Hvar eru mannréttindin margumræddu þegar kemur að Grískum borgurum?

Evrópusambandinu og öðrum lánadrottnum Grikkja er alveg sama um almenna borgara Grikklands, þeirra markmið virðist vera eitt, að svínbeygja Grísk stjórnvöld og þar með alla Grísku þjóðina.  Þeir eira engu og virðist vera alveg sama þótt valtað sé yfir almenna, saklausa borgara, fólk sem lifði í þeirri trú að allt væri í lagi þegar hlutirnir voru alls ekki í lagi.

ESB er ekki fyrir borgara Evrópusambandsins, borgararnir eru fyrir ESB, eða það virðist stjórnsýsla ESB halda.  Elítan er ekki fyrir þrælana heldur þrælarnir fyrir elítuna.

Með því að ganga of hart að Grikkjum verður þeim gert ókleift að vinna sig út úr þeirri erfiðu stöðu sem þeir eru í.  Það þíðir ekkert að segja bara að það sé gott á þá, þeir hafi komið sér í þessa stöðu. 

Allir eiga rétt á að fá annað tækifæri, það á við Grikki jafnt sem aðra, en ESB og AGS virðast ekki líta svo á.  Þeir skulu borga, sama hvað það kostar.

Þannig eru peningaöflin, AGS og ESB í hnotskurn.

Hvar eru mannréttindin margumræddu þegar kemur að Grískum borgurum?

 


mbl.is Hyggjast fresta greiðslunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 162493

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband