Útlitið bjart næstu daga

Það er að segja veðurfarslega, en efnahags- og stjórnmálalega er útlitið heldur dökkt, eða öllu heldur kolsvart.

Á meðan að ríkið þarf að skera útgjöldin niður um 75 milljarða, ætlar ríkið í samvinnu við Reykjavíkurborg að leggja 14 milljarða í tónlistarhús, en sú upphæð er vægast sagt vanáætluð.

Þessa dagana er ríkið, í gegnum bankana, að yfirtaka hvert fyrirtækið á fætur öðru og þar með að fara í bullandi samkeppni við fyrirtæki sem enn eru í eigu einkaaðila.  Á sama tíma eru fyrirtæki, sem afla þjóðinni gjaldeyris, fyrirtæki sem eru í framleiðslu til útflutnings og eru með fjölda manns í vinnu, svelt fjárhagslega, fá enga aðstoð og ekki er hægt að sjá að stjórnvöldum sé nokkuð í mun að þau lifi kreppuna af.

Það eina sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hugsar um er að troða íslensku þjóðinni inn í ESB og kasta þar með fullveldi þjóðarinnar á glæ.  Meiri lítilsvirðingu er ekki hægt að sýna þjóðinni eða þeim sem börðust af harðfylgi áður fyrr við að losa okkur undan erlendum yfirráðum.

Farið gæti svo að Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar verði minnst sem þeirra er seldu Ísland fyrir ráðherrastóla, um stundarsakir.

 


mbl.is Útlitið bjart næstu daga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 784
  • Frá upphafi: 162077

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 495
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband