Færsluflokkur: Bloggar

Er eitthvað til sem heitir lýðræðis og réttarríki í Palestínu?

Það er rétt hjá Ögmundi, Össur neitaði að taka á móti ráðherra frá Ísrael sem vildi koma og útskýra afstöðu Ísraelsstjórnar í deilum þeirra við nágrana sína, en Össur vildi ekkert á hann hlusta, það er ekki góð pólitík.  

Þeir Ö- félagar vildu og vilja enn ólmir standa með og styðja "réttarríki" Palestínu.  Sannleikurinn er sá að "Palestína" á langt í land með að verða réttarríki, þó þeir fái viðurkenningu um sjálfstætt ríki og jafnvel þótt þeir fái alla heimsbyggðina á sitt band munu réttarríki ekki verða á dagskrá á þeim bæ.  

Eina lýðræðisríkið í Mið- austurlöndum er Ísrael og er það eina ríkið á þeim slóðum þar sem Múslímar og aðrir trúarhópar búa við réttarríki og fá að iðka trú sína í friði frá afskiptum stjórnvalda, en þeir Ö- félagar og margir aðrir þeim líkir loka augunum fyrir því, þeim er bara illa við Ísrael og einkum Gyðinga.

Ég er hræddur um að jafnvel þó svo að Evrópuráðið, Sameinuðu þjóðirnar og jafnvel íslenskir stjórnmálamenn vilji stuðla að eflingu lýðræðis og réttarríkis í "Palestínu", þá eigi það langt í land að svo verði, það þarf jú vilja þeirra sem stjórna í "Palestínu" til þess að svo megi verða, en sá vilji er því miður ekki til staðar.

 


mbl.is Ræddi stuðning Íslands við Palestínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiga rafvespur heima á göngustígum?

Rafvespur eru hljóðlaus tæki sem börn, jafnvel innan við 12ára aldur, þeysast á á göngustígum og hafa valdið óþægindum og jafnvel hættu þar sem þau fara um.  Tæki þessi koma þjótandi aftan að gangandi vegfarendum og þeysast framhjá án þess að fólk sé við því búið.  Ekki er óalgengt að sjá börnin reiða félaga sína á þessum raftækjum og það heyrir til undantekningar sé sá sem ekur tækinu með hjálm.

Mér finnst það skjóta skökku við verði þessum börnum gerð lagaheimild til að þjóta um á gagnstígum, reiðandi félaga, hjálmlaus, því ég hef orðið vitni af því að þau valda hættu og óöryggi gangandi vegfarenda.  Þar sem þessi tæki fara um nánast hljóðlaus hafa gangandi vegfarendur orðið bilt við og ég tala nú ekki um þegar fullorðið fólk á í hlut.

Myndin á viðtengdri frétt er dæmigerð fyrir það sem ég er hér að fjalla um. 

Ég er ekki viss um að menn hafi hugsað þetta til enda. 


mbl.is Mega keyra rafvespur á stígum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur það farið fram hjá Össuri Skarphéðinssyni að íslenska þjóðin hafnaði gæluverkefni hans?

Ætli Össur Skarphéðinsson hafi ekki verið að fylgjast með í kosningabaráttunni í vor eða var hann ekki með á nótunum.  Átti hann eitthvað erfitt með að lesa í úrslit kosninganna þar sem flokkur hans bauð afhroð, já meira afhroð en nokkur stjórnmálaflokkur hefur orðið fyrir frá stríðslokum ekki bara á Íslandi heldur um gjörvalla Evrópu?

Hefur það farið fram hjá Össuri Skarphéðinssyni að íslenska þjóðin hafnaði gæluverkefni hans?

Evrópusambandssinnar virðast hafa tekið upp aðferðir ESB-yfirvalda sem felst í því að hlusta ekki á almenning eða vilja meirihluta kjósenda, heldur fara fram með offorsi til að ná sínu fram hvað sem raular og tautar.

Það er kominn tími til að ESB-sinnar á Íslandi geri sér grein fyrir því að Ísland er ekki á leiðinni í ESB.  Því fyrr sem þeir átta sig á því því betra.  Það hefur farið of mikil orka, tími og fjármagn í þetta feigðar flan.

 


mbl.is „Orð skulu standa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð lausn Drangsnesinga að nýta skólastofu til Guðsþjónustu

Þetta er góð lausn hjá þeim á Drangsnesi, nýta skólann til Guðsþjónustu.  Guðsþjónustur þurfa ekki að vera bundnar ákveðnum byggingum, það er hægt að koma saman um Guðsorð hvar sem er og eru skólar hentugir staðir til að lofa Drottinn og hlusta á Hans Orð.  Aðrir mættu taka sér þetta til fyrirmyndar og færa Guðsorðið inn í skólana og þá ekki bara utan skólatíma heldur einnig inn í kennslustundirnar, ekki veitir af.

 


mbl.is Kirkjuhald í skólastofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa Bandaríkin efni á að fara í stríð?

Bandarísk stjórnvöld eru í þeirri stöðu í dag að þau hafa ekki efni á að fara í stríð.  Nýr stríðsrekstur BNA myndi endanlega gera út af við efnahag þeirra.

Samkvæmt opinberum tölum eru skuldir BNA um 17trilljónir dollara og er orðinn ósjálfbær.  Sumir hagfræðingar telja hinsvegar skuldirnar, þegar ábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar eru teknar með, vera um 76trilljónir.  Stöðugur fjárlagahalli hefur verið á rekstri Bandaríska ríkisins frá 2001. Atvinnuleysi skv. opinberum tölum er á bilinu 7-9%, en raunverulegt atvinnuleysi er talið vera yfir 20% og fátækt hefur aukist gríðarlega.  Stjórnvöld eru komin vel á veg með að útrýma millistéttinni sem hefur verið burðarás Bandarísks samfélags í gegnum tíðina.

Skuldaþak stjórnvalda sem samþykkt var af báðum þingdeildum s.l. janúar er 17trilljónir dollarar og eru skuldir ríkisins nú að ná þessu marki innan fárra mánaða.  Repúblikanar neita að hækka skuldaþakið nema dregið verði úr rekstrarkostnaði ríkisins, en Obama vill hvergi skera niður.

Þegar Bandaríkin fara fram af bjargbrúninni, það er ekki spurning um hvort heldur hvenær, nema kraftaverk komi til, þá mun Bandarískt þjóðfélag verða gjörólíkt því sem við höfum þekkt hingað til.  Bandaríkjamenn munu ekki einir finna fyrir því heldur munu áhrifin verða á heimsvísu.

 


mbl.is Markaðirnir reikna með loftárásum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa vextir áhrif á hagvöxt?

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum s.s. 6%. 

Vextir á Íslandi eru mjög háir samanborið við önnur lönd og ég tala ekki um þegar litið er á hversu hagvöxtur er lítill.  Hátt vaxtastig er ekki hvetjandi til fjárfestinga, þvert á móti. 

Það er ekkert tilefni til að halda vöxtum þetta háum, þeir mættu vel fara niður um ca. 2 prósentustig.  Það hefur sýnt sig undanfarið að ekkert samræmi er milli vaxtastigs og verðbólgu.

Til að fá fjárfestingar í gang þurfa vextir að virka hvetjandi fyrir fyrirtæki og einstaklinga, en vextirnir einir sér ráða ekki öllu þar um, það er margt fleira sem þar á hlut að máli, en vextirnir eiga stóran þátt í að hvetja eða letja.

 


mbl.is Líkur á kreppuverðbólgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er forsvaranlegt að leyfa óheftan innflutning múslíma til landsins og heimila þeim að byggja moskur hér og þar?

Þeir sem hafa kynnt sér Íslam vita að Íslam eru ekki eingöngu trúarbrögð, þau eru einnig pólitík hreyfing, en það er oft erfitt að greina þar á milli.

England, Frakkland, Þýskaland, Svíþjóð, Bandaríkin o.fl. þjóðir hafa í nafni umburðarlyndis umborið gífurlegan innflutning fólks frá múslímaríkjum.  Þessar þjóðir hafa nú vaknað við vondan draum, Íslam er farinn að taka óþægilega mikið pláss með kröfum um það sem almenningi hefur ekki líðst í þessum ríkjum.

Í París, New York og víðar hafa múslímar tekið sig saman og komið til "bæna" á fjölförnum götum borganna.  Öll umferð stöðvast vegna þess að múslímar eru að "biðja" og stjórnvöld þora ekki að lyfta fingri til að aftra því að götum sé lokað af þeirra völdum.  Ótti við múslíma og hvað þeir kynnu til bragðs að taka séu þeir stöðvaðir við þessar gjörðir sínar hefur náð heljartaki á stjórnvöldum.

Moska sem bygging orsakar ekki hryðjuverk, en það sem þar fer fram er ekki það sem við höfum látið líðast af samborgurum okkar.  Eru múslímar þá rétthærri öðrum borgurum?  Það held ég ekki.  Verðum við ekki að gera þær kröfur að þeir lúti sömu lögum og við hin?  Annað er óeðlilegt.

Í Stoke í Englandi fór fram fjölmenn mótmælaganga múslíma fyrir örfáum árum þar sem þeir lýstu andúð sinni á stjórnvöldum, að lögreglan væru glæpamenn og væru réttdræpir ásamt því að lýsa ýmissi annarri óánægju með samfélagið sem þeir bjuggu í.

Mér er þá spurn.  Til hvers í ósköpunum eru þeir þá að flytjast til vesturlanda þar sem allt er ómögulegt að þeirra mati, af hverju eru þeir ekki þar sem þeir geta notið sín í því umhverfi sem hentar þeim?  Getur verið að það sé eitthvað annað sem liggi að baki því að flykkjast til vestrænna ríkja?  Getur verið að áætlun Íslam sé að yfirtaka hinn vestræna heim?  Þeir eru langleiðina komnir með það markmið á Bretlandseyjum.

 

Ég bið Guð að forða okkur frá því að hin pólitíska Íslam nái að festa hér rætur.  Í vestrænum ríkjum hafa pólitískir öfgahópar fengið það óvegið frá almenningi, fjölmiðlum og hinum viðurkenndu pólitísku flokkum, en svo óttast hinir sömu að styggja Íslam sem er ekkert annað en pólitískur öfgahópur.

 

SodaStream í Ístael þar sem Ísraelar, Palestínumenn o.fl. vinna saman

Hjá SodaStream vinna Ísraelsmenn, Palestínumenn, Arabar og fleirri hlið við hlið sem bræður og vinir.

Sjá meðfylgjandi myndband.

 Slóðin til að sjá þetta myndaband betur er:

http://www.youtube.com/watch?v=KDdH_7GjW40&feature=player_embedded

 

 

 


Kröfur ESB á stjórnvöld aðildarríkjanna er að auka á vanda almennings í löndum þeirra

Til þess að standast kröfur Evrópusambandsins, þarf portúgalska stjórnin að auka á vanda þjóðarinnar.  Kröfur ESB, SE og AGS á þjóðir í vanda eru að stjórnvöld þeirra auki enn á vanda fólksins sem þau eru fulltrúar fyrir.  

Hvað hjálpar það að hækka lífeyrisaldur þegar atvinnuleysi er 18% og mun hækka verulega með þeim aðgerðum sem boðaðar eru???

ESB er greinilega ekki fyrir fólkið, heldur fjármálaöflin.  Ég er farinn að hallast að því að vandi evruríkja og þó víðar væri leitað, er tilbúinn vandi fjármálaaflanna í heiminum.  Með auknu atvinnuleysi eykst fátækt, með aukinni fátækt sprettur upp óróleiki og ókyrrð sem leiðir af sér mótmæli sem þróast munu í ofbeldi og þá kemur lögregla og her vopnum búinn til að brjóta fólkið niður og beygja almenning undir yfirvöld, hvort heldur það eru stjórnvöld, her eða fjármálaöflin, en fjármálaöflin eru að baki þessu frá upphafi.

Hverjir eru það t.d. sem taka yfir heimili fólks, sem missir það þar sem það getur ekki greitt af lánum sínum.  Fólki er stefnt út á götu og hefur ekki í nein hús að venda.  Í Grikklandi eru fjölskyldna sem ekki eiga þak yfir höfuðið.  Fjármálaöflin hafa yfirtekið heimili þeirra sem standa síðan auð fremur en að leyfa fólki að fá húsaskjól.  Það sama á við á Spáni.

Hér eru um óguðleg öfl að ræða sem stjórnast af græðgi, yfirgangi og hroka.  Guð forði okkur frá því að verða hluti af því skrímsli sem ESB er.

 


mbl.is Ætla að segja upp 30 þúsund starfsmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju er Sjálfstæðisflokkurinn rúinn trausti?

Fram að Icesave III var ég gallharður Sjálfstæðismaður, en þegar þingflokkurinn, með nokkrum undantekningum þó, lagðist á sveif með ríkisstjórninni og ætlaði að leggja á skattgreiðendur óbærilegar birgðar, þá sagði ég skilið við flokkinn.

Bjarni og þeir sem honum fylgdu að málum sýndu óheilindi gagnvart þjóðinni og það kann ég ekki að meta.  Afstaða Bjarna til ESB aðlögunar og aðildar hefur mér þótt ótrúverðug, hann hefur ekki haft manndóm í sér til að stíga fram og segja "Nei við viljum ekki ganga í ESB", þvert á móti hafa öll hans svör verið loðin þrátt fyrir samþykktir landsfundar flokksins.

Bjarni hefði gert sjálfum sér og flokknum greiða hefði hann ákveðið að bjóða sig ekki fram til formanns fyrir síðasta landsfund.  Þá hefði fólk eflaust fengið að heyra hvað Hanna Birna stæði fyrir, en því miður þá verð ég að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd um afstöðu hennar, t.d. til ESB aðildar.

Sú var tíðin að maður gat verið viss um afstöðu forystumanna Sjálfstæðisflokksins til brýnna mála, en því er ekki að heilsa í dag.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, er eini stjórnmálaforinginn nú í dag sem talar skírt og á mannamáli, þó svo að nokkrir kratar skilji það ekki.

Hefði einhver sagt mér fyrir nokkrum mánuðum að ég ætti eftir að kjósa Framsókn, hefði ég talið hinn sama ekki öllu mjalla, þann flokk hef ég aldrei kosið og fram að þessu aldrei komið það til hugar.  Nú aftur á móti skoða ég þann möguleika af fullri alvöru, þar sem minn gamli flokkur hefur ekki sýnt að hann sé traustsins verður.

Áður fyrr var Sjálfstæðisflokkurinn í öndvegi við að sigla þjóðarskútunni í gegnum hvern ólgusjóinn á fætur öðrum og gerði það af mikilli festu og öryggi.  Í dag virðist forusta flokksins ekki vita hvert skuli halda, hvaða stefnu skuli taka.  Ég óttast það að ef Sjálfstæðisflokkurinn kæmist í þá stöðu að stýra þjóðarskútunni, myndi haldið á sömu braut og Samfylkingin hefur valið, það er beint inn í brimskafl ESB-dauðans, þar sem engu er eirt og öllu til kostað á kostnað skattgreiðenda, hins almenna launamanns, án þess að blikna og láta þá ófreskju vaða yfir land og þjóð á skítugum skónum, eins og þeir hafa gert víða í Evrópu og nú síðast á Kýpur.

Meðan forusta Sjálfstæðisflokksins getur ekki talað skírt og unnið af festu að þeim málum sem skiptir þjóðina máli, þá sé ég mér ekki fært að snúa mér að þeim flokki, ég verð að leita á önnum mið.

 


mbl.is Formannsskipti engin óskastaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 23
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 167509

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband