Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
19.1.2012 | 12:56
Þjóðin treystir Jóhönnu ekki.
Hefði Jóhanna treyst þjóðinni hefði hún leyft henni að taka um það ákvörðun, í þjóðaratkvæðagreiðslu, hvort farið yrði í ESB umsóknar vegferðina eða ekki. Nú er komið á daginn að leynt og ljóst er verið að aðlaga regluverk og stjórnsýslu til þess að það falli að ESB kröfum áður en þjóðin fær nokkuð um það að segja hvort hún vill yfir höfuð ganga í ESB eða ekki.
Það er einnig rétt að minnast þess að sjálf Jóhanna sagði á sýnum tíma að þjóðaratkvæðagreiðsla verður ekki bindandi heldur ráðgefandi. Sem sagt, Jóhanna ætlar okkur inn í ESB hvað sem raular og tautar. Hún hefur nú þegar sýnt fram á, svo ekki verði um villst, að henni er ekki treystandi. Margir af hennar dyggustu stuðningsmönnum frá því að ríkisstjórn hennar tók við völdum hafa nú þegar yfirgefið hana og lýst yfir vonbrigðum með framgang hennar og vegna svikinna loforða, nægir þar að nefna ASÍ forustuna.
Þjóðin treystir Jóhönnu ekki.
![]() |
Ég treysti þjóðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.1.2012 | 13:42
Már óánægður með laun sín
Ef Már er svona óánægður með launin sem hann fær fyrir að vera í forsvari Seðlabanka Íslands og þar með yfirmaður peningastefnunefndar bankans, er hann þá trúverðugur fulltrúi okkar, þjóðarinnar, í stól Seðlabankastjóra?? Mér er spurn!!!!
![]() |
Már í mál við Seðlabankann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.1.2012 | 11:44
Fjöldi framboða verður í boði fyrir næstu þingkosningar
Það er nokkuð ljóst að fjöldi framboða til næstu þingkosninga eigi eftir að aukast. Ég geri ráð fyrir að ca. 15 (fimmtán) framboð verði á boðstólum fyrir þær kosningar sem fara í hönd, hvort heldur þær verði á þessu eða næsta ári.
Framboð með "óþekktum" nöfnum úr stjórnmálalífinu munu eiga mesta möguleika, svo framalega sem stefnuskrár þeirra verði skírar og höfði til almennings.
Það verður á brattann að sækja hjá gömlu flokkunum og spurning hvort sumir þeirra muni lifa af. Mér þykir nokkuð ljóst að fjórflokkurinn munu verða fyrir áfalli og Hreyfingin þurrkast út. Þá er spurningin hvort Samfylkingin og Vinstri grænir muni sameinast í þeim tilgangi að reyna að halda lífi.
![]() |
X-G leitar frambjóðenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.12.2011 | 21:56
Hverjir munu fylgja í fótspors Geirs H. Haarde ?
Ég velti því fyrir mér hverjir það verða sem ákærðir verða fyrir landsdómi þegar nýtt þing kemur saman eftir næstu kosningar
![]() |
Ákæran í höndum landsdóms |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.12.2011 | 13:13
Er krónan óvinur okkar launamanna??????
Sigurður Bessason, formaður Eflingar, segir íslensku krónuna óvin launafólks. Væri ekki rétt af verkalýðsleiðtoganum að kæra krónuna og fá lögbann á hana eða láta loka hana inni eins og hvern annan glæpamann?
Sigurður, eins og fleiri verkalýðsleiðtogar, vill sennilega taka upp Evruna, sem er í dauðateygjunum.
Mér er spurn, hvað hefur krónan gert okkur????? hvaða afstöðu hefur krónan tekið til Íslensku þjóðarinnar??? eða hvaða afstöðu hefur krónan til annarra gjaldmiðla???? hver er afstaða krónunnar til launafólks á Íslandi??????
Það mætti halda á tali ýmissa "spekinga" í gjaldeyrismálum að þeir haldi að krónan hafi sjálfstæðan vilja og sjálfstæða skoðun, að aðgerðir hennar hafi komið þjóðinni inn í kreppuna sem við höfum verið að upplifa.
Hvernig væri að Sigurður Bessason ásamt Gylfa Arnbjörnssyni tækju sig saman og færu t.d. til Grikklands og Spánar, ræddu við þarlenda verkalýðsleiðtoga og spyrðu þá hvernig Evran hafi farið að því að bjarga þeim og hvernig Evran hefur hjálpað þeim út úr gjaldmiðilskrísunni og frá vonlausum stjórnmála- og bankamönnum. Það yrði fróðlegt að vita hvað kæmi út úr slíkum leiðangri. Ég er viss um að það yrði mikil hjálp fyrir almennt launafólk á Íslandi að sjá hvernig Evran hefur bjargað atvinnulífinu í þessum löngum.
![]() |
Krónan óvinur launafólks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2011 | 09:34
Þarf ekki að senda hann í viðgerð????
Ef stóll Jóns er orðinn valtur, þarf þá ekki að láta laga hann??
![]() |
Ráðherrastóll Jóns er valtur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.11.2011 | 16:03
Já Ögmundur, gott hjá þér
Það verður seint sagt að ég aðhyllist stefnu Vinstri grænna, en ég er ánægður með þessa ákvörðun Ögmundar.
Hverjum heilvita manni dytti í hug að Íslendingur fengi að kaupa landskika í Kína? Og að halda því fram að Ögmundur væri að koma í veg fyrir fjárfestingar hér á landi með þessari ákvörðun vísa ég til baka til Sigmundar Ernis, en hann og hans flokkur ásamt Vinstri grænum hafa stöðvað öll framfaramál í landinu og þar með fjárfestingar og atvinnuuppbyggingu.
Hefur það heyrst fyrr að við ættum ekki að leggja allt okkar traust á einn aðila? og ég tala nú ekki um einn einstakling?
Nei, þessi ákvörðun er hárrétt, Ísland á að vera fyrir Íslendinga og það á að gera Íslendingum kleift að stunda þá atvinnustarfsemi á Íslandi sem er þeim og þjóðinni allri til framdráttar.
Jú við þurfum fjárfesta til landsins, en mér lýst ekki á að fá Kínverska kommúnistaflokkinn inn á gafl hjá okkur.
![]() |
Brjáluð ákvörðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2011 | 09:30
Elítan fyrst. Gamalmenni og öryrkjar mega sjá um sig sjálfir.
Hefði ekki verið nær að láta þetta fé renna til lagfæringar á SEM-húsi mænuskaðaðra og/eða til Öryrkjabandalagsins.
Húsnæði mænuskaðaðra við Sléttuveg er afar illa farið, en ríkið og borg hafa ekki lagt krónu í það húsnæði.
Á virkilega að halda elítunni uppi á kostnað öryrkja og ellilífeyrisþega.
Svona er "Norræna velferðarstjórnin" í hnotskurn.
![]() |
Harpa botnlaus hít |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.11.2011 | 16:48
Ef ályktun Marðar Árnasonar þingmanns er rétt,
þá er Sjálfstæðisflokkurinn á sama báti og Samfylkingin, þar sem EKKERT ræður ríkjum.
Eftirsóknarverð staða, ekki satt?
![]() |
Herra Ekkert berst við frú Ekkert |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Nýjustu færslur
- Það er nú meira bullið sem kemur frá Morgunblaðinu . . .
- Hamas og palestínumenn (islamistar) eru hræðilegir morðingjar.
- Hvaða íslensk fréttastofa hefur fjallað um þetta mál ?????
- Hann vill til Palestínu, sendum hann þangað og það hið fyrsta.
- Það kemur ekkert gott frá þessari konu, hún ætti ekki að vera...
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
flinston
-
baldvinj
-
bergthorolason
-
biggilofts
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
gattin
-
contact
-
einarbb
-
eeelle
-
emilkr
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gudbjorng
-
zumann
-
tilveran-i-esb
-
coke
-
gunnlauguri
-
gustafskulason
-
conspiracy
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
haddi9001
-
maeglika
-
harhar33
-
bordeyri
-
heimssyn
-
don
-
hordurvald
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
jakobk
-
johanneliasson
-
johann
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonl
-
bassinn
-
prakkarinn
-
thjodarskutan
-
kiddikef
-
krist
-
kristjan9
-
lifsrettur
-
loncexter
-
magnusg
-
marinogn
-
mofi
-
olof
-
pallvil
-
iceland
-
regu
-
undirborginni
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
duddi9
-
sjonsson
-
thruman
-
athena
-
stebbifr
-
stendors
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
viktor
-
villidenni
-
postdoc
-
thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.10.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 169268
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Núverandi stjórnvöld hafa sett fordæmið með ákæru sinni á hendur Geirs H. Haarde, með þessu fordæmi er lagður grunnur að því sem gæti til langs tíma litið orðið hið versta mál, ekki aðeins fyrir þá sem nú sitja í ríkisstjórn, heldur fyrir ríkisstjórnir sem enn eiga eftir að líta dagsins ljós.
Þetta fordæmi er ekki til heilla fyrir þjóð okkar, sérstaklega þar sem hér er um pólitískar aðgerðir að ræða.
Það liggur í augum uppi að hér er ekki verið að ákæra mann réttlætisins vegna, heldur vegna pólitískrar óvildar. Ríkisvald sem ekki starfar í þágu réttlætis, heldur vegna persónulegra og pólitískra duttlunga, getur ekki vænst þess að tekið verði á þeim vettlinga tökum.