Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
3.3.2010 | 15:36
Kostnaðarsamar kosningar ?
Það var athyglisvert að heyra Steingrím J. tala um það í fréttum í gær að það að halda þjóðaratkvæðagreiðslu væri mjög kostnaðarsamt og rétt væri að finna leið til að komast hjá kosningunum, ekki síst kostnaðarins vegna. Sami Steingrímur, sem fer með fjármál ríkisins, segist vera á móti inngöngu Íslands í ESB gerir engar athugasemdir við allan þann kostnað sem lagður er í umsóknaraðildina að því sama apparati sem hann vill ekki ganga í, sem þó er miklu mun meiri en kostnaðurinn við lýðræðið sem við erum svo stolt af, sérstaklega á tillidögum !!!!!!
Já, það er margt skrítið í kýrhausnum
3.3.2010 | 14:10
Gríska velferðarstjórnin
Norræna velferðarstjórnin í ESB-Grikklandi er farin að taka til hendinni í velferðarmálunum þar syðra.
Grikkir í ESB eru mun verr staddir en Ísland utan ESB. Hvernig skildi standa á því ????? Á ekki að vera svo gott að vera í ESB ? felast ekki svo miklar lausnir í því að vera í ESB ? ég tala nú ekki um þar sem þeir hafa tekið upp velferðarstjórn að norrænni mynd ?
![]() |
Lífeyrisgreiðslur frystar og skattar hækkaðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.2.2010 | 09:22
Góð staða fyrir Íslendinga
Nú er um að gera fyrir ríkisstjórn Íslands og Alþingi að fara að snúa sér að málum sem skipta okkur meira máli en Icesave. Heimilin og fyrirtækin bíða í ofvæni eftir því að ríkisvaldið fari að snúa sér að alvöru lausnum fyrir heimilin. Handapatið sem viðgengst hefur í félagsmálaráðuneytinu er engum til gagns, alvöru lausnir verða að fara að líta dagsins ljós.
Ég átta mig ekki á því af hverju ríkisstjórnarflokkarnir sýna Íslandi og þjóðinni sem byggir landið svona mikla óvild, það er eins og það sé þeim kappsmál að leggja land og þjóð í rúst. Meira að segja Vinstri grænir vilja framselja fullveldi þjóðarinnar í hendur Þjóðverja, Breta, Frakka og annarra ESB-þjóða.
Ég er ánægður með að samninganefndin skuli vera á heimleið og nú er best að leggja Icesave til hliðar og gleyma honum.
![]() |
Icesave: Staðan er engum í hag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.2.2010 | 14:53
Össur tekur að sér að gefa söguskýringum annarra einkunnir
Ég held að Össur ætti að fara varlega í að útskíra eða burtskíra orð annarra. Þegar Össur talar má öllum vera ljóst að hann fer iðulega í kring um málefnin eins og köttur í kring um heitan graut, samt tekst honum ævinlega að klúðra því sem hann segir og ekkert mark er á honum takandi. Ekki þekki ég til bandaríska sendifulltrúans Sam Watson, en einhvernvegin segir mér svo hugur að meira mark sé á honum takandi en utanríkisráðherra Íslands, sem er vanur að blaðra út um allar áttir og gera málstað Íslands ótrúverðugan hvert sem hann fer.
![]() |
Söguskýring bandaríska sendifulltrúans röng |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.2.2010 | 11:41
Nú er ekki um neitt að semja
Ljóst er að Hollendingar eru búnir að hafna frekari samningum við Íslendinga, nema á þeirra eigin forsendum og því er ljóst að um ekkert er að semja. Því er kominn tími til að menn fari að spara okkur þann kostnað sem allt þetta mál hefur valdið okkur og hætta að eyða tíma í það, en fari að snúa sér að öðrum og mikilvægari málefnum s.s. að bjarga heimilunum og fyrirtækjunum í landinu.
Ef Hollendingar og Bretar telja að við skuldum þeim eitthvað, þá skulu þeir sækja það fyrir dómstólum og leggja fram sönnunargögn er sýna ótvírætt að við skuldum þeim einhvern pening sem við höfum ekki tekið að láni hjá þeim.
Ríkisstjórnin er búin að þjarka allt of lengi um þetta mál og varið hagsmuni annarra en okkar Íslendinga, það er búið að vera dýrkeypt. Ef AGS ætlar enn að draga lappirnar gagnvart okkur þegar kemur að endurskoðun efnahagsáætlunarinnar, þá eigum við að segja skilið við þann sjóð og vera ófeimin við að láta alla, sem það vilja vita að Hollendingar og Bretar hafa notað sjóðinn til að kúga okkur.
Veðurfar í þessum löndum ásamt norðurlöndunum og víðar mun ekki skána fyrr en þeir hafa fallið frá öllum kröfum á hendur Íslensku þjóðinni.
![]() |
Ísland fallist á forsendurnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.2.2010 | 16:07
Össur segir þingið ráða för í ESB ferlinu
Er þá ekki ráð fyrir þingmenn að koma sér saman um að leggja fram þingsályktunartillögu þar sem kveðið verði á um að hætt verði við umsóknarferlið að ESB og umsóknin dregin til baka ?????
Kannski Ásmundur Daði og fleiri úr VG myndu styðja slíka tillögu eða ræðst afstaða Ásmundar Daða af því hvar hann er staddur hverju sinni, ef hann er staddur á Alþingi þá styður hann ESB umsóknina, en þegar hann er á fundi hjá Heimssýn þá er hann andvígur umsókn að ESB. Er von að maður spyrji ???
![]() |
Væri ráð að draga umsókn til baka? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.2.2010 | 10:20
Á hröðu undanhaldi
Samfylkingin, einn af hrunflokkunum, er komin á sprett, á harða hlaupum út úr samstarfinu við Vinstri græna. Fylkingin ætlar að skilja VG eftir með Icesave-klúðrið og þykjast ekki eiga neinn þátt í því, fremur en nokkuð annað sem Fylkingin hefur komið nálægt.
Fylkingin er loks farin að átta sig á því að hún er í vonlausri stöðu. Ekki einu sinni Icesave mun hjálpa til við að innmúra okkur inn í ESB, allt glamúrið, öll dýrðin er að hrynja fyrir augum þeirra, þá er best að taka til fótanna. Þetta er það sem Samfylkingin kann best, taka til fótanna og skilja samstarfsflokkinn eftir og kenna þeim um allar ófarirnar. Vissulega eiga VG stóran þátt í því klúðri sem Icesave er, en SF skal ekki láta sér detta það í hug að þjóðin sé blind á ábyrgð þeirra í málinu alveg frá upphafi.
Það er deginum ljósara að Samfylkingin er óstjórntækur flokkur og ein mestu mistök Geirs Haarde á sínum tíma var að leiða þann flokk til valda.
![]() |
Biðla til Framsóknarmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.2.2010 | 15:10
Samfylkingin selur land og þjóð . . .
. . . í hendur Evrópskra nýlenduríkja og Vinstri grænir láta gott heita, þeim virðist alveg sama. Steingrímur J. hefur lagt sitt á vogaskálarnar til að þóknast Samfylkingunni í von um að fá að sitja nokkrum vikum eða mánuðum lengur í ríkisstjórn.
Er þetta það sem kjósendur VG ætluðust til er þeir settu X-ið sitt við V á kjördag s.l. vor ? er þetta það sem kjósendur VG ætla að sætt sig við ? er þetta það sem grasrótin í VG er tilbúin til að kyngja ? eða var andstaða þeirra við aðildarumsókn að ESB í aðdraganda kosninga bara skrípaleikur ?
Fróðlegt væri að heyra í þeim sem kusu Vinstri græna vegna afstöðu þeirra til Icesave annarsvegar og ESB-umsóknar hinsvegar.
![]() |
Ræða aðild Íslands í febrúar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Á sama tíma og þjóðin segir NEI við Icesave, reynir ríkisstjórnin allt hvað hún getur að selja þegna landsins á þrældómsklafa Breta og Hollendinga. Ætti starfandi forsætisráðherra, Steingrími J. Sigfússyni og verkstjóranum Jóhönnu Sigurðardóttur ekki að vera orðið það ljóst að þjóðin treystir þeim ekki til að fara með þetta mál lengur. Þau hafa klúðrað Icesave-málinu alveg frá því þó tóku það að sér fyrir réttu ári síðan. Ekkert, akkúrat ekki neitt, hefur verið gert til að reyna að verja hagsmuni íslendinga og er þá sama hvert litið er, hvort heldur það heitir Icesave, heimilin í landinu eða almennur fyrirtækjarekstur. Það eina sem þessi stjórn hefur hugsað um er að verja bankana og útrásarvíkingana, almenningur er látinn blæða á meðan verið er að hygla þeim fyrrnefndu.
Þessi ríkisstjórn verður að fara frá, það er ekki um annað að ræða. Hvort stjórnarandstaðan er fær um að taka málið að sér veit ég ekki, en þeir virðast vera á þeim buxunum eins og Steingrímur að semja um að borga, en í því felst vandinn, fólkið í landinu veit að það á ekki að borga, þeim ber ekki að borga og það vill ekki borga.
Þar sem stjórnmálamennirnir eru ekki færir um að standa vörð um hagsmuni almenning í landinu verða þeir að víkja og rýma fyrir þeim sem eru tilbúnir að bjarga því sem bjargað verður, en öllum er það orðið ljóst að kommúnistarnir og kratarnir í ríkisstjórninni geta það ekki.
EKKERT ICESAVE
EKKERT ESB
BURT MEÐ AGS
![]() |
66% gegn Icesave-lögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.1.2010 | 15:08
Skinsamur náungi Daniel Gros
Íslendingar ættu ekki að taka meiri lán" segir Daniel Gros. Hann segir ennfremur Ég lít svo á að þetta snúist ekki um fjárhagslega aðstoð. Reyndar skulda Íslendingar mikið, en þeir þurfa kannski helst aðstoð við að endurfjármagna skuldirnar".
Mikið er ég sammála Daniel, við þurfum ekki og ættum ekki að taka lán til að fara á enn eitt eyðslufylliríið, heldur ættum við að einbeita okkur að því að greiða niður skuldir okkar.
Í frétt á mbl.is segir einnig: Hann ítrekaði þá skoðun að Íslendingar ættu ekki að þiggja fleiri lán, hvorki frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum né öðrum. Þá ættu Íslendingar að draga enn frekar úr neyslu, ekki halda genginu óeðlilega háu og hefja tafarlaust endurgreiðslur á lánum í stað þess að ýta á undan sér skuldabyrðinni.
Ég held að tími sé kominn fyrir okkur að temja okkur nægjusemi í stað eyðslu og græðgi sem hefur einkennt þjóðfélag okkar allt of lengi. Minnumst forfeðra okkar sem bjuggu við þröng kjör, en eljusemi þeirra lagði grunninn að þeirri velferð sem við höfum búið við, en við fórum að lokum illa með.
Temjum okkur nýjan hugsunarhátt, þann að: eyða ekki um efni fram, borga skuldir okkar og safna fyrir því sem við viljum leyfa okkur. Látum græðgi ekki stjórna okkur, því að lokum fer illa ef við gætum ekki að okkur, eins og dæmin sanna.
Snúum vörn í sókn, notum skinsemina í stað uppskrúfaðrar tilfinningarsemi sem dregur okkur á tálar og fær okkur til að gera það sem fellir okkur að lokum.
![]() |
Íslendingar ættu ekki að taka meiri lán |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
flinston
-
baldvinj
-
bergthorolason
-
biggilofts
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
gattin
-
contact
-
einarbb
-
eeelle
-
emilkr
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gudbjorng
-
zumann
-
tilveran-i-esb
-
coke
-
gunnlauguri
-
gustafskulason
-
conspiracy
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
haddi9001
-
maeglika
-
harhar33
-
bordeyri
-
heimssyn
-
don
-
hordurvald
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
jakobk
-
johanneliasson
-
johann
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonl
-
bassinn
-
prakkarinn
-
thjodarskutan
-
kiddikef
-
krist
-
kristjan9
-
lifsrettur
-
loncexter
-
magnusg
-
marinogn
-
mofi
-
olof
-
pallvil
-
iceland
-
regu
-
undirborginni
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
duddi9
-
sjonsson
-
thruman
-
athena
-
stebbifr
-
stendors
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
viktor
-
villidenni
-
postdoc
-
thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.7.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 178
- Frá upphafi: 167802
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 158
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar