Það sem engin má sjá og engin má vita

Vefslóðin hér fyrir neðan leiðir inn á myndband hjá Brighteon en það er fyrirtæki eins og Youtube, en málið er að Youtube leifir ekki myndband sem þetta þar sem það fellur ekki að pólitískum rétttrúnaði. Valdamiklir aðilar myndu gera Youtube erfitt fyrir ef þeir sýndu þetta efni.

Afritið vefslóðina og opnið í nýjum glugga.

https://www.brighteon.com/b04c968d-e56a-47dd-9e8a-a7056987e24a


Sonur Hamas með boðskap til vesturvelda, Ísland þar með.

Mosab Hassan Yousef er sonur eins af stofnefndum Hamas hryðjuverkasamtakana. Mosab ólst upp í "Palestínu" í hatri á Gyðingum og öllu því sem ekki tilheyrði Íslam. Hann lenti í Ísraelsku fangelsi þar sem hann komst að því að Gyðingar voru ekki eins og honum hafði verið kennt í skóla, en þar var honum ásamt öllum börnum kennt hvernig drepa ætti alla Gyðinga.

Mosab sá að í Íslam er enginn kærleikur og ekkert réttlæti, hann sneri sér frá Íslam og tekur nú fullan þátt í að afhjúpa Hamas og öll hryðjuverkasamtök innan Íslam.

Í myndbandinu hér fyrir neðan er hann með skilaboð til fáfróðra vesturlandabúa, boðskapur hans er beittur og ættu allir og ekki síst ráðamenn að hlusta á það sem hann hefur að segja.


Tvískinnungur Katrínar forsætis.

Ekki hef ég orðið mikið var við kröfu Katrínar forsætis eða annarra ráðherra ríkisstjórnarinnar um lausn á gíslum í haldi Hamas á Gaza svæðinu. En þann 7.október s.l. framkvæmdu þessi hræðilegu samtök einhver hin ógeðslegustu hryðjuverk sem framin hafa verið á jörðu fyrr og síðar. Við það tækifæri eftir að hafa drepið 1200 manns, menn, konur og börn á hræðilegan hátt auk þess að nauðga og limlesta, tóku þeir um 250 manns í gíslingu og halda vel yfir 100 enn í gíslingu. Ég hef hinsvegar orðið meira var við fordæmingu Katrínar í garð Ísraels vegna aðgerða þeirra sem eru að reyna að ná gíslunum og hegna Hamas liðum fyrir þeirra hrotta verk. Og Katrín vill senda milljarða króna til Gaza sem lenda í höndum Hamas eins og sannast hefur að hafa verið raunin hingað til.

Komið hefur í ljós að UNRWA, sem átti að vera "Palestínumönnum" til hjálpar og færa þeim hjálpargögn, hafa tekið þátt í árás Hamas þann 7.október. Það voru ekki bara örfáir UNRWA liðar sem tóku þátt heldur þó nokkur fjöldi þeirra.

Sagt var frá því um daginn í fréttum að Ísraelar hafi drepið um 100 manns þegar þeir þustu að trukkum sem voru að færa þeim matvæli og önnur hjálpargögn. Staðreyndin er hinsvegar sú að Hamas liðar hafa alltaf tekið þessar sendingar fyrst og fremst til sín og voru það þeir sem skutu á almenning sem var að reyna að ná sér í matvæli. Þess ber einnig að geta að allar fréttir frá Gaza samfélaginu koma frá Hamas, en það eru einmitt þeir sem hafa stjórnað öllu á svæðinu með harðri hendi, þeim er einfaldlega ekki treystandi.


mbl.is Katrín: Höfum krafist lausnar gíslanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirlýsing !!!

Af gefnu tilefni lýsi ég því yfir, þrátt fyrir "fjölda áskorana", að ég mun ekki gefa kost á mér í embætti forseta Íslands. 

Ástæða þessa er sú að fram hefur komið einstaklingur, sem sjálfum mér og öllum öðrum sem tilkynnt hafa um framboð sín að þessu göfuga embætti auk allra þeirra sem nefndir hafa verið til leiks, sem er okkur öllum fremri til að takast á við þær áskoranir sem forsetaembættið gæti og mun væntanlega þurfa að standa frammi fyrir og takast á við á næstu misserum.

Þessi einstaklingur er enginn annar en Arnar Þór Jónsson hrl., fyrrum dómari og varaþingmaður. Ég treysti engum öðrum fremur af öllum þeim sem nefndir hafa verið til að takast á við þetta göfuga verkefni.

GUÐ blessi Ísland.


Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 332
  • Frá upphafi: 162108

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 196
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband