Færsluflokkur: Bloggar
13.6.2018 | 11:26
Þurfum við virkilega sextíu og þrjár manneskjur . . .
. . . við færibandið í Alþingishúsinu??? Ég myndi halda að tveir dygðu, annar með stimpilinn í hendi og hinn til að fletta bunkanum.
![]() |
84 frumvörp urðu að lögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.1.2018 | 21:41
Fyrrum blaðamaður sem fékk nóg af "blaðamennsku" segir frá mútum og þvingunum í störfum "blaðamanna".
Það er ekki allt sem sýnist í blaðamennskunni, svo er víst, við sjáum það á meðal íslenskra "blaðamanna".
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2017 | 19:23
Eitt af því mikilvægasta sem þú getur gert í lífinu sjálfum þér til heilla
Um áramót gerir fólk jafnan upp liðið ár og hugsar til framtíðar hvað betur megi fara, gerir sjálfum sér heit og jafnvel öðrum.
Á árinu sem er að líða koma oft upp vonbrigði, særindi og hlutir sem valda mönnum gremju og þegar litið er lengra aftur í tímann eru það brot sem fólk hefur orðið fyrir, brot sem veldur biturleika og jafnvel hatri í garð þeirra sem komið hafa illa fram við það. Slíkt fjötrar þann sem verður fyrir órétti en sjaldnast þann sem óréttinum beitir.
Hvað er til ráða? hvernig er hægt að losna við fjötra fortíðarinnar? hvernig get ég orðið frjáls?
Fyrirgefning er eitt hið mikilvægasta sem við getum gefið frá okkur í lífinu. Í Faðir vorinu, bæninni sem Jesús kenndi okkur segir: "...fyrirgef oss vorar skuldir svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum..." eða með öðrum orðum "...fyrir gef okkur [mér] í sama mæli og við [ég] fyrirgef þeim sem hafa brotið á okkur [mér]...". Það er ekki þar með verið að segja að þau brot sem við/ég verðum fyrir séu í lagi heldur er verið að gefa gjöf fyrirgefningarinnar og segja "ég fyrirgef þér það sem þú gerðir mér, ég held því ekki í gegn þér og ég ætla að sýna þér miskunn eins og mér hefur verið sýnd miskunn af Guði mínum".
Það er mikilvægt að tala út fyrirgefninguna ekki bara segja það í hljóði því það er máttur í játningunni. Við leysum ekki eingöngu þann sem hefur brotið á okkur heldur leysum við okkur sjálf. Tilfinningin kemur ekki endilega strax, en þá er um að gera að játa út "ég er búinn að fyrirgefa" þar til við finnum það innra með okkur, það getur tekið einhvern tíma en þá er mikilvægt að gera það daglega.
Hafi ég ekki verið beðinn fyrirgefningar þá fer ég ekki til viðkomandi og segi við hann/hana "ég fyrirgef þér" heldur geri ég það í einrúmi eða með trúnaðarvini og tala það út frammi fyrir Guði mínum og nefni viðkomandi á nafn ef ég veit nafn hans/hennar. Hafi ég verið beðinn fyrirgefningar en neitað viðkomandi um fyrirgefningu, þá er um að gera að fara til viðkomandi og segja "ég fyrirgef þér og vilt þú fyrirgefa mér að hafa ekki fyrirgefið þér áður". Stundum er sá sem þarf á fyrirgefningu okkar að halda ekki til staðar jafnvel látinn, þá er samt mikilvægt að fyrirgefa því fyrirgefningin er ekki eingöngu fyrir hinn brotlega heldur fyrir þann sem verður fyrir brotinu/ofbeldinu, því fyrirgefning læknar sárin sem til staðar eru og biturleikann sem er ekkert annað en krabbamein sálarinnar. Minnumst einnig þess að við erum öll brotleg á einn eða annan hátt, við höfum öll sært aðra viljandi eða óviljandi. Eins og við þráum að okkur sé fyrirgefið skulum við fyrirgefa þeim sem brotið hafa á okkur.
Fyrirgefningin er sterkasta vopn sem við eigum gegn óvini okkar Satan sem vill halda okkur í fjötrum særinda og biturleika. Í kjölfar fyrirgefningar kemur oft líkamleg lækning á krankleika sem valdið hefur fólki óþægindum jafnvel í mörg ár.
Gott er að biðja til Guðs en sú bæn þarf ekki að vera flókin, bara einföld. Hægt er að biðja þannig: "Góði Guð ég fyrirgef xxx(nafn viðkomandi sé það vitað) það sem hann/hún gerði mér (nefna brotið), ég gef honum/henni gjöf fyrirgefningarinnar og ætla ekki að halda því gegn honum/henni. Ég bið þig að blessa xxx(nafn viðkomandi sé það vitað)og veita honum/henni velgengni. Viltu hjálpa mér að losna við biturleikann og viltu fyrirgefa mér það að hafa haldið þessu (brotinu) gegn honum/henni (nefna viðkomandi). Þess bið ég í nafni sonar þíns Jesú Krists, Amen.
Óverðskulduð fyrirgefning setur brotaþolann frjálsan og ekki er óalgengt að líkamleg lækning kemur í kjölfarið, það eru til mörg dæmi um slíkt.
Eigi þetta við þig óska ég þér góðs og farsældar á vegi fyrirgefningarinnar. Mín bæn er sú að þér vegni vel. Ég hvet þig til að taka Guðs Orð, Biblíuna, þér í hendur og lesa hana þér til uppbyggingar. Sértu óvanur/-vön að lesa í Biblíunni vil ég benda þér á Guðsspjöllin t.d. Markúsarguðspjall eða Jóhannesarguðspjall.
Guð verði með þér og eigðu gott og gleðilegt nýtt ár.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2017 | 11:42
Ætlar náttúran að gera uppreisn gagn kenningum globalista???
Kaldur sjór streymir austur á bóginn frá Grænlandssundi í átt að Grímsey. Hafísmyndun er að eiga sér stað.
Á Han ánni í Suður Kóreu er ísmyndun að eiga sér stað, um mánuði fyrr en verið hefur s.l. 71 ár.
Í Queensfylki í Ástralíu er fólk að upplifa kaldasta sumar í um 100 ár.
Veit náttúran ekki að hlýnun af manna völdum á að eiga sér stað???? Ætlar hún að virkilega að fara gegn kenningum Al Gores og hans fylgifiska??????
![]() |
Kaldur sjór streymir austur á bóginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.10.2017 | 16:29
Tvískinnungur stjórnmálanna.
"...og vinna fyrir þá sem minnst mega sín í samfélaginu" segir Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar.
Hvorki Samfylkingin né aðrir flokkar hafa tekið málstað þeirra sem minnst mega sín í samfélaginu. Ófædd börn eru afgangsstærð hjá stjórnmálaflokkunum og ekki litið til þeirra sem einstaklinga eða mannvera yfir höfuð.
Það er ljótur blettur á íslensku þjóðfélagi sem vill láta kallast "velferðar" þjóðfélag að börnum er fórnað á altari félagshyggjunnar án þess að nokkur reisi hönd þeim til varnar.
Kirkjan, er hljóð, Alþingi er hljótt, heilbrigðisstéttin er hljóð, þeir sem kalla eftir réttlæti, sanngirni og heiðarleika eru hljóðir.
Þjóðfélag sem þannig fer með væntanlega borgara sína á ekkert gott skilið, dómur Guðs bíður slíkrar þjóðar.
Guð fyrirgef okkur þessa alvarlegu synd.
![]() |
Stjórnarandstaðan fundaði í morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2017 | 20:03
Brotlegir hælisleitendur
Af hverju eru brotlegir hælisleitendur ekki umsvifalaust sendir til baka þaðan sem þeir komu????? Menn eiga ekki að þurfa að velkjast í vafa um að þeir sem hingað koma og brjóta af sér t.d. með því að laumast um borð í skip á leið til Ameríku hafa ekki neinn áhuga á að vera hér. En skipafélögin sem um ræðir, í þessu tilfelli Eimskip, gætu lent í stórkostlegum vandræðum gagnvart Amerískum yfirvöldum komi laumufarþegar með þeim vestur um haf.
Þessir hælisleitendur hljóta að vera búnir að fyrirgera rétti sínum.
Það sama hlýtur að vera er varðar önnur hegningarlagabrot.
![]() |
Laumufarþegar dæmdir fyrir húsbrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.9.2017 | 14:52
Fáránlegt að þrengja að umferð á Kringlumýrarbraut einmitt á þeim tíma sem umferð er sem mest.
Það er algerlega fráleitt að fara út í þessar framkvæmdir nú á þessum tíma. Það ætti að fresta þeim þar til í júní lok á næsta ári, fyrst þeim tókst ekki að láta verða af þeim nú í sumar.
![]() |
Þetta er ekki besti tíminn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.6.2017 | 10:13
Trump og nornaveiðar
Helstu fjölmiðlar í Bandaríkjunum, MSM (Mainstream Media), Demókrataflokkurinn og nokkrir Repúblikanar hamast á Trump ásakandi hann og hans nánustu samstarfs menn um að vera í leynimakki við Rússa og að Rússar hafi ráðið úrslitum í forseta kosningunum s.l. nóvember. Þessar ásakanir eru fáránlegar enda hafa þeir ekki getað lagt nokkuð fram til sönnunar þess efnis, þrátt fyrir upphrópanir og djarfar ásakanir um það sem ekki fær staðist.
Hið raunverulega vandamál sem Bandaríkjamenn standa frammi fyrir er ekki Trump heldur Demókrataflokkurinn með Hillary Clinton og Barak Obama í broddi fylkingar. Þau geta ekki heilum á sér tekið eftir tap þeirra, nokkuð sem ekki átti að geta átt sér stað. Raunveruleikinn er sá að HRC og BHO eru gjörspillt. Með því að hamast á Trump eru þau að vonast til þess að ekkert verði úr rannsóknum á þeirra eigin gjörðum, en HRC og Clinton Foundation hafa þegið gífurlegar upphæðir úr hendi Rússa auk flestra múslímaríkja.
Það sem vekur enn frekari spurningar eru voveifleg dauðsföll allra þeirra sem taldir voru geta verið vitni um spillingardíki Clinton fjölskyldunnar, en þar er um tugi einstaklinga að ræða.
Trump hefur rétt fyrir sér þegar hann kallar ásakanirnar sem hann hefur orðið fyrir nornaveiðar. Þær aðfarir sem hann hefur orðið fyrir eru óþekktar í sögu Bandaríkjanna að einstaklingur sem kosinn hefur verið forseti á löglegan hátt fái ekki tóm til að sinna skildum sínum í friði.
Ef einhver forseti hefði átt að vera hrakinn úr embætti hefði það átt að vera Obama, en komið hefur í ljós að hann laug til um fæðingarland sitt, en lög segja að forsetaefni verði að hafa verið fæddur í Bandaríkjunum. Í ljós hefur komið að Obama var fæddur í Kenýa, fæðingarvottorð þess efnis hafa komið í ljós, auk þess var hann Innónískur ríkisborgari en ekki Bandarískur. Nemendaskýrteini í þeim skólum sem hann sótti í BNA sýna ennfremur að hann var talinn erlendur nemandi.
Þannig að ef einhverja ætti að rannsaka þá eru það Obama og Clinton fjölskyldan.
![]() |
Trump ofsóttur af vondu fólki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.6.2017 | 10:31
Er ekki kominn tími til að Kim Jong Un fái friðarverðlaun Nóbels?
Á hann það ekki jafn mikið skilið og Barack Obama? Það gæti virkað hvetjandi fyrir hann!!!
![]() |
Friðarverðlaunin pólitísk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.5.2017 | 16:03
Allir einstaklingar eiga rétt á að lifa, einnig þeir sem ekki eru fullkomlega eins og við hin.
Fólk sem fæðist með downs er fullkomlega eðlilegt fólk, fólk sem elskar, gefandi og full af lífi. Þetta eru dýrmæti einstaklingar sem hafa góð áhrif á okkur sem ekki erum jafn heilbrigð og þau.
![]() |
Við erum að eyða fóstrum vegna viðhorfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
flinston
-
baldvinj
-
bergthorolason
-
biggilofts
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
gattin
-
contact
-
einarbb
-
eeelle
-
emilkr
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gudbjorng
-
zumann
-
tilveran-i-esb
-
coke
-
gunnlauguri
-
gustafskulason
-
conspiracy
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
haddi9001
-
maeglika
-
harhar33
-
bordeyri
-
heimssyn
-
don
-
hordurvald
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
jakobk
-
johanneliasson
-
johann
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonl
-
bassinn
-
prakkarinn
-
thjodarskutan
-
kiddikef
-
krist
-
kristjan9
-
lifsrettur
-
loncexter
-
magnusg
-
marinogn
-
mofi
-
olof
-
pallvil
-
iceland
-
regu
-
undirborginni
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
duddi9
-
sjonsson
-
thruman
-
athena
-
stebbifr
-
stendors
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
viktor
-
villidenni
-
postdoc
-
thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar