Færsluflokkur: Bloggar
26.2.2009 | 13:30
Jóhanna hefði átt að tala við Jóhannes fyrst
Það ætti öllum að vera ljóst að frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur, frumvarp sem enginn má vita hver samdi, er mein gallað.
Í viðtali mbl.is við Jóhannes Nordal segir hann að frumvarpið sé í upphafi af vanefnum gert. Jóhannes telur enn þörf á mun rækilegri umfjöllun um meginatriði þess.
Hefði ekki verið nær fyrir Jóhönnu að ráðfæra sig við fyrrum Seðlabankastjóra, svo virtur, víðsýnn og vel að sér um málefni Seðlabankans sem Jóhannes er. Ég er þess fullviss að Jóhannes hefði tekið málaleitan hennar vel og hefði ráðlagt henni heilt.
En nei Jóhanna þarf að láta ljós sitt skína, ljós sem því miður virðist svo dauft og dimmt.
![]() |
Af vanefnum gert í upphafi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2009 | 13:12
Hver er munurinn á Karli og séra Karli ?
Karl V. Matthíasson Sandfylkingar þingmaður gagnrýnir kaup sjávarútvegsmanna á Morgunblaðinu. Mér er spurn, hvar var þessi sami Karl þegar fjölmiðlalögin voru til umræðu nú um árið? Hver var afstaða hans til þess ágæta frumvarps? Hvar er gagnrýni hans í garð Baugsmiðla, einkavina Sandfylkingarinnar?
Hver er munurinn á því að nokkrir sjávarútvegsmenn annarsvegar og Baugsfjölskyldan hinsvegar eigi fjölmiðla? Jú, sjávarútvegsmenn eru nokkrir aðilar, en Baugsfjölskyldan er ein lítil fjölskylda. Sjávarútvegsmennirnir eiga eftir viðskiptin, einn fjölmiðil. Baugsfjölskyldan á fjölmiðlagrúbbu.
Hvernig væri að heyra séra Karl gagnrýna eignarhald Baugsfjölskyldunnar á 365miðlum? En þar, eins og allir vita hefur öll umræða verið þeirri fjölskyldu í vil, málstaður þeirrar fjölskyldu verið fluttur gagnrýnislaust. Séra Karl hefur ekki séð neitt athugavert við það. Allavega hefur gagnrýni hans í garð Baugsmiðla ekki farið hátt.
![]() |
Gagnrýnir kaup sjávarútvegsmanna á Morgunblaðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.2.2009 | 18:27
Hvað sagði Gylfi Magnússon við Financial Times?
Getur það verið að hver ráðamaðurinn á fætur öðrum sé misskilinn af erlendum blaðamönnum og diplómötum? Hvað var það í raun og veru sem Gylfi Magnússon sagði við blaðamann FT?
Er hugsanlegt að enskur blaðamaðurinn skilji ekki ensku? eða fór samtalið fram á íslensku? Hver misskildi hvern og hver skildi ekki hvern?
Ég ætla rétt að vona að Gylfi fari ekki að taka upp takta Bessastað bóndans.
![]() |
Engin stefnubreyting varðandi aðra möguleika málshöfðunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2009 | 16:41
Stjórnendur Símans ekki í sambandi við raunveruleikann.
Síminn boðar verðhækkanir og það ekki litlar. Ef Síminn hugsar sér að halda í viðskiptavini sína ættu þeir að taka þessa ákvörðun til rækilegrar endurskoðunar og í stað þess að hækka ættu þeir að lækka gjaldskrána.
Ég mótmæli öllum hækkunum!!! Ég vil sjá lækkanir!!!
![]() |
Síminn boðar verðhækkanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.2.2009 | 15:28
Bloggarar, köllum eftir lækkun vöruverðs!!!
Nú þegar hjól atvinnulífsins eru farin að hægja verulega á sér, fólk að missa atvinnuna og þrengir að á mörgum heimilum, er orðið aðkallandi að vöruverð lækki, þá einkum matvörur og fatnaður, ennfremur er nauðsynlegt að olíufélögin lækki verulega verð á bensíni og díselolíu.
Krónan hefur styrkst nokkuð síðastliðnar vikur og ætti sú styrking að kalla á lækkun vöruverðs. Það gengur ekki að heildsalar og verslunareigendur ætli sér að nota styrkingu krónunnar til að hækka álagninguna hjá sér. Það þurfa allir að taka þátt í að byggja upp efnahagskerfið. Hluti af því er að ná verðbólgu niður og vernda heimilin fyrir óeðlilegu verðlagi.
Ég vil skora á bloggara að sameinast í því að kalla eftir lækkun vöruverðs. Notum bloggið til þess.
![]() |
Lýsa eftir lækkun vöruverðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.2.2009 | 00:51
Bresk afneitun
Breskir ráðamenn eru í bullandi afneitun þessa dagana. Þeir sjá ekki að allt er á leið í kalda kol þar í landi. Þeir eru í svipaðri stöðu [afneitun] og íslenskir ráðamenn voru alveg fram að bankahruninu.
Viðskiptaráðherra Bretlands reiddist þegar bandarískur forstjóri kaffihúsakeðju lýsti áhyggjum sínum af ástandinu í V-Evrópu einkum þó í Bretlandi. Ráðherrann þoldi það ekki.
Aumingja hann þegar hann loks kemst að því að bandaríkjamaðurinn hafði rétt fyrir sér. Þess er varla langt að bíða.
![]() |
Húðskammar Starbucks-mann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.2.2009 | 00:36
ESB hvað?
"Reglur Evrópusambandsins banna að sambandið hlaupi undir bagga með aðildarríki sem lendir í fjárhagserfiðleikum." Svona hljóðar upphaf fréttar á mbl.is undir fyrirsögninni "Smáríkjum bjargað?"
Þjóðverjar eru að gæla við það að brjóta þessar reglur ESB til að bjarga Írum.
Ef reglur ESB banna slíka hjálp, hvað eru menn þá að tala um að við ættum að koma okkur í skjól ESB? Það eru ESB sérfræðingarnirEiríkur Bergmann, Árni Páll, Björgvin G. o.fl. sem tala á þeim nótum, menn sem þykjast þekkja ESB út og inn og segja okkur að ekkert nema gott geti komið frá ESB.
Þeir hafa ekki sagt okkur frá því, að ef við værum í ESB og þyrftum á aðstoð að halda, þá myndu þeir sem kæmu okkur til aðstoðar vera að brjóta reglur sambandsins. Þekkja þeir kannski ekki reglurnar, eru þeir kannski ekkert sérstaklega vel inni í málum ESB.
Ég veit að regluverk ESB er mjög flókið og ef þessir menn þekkja það ekki, þeir sem eru búnir að stúdera sambandið og eru talsmenn á Evrópusambandssetri, ef þeir þekkja ekki né skilja ESB, hvernig þá í ósköpunum ætlast þeir til þess að við almúginn á Íslandi tökum upplýsta ákvörðun um inngöngu í ESB???????????
Það er ljótt ef menn þurfa alltaf að brjóta lög og reglur er þeir ætla að láta gott af sér leiða og koma öðrum til hjálpar!!!!! Enn sú sæla!!!
![]() |
Smáríkjum bjargað? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
18.2.2009 | 17:01
Ef ég gengi með hatt tæki ég ofan fyrir Steingrími
Ég er ánægður með ákvörðun Steingríms J. með að leyfa hvalveiðar. Auðvitað hefði ég viljað að hann léti alla ákvörðun forvera síns standa, en þetta er þó í áttina. Næsti sjávarútvegsráðherra verður að taka á því. Það er vissulega óþægilegt fyrir þá sem stunda hvalveiðarnar að hafa ekki vissu fyrir framhaldið, en ég trúi ekki öðru en að leyfi muni fást fyrir áframhaldandi veiðar næstu árin.
Hvað hvalaskoðun varðar þá líst mér vel á að þeir fá sitt afmarkaða svæði þar sem hvalveiðibátar mega ekki stunda síða iðju og hvalaskoðendur haldi sig utan svæði hvalveiðiskipa.
Varðandi slæm áhrif á ferðaþjónustu og minnkandi ferðahópa í hvalaskoðun þá er því til að svara að öll ferðaþjónusta mun og er að dragast saman um allan heim. Fólk er að hætta við ferðalög einfaldlega vegna þess að það hefur ekki efni á ferðalögum. Það er að skella á heimskreppa, já hún er ekki bara á Íslandi og það segir sig sjálft að fólk er síður á faraldsfæti. Það er þegar farið að draga úr ferðalögum. Öll flugfélög kvarta undan samdrætti. Þetta mun einnig hafa áhrif hér hvort sem við veiðum hval eða ekki. Hvalveiðar er ekki sá áhrifavaldur sem menn vilja vera láta!!!
![]() |
Lýsir yfir miklum vonbrigðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.2.2009 | 13:25
Þýska ríkisstjórnin ætlar að þjóðnýta banka
Ætli þýskir útrásavíkingar hafi verið að störfum í þýskum bönkum? eða voru þeir kannski íslenskir???
Spyr sá sem ekki veit!!!
![]() |
Ætla að þjóðnýta banka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2009 | 11:23
Tilkynning
Það tilkynnist hér með að ég sækist ekki eftir sæti á neinum framboðslista fyrir komandi Alþingiskosningar.
Það er mannskemmandi, fjölskyldu óvinveitt og óvina safnandi að taka þátt í slíku, ég tala nú ekki um ef maður lenti óvart inni á þingi. Andvöku nætur, magasár og ýmsir aðrir kvillar sem herja á þá sem fara til starfa á Alþingi íslendinga, ég tala nú ekki um að verða fyrir eggja kasti eða tómötum, sem ég vildi frekar fá á diskinn minn en í andlitið.
Ég votta þeim samúð mína sem ætla að taka þátt í sjónaspili stjórnmálanna!!!!!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
flinston
-
baldvinj
-
bergthorolason
-
biggilofts
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
gattin
-
contact
-
einarbb
-
eeelle
-
emilkr
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gudbjorng
-
zumann
-
tilveran-i-esb
-
coke
-
gunnlauguri
-
gustafskulason
-
conspiracy
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
haddi9001
-
maeglika
-
harhar33
-
bordeyri
-
heimssyn
-
don
-
hordurvald
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
jakobk
-
johanneliasson
-
johann
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonl
-
bassinn
-
prakkarinn
-
thjodarskutan
-
kiddikef
-
krist
-
kristjan9
-
lifsrettur
-
loncexter
-
magnusg
-
marinogn
-
mofi
-
olof
-
pallvil
-
iceland
-
regu
-
undirborginni
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
duddi9
-
sjonsson
-
thruman
-
athena
-
stebbifr
-
stendors
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
viktor
-
villidenni
-
postdoc
-
thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 36
- Sl. sólarhring: 36
- Sl. viku: 63
- Frá upphafi: 167542
Annað
- Innlit í dag: 34
- Innlit sl. viku: 52
- Gestir í dag: 33
- IP-tölur í dag: 33
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar