18.9.2014 | 15:09
Hverjum er greiði gerður með að sniðganga Ísraelskar vörur
Til er sá hópur "vina Palestínu" sem vill banna viðskipti við Ísraelskt fyrirtækið SodaStream, vegna þess að það er staðsett í Júdeu [Vestur-bakkanum]. Það á semsagt að refsa þessu fyrirtæki fyrst og fremst af því það er í eigu Ísraelskrar fjölskyldu og vegna staðsetningar fyrirtækisins.
Þessum blessuðu svo kölluðu "vinum Palestínu" virðist ekki vera ljóst að 500 starfsmenn fyrirtækisins eru "Palestínumenn" sem fá fjórum sinnum [x4] hærri laun en "Palestínumenn" sem þiggja laun frá "Palestínskum" stjórnvöldum. Í fyrirtækinu vinna einnig um 350 Ísraelskir arabar og um 300 gyðingar.
Allt þetta fólk er á sömu launum, hvort heldur það eru gyðingar eða arabar, "Palestínumenn" eða ekki "Palestínumenn". Réttindi allra eru þau sömu, hvað varðar frí, veikindi, orlof eða annað. Vinnumórallinn er góður og virðast allir njóta þess að vinna hjá SodaStream, gyðingar með aröbum og arabar með gyðingum.
Ég hef áður skrifað um þetta á bloggsíðu minni, er segir frá SodaStream og viðtöl við "Palestínumenn" sem vinna hjá fyrirtækinu.
Ég held að svo kallaðir "vinir Palestínu" ættu að hugsa sinn gang áður en þeir vilja sniðganga Ísraelskar vörur, vegna þess að oftar en ekki hefur það áhrif á "Palestínska" verkamenn nú eða araba með Ísraelskt ríkisfang.
Það væri kaldhæðni örlaganna ef Íslenskir "vinir Palestínu" yrðu þess valdandi að svo kallaðir vinir þeirra í "Palestínu" misstu vinnu sína og þar með góðar tekjur, þeirra vegna. Talið er að minnsta kosti vinni 15000 "Palestínumenn" hjá Ísraelskum fyrirtækjum og líkar það vel.
Með því að loka á Ísraelskar vörur, eru "vinir Palestínu" að loka á launagreiðslur til margra "Palestínumanna", svokallaðra vina þeirra.
Netslóð á fyrri færslu mína um SodaStream er hér fyrir neðan
http://tibsen.blog.is/blog/tibsen/entry/1352621/
Beitir sér ekki fyrir þvingunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
- axelaxelsson
- flinston
- baldvinj
- bergthorolason
- biggilofts
- skinogskurir
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- gattin
- contact
- einarbb
- eeelle
- emilkr
- ea
- fannarh
- lillo
- gesturgudjonsson
- gudbjorng
- zumann
- tilveran-i-esb
- coke
- gunnlauguri
- gustafskulason
- conspiracy
- halldorjonsson
- hallurhallsson
- haddi9001
- maeglika
- harhar33
- bordeyri
- heimssyn
- don
- hordurvald
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- thjodfylking
- astromix
- jakobk
- johanneliasson
- johann
- islandsfengur
- jonsullenberger
- jonl
- bassinn
- prakkarinn
- thjodarskutan
- kiddikef
- krist
- kristjan9
- lifsrettur
- loncexter
- magnusg
- marinogn
- mofi
- olof
- pallvil
- iceland
- regu
- undirborginni
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- duddi9
- sjonsson
- thruman
- athena
- stebbifr
- stendors
- valdimarjohannesson
- skolli
- viktor
- villidenni
- postdoc
- thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 334
- Frá upphafi: 165281
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 216
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sammála þér Tómas, það er svo eitt að vera vinur palestínumanna sem að við öll erum, annað er að vera vinur Hamas.
Kristinn Ásgrímsson, 18.9.2014 kl. 16:20
Takk fyrir þetta Kristinn. Jú mikið rétt, enda geta flestir "Palestínumenn" og Ísraelar lifað í sátt og samlindi, en það eru Íslamistarnir sem gera þeim erfitt fyrir.
Hefðu allir USD milljarðarnir sem Bandarísk og Evrópsk stjórnvöld hafa sent til "Palestínskra" stjórnvalda, verið nýttir til að byggja upp innviði og atvinnulíf á Gaza og "Vestur bakkanum", þá mundi "Palestínskur" almenningur lifa góðu lífi.
Tómas Ibsen Halldórsson, 18.9.2014 kl. 16:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.