Færsluflokkur: Bloggar

Er eitthvert gagn af tryggingarfélögum????

Skömm er að því að tryggingarfélög skuli sí og æ reyna að koma sér undan því að sinna því sem þau hafa tekið að sér, að bæta skaða sem fólk verður fyrir þrátt fyrir að hafa innheimt há gjöld sem eiga að mæta þeim kostnaði sem til fellur. Að það þurfi ítrekað að leita til dómstóla er hreint út sagt ógeðfellt, menn látnir bíða í mörg ár eftir rétti sínum.

Það á að taka rétt þessara félaga sem svona koma fram af þeim, þau eru ekki starfi sínu vaxin.

 


mbl.is Fær 30 milljónir sjö árum síðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá uppbót, en hvað með.....?????

Vissulega er gott að geta komið til móts við þá sem hingað leita og eru sannanlega að flýja ofbeldi heimafyrir, við eigum að taka vel á móti þeim. Þá er mér hugsað til Asia Bibi hinnar Pakistönsku, er ekki rétt að bjóða henni og fjölskyldu hennar hæli hér á landi???

En aftur að uppbótum þeirra sem eru að sækja um alþjóðlega vernd hér á landi, því enn er mér hugsað og nú til öryrkja og ellilífeyrisþega sem skammtaður er skítur úr hnefa.

Flestir þeirra Íslendinga sem þiggja bætur er fólk sem er hluti af þeim sem hafa farið fyrir okkur, lagt þann grunn að velferðarþjóðfélaginu sem við byggjum og njótum í dag. Af hverju eru þessir einstaklingar látnir mæta afgangi????? af hverju er ekki hugsað vel um þetta fólk svo það geti lifað áhyggjulausu lífi?????? af hverju mega þau ekki njóta og hafa borð fyrir báru í stað þess að hafa sífelldar fjárhagsáhyggjur?????? hvar er velferðarþjóðfélagið gagnvart þeim??????????

Ég fer ekki fram á að öryrkjar og ellilífeyrisþegar fái sömu laun og ráðherrar eða þingmenn, en að þeir fái sömu krónutöluhækkun og ráðherrarnir fengu með úrskurði kjaranefndar. Ef hægt er að réttlæta launahækkanir ráðherrana þá er miklu frekar hægt að réttlæta hækkanir til okkar minnstu bræðra og systra, þau eiga það skilið. Kannski eiga ráðherrarnir eða einhver þeim nákomnir að lenda í þeirra stöðu.


mbl.is Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá uppbót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auglýsing frá Soda Stream

Í tilefni af frétt á mbl.is  Mengunin hverfur með „Soda Stream“


mbl.is Mengunin hverfur með „Soda Stream“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þórdís Kolbrún vill teygja lopann í von um að geta komið orkupakkanum í gegn síðar, svo lítið beri á.

Var Þórdís Kolbrún ráðherra ekki búin að ráðfæra sig við sérfræðinga áður en ákveðið var að leggja orkupakka 3 fyrir Alþingi í febrúar næstkomandi???? Hvaða sérfræðinga á nú að leita til???? Er bara verið að teygja málið vegna harðrar andstöðu við það og koma því svo snögglega í gegn þegar minnst varir????

Það á bara algerlega að eyða þessu frumvarpi í fæðingu, eins og Svandís vill gera við börn í móðurkviði og notast við meðgöngu rof [þ.e. á frumvarpið um orkupakkann].

Stjórnmálamenn og annað fólk sem er að þiggja mútur úr hendi ESB til að vinna að innlimun okkar í ESB þarf að svara til saka og taka út sinn dóm í réttarkerfinu, sé nokkuð "réttar"kerfi eftir í landi okkar.

Ég fullyrði að ESB hefur mokað fé í stjórnmálamenn og ýmsa aðra til að kaupa sér velvild og aðgang að íslensku þjóðinni. Þetta þarf að upplýsa og draga þá til ábyrgðar sem hlut eiga að máli, þ.e. mútuþega.


mbl.is Útilokar ekki frekari frestun orkupakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vaðlaheiðar­vega­vinnu­verk­færa­geymslu­skúr­slyklakippu­hring­ur­inn.

Ekki er nema vona að það hafi þurft háa tölu með mörgum núllum til að klára það verk sem þessi "Vaðlaheiðar­vega­vinnu­verk­færa­geymslu­skúr­slyklakippu­hring­ur­inn" tilheyrði.embarassed


mbl.is Lengsta orð íslenskunnar á ljósmynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er vont að vera afhjúpaður.

Þegar fólk er staðið að óheiðarleika og þarf að standa skil af gjörðum sínum en vill ekki játa yfirsjónir sínar og rangindi þá getur verið erfitt að halda aftur af tárunum sama hversu þjálfaður maður er í þeim efnum.

Dianne Feinstein hefur farið fyrir Demókrötum í aðförum þeirra að útnefningu Bret Kavanaugh í embætti dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna.

Forystumenn Demókrataflokksins lýstu því yfir að þeir myndu aldrei samþykkja útnefningu Trumps í embætti dómara Hæstaréttar, áður en hann opinberaði tilnefningu sína, sama hvern hann útnefndi.

Það eitt og sér er furðulegt athæfi af hálfu þeirra sem eiga að vinna af heiðarleika og sanngirni á þingi.

Gjörðir Feinsteins eru að koma henni í koll þar sem hún er ber af óheiðarleika í störfum sínum. Slíkt kemur manni alltaf í koll, fyrr eða síðar. Nú er hún að súpa seiðið af eigin gjörðum.

Það er vont að vera afhjúpaður.

Hér fyrir neðan er myndband sem sýnir Feinstein glíma við hugsanir sínar og tilfinningar á meðan koleggi hennar Chuck Schummer er að tala við fréttamenn.


Járngerðarstaðir í Grindavík

Með frétt á mbl.is undir fyrirsögninni "20 vilja stýra Grindavíkurbæ" er mynd, en undir henni segir "Frá Þor­láks­höfn. mbl.is/​RAX". Þetta er ekki allskostar rétt frekar en margt annað sem kemur frá mbl.is.

Þessi mynd er tekin á Járngerðarstöðum í Grindavík og húsið næst á myndinni, vinstramegin, er Vesturbær, en þar ólst móðir mín upp. Hún var dóttir hjónanna Tómasar Snorrasonar kennara, skólastjóra og leiðsögumanns og Jórunnar Tómasdóttur húsfreyju.

Auk móður minnar, Sigþrúðar Jórunnar, ólust systkini hennar þarna upp, þau Jón, stöðvarstjóri Pósts og síma í Keflavík, Margrét, húsfreyja í Stykkishólmi og síðan í Keflavík, Snorri, verslunarmaður í Keflavík, Tómas, lögmaður og sparisjóðsstjóri hjá Sparisjóðnum í Keflavík, Guðrún, búsett i Bandaríkjunum en nú í Kanada og Guðlaugur, bifreiðastjóri vöruflutningabifreiðar, búsettur í Keflavík.


mbl.is 20 vilja stýra Grindavíkurbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur þú stjórn á tækjum þínum eða hafa tæki þín stjórn á þér?????

Myndbandið hér fyrir neðan mun gera þig orðlausan, það mun opna augu þín og vonandi gera þig meðvitaðan um tækjanotkun þína.


Heimspressan er iðin við að fjalla um hita og hitamet. En hvað með snjó og kuldamet t.d. í Suður Afríku, snjó og kulda í British Colombia Kanada í júlíbyrjun, eða ísþykktina í norður íshafi.

Það er óhægt að segja að veðurfarið er sérkennilegt víða um heim, en er það bara að hlýna???? Ef vel er að gáð og fylgst með fréttum annarsstaðar en hjá heimspressunni kemur í ljós að óvenju miklir kuldar eru sumstaðar á sama tíma.  Sjá myndbönd hér fyrir neðan.


mbl.is Hitamet fallið víða um heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband