurlægjandi auk ýmissa annarra orsaka gerir það að verkum að mjög stór hluti atvinnulausra er ekki skráður sem slíkur.  Ef hins vegar  tölur um atvinnuþátttöku eru skoðaðar þá kemur í ljós að aðeins rúm 60% eru taldir vera á vinnumarkaði af þeim sem ætla mætti að væru í hópi þeirra sem teljast gæti til vinnandi fólks.  Þó má gera ráð fyrir því að eðlilegar orsakir geta verið að slík þátttaka sé ekki 100%, en 80-85% er nokkuð sem gæti talist eðlilegt ef borið er saman við önnur lönd.

Millistéttin í Bandaríkjunum hefur orðið hvað verst úti, en það er einmitt sú stétt sem hefur greitt langsamlegasta mest til ríkisins í formi skatta.  Nú er millistéttin á hraðri leið með að þurrkast út.  Eykur það enn á vanda Bandaríska ríkisins.  Á sama tíma lokar hver stórmarkaðurinn á fætur öðrum.  Veglegar byggingar sem áður hýstu fjölda verslana og stórmarkaði eru nú nánast tómar.  Það var stórundarlegt að fara í gegnum eina slíka verslunarmiðstöð um jólaleitið í fyrra.  Það var ekkert sem minnti á jólin.  Sérkennilegt var að sjá menn, nokkuð vel klædda, standa með lítil ílát, vandræðalega betlandi fyrir matarbita.

Eitt stærsta vandamál Bandaríkjanna er skuldastaða ríkisins.  Skuldir alríkissjóðs er talinn vera um eða yfir 17,5 trilljónir dollara, þ.e. 17.500.000.000.000,  heimilisskuldir (almennings) rúmar 16 trilljónir,  húsnæðisskuldir  um 13,4 trilljónir og svo mætti lengi telja.  En áætlaðar heildar skuldir pr. skattgreiðanda eru taldar um 140.000 dollara eða yfir 16 milljónir króna.  Á hvern borgara eru skuldir um 55.000 dollara eða sem nemur nærri 6,5 milljónum króna.

Obama í sinni stjórnartíð hefur meira en tvöfaldað skuldir ríkisins, þrátt fyrir að draga verulega úr útgjöldum til hersins.  

Bandaríkin eru því miður á vonarvöl, líkt og ESB. 

Það sem hefur haldið þeim gangandi undanfarin ár er gríðarleg prentun peninga.  Seðlabanki Bandaríkjanna hefur dælt sem svarar yfir 80-85 milljörðum dollara í hagkerfið á mánuði hverjum nú um nokkurra ára skeið, en nú er Bandaríska ríkið ásamt Seðlabankanum (sem er ekki í eigu ríkisins, eins og flestir halda) að komast í þrot með aðgerðir til að bjarga málum.  Ef Seðlabankinn tæki upp á því, eins og margir eiga von á, að hækka vexti, s.s. um 0,10 prósentustig, þá getur ríkið ekki staðið undir slíkum vaxtagreiðslum, en í dag eru vextirnir 0%.

Ótti minn er sá að fjármálakerfið hrynji á næstu misserum.  Spurningin er hvort það verði fjármálakerfi Bandaríkjanna eða ESB sem fer fyrst.  Hvort heldur verður á undan þá mun það draga hitt á eftir sér og þar með fjármálakerfi allrar heimsbyggðarinnar.  Þá mun ekki skipta máli hverjir verða við stjórnvöl á Íslandi, enginn mun geta spornað við einu allsherjar hruni.

 


mbl.is Hungur í ríkasta landi heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli vinir "Palestínu" viti þetta?????

Í frétt á mbl.is stendur ritað:

"For­seti Palestínu, Mahmud Abbas, sakaði í gær Ham­as-sam­tök­in um að bera ábyrgð á því að átök­in við Ísra­els­menn á Gaza-strönd­inni dróg­ust á lang­inn. Eng­in þörf hafi verið á því en það hafi hins veg­ar kostað hundruð Palestínu­manna lífið."

Hvað ætli vinir "Palestínu" segi nú um þessi ummæli Mahmud Abbas forseta "Palestínu"?  Ætli hann sé orðinn vinur Ísraels fyrst hann lætur svona lagað út úr sér?  Ætli það?  Málið er að hann veit sem er, Hamas vildi ekki frið.  Það var ekki fyrr en þeim var nauðugur einn kostur, það var að hætta að berjast, þeir voru komnir í öngstræti.  Enda settu þeir engin skilyrði nú fyrir vopnahléi.

 


mbl.is Vísaði ábyrgðinni á Hamas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Palestínumenn bjarga Ísraelskri fjölskyldu úr klóm hryðjuverkamanna

Ísraelsk fjölskylda er varð fyrir árás hryðjuverkamanna, er þakklát Palestínumönnum er kom þeim til bjargar, en fjölskyldufaðirinn fékk alvarlega höfuðáverka.

Sjá grein úr BREAKING ISRAEL NEWS hér fyrir neðan.

Jewish Family Rescued by Palestinians during Terror Attack


“Behold now, there is in this city a man of God, and he is an honorable man…perhaps he can show us our way, the way in which we should go.” (1 Samuel 9:6)

A Jewish couple, Yedaya and Hadassah Sharchaton, together with their baby daughter, were driving from Jerusalem to their home in Yatir, a town south of Hebron on Sunday morning shortly after midnight.

While driving through the Arab village of Beit Umar in Judea they came under attack by Palestinian terrorists from the village. The terrorists began hurling rocks at them, in an attempt to kill the passengers and derail the car. The Sharchaton’s were surprised when other Palestinian residents of the village came to their aid.

One of the rocks, the size of a melon, broke through the windshield and hit Yedaya in the face as he drove. He lost control of the car that had veered sideways and hit the safety barrier. The car proceeded to flip over and land in a ditch on the side of the road.

Palestinian passerby’s came to their aid.

In an interview with Ynet, Hadassah recounted the frightful memories of the attack: “We came home from spending Shabbat with Yedaya’s parents, when all of a sudden I heard a loud boom, and we were hit with shards of glass. The car flipped over. I was screaming like a madwoman until we landed on the roof, and then it became quiet. Nitzan (our daughter) was crying. I asked Yedaya if he was okay, but he was confused and wasn’t making sense.”

Palestinians who came to their aid reassured her that they were there to help. Hadassah asked them to help the baby first, and following her instructions they were able to extricate Nitzan in a way that would prevent further harm.

“I kept talking to Yedaya to keep him awake, while in the meantime more Palestinians kept coming over to help us. One of them held Nitzan and seemed pretty happy to do so. I was able to tell who were the people who wanted to help us from those who were looking to harm us. These people were trying to help us,” said Hadassah

A short time later an IDF patrol arrived at the scene and waited with the family until Magen David Adom was able to evacuate Yedaya to Ein Kerem hospital in Jerusalem, where it was discovered that he had suffered a fractured skull in several places as well as brain hemorrhaging.

Yedaya was put on a respirator at the hospital and anesthetized. He is expected to undergo a long and difficult process of rehabilitation.

Yedaya’s father who arrived at the hospital later on, claimed that the act was no less than attempted murder, and that a miracle occurred to save his son. Sometimes miracles are simply people helping others in the right time and place.

 


Óvenjulegir dauðakippir látinna Hamasliða sem verið er að undirbúa undir greftrun

"Dauðir" Hamasliðar gátu ómögulega legið kyrrir meðan var að mynda þá fyrir áróðursstríðið við Ísrael, en verið var að undirbúa þá undir greftrun, eða hvað?.  Sjá myndband.

 

Gaza “Corpses” Caught…Moving? (VIDEO)

 

 

 

“The getting of treasures by a lying tongue is a fleeting vapor and a snare of death.” (Proverbs 21:6)

"Fjársjóðir, sem aflað er með lygatungu,eru sem þjótandi vindblær, snörur dauðans".   (Orðskviðir 21:6)

 

While the latest conflict between Hamas and Israel is filled with violence, a second war is being waged by Hamas right under your nose. This war is being broadcasted all across the world, 24 hours a day, 7 days a week.

Hamas is waging a major propaganda war against the Jewish state, having no reservations about staging massacres that they then blame on Israel, inflating their death toll numbers, and calling on the world for peace when the terror groups own leaders vow publicly that they will never make peace with the “Zionist enemy.”

In what can only be described as an oops moment, corpses in Gaza, who had supposedly been killed in an IAF airstrike, are caught on camera moving. Those under the burial shrouds are clearly seen moving when they think that the cameras are not trained on them. It seems that dead people were not invited to the funeral.

It seems that Hamas will stoop to some very low points to garner international sympathy.


Íbúar Gaza eru búnir að fá sig fullsadda af Hamas.

Óbreyttir borgarar á Gaza sem voga sér að gagnrýna Hamas eru umsvifalaust drepnir og þar með skilaboðum komið áfram til annarra, "ekki gagnrýna Hamas".  Ef þú vogar þér að gagnrýna Hamas ertu talinn hliðhollur Ísrael.  En staðreyndin er sú að óbreyttir borgarar Gaza eru búnir að fá sig fullsadda af yfirgangi Hamas og að þeir skuli ítrekað leggja þá í stórhættu með aðgerðum sínum.

 


mbl.is Hamas tók 18 af lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vestræn stjórnvöld sýna hrottaskap íslamista tómlæti

Á meðan Bandarísk stjórnvöld og önnur vestræn ríki, keppast við að þrýsta á Ísraelsk stjórnvöld að láta Hamas-hryðjuverkasamtökin í friði og vilja koma í veg fyrir að Ísraelar losi íbúa Gaza við þá ógn sem Hamas er þeim, þá sýna þau hið mesta tómlæti meðan miljónir manna eru á vergangi vegna grimmdarverka íslamskra skæruliða og tugir þúsunda eru drepnir af þeirra völdum.

Fjölmiðlar, stjórnmálamenn og aðrir sjálfskipaðir talsmenn "réttlætis" hrópa ókvæðisorðum að Ísrael og væna þá um þjóðarmorð á meðan þeir láta óátalið þau grimmdarverk sem framin eru af ISIS í Írak og Sýrlandi.  Þar eru menn krossfestir, konur skornar á háls, börn hálshöggin og konum og stúlkum nauðgað og þær hnepptar í þrældóm.

Já, ólíklegt er að flóttafólki sem er innlyksa á Sinjar-fjalli verði hjálpað.  Ég gef lítið fyrir þær skýringar að umrætt flóttafólk sé færra en áður var talið og að staða þeirra sé betri en talin var.

Sannleikurinn er sá að Obama sem sjálfur er múslími og stuðningsmaður Bræðralags múslíma hefur ekki sýnt mikinn áhuga á að koma fólki því til aðstoðar sem ISIS hefur verið að ofsækja.  Loftárásir þeirra við Sinjar-fjall hafa verið fálmkenndar og lítil sem engin alvara á bak við þær, annað en að sýnast fyrir almenningi á vesturlöndum.

Obama státaði sig af því í kosningabaráttunni 2012 að hafa lokið stríðinu í Írak og kallað Bandaríska herliðið heim.  Nú segir hann að það hafi ekki verið hans ákvörðun að kalla liðið heim, hann notar það sem afsökun fyrir því að vilja ekki grípa inní ástandið sem nú hefur myndast í Írak.  

Það versta er að önnur vestræn stjórnvöld eru máttlaus gagnvart Obama, jafnvel þó svo hann sé vitavonlaus stjórnmálamaður.  Það virðist enginn hafa kjark til að koma miljónum flóttamanna til aðstoðar gegn yfirgangi ISIS og öðrum íslömskum hryðjuverkasamtökum.

Ef ISIS tekst ætlunarverk sitt í Írak, Sýrlandi og öðrum nágrannalöndu þessara ríkja, munu þau snúa sér að vesturlöndum.  ISIS hefur þegar gefið út þá yfirlýsingu að þau muni herja á Bandaríkin og eru nú þegar margir íslamistar þar vestra á þeirra bandi.  Stjórnvöld í Evrópu eru þegar farin að óttast afleiðingar þess að margir íslamistar frá Evrópu sem farið hafa til að taka þátt í hryllingi ISIS muni snúa aftur heim í þeim tilgangi að fremja hryðjuverk í Evrópu.

Er ekki kominn tími til að lýsa yfir hryllingi og fordæma hrottaskap ISIS og annarra íslamista í mið- austur löndum? 

Ég bið og vona að íslensk stjórnvöld verði okkur ekki til minnkunar og fylgi Obama eftir í blindni, hvort heldur er í málefnum mið- austur landa, Úkraínu eða annarsstaðar í heiminum.

 


mbl.is Ólíklegt að fólkinu verði bjargað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Staðgöngumóðir"???

Ekki verður séð fyrir endann á því böli sem "staðgöngumæðrun" mun hafa í för með sér.  Menn hafa ekki hugsað þá hugsun til enda, hvaða afleiðingar sá gerningur á eftir að valda, þeim harmleik sem fólk á eftir að fara í gegnum þegar fram líða stundir.

 


mbl.is „Þau fá hann aldrei“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísraelski herinn hefur sett upp sjúkraskýli við landamærin að Gasa til að hjúkra særðum "Palestínumönnum".

Það vill nú svo til að það voru Hamas samtökin, hryðjuverkasamtök, sem höfnuðu alfarið friðarumleitunum og vopnahléi sem Egyptar lögðu til fyrir nokkrum dögum síðan, þrátt fyrir að Ísraelar lögðu niður vopn í sex klukkustundir, þá héldu hryðjuverkamennirnir áfram að herja á Ísrael.  Ísraelar hafa síðan gert einhliða vopnahlé til þess að hægt væri að sinna særðum á Gaza, ekki datt Hamas í hug að nýta það hlé til góðs.

Ísraelski herinn hefur sett upp sjúkraskýli við landamærin að Gaza og þar sinna þeir særðum "Palestínumönnum". 

Ísraelsmenn vilja ekki herja á óbreytta borgara á Gaza, en þeim er nauðugur einn kostur og það er að verja borgara Ísraels gegn hryðjuverkum Hamas, sem öllu ræður á Gaza. 

Á vesturlöndum er það viðurkennt að Hamas eru hryðjuverkasamtök, en samt sem áður taka íslenskir stjórnmálamenn eins og Árni Páll Árnason o.fl. sér stöðu með aðgerðum hryðjuverkasamtaka eins og Hamas og annarra íslamista á Gaza.  Gungurnar á Gaza, þeir sem fela sig á bak við konur og börn ná athygli stjórnmálamanna á Íslandi!!!!  Það þykir mér afar athyglisvert.

Ef Ísraelum væri alveg sama um óbreytta borgara á Gaza, væru þeir ekki að hlúa að þeim og setja upp sjúkraskýli til að annast þá.

Sæjuð þið fyrir ykkur Hamas sinna særðum Gyðingum???  Ætli það.

Jesaja spámaður er með orð til þeirra sem upphefja ranglætið á kostnað réttarins.   Í 5.kafla versi 20 og 21 spádómsbókar Jesaja segir eftirfarandi:

20Vei þeim, sem kalla hið illa gott og hið góða illt, sem gjöra myrkur að ljósi og ljós að myrkri, sem gjöra beiskt að sætu og sætt að beisku.  

21Vei þeim, sem vitrir eru í augum sjálfra sín og hyggnir að eigin áliti.

Ísraelar hafa ekki hafnað rétti þeirra sem byggja Gaza, en þeir sem öllu ráða á Gaza, Hamas, hafa gert borgurum þess svæðis illmögulegt að lifa við góðan kost.

Árið 2007, þegar Ísrael yfirgaf Gaza og lét "Palestínumönnum" einum eftir svæðið, var fyrsta verk Hamas að eyðileggja allt það sem Gyðingar höfðu byggt upp á svæðinu.  Gróðurhús, akrar, íbúðarhús og annað slíkt er þeir létu eftir sig og vonuðust til að "Palestínumenn" gætu nýtt sér til framdráttar.  Nei, Hamas kaus fremur að lifa á ölmusu ESB og USA og halda óbreyttum borgurum í gíslingu.

Almenningur á Gaza lifir við fátækt, en forustumenn Hamas og aðrir íslamistar hafa það gott á Gaza.

Ég held að íslensk stjórnvöld ættu að standa með Ísrael og hvetja þá til dáða, að losa Gaza við hryðjuverkamenn, svo borgarar Gazasvæðisins geti sett sér nýja stjórn sem hefði það að markmiði að byggja upp svæðið svo almenningur geti lifað við mannsæmandi kjör.

Ísraelar hafa sýnt það og sannað að þeir eru tilbúnir að hjálpa til við uppbyggingu og heitasta ósk Ísraelsríkis er að lifa í sátt og samlindi við nágranna sína.

Að lokum.  Flatarmál Ísraels er langt undir 1% af samanlögðu flatarmáli Mið-Austurlanda.  Ísrael er innan við 21.000 km2 að flatarmáli, rétt innan við fimmtungur af stærð Íslands.  Ísland er 103.000 km2 að stærð.  Í Ísrael búa um 8.000.000 -átta milljónir- manna, þar af eru yfir 1.500.000 arabar -"Palestínumenn"- sem kjósa heldur að búa undir Ísraelskri stjórn en "Palestínskri".  Það eitt segir sína sögu.  Í Ísraelska hernum eru ekki eingöngu Gyðingar heldur er fjöldi araba þar einnig.  Menn og konur sem taka þátt í aðgerðum Ísraels til að verja land sitt, Ísrael, gegn yfirgangi Hamas og annarra íslamista.

 

 


mbl.is Samfylkingin fordæmir aðgerðir Ísraelsstjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 167488

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband