Færsluflokkur: Bloggar

Djörf kosningastefnuskrá Framsóknarflokksins

Framsóknarflokkurinn kynnti áhersluatriði í kosningastefnuskrá sinni fyrir komandi kosningar.

Athygli vekur að þar ber hæst hugmynd þeirra um lækkun lána um 20%, hugmynd sem núverandi stjórnarflokkar hafa alfarið hafnað sem óraunhæfum.  Samt sem áður leggur Framsóknarflokkurinn áherslu á að núverandi stjórnarflokkar eru þeir einu sem þeir geta hugsað sér að vinna með.

Er það traustvekjandi ???


mbl.is Vaxtalækkun og niðurfærsla skulda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stýrivextir lækka í Noregi

Getur verið að norðmenn séu með útlending sem seðlabankastjóra ??? Undecided

 


mbl.is Stýrivextir lækka í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hátt húsnæðisverð hafði áhrif á síhækkandi verðbólgu

Hverjir skildu hafa haft mest áhrif á hækkun húsnæðisverðs síðast liðin ár ?  Fyrir mér liggur það nokkuð ljóst fyrir. 

  • Fyrir það fyrsta var sú ákvörðun framsóknarráðherrans að hækka lánshlutfall íbúðarlánasjóðs í 90%. 
  • Í öðru lagi aðkoma bankanna að íbúðarlánum og sú samkeppni sem fór af stað á íbúðarlánamarkaði. 
  • Í þriðja lagi fasteignasalar, en þeim fjölgaði gífurlega á þessum tíma.

Ég veit þess dæmi að aðili bauð í fasteign, fasteignasalinn hringir í viðkomandi og segir honum að það sé komið nýtt tilboð í fasteignina, hvort hann vilji ekki hækka sitt tilboð sem og hann gerði.  Svona gekk þetta í nokkur skipti og var nú búið að hækka íbúðarverðið umtalsvert.  Tilboðsgjafinn veit ekki í raun hvort um annað tilboð var að ræða eður ei, hann treysti bara fasteignasalanum í blindni.  Hverjir skildu nú hafa haft mestan hag af verðhækkun fasteignarinnar ? jú, fasteignaeigandinn og fasteignasalinn sem fékk prósentur af hverri sölu sem hann átti þátt í.  Þetta er örugglega ekki eina dæmið um þátt fasteignasala í að hækka fasteignaverð yfirleitt.  En hverjir töpuðu á þessum viðskiptum ? það var að sjálfsögðu sá sem keypti fasteignina, hann þurfti að taka mun hærra lán en upphaflega stóð til og síðan allir aðrir þjóðfélagsþegnar þessa lands í formi hárrar verðbólgu.  Bankarnir sem lánuðu einstaklingum í gríð og erg höfðu ekki svo mikið fyrir því að athuga greiðslugetu lántakenda eða skeyttu engu um greiðslugetu þeirra.  Fjöldi fólks tók lán langt umfram greiðslugetu, fól var blekkt af bönkunum og fasteignasölunum og á í dag í mestu vandræðum er ráðþrota og örvinglað.

Þökk sé bönkum og fasteignasölum !!!

 


Sukk og svínarí Landsbankans og Kaupþings, hins gamla.

Segjum sem svo að nágranni þinn taki sig upp og fari að næturlagi í næsta bæjarfélag, fari þar ránshendi um eigur fólks í því bæjarfélagi, komið því síðan í verð og eyði þeim fjármunum.  Er þá réttlætinu fullnægt með því að láta þig borga fyrir gjörðir nágrannans ??  Ætli það.  Ætli okkur þætti ekki réttarkerfið eitthvað skrítið ef þú yrðir dæmdur til að borga fyrir hans gjörðir.  Það er nákvæmlega það sem er að gerast ef íslenska þjóðin verður látin greiða fyrir sukk og svínarí Landsbankans og Kaupþings á erlendri grundu.


Viðskiptavild banka og sparisjóða 30-50% af eigin fé.

Ef sú er staðreyndin þá er um glæpsamlegt athæfi að ræða og á hiklaust að sækja þá til saka sem berir eru að slíku athæfi.  Það verður að fara að taka á málum og sýna fram á að mönnum er alvara með því sem sagt er að menn eigi að bera ábyrgð á gjörðum sínum.  Í BNA væru menn leiddir út af heimilum sínum í járnum í augsýn allra sem það vilja sjá.
mbl.is Loftbóluhagnaður og loftbóluarður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu lengi getur vont versnað ?

Nú hefur SPRON verið flutt yfir til Kaupþings.  Það á eflaust eftir að reynast mörgum viðskiptavinum SPRON þungbært.  Hver hefði trúað því að einn stærsti og öflugasti sparisjóður landsins fengi þá útreið sem SPRON hefur orðið fyrir.  Hvernig hefur þetta getað gerst ??  Hvað varð til þess að þetta gerðist ??

Er það virkilega svo að allar útlánareglur voru þver brotnar ??  Var stjórnin meðvituð um hver var að lána hverjum og hversu mikið ??  Eða var það bara sparisjóðsstjórinn ásamt örfáum starfsmönnum sem sáu um að lána stjarnfræðilegar upphæðir án heimildar og án vitundar stjórnar ??

Það væri fróðlegt að fá svör við þessum spurningum.  En ætli þess sé að vænta í okkar pukur landi.


mbl.is Flutningi SPRON til Kaupþings lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varaformaður Frjálslyndra yfirgefur skipið

Sagt er að þegar skip sekkur þá sé það skipstjórinn sem síðastur fer frá borði.  Þetta vita skipstjórarnir Guðjón Arnar og Grétar Mar, enda eru þeir tveir, nánast einir, eftir um borð í hinu sökkvandi skipi Frjálslynda flokksins.
mbl.is Ásgerður hættir í Frjálslynda flokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæjastjóranum hafnað

Það er ljóst að Sandfylkingin hefur hafnað bæjarstjóranum í Hafnarfirði.  Honum er ekki treyst til forystustarfa fyrir fylkinguna.  Ræður þar eflaust mestu um hvernig hann hefur haldið á málum í Hafnarfirði.  Hann hefur komið bæjarfélaginu á kaldan klaka og ekki viljum við fá þau vinnubrögð inn á hið háa Alþingi.  Við höfum hreinlega ekki efni á því, staða okkar er nógu slæm fyrir.
mbl.is Ekki sáttur við mína útkomu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var verkið boðið út?

Er verið að smíða skjaldborgina um heimilin?  Hver skildi hafa fengið verkið?  Var verkið boðið út?  Var það einhver vélsmiðja eða byggingaverktaki?  Kannski þeir sömu og fengu verkið í tónlistarhúsið?  Þeir hafa sennilega getað skellt þessu saman í eina allsherjar verktöku.

Við viljum lækkun vöruverðs

Það er kominn tími til að sjá vöruverð ganga niður.  Þjóðin hefur ekki efni á að vöruverð sé uppi úr öllu valdi.

  • Við viljum sjá verð á matvöru lækka
  • Við viljum sjá verð á fatnaði lækka
  • Við viljum sjá verð á skófatnaði lækka
  • Við viljum sjá verð á bensíni og dísilolíu lækka
  • Við viljum sjá vexti lækka

Heildverslanir, smásöluverslanir og allir sem veita þjónustu, hvort sem það eru opinberir aðilar eða í einkageiranum verða að koma að málum og taka þátt í því að ná niður verðlagi og verðbólgu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 34
  • Sl. sólarhring: 52
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 167540

Annað

  • Innlit í dag: 32
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 31
  • IP-tölur í dag: 31

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband