Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
3.2.2011 | 12:40
Allt samkvæmt áætlun ???
Hvenær er að marka það sem Jóhanna segir??? Hvenær segir hún sannleikann??? Hvenær er hún ekki að ljúga???
Það verður þjóðhátíð á Íslandi þegar mark verður á henni takandi.
![]() |
Allt samkvæmt áætlun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.2.2011 | 10:43
Formaður Sjálfstæðisflokksins lýsir því yfir að hann ætli að svíkja íslensku þjóðina
Það veldum mér miklum vonbrigðum að formaður Sjálfstæðisflokksins skuli hvetja til þess að þingheimur svíki þjóð sína. Ég hélt í einfeldni minni að það væri eðlismunur á Sjálfstæðisflokknum annars vegar og Samfylkingunni og Vinstri grænum hinsvegar, en það er öðru nær. Bjarni formaður er búinn að sýna okkur, svo ekki verði um villst, að svo er ekki. Nú er greinilega eitthvað leyniplott í gangi milli Bjarna Ben. og hinna svikarana sem sitja í ríkisstjórn.
Ég hef skömm á þeim óheilindum sem íslensku þjóðinni er sýnd af þeim flokkum sem sitja á þingi.
Er sá tími að koma að Íslendingar verði að taka til sinna ráða eins og Egyptar og Túnisbúar hafa gert??? Þurfum við að hvetja til allsherjarverkfalls og fjölda mótmæla og hrekja þetta lið af þingi og ríkisstjórn frá völdum???
Ég held það hljóti að koma að því fyrr en seinna að almenningur í landinu, þjóðarviljinn (ekki Jóhönnu viljinn), taki til sinna ráða. Svona lagað gengur ekki lengur.
Það er ekki hægt að traðka á okkur, Íslendingum, endalaust. Við erum búin að fá nóg.
2.2.2011 | 15:43
Hvaða hrossakaup eru í gangi Sjálfstæðismenn??
Hvaða hrossakaup eru í gangi Sjálfstæðismenn?? Hverju hefur ykkur verið lofað??
Að samþykkja Icesave eru svik við þjóðina. Þið skuluð muna það þegar að kosningum kemur, sem munu verða fyrr en seinna.
Kjósendur munu ekki gleyma því samþykki þið Icesave-vitleysuna, fylgið mun hrynja af ykkur.
Bjarni Ben. er á góðri leið með að eyðileggja flokkinn.
![]() |
Þjónar hagsmunum að ljúka Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.2.2011 | 12:09
Steingrímur virðist hafa ótakmarkað fé til að dæla í gjaldþrota tryggingarfélög og sparisjóði og ólögvarðar frekjukröfur Breta og Hollendinga.
Það mætti halda að fjármálaráðherra hefði næga peninga milli handanna þegar kemur að öllu öðru en að viðhalda félags-, heilbrigðis- og menntakerfinu eða til að halda uppi löggæslu í landinu. Ríkisstjórnin kappkostar að skuldbinda þjóðina til að greiða ólögvarðar Icesave skuldir, skuldir sem aðrir en íslenska þjóðin á að greiða. Það má vel vera að einhverjir Íslendingar ættu að greiða þessa skuld og mjög líklegt að svo sé. En það ætti þá að ná í þá og láta þá borga, í stað þess að leyfa þeim að halda sama leiknum áfram eins og þeir virðast vera að gera.
Það er deginum ljósara að við höfum ekki efni á slíkri ríkisstjórn eins og nú situr að völdum, eða ráðherrum sem eru í forsvari ríkisstjórnarinnar. Það er komin tími til að þau víki og reyndar þingheimur allur og nýtt fólk verði kosið til að vinda ofan af allri vitleysunni sem hefur viðgengist undanfarin ár.
![]() |
Ríkið greiði 26 milljarða vegna Icesave í ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.2.2011 | 11:50
Hún er skrítin tík, þessi pólitík !!!
Það er ekki að furða að virðing Alþingis setji niður, þegar við höfum flokka á þingi eins og þá sem þar eru í dag, með fólk sem hagar sér eins og það sé í sandkassaleik, gildir þá einu hvaða flokk þingmenn tilheyra.
Það er kominn tími til að skipta öllu liðinu út og fá heiðarlegt fólk, fólk sem er sanngjarnt, stundar sannleika og er heilsteypt. Við þurfum fólk sem hugsar um hag þjóðarinnar umfram sinn eigin hag eða hag þess stjórnmálaflokks sem það tilheyrir. Við þurfum fólk sem er ekki í hagsmunapoti fyrir einn hóp umfram þjóðarheildina. Við þurfum fólk sem þorir að taka á málum og þorir að leiðrétta alla þá vitleysu sem lögð hefur verið á þjóðina með allskonar ólögum sem gerir ekkert annað en að hygla einum hóp manna umfram aðra, en allir flokkar eru brennimerktir af slíkum óheilindum.
Við þurfum ekki Ögmund eða Ólínu, Steingrím eða Jóhönnu og svona mætti lengi telja, við þurfum hinsvegar nýtt fólk með nýjar áherslur og nýja sýn. Við þurfum fólk sem lætur orð og efndir fara saman. Við þurfum ekki orðaflaum eða orðagjálfur, við þurfum að heyra það sem byggir upp, gefur von og verk sem fylgja þeim orðum og staðfesta það sem sagt er.
Ég kæri mig ekki um fólk á Alþingi sem er þar til að blása sjálft sig upp, til að vera séð af öðrum og gerir mikið úr sjálfu sér. Við þurfum fyrst og fremst heiðarlegt fólk, fólk sem er fullt auðmýktar, laust við hroka og eigingirni, en er til staðar fyrir þjóðina og til að verja hagsmuni hennar og hefur reisn einstaklingsins í huga í þeim tilgangi að hver og einn fái að njóta sín.
Ekkert af þessu sé ég í fari þeirra sem stjórna landinu í dag, hvort sem það eru þeir sem eru í ríkisstjórn eða eru "bara" Alþingismenn.
Ég vil sjá nýtt Ísland leitt áfram af nýju fólki, sem blæs landi og þjóð von í brjóst. Við þurfum að fara að líta upp og fram á við. Við þurfum að líta til Hans sem gaf okkur þetta land, til Hans sem gefur okkur líf.
Við þurfum að líta til Guð vors lands og lands vors Guðs, Hann einn er fær um að gefa okkur bjarta framtíð.
![]() |
Orð látin vaða eins og púðurskot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.12.2010 | 11:59
Hefur Jóhönnu tekist að temja villiköttinn Ögmund Jónasson?
Það verður ekki annað séð en að Ögmundur Jónasson hafi snúið frá fyrri andstöðu við Icesave og þeirri "réttlætiskennd" að leyfa þjóðinni hafa síðasta orðið í því máli. Það er engu líkara en að Jóhanna og Steingrímur séu búin að temja villiköttinn í Ögmundi. Ef hann ætlar að fá að vera með, þá er eins gott fyrir hann að hlíða yfirvaldinu, nokkuð sem Jóhanna kunni aldrei þegar hún sat í ríkisstjórn undir forystu annarra.
Hverjir voru það sem töluðu um spillta stjórnmálamenn sem hugsuðu bara um að sitja sem lengst í ráðherrastóli sama hvað það kostaði??? Það er víst ekki sama hvort maður er vinstri grænn eða séra (lesist ráðherra) vinstri grænn.
![]() |
Samþykktum að málið færi til þingsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.12.2010 | 13:43
ICESAVE fyrst, svo kemur . . . eftir hálfa öld.
Samkvæmt kokkabókum "Norrænu velferðarstjórnarinnar"gengur Icesave fyrir, síðan koma gæluverkefni, s.s. tónlistarhús, listamenn, aðrir "fjöllistamenn" og laun til einkavina í "sér verkefni". En öryrkjar s.s. þeir sem búið hafa að Sólheimum í Grímsnesi, ellilífeyrisþegar, atvinnulausir, skuldugir íbúðaeigendur með yfirveðsettar eignir, fólk með tekjur langt undir fátæktarmörkum og atvinnuvegir sem berjast í bökkum, eru aukaatriði og mæta því afgangi hjá ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
Þessi sama Jóhanna var eins og villtur köttur þegar hún sat í ríkisstjórn undir forystu annarra, hún þurfti alltaf að fara sínar eigin leiðir, því að hún fór eftir sannfæringu sinni. En kettirnir í samstarfsflokknum hennar eru húðskammaðir af þessari sömu Jóhönnu fyrir að fara eftir eigin sannfæringu.
Það er eins og sagt er, það er ekki sama Jón og séra Jón þegar að Samfylkingunni kemur.
En varðandi Sólheima, þá setur ekki aðeins ríkisstjórnin og Alþingi niður við að svelta þá starfsemi sem þar fer fram, heldur er það þjóðfélaginu í heild til háborinnar skammar og niðurlægingar, verði ákvarðanir Alþingis þess valdandi að Sólheimar verði lagðir af.
![]() |
Verður rekstri Sólheima hætt? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.12.2010 | 16:49
Tugir milljarðar á kostnað þeirra sem minnst mega sín
Það má öllum vera ljóst að ríkisstjórnin með þau Steingrím og Jóhönnu í fararbroddi hafa lagt allt kapp á að fá að greiða Bretum og Hollendingum skuldbindingar óreiðumanna, á kostnað þeirra sem minnst mega sín í þjóðfélaginu.
Til að mæta þessum greiðslum þarf að draga verulega úr heilbrigðiskerfinu, lækka greiðslur til öryrkja og ellilífeyrisþega, svívirða atvinnulausa og lágtekjufólk með því að láta það þurfa að standa í biðröðum úti í kulda og trekk bíðandi eftir ölmusu úr höndum velgerðarfólks, en sjálf réttir ríkisstjórnin ekki fram litla putta til að búa í haginn fyrir þetta fólk.
Nei, þeir sem hrópuðu RANGLÆTI fremja nú hið sama sem þeir álösuðu öðrum fyrir, þar til þeir fengu að setjast í ilhlýja ráðherrastólana.
Ef einhverja hefði átt að draga fyrir landsdóm fyrir það að sinna ekki skildum sínum og það gagnvart þeim sem það er ráðið í vinnu fyrir, þá er það sú ríkisstjórn sem nú situr að völdum.
Við þurfum að fá nýja ríkisstjórn og nýtt fólk á Alþingi Íslendinga, við þurfum fólk sem þorir að standa með þjóð sinni, gegn yfirgangi nýlenduþjóða, gegn ESB og gegn AGS. Þessar stofnanir leggja nú allt kapp á að fjötra, ekki aðeins okkur íslendinga, heldur Grikki, Íra, Portúgali, Spán og fleiri ríki í fjötra fátæktar, til þess að hygla þeim sem "auðæfum" stjórna. En minnumst þess að "auður" þeirra mun ryðga og fúna, hann mun brenna upp í höndum þeirra og að engu verða, því að réttlætið mun ganga sigri hrósandi fram á völlinn og hrifsa af þeim völdin.
Í Jakobsbréfi í Biblíunni stendur eftirfarandi ritað í 5.kaflanum vers 1-6: 1Hlustið á, þér auðmenn, grátið og kveinið yfir þeim bágindum, sem yfir yður munu koma. 2Auður yðar er orðinn fúinn og klæði yðar eru orðin möletin, 3gull yðar og silfur er orðið ryðbrunnið og ryðið á því mun verða yður til vitnis og eta hold yðar eins og eldur. Þér hafið fjársjóðum safnað á síðustu dögunum. 4Launin hrópa, þau sem þér hafið haft af verkamönnunum, sem slógu lönd yðar, og köll kornskurðarmannanna eru komin til eyrna Drottins hersveitanna. 5Þér hafið lifað í sællífi á jörðinni og í óhófi. Þér hafið alið hjörtu yðar á slátrunardegi. 6Þér hafið sakfellt og drepið hinn réttláta. Hann veitir yður ekki viðnám.
Þessi orð eiga vel við í dag, þau eru geymd en ekki gleymd.
![]() |
Ég ber ábyrgð á Svavarsnefndinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.12.2010 | 09:37
Icesave eða I slave ? það er spurningin.
Þá hlýtur að vera komið að þætti íslensku þjóðarinnar að ákveða framhaldið.
Hvort á að fórna Icesave þeirra Steingríms og Svavars eða á þjóðin að verða "I slave" fyrir Breta og Hollenginga og þá Jón Ásgeir, Hannes Smára., Pálma Haralds., Björgólfsfeðga, Sigga Einars, Hreiðar Má, Steingrím, Svavar og alla hina gúbbana????
Ólafur Ragnar hlýtur að leggja það í hendur þjóðarinnar eins og fyrri daginn, því að þjóðin var búin að hafna þessum samningi einu sinni. Hversu oft ætli þjóðin þurfi að hafna Icesave áður en Norræna velferðarstjórnin áttar sig á því að hún vill ekki borga skuldir óreiðumanna????
![]() |
Fundum um Icesave lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.11.2010 | 12:01
Og hvað ætla þeir að gera fyrir Sólheima?????
Uppákoma fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra (fyrrverandi) er með hreinum ólíkindum. Það á að bjarga þeim sem valda öðrum skaða og skaða þá sem eru að vinna gott starf við að sinna þeim sem minna mega sín í samfélaginu.
Þar á ég við um Sólheima í Grímsnesi og þau hjálpasamtök sem leggja sig fram við að úthluta mat til þeirra sem eru þurfandi. Hvar er hjálpin sem þessir aðilar eiga svo sannarlega skilið að fá úr hendi ríkisins???
Hvar er norræna velferðarstjórnin? Hvar er barátta Jóhönnu og SF og Steingríms og VG fyrir þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu núna? Það er deginum ljósara að það er ekki hægt að taka mark á því sem þetta fólk segir. Allar upphrópanir þeirra í fortíðinni eru dauðar klisjur, því miður.
Jóhanna getur státað af því í minningum sínum að henni tókst að komast í stól forsætisráðherra, en það er hið eina sem hún getur státað af. Hennar verður ekki minnst sérstaklega fyrir dugnað eða góð verk, heldur fyrir verkin eða öllu heldur verkleysið er hún sat í forystu ríkisstjórnar Íslands. Það verður engin glans yfir þeim endurminningum.
![]() |
Einu sinni áður samið um greiðslu bóta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
flinston
-
baldvinj
-
bergthorolason
-
biggilofts
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
gattin
-
contact
-
einarbb
-
eeelle
-
emilkr
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gudbjorng
-
zumann
-
tilveran-i-esb
-
coke
-
gunnlauguri
-
gustafskulason
-
conspiracy
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
haddi9001
-
maeglika
-
harhar33
-
bordeyri
-
heimssyn
-
don
-
hordurvald
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
jakobk
-
johanneliasson
-
johann
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonl
-
bassinn
-
prakkarinn
-
thjodarskutan
-
kiddikef
-
krist
-
kristjan9
-
lifsrettur
-
loncexter
-
magnusg
-
marinogn
-
mofi
-
olof
-
pallvil
-
iceland
-
regu
-
undirborginni
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
duddi9
-
sjonsson
-
thruman
-
athena
-
stebbifr
-
stendors
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
viktor
-
villidenni
-
postdoc
-
thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.7.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 173
- Frá upphafi: 167797
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 153
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar