Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
26.10.2009 | 15:34
Fagrar yfirlýsingar og góður vilji er ekki nóg
Þegar ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var mynduð voru margar fagrar yfirlýsingar viðhafðar af forsætisráðherra, ég er sannfærður um að viljinn var góður og einlægur. Það sem gerðis síðan virðist vera þetta. Eins og strúturinn, gróf hver ráðherra sína gröf, nægilega stóra og nægilega djúpa til að geta stungið hausnum í. Með lokuð augun og bundið fyrir þau þar að auki stakk svo hver ráðherrann á fætur öðrum hausnum í sína holu, forsætisráðherra fyrst, síðan fjármálaráðherra og svo koll af kolli.
Fögru yfirlýsingarnar og góði viljinn dugar skammt þegar athafnir fara ekki saman við það sem lofað var í upphafi.
Einhvern tímann heyrði ég að Kínverskt máltæki hljóðaði einhvernvegin svona: "Verk þín tala svo hátt að ég heyri ekki hvað þú segir". Þetta máltæki á vel við ríkisstjórn Íslands í dag. Loforðin, fyrirheitin og góði viljinn fer engan veginn saman við verkin sem hrópa á hverju götuhorni og er að æra þjóðina.
Það væri heiðarlegra, betra fyrir þjóðina og betra fyrir ráðherrana sjálfa að viðurkenna að þau ráða ekki við þann vanda sem við er að glíma og láta aðra, hæfari einstaklinga, um að takast á við erfiðleikana. Ég er því miður ekki viss um að slíkir einstaklingar séu til á þingi, en þeir eru til í þjóðfélaginu, hæfir, heiðarlegir og áræðnir einstaklingar sem væru til í að koma að málum, þjóðarinnar vegna.
Við höfum ekki efni á "stjórnmálamönnum", sem þeim er skipa ríkisstjórn Íslands í dag, við höfum ekki heldur efni á "stjórnmálamönnum" sem skipa marga flokkana á þingi í dag og þá sérstaklega stjórnarflokkana.
Í gegnum tíðina hafa margir talið sig sjá heiðarlegan stjórnmálamann í Jóhönnu Sigurðardóttur, en hafa nú orðið fyrir vonbrigðum. Jóhanna hefur brugðist vonum þeirra sem litu til hennar sem heiðarlegan stjórnmálamann er berjast myndi fyrir þeim sem minna mega sín. Jóhanna hefur þess í stað tekið að sér að berjast fyrir hagsmunum annarra en Íslendinga og gefið eftir fyrir ofríki, frekju og yfirgangi Breta, Hollendinga, AGS og ESB. Hagsmunir Íslands eru fyrir borð bornir á öllum sviðum og er sárara en svo að tárum taki að fylgjast með ofbeldi því sem alþýða manna á Íslandi er beitt af eigin stjórnvöldum.
![]() |
Ekkert bólar á yfirlýsingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.10.2009 | 10:44
Guðfríður Lilja hefur verið beygð
Hún er búin að gefa eftir í Icesave-málinu. En hvað með Ögmund, Lilju Mósesdóttur, Ásmund Einar Daðason og Atla Gísla, er búið að beygja þau ? eða liggur von þjóðarinnar í afstöðu þeirra ?
![]() |
Heillavænlegast að ljúka Icesave-málinu nú |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.10.2009 | 12:19
Þau ættu að hlusta á Lilju
Það má telja á fingri annarra handar þann þingmann stjórnarflokkanna sem mér finnst bera af, nafn þess þingmanns er Lilja Mósesdóttir. Ég get ekki með nokkru móti skilið af hverju hún var ekki gerð að fjármálaráðherra, eða fengin til ráðgjafar í þeim erfiðu málum sem stjórnin hefur verið að glíma við.
Þegar Lilja hefur stungið niður penna (sest við tölvuna til skrifta) og fjallað um efnahagsmál án þess að Steingrímur hafi komist í tæri við skoðanir hennar og spillt fyrir henni, hefur hún komið með mjög svo skinsamar ályktanir. Grein Lilju í Morgunblaðinu í dag ber þess vitni að hún hefur skarpa sýn á stöðu mála, aðkomu AGS og hversu illa hann er undirbúinn til að koma Íslandi til hjálpar eða þá að hann er svo illa innrættur að hann geri hvað sem er til að koma þjóð okkar á hausinn.
AGS hefur reynst innheimtustofnun fjármagnseigenda fremur en hjálparhella þjóða í vanda, það sést greinilega í afstöðu AGS til Icesave-samkomulagsins. Nú verður fróðlegt að fylgjast með framvindu mála og afgreiðslu sjóðsins til Íslands annars vegar og afgreiðslu þingmanna Vinstri grænna á nýju frumvarpi ríkisstjórnarinnar, hins vegar, vegna nýju breytinganna á samkomulagi (þvingunum) Hollendinga og Breta við Ísland. Fróðlegt verður að sjá hver afstaða Lilju verður til þess, mun Steingrímur króa hana út í horn eins og hann gerði fyrr á þessu ári og þvinga hana til að fara að hans vilja og gegn eigin samvisku ?
Vonandi mun Lilja ásamt fleirri þingmönnum VG standa í lappirnar og standa þar með með Íslandi gegn þvingunum AGS, Breta, Hollendinga, ESB og Samfylkingarinnar.
Ísland þarf á hugrökku, einlægu og framsýnu fólki að halda á Alþingi, fólki sem er annt um land og þjóð og er ekki tilbúið að selja það í hendur AGS og ESB fyrir svikagull (Fools gold), eins og Samfylkingin hefur gert.
![]() |
Gera þarf róttæka breytingu á efnahagsáætlun AGS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.10.2009 | 10:03
Greiðslur til AGS
Getum við ekki tekið að okkur að greiða meira og fyrir aðrar þjóðir svo að trúverðugleiki okkar aukist enn meir og lánshæfimat okkar verði eins og það gerist best í heiminum. Þá getum við tekið lán og skuldsett okkur út í hið óendalega
![]() |
Greiðum tvo milljarða til AGS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.10.2009 | 16:09
Hvar hafa þessir menn verið ?
Af hverju er ekki fyrir löngu búið að kanna hvert peningarnir fóru sem lagðir voru inn á Icesave-reikningana ? Eru menn virkilega fyrst núna að fara að kanna það hvert slóðin liggur ? eða er bara búið að vera að bíða eftir Steingrími að hann hafi frumkvæðið að því að rekja féð ?
Ég hefði haldið að það hefði verið eitt fyrsta verk að kanna þetta mál og reyna að frysta flæði þeirra á milli reikninga útrásarvíkinganna áður en þeim tekst að hylja slóð sína.
![]() |
Rekja slóð innlánanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.10.2009 | 13:11
Pöntuð ályktun
Ég held að það fari ekki fram hjá neinum að Steingrímur hefur pantað ályktun þá sem viðtengt frétt fjallar um. Ljóst er að Vinstri grænir eru ekki einhuga í stjórnarsamstarfinu við Samfylkinguna, margir VG gera sér grein fyrir því að þetta samstarf á eftir að kosta þá mikið og valda fylgishruni, nema ef til vill í Norðausturkjördæmi, kjördæmi formannsins.
VG eru greinilega undir í þessu stjórnarsamstarfi, þeir beygja sig undir vilja Samfylkingarinnar í hverju málinu á fætur öðru, þá sérstaklega þeim málum sem varðar almannaheill. Steingrími J. er beitt fyrir ríkisstjórninni í þeim tilgangi að taka skellinn þegar hann kemur, en VG virðast ekki átta sig á klókindum Fylkingarinnar, nema örfáir og mega þeir sín lítils þegar kemur að hinum háværa hópi VG sem vill sitja sem fastast, valdana vegna.
![]() |
Ánægðir með ríkisstjórnarsamstarfið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.10.2009 | 16:00
Misskipting auðs og skulda
Í öllum sínum gjörðum hefur ríkisstjórn þeirra, sem ávalt hafa talið sig standa vörð um þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu, tekið að sér að standa vörð um auð hinna fáu. Ríkisstjórnin tók einnig að sér að slá skjaldborg um heimilin í landinu og þá einkanlega þeirra sem illa eru stödd eftir bankahrunið. Félagsmálaráðherra, Árni Páll Árnason, tók að sér það hlutverk að kinna bjargráðin og lýsti með miklum tilþrifum hversu stórkostlega ríkisstjórnin kemur til móts við þá sem verst eru settir.
Það hefði farið Árna Páli betur að gera lítið úr þessum tillögum er hann kynnti, því að þær eru heldur rýrar í roðinu. Til skamms tíma kann sú leið er Árni kynnti koma skuldsettum lánþegum að gagni, en til langs tíma litið er um hreinan bjarnargreiða að ræða. Fólki er, með þessum tillögum, gert ómögulegt að hreyfa sig þ.e. að stækka við sig eða minnka, ef þörf krefur, fólk verður bundið í átthaga- og íbúða fjötra til frambúðar og þar að auki mun greiðslubyrðin stóraukast þegar á líður.
Þeir sem ekki eru svo illa staddir og eru ekki í þeirri stöðu að geta ekki greitt af lánum sínum fá ekki neitt. Sá stóri hópur fólks sem hélt bankakerfinu uppi með háum og sífellt hækkandi veðbótum og okurvöxtum má bara bíta í það súra epli að þurfa að halda áfram að halda bankakerfinu uppi, með háum og sífellt hækkandi verðbótum ásamt okurvöxtum.
Ríkisstjórnin vill ekki takast á við neinn vanda nema þann sem snýr að fjármagnseigendum og bönkunum, aðrir mega blæða og það á vakt "Norrænu velferðarstjórnarinnar".
Það er ótrúlegt að hlusta á stjórnmálamenn ríkisstjórnarflokkanna talandi um hversu mikið þau leggja á sig að standa vörð um velferð almennings.
Hvað um velferð öryrkja og ellilífeyrisþega ? hvers eiga þeir að gjalda ? En samkvæmt fjárlagafrumvarpi "velferðarstjórnarinnar" á að draga úr framlögum til þessara hópa langt fram yfir það sem aðrir þjóðfélagsþegnar þurfa að þola. Á að svelta þá í hel ?
Á sama tíma er meiningin að hækka framlög til stjórnmálaflokkanna ! ! ! !
Það er greinilega ekki í lagi með þessa ríkisstjórn. Hvar er nú hneykslunartónn hr. Steingríms og fr. Jóhönnu sem þau hafa verið þekkt fyrir í gegnum árin ?
Það er greinilegt að það er ekki sama hver fremur glæpinn. Sumum leyfist það sem öðrum leyfist ekki. Í daglegu máli kallað vinstristefna.
![]() |
Óráðsía en ekki hagsæld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.10.2009 | 15:02
Fortíðin kvödd
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sleppti svartri blöðru fyrir framan Stjórnarráðið í dag eftir að Félag heyrnarlausra hafði afhent henni áskorun um að fylgja fast eftir framkomnum niðurstöðum í skýrslu vistheimilisnefndar um kynferðisbrot og önnur brot á nemendum Heyrnleysingjaskólans. Var þetta táknræn athöfn þar sem verið var að kveðja svarta fortíð Heyrnleysingjaskólans.
Það var vel til fundið að sleppa fortíðinni með þessum hætti á táknrænan hátt.
Nú þarf Jóhanna bara að fá fleiri blöðrur svo hægt væri að losna við fortíðina er tengist efnahagshruninu, Icesave og AGS. Hengja mætti Icesave-samningana og skilmála AGS í blöðrurnar og senda út í buskann, sama mætti gera við aðildarumsóknina að ESB. Svo væri ekki úr vegi að fá stóran svartan loftbelg með nógu stóra körfu er rúmað gæti alla ríkisstjórnina og sleppt þeim út í loftið og sagt á einu bretti bless við allt þetta sem er að plaga okkur þessa dagana
![]() |
Svarta fortíðin kvödd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.10.2009 | 13:35
Er kominn tími til að pakka saman
Ég átti nú ekki von á að fjárlög yrðu með neinum glæsibrag, en kynning fjármálaráðherra á drögum að fjárlögum gerir mann alveg kjaftstopp. Ef fjárlög verða eitthvað í líkingu við það sem Steingrímur kynnti í gær er næsta víst að öll sjálfstæð atvinnustarfsemi leggst af, en eftir verður um stund atvinnustarfsemi á vegum hins opinbera, eða þar til þeirri starfsemi verður sjálf hætt.
Þá er það hlutur heimila, einstaklinga, öryrkja og ellilífeyrisþega.... ég á ekki til orð. Það á að hengja, kirkja, byrla, stinga og skjóta þar til endanlega er búið að ganga frá þjóðinni og ekkert lífsmark er eftir, nema kannski hjá einhverju Samfylkingarfólki sem fær vinnu í Brussel á launum hjá ESB og hugsanlega einhverjum spillingasjóði þeirra.
Ríkisstjórnin sem er nú við völd kallar sig "Norræna velferðarstjórn" við skulum öll mun það og gera okkur í hugalund hvað nafnið á stjórninni merkir ef vera kynni að við verðum enn ofanjarðar og/eða hér á landi næst þegar tækifæri á slíkri stjórn gefst einhvern tíman í framtíðinni.
Er kannski kominn tími til að finna sér samastað erlendis ? Það verður því miður ekki auðvelt nú um stundir að finna stað þar sem maður gæti komið sér fyrir og vænst þess að fá að lifa í friði fyrir ógn ríkisvaldsins, eins og málum er háttað í þessum heimi í dag. Margir eiga eflaust eftir að pakka niður og fara upp á von og óvon og treysta á velvilja erlendra stjórnvalda sem þó er ekki í hendi.
Ef ekki verður fallið frá ESB- og Icesave draumórum ríkisstjórnarinnar og AGS rekið úr landi, nú þegar, þá getum við gert ráð fyrir því að Ísland verði eins og N-Kórea að frátöldum skrautsýningunum, nema ríkisvaldið komi upp slíkum sýningum til heiðurs Jóhönnu og Steingrími.
Er þetta hið Nýja Ísland sem menn eru búnir að vera að kalla eftir ?
Er þetta hið Nýja Ísland sem þjóðin vill ?
Ég segi NEI takk !
En þess í stað segi ég:
ÁFRAM ÍSLAND - EKKERT ESB
EKKERT ICESAVE
BURT MEÐ ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐINN
1.10.2009 | 16:42
Hvers á þjóðin að gjalda ?
Eftir að hlusta á forsætisráðherra tala digurbarkalega um velferðarmál og að nauðsyn sé að bjarga heimilunum og síðan á félagsmálaráðherra útlista "aðgerðum" ríkisstjórnarinnar í þágu skuldara getur maður ekki orða bundist.
Æ ofan í æ kemur þessi "Norræna velferðarstjórn" með áætlanir um aðgerðir sem eru ekkert annað en húmbúkk, þ.e. ekki neitt. Það er ekki verið að bjarga neinu, bara fresta vandanum og gera fólki erfiðara fyrir með allar áætlanir og íþyngja heimilunum.
Að hlusta á ráðherra ríkisstjórnarinnar talandi af áfergju um hvað ríkisstjórnin er æðisleg og er að gera góða hluti, mætti halda að þau trúi því sjálf að svo sé. Það má vel vera að þau geri það, trúi virkilega að þau séu að gera góða hluti, en þjóðin, almenningur í landinu er löngu búinn að sjá að svo er ekki. Það eru örfáir kratar og kommúnistar sem enn eru sannfærðir, en hinn almenni borgari er löngu búinn að sjá að það mun ekkert gott koma frá þessari ríkisstjórn.
Ég óttast að loks þegar þessir flokkar, SF+VG, hrökklast frá völdum, verði orðið of seint að bjarga heimilunum með leiðréttingu lána og erfitt verði að koma hjólum atvinnulífsins í gang vegna þess að stjórnin hefur með beinum og óbeinum hætti ráðist gegn heilbrigðri atvinnu-uppbyggingu.
Ótrúlegt er að hlusta á stjórnarliða tala um að nú eigi að ráðast í byggingu nýs sjúkrahúss upp á tugi miljarða króna, á sama tíma er niðurskurðarhnífurinn á fullu í heilbrigðiskerfinu og gengið er svo langt í þeim efnum að hámenntaðir læknar sjá sér þann kost vænstan að flýja land. Heldur stjórnin að með byggingu nýs sjúkrahúss lagist atvinnulífið og efnahagsástandið til framtíðar ? Hvernig ætla menn að fjármagna rekstur nýs sjúkrahúss án þess að unnið sé að því að byggja upp tekjustofna fyrir þjóðfélagið þ.e. atvinnuvegina, launþega, heimilin og ríkið ?
Hvernig væri að þetta fólk fari að vakna til raunverulegs lífs og átti sig á því hvernig hlutirnir gangi fyrir sig.
Stjórnarflokkarnir eru ekki að höndla verkefnin, þau verða að fara að átta sig á því og viðurkenna að þetta er þeim ofviða og láta öðrum stjórnvölin í té, þeim er hafa meiri skilning og innsæi í það hvernig hlutirnir virka.
Með áframhaldandi þrásetu ríkisstjórnarinnar halda þessir flokkar áfram að skaða Íslensku þjóðina. Það má ekki gerast, það er löngu komið nóg.
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Nýjustu færslur
- Það er nú meira bullið sem kemur frá Morgunblaðinu . . .
- Hamas og palestínumenn (islamistar) eru hræðilegir morðingjar.
- Hvaða íslensk fréttastofa hefur fjallað um þetta mál ?????
- Hann vill til Palestínu, sendum hann þangað og það hið fyrsta.
- Það kemur ekkert gott frá þessari konu, hún ætti ekki að vera...
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
flinston
-
baldvinj
-
bergthorolason
-
biggilofts
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
gattin
-
contact
-
einarbb
-
eeelle
-
emilkr
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gudbjorng
-
zumann
-
tilveran-i-esb
-
coke
-
gunnlauguri
-
gustafskulason
-
conspiracy
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
haddi9001
-
maeglika
-
harhar33
-
bordeyri
-
heimssyn
-
don
-
hordurvald
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
jakobk
-
johanneliasson
-
johann
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonl
-
bassinn
-
prakkarinn
-
thjodarskutan
-
kiddikef
-
krist
-
kristjan9
-
lifsrettur
-
loncexter
-
magnusg
-
marinogn
-
mofi
-
olof
-
pallvil
-
iceland
-
regu
-
undirborginni
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
duddi9
-
sjonsson
-
thruman
-
athena
-
stebbifr
-
stendors
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
viktor
-
villidenni
-
postdoc
-
thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.10.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar