Færsluflokkur: Bloggar
30.1.2015 | 20:30
Þekkir 25 hálfsystkini sonarins
Þessi þriggja daga gamla frétt er lýsandi dæmi um handvömm og fljótfærni stjórnmálamanna. Málið var ekki hugsað til enda, frekar en staðgöngumæðrun. Við þurfum fólk á þing sem hugsar um meira en eigin vinsældir.
![]() |
Þekkir 24 hálfsystkini sonarins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2015 | 09:47
Fötluðum konum sagt upp hjá Strætó
Er þetta í boði jafnaðarmanna og velferðar?
Eitt alshverjar klúður að færa "þjónustuna" yfir á Strætó.
![]() |
Fötluðum konum sagt upp hjá Strætó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.1.2015 | 14:37
Það sem Katrín Jakobsdóttir ljáði ekki máls á þegar hún var í ríkisstjórn, krefst hún nú af núverandi ríkisstjórn.
Katrín Jakobsdóttir vill þjóðaratkvæðagreiðslu um afdrif ESB-umsóknar Íslands. Þessi sama Katrín Jakobsdóttir vildi ekki þjóðaratkvæðagreiðslu þegar hún var í þeirri stöðu að geta ráðið einhverju til um það, þegar kallað var eftir slíkir þjóðaratkvæðagreiðslu.
Rétt er að minna Katrínu Jakobsdóttur á að þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram í apríl 2013 þar sem flokki hennar var hafnað af kjósendum vegna svika og getuleysis í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
Að ætlast til að núverandi ríkisstjórn geri eitthvað sem Vinstri grænir treystu sér ekki til að gera er kaldhæðni. Ég held að VG ættu að láta sem minnst fara fyrir sér þegar kemur að umræðunni um að afturkalla aðildarumsókn okkar að ESB.
![]() |
Vilja enn þjóðaratkvæði um aðildarumsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.12.2014 | 16:01
Frumvarp um náttúrupassa í anda vinstriflokkanna
Ég hefði trúað vinstriflokkunum, Vinstri grænum og Samfylkingu, til þess að koma fram með frumvarp í líkingu við frumvarp Ragnheiðar Elínar um náttúrupassa. Ég tel að þetta frumvarp sé ekki í anda Sjálfstæðisstefnunnar.
Ég er hræddur um að þeir fjármunir sem innheimtast með þessu móti munu skila sér illa til þeirra sem á þeim þurfa að halda, til uppbyggingar, viðhalds og öryggisgæslu á viðkvæmum náttúruminjum. Það væri nær að fólk væri rukkað fyrir aðgang á þessum svæðum s.s. við Gullfoss, Geysi og öðrum vinsælum ferðamannastöðum. Ég teldi ekki eftir mér að borga 500 til 1000 krónur fyrir aðgang að náttúruperlum okkar og ég er viss um að útlendingar sem vilja sækja Ísland heim myndu ekki láta það stoppa sig, það sannar aðsókn í Bláa lónið sem fær að rukka fyrir aðgang að lóninu og er það ekki ódýrt.
Ég óttast að yfirbygging og allur kostnaður í kringum innheimtu og ráðstöfun þeirra fjármuna sem náttúrupassinn á að skila verði of mikill og of stór hluti þeirrar innheimtu muni sitja fastur í ríkiskassanum.
Ég mótmæli frumvarpi Ragnheiðar Elínar og hvet Alþingi að fella þetta frumvarp.
Frumvarpið um náttúrupassa er í anda vinstriflokkanna og ætti ekki að bendla við Sjálfstæðisflokkinn.
![]() |
Framsókn með miklar efasemdir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.12.2014 | 15:40
Er Pútín einn um að vara við því sem í vændum er?
Það er einkar athyglisvert að það skuli vera Vladímir Pútín forseti Rússlands sem varar við erfiðum tímum. Pútín í ræðu sinni á Rússneska þinginu varar landa sína við erfiðum tímum, en margir með réttu eða röngu vilja meina að hann eigi sök á þeirri stöðu sem Rússar eru í. Það sem veldur mér hinsvegar áhyggjum er sú þögn vestrænna stjórnvalda þegar kemur að framtíð þeirra þjóða sem þau eru fulltrúar fyrir.
Loftbólan sem hefur haldið dollara, evru og fjármálamörkuðum gangandi frá síðasta hruni er að því komin að springa og enginn segir neitt, allir láta líta svo út að allt sé í stakasta lagi, en það er það því miður ekki.
Næsta hrun, sem að öllum líkindum verður næsta haust, ef ekki fyrr, verður mun alvarlegra en hrunið 2008. Hrunið sem varð 2008 og afleiðingar þess mun verða barnaleikur í samanburði við það sem í vændum er.
Skuldir Bandaríska ríkisins er talið vera meira en 17,5 trilljónir dollara, skrifast: 17.500.000.000.000, sem þýðir að skuld alríkisins á hvert mannsbarn nemi um 54.000 USD eða um 6.700.000 ISK. Þá eru ótaldar almennar skuldir heimilanna sem taldar eru vera rúmar 16 trilljónir dollara og húsnæðislánin sem eru talin vera um 13,5 trilljónir, auk þess eru krítarkorta skuldir yfir 800 milljarða.
Hjá þjóð þar sem um 60% íbúa er á vinnumarkaði, þar af stór hluti, nokkrir tugir prósenta, í hlutastarfi, þá er ógerningur fyrir þá að standa undir þessum skuldum. Á sama tíma heldur ríkisstjórnin áfram að taka lán á kostnað íbúanna og leggja óbærar kvaðir á komandi kynslóðir.
Í Brussel er gífurlegur blekkingarleikur í gangi, þar sem þeir er hafa ofurlaun og borga litla ef nokkra skatta, láta líta svo út sem allt sé í stakasta lagi. Á meðan hafa þolþröskuldar heimila víða í Evrópu verið yfirstignir og má með undrun hrósa almenningi fyrir þá þolinmæði sem þeir hafa sýnt stjórnvöldum. En í Grikklandi og á Spáni er skráð atvinnuleysi vel yfir 25% og vel yfir 50% meðal ungs fólks. Frakkland sem hefur verið með öflugustu þjóðum á meginlandinu er nú á hraðri niðurleið.
Verðbréfamarkaðirnir hafa stigið hratt undanfarna mánuði, að frátöldum nokkrum smá bakslögum, eru á sömu leið og þeir voru í aðdraganda hrunsins 2008. Þeir eru ótrúlega fáir sem sjá rauðu ljósin blikka og eru að reyna að aðvara fólk.
Við Íslendingar erum í betri stöðu en flestar nágrannaþjóðir okkar, en við munum ekki fara varhluta af komandi heimskreppu.
Ég bið góðan Guð að hjálpa okkur þegar það gerist, því manna hjálp og manna úrlausnir verða víðs fjarri. Eina leið mannsins verður Drottin, trúin og samfélag okkar við Hann.
![]() |
Pútín varar við erfiðum tímum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2014 | 16:14
Orð björgunarsveitarmanns í tíma töluð
Björgunarsveitarmenn leggja mikið á sig, fórna tíma og fjármunum og leggja líf og limi að veði við að bjarga dauðum hlutum.
Björgunarsveitarmenn eiga heiður skilinn fyrir óeigingjarnt starf, þeir hafa oft bjargað lífi og heilsu fólks, en því miður ekki fengið það þakklæti sem þeir eiga skilið, oft á tíðum.
Ég tek undir með Árna Tryggvasyni, björgunarsveitarmanni, sem telur að of langt sé gengið í að leggja líf björgunarsveitarmanna í hættu við að bjarga forgengilegum hlutum. Líf björgunarsveitarmanna er meira virði en dauðir hlutir og ég tala nú ekki um að hugsað sé til ástvina sem bíða heima og fá kannski dag einn voveiflegar fréttir af ástvininum sem var að reyna að bjarga einhverju sem hefði mátt vera búið að koma í veg fyrir að yrði fyrir tjóni.
Sjá viðtengda frétt.
![]() |
Mannslíf minna virði en húshlutar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.11.2014 | 13:15
Helgi Magnús ég biðst fyrirgefningar
Ég er einn þeirra sem ásakaði ákæruvaldið um að ganga annarlegra erinda á lekamálinu.
Ég hafði rangt fyrir mér og biðst því fyrirgefningar á þeim orðum sem ég hef látið falla um ákæruvaldið.
![]() |
Gagnrýnir umfjöllun um ákæruvaldið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.11.2014 | 14:19
Óígrundað mál saksóknara á hendur Gísla Frey Valdórssyni
Er það virkilega svo að saksóknari hafi farið fram með málsókn á hendur Gísla Frey Valdórssyni án þess að hafa ígrunda hvað í málshöfðuninni fælist?????
Er saksóknari ef til vill bara að fullnægja einhverjum hefndarþorsta andstæðinga Hönnu Birnu Kristjánsdóttur með því að höfða mál á hendur Gísla Frey????? eða var það hróp Gulu pressunnar sem leiddi til þess að Gísli Freyr var ákærður????
Það virðist sem svo að þetta mál ætli að flækjast fyrir ákæruvaldinu, eða hvað???
![]() |
Aðalmeðferð í lekamálinu frestað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hér er nokkuð sem allir sem eru gegn fóstureyðingum og eins allir sem eru með fóstureyðingum ættu að hlusta á með bæði eyrun opin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2014 | 15:45
Fyrst verði kirkjubygging og trúboð leyft í Saudí Arabíu
Ég er 100% fylgjandi því að kristnar kirkjur fái að byggja kirkjubyggingar í Saudí Arabíu og fleiri múslímaríkjum og stunda þar boðun trúar á lifandi Guð, Jesú Krist frelsara okkar syndugra manna.
Þá fyrst verði sá möguleiki skoðaður hvort byggja megi mosku hér á landi.
![]() |
42,3% andvíg byggingu mosku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
flinston
-
baldvinj
-
bergthorolason
-
biggilofts
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
gattin
-
contact
-
einarbb
-
eeelle
-
emilkr
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gudbjorng
-
zumann
-
tilveran-i-esb
-
coke
-
gunnlauguri
-
gustafskulason
-
conspiracy
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
haddi9001
-
maeglika
-
harhar33
-
bordeyri
-
heimssyn
-
don
-
hordurvald
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
jakobk
-
johanneliasson
-
johann
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonl
-
bassinn
-
prakkarinn
-
thjodarskutan
-
kiddikef
-
krist
-
kristjan9
-
lifsrettur
-
loncexter
-
magnusg
-
marinogn
-
mofi
-
olof
-
pallvil
-
iceland
-
regu
-
undirborginni
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
duddi9
-
sjonsson
-
thruman
-
athena
-
stebbifr
-
stendors
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
viktor
-
villidenni
-
postdoc
-
thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 167487
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar