Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Tugir milljarðar á kostnað þeirra sem minnst mega sín

Það má öllum vera ljóst að ríkisstjórnin með þau Steingrím og Jóhönnu í fararbroddi hafa lagt allt kapp á að fá að greiða Bretum og Hollendingum skuldbindingar óreiðumanna, á kostnað þeirra sem minnst mega sín í þjóðfélaginu.

Til að mæta þessum greiðslum þarf að draga verulega úr heilbrigðiskerfinu, lækka greiðslur til öryrkja og ellilífeyrisþega, svívirða atvinnulausa og lágtekjufólk með því að láta það þurfa að standa í biðröðum úti í kulda og trekk bíðandi eftir ölmusu úr höndum velgerðarfólks, en sjálf réttir ríkisstjórnin ekki fram litla putta til að búa í haginn fyrir þetta fólk.

Nei, þeir sem hrópuðu RANGLÆTI fremja nú hið sama sem þeir álösuðu öðrum fyrir, þar til þeir fengu að setjast í ilhlýja ráðherrastólana.

Ef einhverja hefði átt að draga fyrir landsdóm fyrir það að sinna ekki skildum sínum og það gagnvart þeim sem það er ráðið í vinnu fyrir, þá er það sú ríkisstjórn sem nú situr að völdum.

Við þurfum að fá nýja ríkisstjórn og nýtt fólk á Alþingi Íslendinga, við þurfum fólk sem þorir að standa með þjóð sinni, gegn yfirgangi nýlenduþjóða, gegn ESB og gegn AGS.  Þessar stofnanir leggja nú allt kapp á að fjötra, ekki aðeins okkur íslendinga, heldur Grikki, Íra, Portúgali, Spán og fleiri ríki í fjötra fátæktar, til þess að hygla þeim sem "auðæfum" stjórna.  En minnumst þess að "auður" þeirra mun ryðga og fúna, hann mun brenna upp í höndum þeirra og að engu verða, því að réttlætið mun ganga sigri hrósandi fram á völlinn og hrifsa af þeim völdin.

Í Jakobsbréfi í Biblíunni stendur eftirfarandi ritað í 5.kaflanum vers 1-6:  1Hlustið á, þér auðmenn, grátið og kveinið yfir þeim bágindum, sem yfir yður munu koma. 2Auður yðar er orðinn fúinn og klæði yðar eru orðin möletin, 3gull yðar og silfur er orðið ryðbrunnið og ryðið á því mun verða yður til vitnis og eta hold yðar eins og eldur. Þér hafið fjársjóðum safnað á síðustu dögunum. 4Launin hrópa, þau sem þér hafið haft af verkamönnunum, sem slógu lönd yðar, og köll kornskurðarmannanna eru komin til eyrna Drottins hersveitanna. 5Þér hafið lifað í sællífi á jörðinni og í óhófi. Þér hafið alið hjörtu yðar á slátrunardegi. 6Þér hafið sakfellt og drepið hinn réttláta. Hann veitir yður ekki viðnám.

Þessi orð eiga vel við í dag, þau eru geymd en ekki gleymd.

 


mbl.is „Ég ber ábyrgð á Svavarsnefndinni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icesave eða I slave ? það er spurningin.

Þá hlýtur að vera komið að þætti íslensku þjóðarinnar að ákveða framhaldið. 

Hvort á að fórna Icesave þeirra Steingríms og Svavars eða á þjóðin að verða "I slave" fyrir Breta og Hollenginga og þá Jón Ásgeir, Hannes Smára., Pálma Haralds., Björgólfsfeðga, Sigga Einars, Hreiðar Má, Steingrím, Svavar og alla hina gúbbana????

Ólafur Ragnar hlýtur að leggja það í hendur þjóðarinnar eins og fyrri daginn, því að þjóðin var búin að hafna þessum samningi einu sinni.  Hversu oft ætli þjóðin þurfi að hafna Icesave áður en Norræna velferðarstjórnin áttar sig á því að hún vill ekki borga skuldir óreiðumanna????

 


mbl.is Fundum um Icesave lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvað ætla þeir að gera fyrir Sólheima?????

Uppákoma fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra (fyrrverandi) er með hreinum ólíkindum.  Það á að bjarga þeim sem valda öðrum skaða og skaða þá sem eru að vinna gott starf við að sinna þeim sem minna mega sín í samfélaginu. 

Þar á ég við um Sólheima í Grímsnesi og þau hjálpasamtök sem leggja sig fram við að úthluta mat til þeirra sem eru þurfandi.  Hvar er hjálpin sem þessir aðilar eiga svo sannarlega skilið að fá úr hendi ríkisins???

Hvar er norræna velferðarstjórnin?  Hvar er barátta Jóhönnu og SF og Steingríms og VG fyrir þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu núna?  Það er deginum ljósara að það er ekki hægt að taka mark á því sem þetta fólk segir.  Allar upphrópanir þeirra í fortíðinni eru dauðar klisjur, því miður.

Jóhanna getur státað af því í minningum sínum að henni tókst að komast í stól forsætisráðherra, en það er hið eina sem hún getur státað af.  Hennar verður ekki minnst sérstaklega fyrir dugnað eða góð verk, heldur fyrir verkin eða öllu heldur verkleysið er hún sat í forystu ríkisstjórnar Íslands.  Það verður engin glans yfir þeim endurminningum.

 


mbl.is Einu sinni áður samið um greiðslu bóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru Bretar og Hollendingar loks tilbúnir að semja?

Eru þeir loks búnir að sjá ljósið??? 

Eru þeir búnir að átta sig á þeim skaða sem þeir hafa valdið okkur???

Flott hjá Steingrími J. að beygja þá svona í duftið!!!

Hvaða skaðabætur eru þeir tilbúnir að greiða okkur???

Er það ekki annars það sem samningsdrögin snúast um???

 


mbl.is Bjarni staðfestir að samningsdrög liggi fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið nýja Ísland í boði Héraðsdóms Suðurlands

Er þetta hið nýja Ísland sem við kusum yfir okkur með hinni tæru vinstri- "velferðarstjórn".

Bankarnir og útrásarvíkingarnir eiga að fá allt "sitt" á kostnað almennings.

Ég var að horfa á bíómyndina Robin Hood rétt áðan.  Mikið fannst mér margt líkt með stjórnarháttum Englands konungs þess tíma og þeim stjórnarháttum sem við sjáum á Íslandi í dag, skelfilega líkt.

 


mbl.is Byggði vörnina á forsendubresti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir verst settu þurfa á sértækum aðgerðum að halda til viðbótar almennri leiðréttingu skulda.

Það er lífsnauðsynlegt fyrir fjármálakerfi þjóðarinnar að farið verði í almennar niðurfærslur (leiðréttingu) skulda.  Þar til viðbótar þurfa að koma sértækar aðgerðir til að koma þeim verst settu til aðstoðar.

Að halda því fram að bankarnir, lífeyrissjóðirnir og íbúðalánasjóður geti ekki tekið á sig þessar leiðréttingar, eins og margir hafa haldið fram, gengur ekki upp.  Ef þessar fjármálastofnanir koma ekki að málum af ótta við að tapa fé, þá má upplýsa það hér og nú að þær munu tapa mun meira fé en sá kostnaður yrði við að leiðrétta lánin.  Ekki munu fjármálafyrirtækin ein tapa á aðgerðarleysinu, heldur þjóðarbúið allt, því að aðgerðarleysið mun verða mun dýrara en þær leiðréttingar sem almenningur er nú að fara fram á.  Hér er einvörðungu verið að tala um leiðréttingar, það er að færa til baka þær tekjur sem fjármálafyrirtækin hafa reiknað sér í formi verðtryggingar, tekjur sem eru eingöngu á pappírum en engir raunverulegir fjármunir eru á bak við, fyrr en skuldarinn (hinn almenni Jón) hefur greitt þessar útreiknuðu tekjur fyrirtækjanna.

Ef farið verður út í almennar leiðréttingar lána, mun myndast svigrúm hjá fjölskyldum landsins sem mun nýtast við að koma hreyfingu á fjármálalíf landans.  Ef hins vegar haldið verður áfram að þrengja að heimilunum mun það aðeins hægja enn frekar á flæði fjármagns sem að lokum mun valda algerri greiðslustöðvun og þá verður allt stopp.  Engir munu geta greitt af lánum sínum, engin fyrirtæki munu geta greitt út laun, ríkissjóður fær engar tekjur, lífeyrissjóðir fá enga peninga til að braska með, bankarnir fara á hausinn og fólkið í landinu mun svelta.

Er þetta það Ísland sem við viljum sjá???

 


mbl.is Flatur niðurskurður hjálpar ekki þeim verst stöddu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úrræðin duga ekki hinum almenna Íslendingi, kannski duga þau nokkrum krötum

Nei Jóhanna, það er ekki bara það að úrræðin eru illa kynnt, þetta eru handónýt úrræði sem duga ekki, nema kannski nokkrum krötum sem eru svo ánægðir með að vera í hreinræktaðri vinstri stjórn að þau láta allt yfir sig ganga af hálfu ríkisvaldsins, með bros á vör.

Sú leið sem ríkisstjórnin boðar, sem "úrræði" fyrir heimilin, tekur marga mánuði að virka og fyrir marga munu þau alls ekki virka.

Blekkingarleikur ríkisstjórnarinnar er leikinn í þeim tilgangi að tefja, tefja og tefja og vona að þetta reddist af sjálfu sér, en þessar tafir eru eins og að pissa í skóinn sinn. 

Uppgjör kjósenda við SF og VG verður erfiðara fyrir þessa flokka eftir því sem tafirnar verða meiri.  Ekki nema að það sé tilgangur stjórnarinnar að hrekja sem flesta úr landi og skilja þá sem ekki komast út í vonlausri stöðu.

 


mbl.is Úrræði mögulega ekki kynnt nægjanlega vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er að hrökkva eða stökkva

Hægagangur ríkisstjórnarinnar, þegar kemur að aðgerðum til að bjarga heimilum og fyrirtækjum landsins (þ.e. þeim sem bankarnir hafa ekki tekið yfir), er farinn að valda verulegum vandræðum í þjóðfélaginu.  Nú virðast ráðherrarnir loks vera farnir að átta sig á því að það þarf að taka til bragðs og gera eitthvað sem kemur fólkinu í landinu að gagni, en því miður hefur skort á þann skilning ráðamanna fram að þessu.

Ríkisstjórnin virðist ætla að halda áfram að draga lappirnar, kannski vegna þess að þau vita ekki hvernig á að taka á málum eða að þau hafi ekki þann kjark sem til þarf til að gera það sem gera þarf.

Ríkisstjórnin og Alþingi eru komin langt fram yfir gjalddaga í þessu máli og er aðgerðarleysi þeirra farin að kosta alminning óheyrilega, ekki bara fjárhagslega heldur andlegar og sálrænar kvalir, upplausn fjölskyldna og ýmsan vandræðagang sem hefði mátt koma í veg fyrir.  Við höfum horft á eftir fjölda manns flytja úr landi og margir aðrir hafa horfið yfir móðuna miklu af eigin hendi, vegna þess að það hefur upplifað algert vonleysi, fólk er hjálparvana og veit ekki sitt rjúkandi ráð. 

Nú eru ýmsir farnir að taka til hendinni og láta í sér heyra fyrir framan Alþingi og Stjórnarráðið þar sem fólk safnast saman og mótmælir því óréttlæti sem viðgengst í þjóðfélagi okkar og ráðamenn eiga stóran þátt í.  Reiðin, sem er einn versti óvinur mannkynsins, er farin að láta til sín taka og er það slæmt, en það er það sem aðgerðarleysið kallar fram.

Stjórnvöld hafa lagt áherslur á mál sem koma almenningi ekki að gagni og mörg þeirra eru andþjóðfélagsleg, mál sem fæða ekki svanga maga, mál sem borga ekki skuldir þeirra sem eru í vanskilum vegna forsendubrests sem það átti enga sök á.  Á meðan er allt gert til að hygla þeim sem komu þjóð okkar á kaldan klaka og vel er þess gætt að ganga ekki á rétt þeirra, en réttur almennings er fótum troðin af yfirvöldum og fjármálafyrirtækjum.

Ég spyr því:

Hvar er réttlætið ???         

 Hvar er sanngirnin ???  

Hvar er hugrekki stjórnvalda ???  

Hvar eru hugsjónir stjórnmálamannanna ???

Nú er kominn tími til að framkvæma ellegar verður ríkisstjórnin að hrökklast frá og það með skömm. 

Betra væri fyrir ráðherrana sjálfa að viðurkenna vanmátt sinn strax og segja sig frá Stjórnarráðinu og láta af störfum sem alþingismenn, að öðrum kosti má búast við því að þau verði hrakin frá völdum.  Almenningur er búinn að fá upp í kok af stétt stjórnmálamanna og þá einkum ráðamanna.  Maður finnur fyrir ólgunni sem er farin að brjótast fram í þjóðfélaginu.

Mótmælin sem fram fóru á Austurvelli mánudaginn 4.október voru friðsöm, í samanburði við það sem þekkist annarsstaðar og þau mótmæli sem voru hér fyrir nærri tveimur árum síðan.  Hlusti ríkisstjórnin ekki á þau mótmæli sem nú eiga sér stað, þá óttast ég mótmælin sem hljóta að koma í kjölfarið.  Guð forði okkur frá þeim.

Að lokum tek ég undir orð Geirs H. Haarde og geri þau að mínum.

Guð blessi Ísland.  Ekki veitir af.

 


mbl.is Mótmæli við Stjórnarráðshúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur ekki á óvart.

Það ætti ekki að koma nokkrum manni á óvart, Suðurnesin hafa ávalt orðið fyrir barðinu á vinstri stjórnum.  Norrænar velferðarstjórnir eiga ekki vel við á Íslandi og síst fyrir Suðurnesin.

Í fréttatíma sjónvarpsins (RÚV) í kvöld kom greinilega fram að Skagamaðurinn Guðbjartur heilbrigðisráðherra mun standa vörð um Sjúkrahúsið á Akranesi.  Hverjir voru að tala um heiðarlegan stjórnmálamann???

 


mbl.is ,,Erum enn í hálfgerðu sjokki"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsendubrestur banka eða heimila???

Það var með hreinum ólíkindum að fylgjast með skilaboðum Seðlabankastjóra, framkvæmdastjóra Fjármálaeftirlitsins, ýmsum ráðherrum ríkisstjórnarinnar og þingmönnum, sem þeir sendu dómsvaldinu er þeir gáfu þau skilaboð að þeim færi best á því að dæma “rétt” í vaxtamálum umræddra lána.  Menn bera fyrir sig æ ofan í æ að um forsendubrest hafi verið að ræða.  Hverjir urðu fyrir forsendubrest ?? voru það bara lánafyrirtækin ??  Hvað með forsendubrest sem heimilin urðu fyrir ??

 

Er kannski kominn tími til að ræða forsendubrest verðtryggðra lána heimilanna ??  Ég er hræddur um að ríkisvaldið og bankakerfið myndi kveinka sér þá.

 


mbl.is Vextir geta orðið þungur baggi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband