Góð lausn Drangsnesinga að nýta skólastofu til Guðsþjónustu

Þetta er góð lausn hjá þeim á Drangsnesi, nýta skólann til Guðsþjónustu.  Guðsþjónustur þurfa ekki að vera bundnar ákveðnum byggingum, það er hægt að koma saman um Guðsorð hvar sem er og eru skólar hentugir staðir til að lofa Drottinn og hlusta á Hans Orð.  Aðrir mættu taka sér þetta til fyrirmyndar og færa Guðsorðið inn í skólana og þá ekki bara utan skólatíma heldur einnig inn í kennslustundirnar, ekki veitir af.

 


mbl.is Kirkjuhald í skólastofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Reputo

Það ætla ég að vona að verði ALDREI! Ég mundi aldrei nokkurntíman bjóða börnunum mínum upp á það að þurfa að sitja undir trúboði í opinberri menntastofnun. Ef foreldrar vilja innræta trú í börnin sín geta þau gert það sjálf eða sent þau í kirkjustarf utan skólatíma. Mér þætti gaman að sjá hver viðbrögð þín yrðu við beiðni frá Vantrú, Siðmennt, Múslimum eða bara einhverri annari lífsskoðun um sama aðgang að óþroskuðum börnum.

Reputo, 12.9.2013 kl. 10:10

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Kæri Sighvatur Jónsson, ég óska þér og afkomendum þínum þess að fá að kynnast skapara okkar og lausnara.  Hann sem vill ekki að nokkur maður glatist heldur komist til þekkingar á sannleikanum, elskar þig með slíkum kærleika sem enginn annar getur gefið, þráir að mæta þér og blessa þig.  Hann bíður með opinn arminn eftir því að þú viljir koma til Hans og þiggja gjafir Hans.

Guð blessi þig.

Tómas Ibsen Halldórsson, 12.9.2013 kl. 12:35

3 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Þarna er einungis verið að nýta húsnæðið þegar það er ekki notað við kennslu.Ekki rugla þessu saman við trúboð í skólanum.Siðmennt hefur fengið aðgang að skólahúsnæði en mér finnst rétt að guðþjónustur og annað starf kirkjunnar(kristni,múhameð,Buddha,Gyðingdómur og þjóðkirkju) fari fram í kirkjum-nú eða í öðru húsnæði þegar ekki er verið að nota það.

Jósef Smári Ásmundsson, 12.9.2013 kl. 21:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 353
  • Frá upphafi: 162095

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 214
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband