Færsluflokkur: Bloggar

Bensínverð

Er ekki kominn tími fyrir olíufélögin að lækka verð á bensíni og dísil verulega???

Olíuverð á heimsmarkaði hefur verið að lækka umtalsvert og krónan að styrkjast gagnvart dollar.

Er kannski kominn tími til að bílaeigendur taki sig saman og sniðgangi ákveðnar bensínstöðvar, þá helst þær stöðvar sem hafa helst haldið eldsneytisverðinu háu.

Ef til að mynda fólk sniðgengi N1, Skeljung og Olís, þá er ég hræddur um að þessar stöðvar myndu verða fljótar til að lækka eldsneytisverð og það verulega.

Ég held að það sé kominn tími á 20 króna lækkun á bensíni og 30 króna lækkun á dísil, hið minnsta, svona til að byrja með.  Eruð þið ekki sammála??????


Það lá við kjarnorkuslysi

Hvar eru náttúruverndarsinnar, friðarsinnar, hernaðarandstæðingar, aðgerðarsinnar, Árni Finnsson, Sigurður Rúnar og allir þeir sem vilja standa fyrir "náttúruvernd, heimsfriði og réttlæti" núna????

Af hverju safna þeir ekki liði í Washington, Moskvu, London, París og öðrum höfuðborgum þeirra ríkja sem eru með höfin full af kafbátum sem innihalda trúlega þúsundir kjarnavopna, til að mótmæla framferði þessara kjarnorku þjóða. 

Ef slys á borð við það sem átti sér stað suður í Atlantshafi verður til þess að kjarnorka fer út í hafið, þá verður óþarfi að krefjast þess að hvalir eða önnur sjávardýr verði friðuð.  Þá getum við lagt skipaflotanum, hætt að veiða fisk og leggja sjávarafurðir okkur til munns.

Þeir sem leggjast til sunds í Nauthólsvíkinni geta gleymt því og farið að leggja stund á eitthvað annað fjarri sjónum.

Það er alveg forkastanlegt að "stórþjóðir" heims skuli leyfa sér slíkt.  Hugsið ykkur að þessir tveir kafbátar sem rákust á voru með hátt í tvöhundruð kjarnavopn innanborðs.  Hversu margir slíkir kafbátar skildu vera á siglingu um höfin???

Hvernig ætli staðan sé með rússneska kafbátinn sem liggur á hafsbotni norður í Barentshafi? Hvenær ætli geislavirkni fari að leka frá honum út hafið og breiðast þaðan út á viðkvæmar fiskislóðir?

Ég held að þetta fólk sem ég nefndi hér að framan ætti að snúa sér að því sem skiptir mestu máli, þ.e. það sem skiptir alla heimsbyggðina máli en ekki bara einhverja útvalda og tilbúna sérhagsmuni.  Það skiptir alla konur og kalla, unga sem aldna, hvíta sem svarta, gula sem rauða, það skiptir alla máli, hvort sem fólk lifir nálægt heimsins höfum eða fjarri þeim.  Stórt kjarnorkuslys kæmi til með að hafa alvarlegar afleiðingar á allt vistkerfi jarðarinnar.

Það myndi þýða að veruleg fólksfækkun yrði á jörðinni, sem og fækkun allra dýra til lands og sjávar.

Stjórnvöld þurfa að taka sig saman.  Stjórnvöld allra þjóða sem ekki nota kjarnorku, hvort heldur er til hernaðar eða "friðsamlegra" nota þurfa að koma sér saman og notast við Sameinuðu þjóðirnar, kannski eitthvað gott gæti komið út úr þeim [þ.e. SÞ] og herja á kjarnorku þjóðir jarðarinnar og láta BANNA notkun kjarnorku í eitt skipti fyrir öll.

"Banna kjarnorku" segirðu?  Já!!!  En hvað með kjarnorku til friðsamlegra nota eins og til raforkuframleiðslu?  , banna hana líka.  Það er bara tímaspursmál hvenær mörg þessara gömlu kjarnorkuvera fara að gefa sig.  Við höfum því miður skelfilegt dæmi um slíkt.  Kjarnorkuverin eru ekki komin til að vera að eilífu, það kemur að því að eitthvað gefur sig, eitthvað fari úrskeiðis og afleiðingarnar verða skelfilegar.  Ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda.

Nú sem sagt er kominn tími til fyrir þá sem alltaf eru að mótmæla að þeir taki sig saman með stjórnvöldum, Hörður Torfa má vera með, og herji á kjarnorkuveldin.  Það má nota tilefnið sem varð fyrr í mánuðinum og safna liði.  Stjórnvöld kjarnorkulausra landa og ofanritaðir.  Þið munið fá fjölda fólks með ykkur í lið, það er víst.


Evran í frjálsu falli...

...kannski íslenska krónan geti komið ESBé landi til bjargar. W00t

Er verið að fórna Jóhönnu

Það vekur athygli mína að Ingibjörg Gísladóttir hefur alveg haldið sig til hlés og það er eins og hún hafi hreinlega gleymst.  Ég veit að hún hefur átt við sjúkdóm að stríða og er að ná sér eftir erfiðar læknismeðferðir.  En það læðist að mér sá grunur að hún sé viljandi að halda sér til hlés meðan að þessi ríkisstjórn gengur sitt stutta skeið.

Ætli Ingibjörg geri sér ekki grein fyrir því að þeir sem axla ábyrgð þessarar ríkisstjórnar munu ekki komast vel frá henni og þá er gott að láta einhvern annan taka á sig skellina sem óhjákvæmilega hljóta að koma.  Þá er gott að hafa einhvern sem Jóhönnu, einhver sem er óþægilegur í þingflokknum, einhver sem gott verður að vera laus við eftir kosningar.

Getur verið að Jóhanna taki við skipunum og/eða leiðbeiningum frá Bessastöðum.  ORG virtist ógurlega glaður fyrst eftir að ný stjórn var mynduð, en nú síðustu daga hefur honum tekist að slá herfilegar fals nótur svo ekki sé meira sagt.

Ríkisstjórn Sandfylkingar og VG er eitt allsherjar klúður og sama má segja um forsetann, hann er eitt allsherjar klúður.  Ég held að ORG hljóti nú alvarlega að hugsa sinn gang vilji hann ekki að hans verði minnst á sama hátt og Georg W. Bush, þ.e. manninum sem klúðraði forsetaembættinu og eyðilagði orðstír Bessastaða.


Útreikningur verðtryggingar

Í umræðunni hefur lengi verið talað um það óréttlæti að lántakendur verðtryggðra lána s.s. vegna fjármögnunar íbúðarhúsnæðis, eru látnir bera verðbólgu kostnaðinn að fullu og þá sérstaklega þegar verðbólga er þó nokkur eins og hún hefur verið undanfarið.

Mörgum finnst, er ég þar á meðal, óréttlátt að leggja alla byrgði á lántakendur og þá sérstaklega eins og málum er háttað í dag.

Hefði ekki verið nær, strax í haust og jafnvel enn fyrr þegar vísitala er reiknuð út, mánaðarlega, þá sé sú hækkun helminguð.  Þannig að helmingur útreiknaðrar hækkunar bætist við vísitöluna.

Þar með tækju allir þátt í að axla byrgði á verðbólgunni, þeir sem eru með verðtryggð lán, bankarnir, lífeyrissjóðirnir og þeir sem eiga fé á verðtryggðum reikningum.

Væri ekki sanngjarnt að t.d. þeir sem eiga fé á verðtryggðum reikningum, fólk sem í flestum tilfellum er skuldlaust og margir þeirra fjárfestu í fasteignum áður en verðtryggingin var tekin upp, taki þátt í að axla ábyrgð á verðbólgunni með þeim sem eru með verðtryggð íbúðalán.

Það sem er ranglátast í þessu kerfi sem við búum við er það að eftir því sem vöruverð hækkar s.s. matur, fatnaður o.fl. þá verða lánin dýrari.  Þarna hefur fólk ekkert með það að segja, það ræður engu þar um það verður bara að axla þá byrgði.  Borga meira fyrir matinn, fatnað og lánin, en launin sitja oftast eftir.  Þarna er ekkert samhengi, þessi leið getur aldrei orðið réttlát.

Þess vegna ætti að skipta byrðinni milli allra með því að draga úr vægi verðtryggingarinnar.  Bankarnir, lífeyrissjóðirnir og þeir sem eiga fé á verðtryggðum reikningum verða að axla þá byrgði með þeim hinum sem ekki eiga annarra kosta völ.


Hvað skildi Sandfylkingin segja við þessu

Það var nefnilega það IMF gefur greinilega ekki mikið fyrir frumvarp Jóhönnu.  Samkvæmt venjunni er ekki bara einn Seðlabankastjóri, yfirleitt eru einn eða tveir aðstoðarseðlabankastjórar þar að auki.

Ekki eru gerðar þær kröfur til menntunnar sem ríkisstjórn Íslands vill gera, heldur er venjan sú að krafa er gerð um viðurkennda þekkingu og reynslu. Meistarapróf í hagfræði er ekki krafa sem sett er fram annarsstaðar.

Skildi það vera að Jóhanna og co. hafi verið að klæðskerasauma embættið fyrir einhvern útvalinn? Erum við að vera vitni að einhverri mestu spillingu af hálfu Sandfylkingarinnar? Það skildi þó ekki vera.


mbl.is Venjan að hafa einn eða fleiri aðstoðarbankastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna ætti að ver...

...þakklát fyrir að maður með þá kunnáttu og reynslu sem Eiríkur hefur, er tilbúinn til að standa vaktina.

Það er kominn tími til að Sandfylkingin komi sér úr sandkassanum og fari að sinna stjórnmálum.


mbl.is Mikilvægast að gengið styrkist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Botninum hvergi nærri náð!!!!

Ég held að það sé alveg ljóst að botninum er hvergi nærri náð í þeim efnahags þrengingum sem ríður yfir heimsbyggðina þessa daga. Mig langar ekki til að vera svartsýnn, en einhvern veginn finnst mér að við eigum eftir að sjá enn verri stöðu og þá það sem með sanni er hægt að kalla kreppu næstu sjö til fimmtán árin. Ég vona að ég hafi rangt fyrir mér en ótti minn er sá að dóminnós áhrif eigi eftir að fara um heimsbyggðina nokkrum sinnum þar til við komumst út úr þeim vanda sem við erum rétt að stíga inní.

Það að Davíð Oddsyni verði komið úr Seðlabankanum mun ekki breyta neinu, hvorki hér né annarsstaðar.


mbl.is Gengi hlutabréfa lækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frumraun bloggara

Ég heiti Tómas Ibsen, þetta er frumraun mín á blogg heimum.

Sjáum til hvernig til tekst hvort ég áorka einhverju eður ei, en þessi fyrsta færsla er gerð til prufu.

Bestu kveðjur til ykkar allra Smile


« Fyrri síða

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 167543

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband