Færsluflokkur: Bloggar

Hvar eru mannréttindin margumræddu þegar kemur að Grískum borgurum?

Evrópusambandinu og öðrum lánadrottnum Grikkja er alveg sama um almenna borgara Grikklands, þeirra markmið virðist vera eitt, að svínbeygja Grísk stjórnvöld og þar með alla Grísku þjóðina.  Þeir eira engu og virðist vera alveg sama þótt valtað sé yfir almenna, saklausa borgara, fólk sem lifði í þeirri trú að allt væri í lagi þegar hlutirnir voru alls ekki í lagi.

ESB er ekki fyrir borgara Evrópusambandsins, borgararnir eru fyrir ESB, eða það virðist stjórnsýsla ESB halda.  Elítan er ekki fyrir þrælana heldur þrælarnir fyrir elítuna.

Með því að ganga of hart að Grikkjum verður þeim gert ókleift að vinna sig út úr þeirri erfiðu stöðu sem þeir eru í.  Það þíðir ekkert að segja bara að það sé gott á þá, þeir hafi komið sér í þessa stöðu. 

Allir eiga rétt á að fá annað tækifæri, það á við Grikki jafnt sem aðra, en ESB og AGS virðast ekki líta svo á.  Þeir skulu borga, sama hvað það kostar.

Þannig eru peningaöflin, AGS og ESB í hnotskurn.

Hvar eru mannréttindin margumræddu þegar kemur að Grískum borgurum?

 


mbl.is Hyggjast fresta greiðslunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kirkjan á barmi útrýmingar?

Þegar kirkjur eru uppteknari af öðru en að boða fagnaðarerindið um Jesú Krist, iðrun og fyrirgefningu synda okkar, hafa þær misst gildi sitt.  Fólk fjarlægist kirkjuna þar sem annar andi en Andi Guðs hefur komist að og villt um fyrir fólki.

Það er nefnilega þannig að ef fagnaðarerindið er tekið út úr kirkjunni hefur hún ekkert að gefa.  Hvað menn samþykkja og álikta, ef það samræmist ekki Orði Guðs, er blessun Guðs ekki til staðar.  Þá eru það bara manna verk sem verið er að rembast við og menn fara bara í hringi.

Það er kominn tími til að kirkjan sinni hlutverki sínu og boði Jesú Krist og Hann krossfestan fyrir okkar syndir og að fyrir dauða Hans og blóð er okkur fyrirgefið og vegna upprisu Hans eigum við von um eilíft líf.

Páll postuli segir í Rómverjabréfinu 3.kafla "...laun syndarinnar er dauði, en náðargjöf Guðs er eilíft líf fyrir samfélagið við Krist Jesú Drottinn vorn".

Dauði þýðir eilífur aðskilnaður frá Guði, en eilíft líf óslitið samfélag við Guð sem gefur frið, fögnuð, vellíðan, góða heilsu, laus við ótta og hörmungar. Dauðinn er allt hið gagnstæða, þar er óslitinn ótti, einmannaleiki, angist og vanlíðan vegna aðskilnaðar frá Guði og allt sem maðurinn þráir er fjarlægt og óaðgengilegt.

Jesús Kristur kom til að gefa líf, líf í fullri gnægð.

Gjöf Guðs stendur þér til boða.  Hann þráir samfélag við þig, að mæta þér og reisa þig við.  Guð elskar þig og vill þér alls hins besta.

Þegar þú varst í móður kviði sá Hann þig.  Hann elskaði þig og þráði að þér vegnaði vel og að þú mættir eignast trúna á Hann.  "...í því er hið eilífa líf fólgið að þeir þekki þig, Hinn eina sanna Guð og þann sem þú sendir Jesú Krist". Jóhannes 17.kafli.

Postulasagan 16.kafli "Trú þú á Drottinn Jesú, og þú munt verða hólpinn og heimili þitt."

 

 


mbl.is Kirkjan á barmi útrýmingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hörmungarnar í Jemen

Talið er að 1850 manns hafi farist í loftárásum Saudi-Araba á Jemen.  Líklega er sú tala enn hærri og bróðurparturinn óbreyttir borgarar, börn meðtalin.  Meira en hálf milljón manna er á flótta og yfir 700 þúsund manns er í brýnni þörf fyrir aðstoð.

Það sem vekur athygli mína er hversu hljóðlátir "vinir Palestínu" eru núna.  Það heyrist ekki múkk frá þeim.  Getur það verið vegna þess að Ísrael kemur hvergi þarna nærri?????

Já, það er dimmur dagur hjá andstæðingum Ísraels þegar þeir hafa ekki tilefni til að hatast út í þá.

 


mbl.is Rjúkandi rústir blasa við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dóminó kubbarnir eru byrjaðir að falla enn af öðrum

Nú lítur út fyrir að Úkraína muni ekki geta greitt skuldir sínar.  Það lítur út fyrir að hvert ríkið á fætur öðru muni lenda í sömu stöðu og Grikkir eru búnir að vera í og virðast ekki komast út úr.  Púertó Ríkó er eitt þeirra ríkja sem eru komin í veruleg vandræði.

Dóminó kubbarnir eru byrjaðir að falla enn af öðrum.

 


mbl.is Grípa til neyðarúrræðis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkjaforseti beitir blekkingum og lygum.

Nú þegar Obama er búinn að hervæða lögregluembætti út um öll Bandaríkin, þykist hann ætla að banna frekari afhendingu allskonar hergagna til lögregluembættanna.  En til hvers var farið út í það í upphafi að hervæða lögregluembættin???  Hver er tilgangurinn með því???  Á Obama von á uppreisn í landinu???  Hann hefur látið kaupa milljarða skotfæra, sem er margfalt það magn sem Bandaríkjaher notaði í Afganistan og Írak til samans.  Af hverju???

Þessu til viðbótar hafa verið reistar búðir sem minna einna helst á útrýmingarbúðir Nasista.  Þessar búðir eru kallaðar FEMA-camps.

 

Image result for fema camps

Image result for fema camps

Image result for fema camps

Image result for fema camps

Á Obama von á því að þurfa að eiga í stríði við Bandarísku þjóðina???

Á sama tíma og hann hefur dregið úr styrk hersins hefur hann verið að efla lögreglu og þó einkum þjóðvarðliða.

Image result for fema camps

Búðir sem bíða þess að verða notaðar.  Á næstu mynd fyrir ofan þessa er kort af Bandaríkjunum sem sýnir hvar slíkar búðir eru nú þegar til.  Þær hafa ekki enn verið teknar í notkun, en búið er að ráða fólk til starfa í þeim. 

Hvað ætli sé í gangi.

 

 

 

 


mbl.is Obama dregur úr hervæðingu lögreglunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísrael kemur slösuðum Sýrlendingum til hjálpar

Borgarastyrjöld geisar í Sýrlandi.  Hundruð þúsunda hafa látist í þessu óhugnanlega stríði og annar eins fjöldi hafa særst og sumir mjög alvarlega.  Þeir sem verða alvarlega sárir leita suður að landamærum Ísraels.  Ísraelar taka við þeim sem til þeirra leita og spyrja engra spurninga varðandi hvort þeir séu uppreisnarmenn, stjórnarhermenn, bara að þeir séu óvopnaðir.  Allir fá hjálp engum er snúið frá.  Ísraelar vinna mannúðarstarf á nágrönnum sínum, hvort heldur þeir eru Sýrlendingar eða "Palestínumenn".

Ísraelsk hjálparsveit var með þeim fyrstu til að mæta til Nepal eins og þeir gerðu í Haítí og hafa unnið þrekvirki við erfiðar aðstæður.

Þannig er Ísrael, fyrir þá sem ekki vita.

Hér fyrir neðan er myndband sem er lýsandi fyrir það mannúðarstarf sem þeir vinna gagnvar Sýrlendingum.

 


Ilmurinn af nýbökuðum vöfflum ætti að vera hvatning til að drífa í samningum

Það væri kannski ráð að láta ilminn af rjúkandi, nýbökuðum vöfflum leika um Karphúsið meðan menn eru að semja, vitandi að þeir fá ekki að bragða á þeim fyrr en búið er að skrifa undir samninga.

Ef til vill væri besta leiðin að halda mönnum við efnið, láta menn sitja við samningsborðið án þess að hleypa þeim í mat og varna þeim þess að geta farið heim að leggja sig, fyrr en samningar takast.  Á það bæði við verkalýðsforustuna og vinnuveitendur.

Ilmurinn af nýbökuðum vöfflum ætti að vera hvatning til að drífa í samningum laughing


mbl.is Vöffluilmur olli uppnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hófsamir múslímar í Noregi"!!!!

Norskur múslíma predikarinn Fahad Qureshi sýnir fram á róttækni hófsamra múslíma. Athyglisvert myndband hér fyrir neðan sem sýnir akkúrat þetta.

Norwegian Muslim preacher Fahad Qureshi shows how ‘radical’ Islamic beliefs are actually the same views of every believing Muslim – even those who consider themselves to be moderate. 

This is a remarkable video that features a large group of young people who identify as “moderate Muslims.” In response to the preacher’s questions, they clearly Muslim teachings of killings that run contrary to those of Western civilization.

The mainstream media in the US and Europe portray Muslims with such radical beliefs as being extremists. This video shows how radical beliefs seem to be the view of every Muslim.

 


Hvar eru "vinir Palestínu" núna?

Hrikalegt er hvernig farið er með fólk.  Mannvonskan er ótrúleg, hún er hreint út sagt djöfulleg.  Stjórnvöld vesturlanda sitja hjá og horfa uppá voðaverk íslamista, stjórnvalda og hryðjuverkasamtaka, unnin á saklausu fólki og virðast láta sér fátt um finnast. 

Meintar loftárásir Bandaríkjamanna og Evrópuþjóða hæfa óbreytta borgara fremur en skæruliða.  Hvar eru svokallaðir vinir "Palestínu" núna?  Nú geta þeir ekki skellt skuldinni á Ísrael þannig að þeir láta fara lítið fyrir sér.  Þó eru mun fleiri sem deyja, örkumlast og eru hrakin frá heimilum sínum út í óvissuna, en þegar Ísraelar eru að verja börn sín og fjölskyldur fyrir hryðjuverkum Hamas.

 


mbl.is Ólýsanleg grimmd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir sungu um Guðs undranáð þar til þeir voru skotnir, en þá héldu þeir áfram að lofa Guð handan þessa lífs

Átta einstaklingar sungu um Guðs undranáð frammi fyrir aftökusveit þeirra í Indónesíu og allt þar til yfir lauk.  Jesús Kristur sagði: "Ég er upprisan og lífið sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi og sá sem lifir og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja" (Jóh.11;25-26)

Það er eins og maðurinn sagði: "Þú getur drepið mig, en þú getur ekki tekið líf mitt".

Þessi atburður sem fjallað er um í viðtengdri frétt og ógeðfeldar aðferðir ISIS og annarra íslamista geta aldrei rænt lífi þeirra sem eiga lifandi trú á Drottinn Jesú, þótt þeir geti deytt líkama þeirra.  "Því að hver sem vill bjarga lífi sínu mun týna því og hver sem týnir lífi sínu mín vegna mun finna það" (Matt.16;25) sagði Jesús.

 


mbl.is Skothvellir í stað Amazing Grace
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband