Færsluflokkur: Bloggar

Er vestrænum stjórnvöldum sama um framgang íslamskra hryðjuverkamanna?

Vestræn stjórnvöld virðast láta sér fátt um finnast allt það ofbeldi og sú grimmd sem íslamskir hryðjuverkamenn beita fólki, óbreyttum borgurum, jafnt körlum og konum og meira að segja börnum.  Loftárásir Bandaríkjamanna á ISIS í Sýrlandi og Írak hefur sennilega fellt fleiri óbreytta borgara en hryðjuverkamenn.  Vestrænum stjórnvöldum virðist vera alveg sama.

 


mbl.is Skutu fólk og brenndu lifandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það á sem sagt að þagga niður í andstæðingunum með pólitískum rétttrúnaði.

Mikill er nú titringur í sálarlífi hinsegin fólks.  Þeir hafa vaknað upp við vondan draum, þann að ekki eru allir sáttir við framferði þeirra og áróður.  Þá er farin sú leið að draga upp úr leynihólfinu hinn pólitíska rétttrúnað og nú á að hræða líftóruna úr þeim sem hafa skoðun á lífsháttum þeirra og áróðri.

Það getur ekki verið rétt eða heillvænlegt að samkynhneigðir geti fengið aðgang að skólum landsins og þar með börnunum okkar til að innræta þann lífsmáta sem ekki getur talist eðlilegur.

Að halda því fram að þeir sem hafa skoðun á samkynhneigð sem fellur þeim ekki að skapi, séu með hatursáróður í þeirra garð, er mesta firra.  Það er ekkert samasem merki á milli þess að hafa aðra skoðun og/eða jafnvel geta ekki fellt sig við ákveðin lífsmáta og þess að hata þá sem maður er ósammála.  Ég ber engan haturshug til öðruvísifólks, ég bara vorkenni þeim og bið góðan Guð að mæta þeim.  En ég læt ekki þrýsta mér til að hafa skoðun sem er mér ógeðfeld.

Pólitískur rétttrúnaður sem reynt er að þvinga upp á þjóðina á ekki rétt á sér, en því miður hefur borið á slíku ofstæki á undanförnum árum og hafa samtökin 78 tekið stóran þátt í því ofstæki.

Nú virðast þeir ætla að reyna að fá dómstólana til að taka þátt í ofstækinu með sér.  Það á sem sagt að þagga niður í andstæðingunum með pólitískum rétttrúnaði.

 


mbl.is Samtökin '78 kæra hatursfull ummæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Náttúruspjöll á ábyrgð ríkisins

Með því að meina Geysismönnum að rukka fyrir aðgang að Geysissvæðinu og með tómlæti að öðru leyti hvað þetta mikilvæga en viðkvæma svæði varðar, ber ríkisvaldið höfuð ábyrgð ef þessar perlur okkar verða lagðar í rúst.

Ekki veit ég hvaða skaða þessi svokallaði listamaður hefur valdið, en aðför hans sýnir svo ekki verði um villst að brýn nauðsyn kallar eftir aðgerðum á þessu svæði og ekki síst þörf á öflugri öryggisgæslu.

Að hleypa þessum manni úr landi án þess að hann hafi verið látinn borga háa sekt fyrir athæfi sitt er hneisa.

Náttúrupassi mun ekki hafa neitt að segja þegar kemur að verndun viðkvæmra svæða á okkar annars fallega landi.  Ferðaþjónustan mun hrynja þegar búið verður að eyðileggja okkar helstu náttúruperlur.

Við verðum ekki bara fátækari af krónum og aurum heldur þeirrar fegurðar sem við njótum í okkar nánasta umhverfi.

 


mbl.is „Ég borgaði ekki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofsóknir gegn kristnum hafa aldrei verið eins miklar og nú á okkar dögum, en við höfum lokað augunum eins og gert var á tímum Hitlers.

ISIS, Ríki íslams, fer hamförum hvar sem þeir koma.  Þeir hafa tekið upp vinnubrögð Múhameðs, þ.e. að afhöfða fólk, krossfesta og hneppa konum og börnum í ánauð, en Múhameð var þekktur fyrir þess konar vinnubrögð.  Tilgangurinn er að ógna, skelfa fólk, gera það hrætt við öfgamennina og þeim hefur tekist það mæta vel.

Fjölmargir kristnir hafa yfirgefið heimili sín og eru á flótta leitandi að samastað þar sem þeir geta fundið skjól, en það reynist erfitt.  Ekki eru það þó eingöngu kristnir sem þurfa að líða heldur ýmsir aðrir hópar.

Það er þó deginum ljósara að ofsóknir gegn kristnum hafa aldrei verið eins miklar eins og það sem við sjáum í dag og er þar ekki einvörðungu við ISIS að saka, heldur víðast hvar í hinum múslímska heimi og reyndar víðar, eru kristnir ofsóttir og að þeim þrengt. 

Fjögur lítil börn í Sýrlandi stóðu frammi fyrir böðlum sínum og þeim boðið að snúa sér til íslam ellegar myndu þau deyja.  Svar þeirra var einfalt, þau gætu ekki yfirgefið Jesú, Hann væri besti vinur þeirra.  Augnabliki síðar voru þau öll höfðinu styttri.

Þessir hlutir eru að gerast án þess að hinn vestræni heimur kippi sér upp við það og lætur óátalið.  Vesturlönd og reyndar heimurinn allur horfir á og lætur sér fátt um finnast.

Síðastliðinn föstudag var haldin ráðstefna hjá Sameinuðu þjóðunum þar sem kristnir leiðtogar og leikmenn töluðu um þessa hroðalegu atburði og voru að hvetja SÞ til aðgerða til að koma þessum hundruðum milljóna einstaklinga til hjálpar.

Hér fyrir neðan má hlusta á Brititte Gabriel sem á uppvaxtarárum sínum bjó við ótta og ógn íslams og Jonathan Can sem er Messíanskur Gyðingur mjög kröftugur fræðimaður í Guðs Orði.  Hann er höfundur bókarinnar The Harbinger, en hún fjallar um viðvörun Guðs sem birtist við fall tvíburaturnanna 11.september 2001, mjög áhugaverð lesning og eins að hlusta á hann fjalla um það efni á Youtube.

 

 

mbl.is Leiðtogi Ríkis íslams særðist í loftárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íbúðalánasjóður og fasteignasöfnin

Af hverju er Íbúðalánasjóður að selja ótilgreindum fjárfestum fasteignasöfn sín og það væntanlega á niðursettu verði?  Og hver skildi vera ástæða þess að enginn má vita hverjir eru að kaupa og hvað þeir borga fyrir eignasöfnin?

Af hverju selur Íbúðalánasjóður ekki einstaklingum/fjölskyldum í neyð, fólki sem neyðist til að vera á leigumarkaði og greiðir mun hærri húsaleigu en það myndi gera af Íbúðalánasjóðsláni.  Væri ekki nær að láta þetta fólk njóta þeirra kjara sem fjárfestar eru að fá hjá sjóðnum, en þessir fjárfestar væru ekki að kaupa nema fyrir það að þeir ætla sér að græða á þessum eignum.

Fólk sem lenti illa í hruninu og er á leigumarkaði vegna þess að lán þeirra stökkbreyttust og misstu þar af leiðandi fasteignir sínar, eru nú í vandræðum, föst í fátæktargildru, það er fólkið sem ætti öllu heldur að njóta kjara Íbúðalánasjóðs fremur en fjárfestar sem hugsa bara um að græða peninga.

 


mbl.is Gengur frá sölu á fasteignasafni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvílík sóun á matvælum

Að henda matvælum hundruðum milljóna króna virði er algert glapræði.  Það hlýtur að vera hægt að stýra framleiðslunni betur og mætti þar af leiðandi lækka vöruverð, því að í verði matvæla sem við erum að kaupa út úr búð er augljóslega falinn kostnaður við að farga þeim matvælum sem ekki seljast.

 


mbl.is Framleiða mat til förgunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Dagur B. að átta sig á því að heimila byggingu mosku og þvað við þjóðbraut er ekki góðs viti?

Eru tvær grímur að falla á Dag B. Eggertsson, borgarstjóra?  Er hann loks að átta sig á því að bygging mosku og það við þjóðbraut kann að valda erfiðleikum þegar fram í sækir?

Yfirvöld ættu að taka upp á því að hugsa málin til enda í upphafi, ekki þegar þeir eru að komast í klandur með það sem þeir eru búnir að afreiða frá sér.  Má þar t.d. nefna flugvallarmálið, en það er gott dæmi um óúthugsaðar afleiðingar ákvarðanna borgarstjórnar.  Eins má nefna margumræddan náttúrupassa iðnaðarráðherra, mál sem ekki hefur verið hugsað til enda.

 


mbl.is Mikilvægt að upplýsa moskumálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hófsömu uppreisnarmennirnir hans John Kerry

Nú eru Bandarísk stjórnvöld farin að skilgreina einhvern ótilgreindan hóp manna sem "hófsama uppreisnarmenn".  Þessa hófsömu uppreisnarmenn ætla Bandarísk stjórnvöld að þjálfa til uppreisna og ódæðisverka, væntanlega eins og þeir gerðu fyrir stórann hluta ISIS manna. 

Þetta eru hreinir snillingar, þeir John Kerry og Barak Obama, það kemst enginn í hálfkvisti við þá.  Áður en þeir vita af verða þessir hófsömu öfgamenn uppreisnarmenn komnir inn á gafl til þeirra vestur í USA til að fremja hófsama uppreisn.

 


mbl.is Ætla að þjálfa uppreisnarmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svíar heita fjármunum í hryðjuverk

Nú ætla Svíar að hjálpa Abbas að fjármagna hryðjuverk á Ísraelum.

Frá skrifstofu Abbas eru greiddar út 7 milljónir dollara mánaðarlega til hryðjuverkamanna sem hafa verið fangar í Ísrael, fyrir að drepa eða særa alvarlega Gyðinga.  Eftir því sem þeir drepa fleiri Gyðinga fá þeir því meira greitt frá "Palestínskum" yfirvöldum.  Þetta er gert með vitund og Vilja Mahmoud Abbas.

Og nú hafa Svíar ákveðið að hjálpa til við ósómann, en það á eftir að koma þeim í koll.

 

 
Kill more Jews, get more money
A stunning and heartbreaking report published over the weekend revealed that the Palestinian Authority—which receives hundreds of millions of dollars from US taxpayers—is paying convicted terrorists who have been arrested and put in prison in Israel on a sliding scale...the more Jewish people they killed or injured, the more money they get.

The government-run Ministry of Prisoners has been doling out as much as $7 million per month to prisoners and their families through this program. According to recently unsealed documents, approval on the payments is done in the office of Palestinian Authority President Mahmoud Abbas. This is an outrage, and it indicates the depth of the hatred for the Jewish people that they face on a daily basis...and it is a powerful reminder to us of the vital importance of our support for God's Chosen People right now.

mbl.is Svíar veita Palestínu fjárhagsaðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klúðrið í kringum ferðaþjónustu fatlaðra

Ferðaþjónusta fatlaðra var í þokkalega góðu lagi, þó hefði eflaust mátt laga ýmislegt eins og gengur, en að öllu jöfnu var þetta í nokkuð góðu lagi. 

Þá gerist það að stjórnmálamenn þurfa að gera sig breiða og sýna hvað í þeim býr.  Ekki er von á góðu þegar slíkt gerist og menn fyrst og fremst að hugsa um sjálfa sig fremur en fatlaða eins og í þessu tilfelli.  Vaðið er út í breytingar, breytinganna vegna, undirbúningur lítill og vinnubrögðin óvönduð.  Útkoman er eitt stórt klúður, sem ekki hefði þurft að verða hefði gípugangur pólitíkusa ekki komið til.

 


mbl.is Mál Ólafar kornið sem fyllti mælinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband