Færsluflokkur: Bloggar

Hvar er viljinn til að mæta þörfum samborgara okkar?

Í ljósi umræðna þess efnis að við ættum að taka við fjölda flóttamanna og er ég ekki að gera lítið úr því, þá finnst mér þó sú staðreynd að fjöldi Íslendinga býr við svo bág kjör sem raun ber vitni að fjöldi manna og kvenna verður að leita á náðir Mæðrastyrksnefndar og annarra hjálparaðila í neyð sinni til að hafa í sig og á.

Stjórnvöld og allir þeir sem tala hátt um að stórauka fjölda flóttamanna sem við ættum að taka á móti, hefðu átt fyrir löngu að hafa búið svo um hnútana að fólk, Íslendingar, samborgarar okkar hefði nóg fyrir sig og sína.

Hvernig ætlum við að halda uppi, hýsa, fæða, klæða og veita aðra þá þjónustu sem þetta fólk svo sannanlega þarf á að halda ef við getum ekki mætt þörfum samlanda okkar svo sómi sé af?

Erum við tilbúin að gefa eftir þær launahækkanir sem við höfum nýlega fengið í hendur og láta flóttamönnum, erlendum og innlendum, í hendur svo það geti lifað sómasamlegu lífi?  Eða erum bið bara full af sýndarmennsku?

Hvar er viljinn til að mæta þörfum samlanda okkar?

 


mbl.is Gefa 400-500 matargjafir á viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB spreðar seðlum í stórum stíl til aðildarlanda, taka úr einum vasa til að láta í annan vasa.

Það lítur út fyrir að peningatrén í Brussel hafi gefið af sér góðan ávöxt þetta árið, stóra og feita seðla með mörgum núllum aftan við töluna 1 eða 5.

Uppskeran er það góð að nú á að dæla tugum milljarða vítt og breytt um ESB ríkin, til að mæta meintu tapi vegna viðskiptaþvingana Rússa, en voru það ekki ESB og Bandaríkin sem settu viðskiptaþvinganir á Rússa?????

Eða á kannski að sækja þá fjármuni til þýskra skattgreiðenda eða jafnvel Grískra????

Íslensk stjórnvöld geta ekki sótt fjármuni í peningatré þar sem þau vaxa ekki hér á landi.  Við getum ekki sótt í sjóði ESB eða vasa skattgreiðenda þar, þar sem við erum ekki í þeim félagsskap, Guði sé lof.  Við verðum bara að taka fjármuni út hægri buxnavasa okkar og færa þá yfir í vinstri vasann til að mæta þeim áföllum sem viðskiptaþvinganir Rússa valda okkur, eða voru það kannski við sem fórum í viðskiptastríð við Rússa????????

Utanríkisstefna ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs hefur í blindni elt stefnu Obama og ESB sem hefur verið eitt stórt klúður frá því Obama komst til valda.  Að elta hann í blindni er fásinna og ættum við að kúvenda frá þeirri utanríkispólitík sem Obama hefur komið á, en hún leiðir aðeins til ills.  Má þar nefna íslamska vorið, sem svo var nefnt, en það hefur haft gríðarlegar hörmungar í för með sér og harðan "vetur" meðal ríkja íslams.  Ég tala nú ekki um hryðjuverkahópa íslamista s.s. ISIS sem er afsprengi Obama stefnunnar.

Ég hef aldrei verið sérlegur vinur Pútíns eða hans stefnu, en það má búast við því að særður björninn sem hefur verið króaður af úti í horni muni á endanum bíta frá sér og þá er voðinn vís.

Rússneskur almenningur verður af góðum íslenskum fiskafurðum og öðrum afurðum frá Evrópu, við verðum af gjaldeyristekjum eins og ESB löndin.  Matvælaverð í Rússlandi mun hækka á sama tíma og laun almennings lækka og til að koma í veg fyrir óeirðir innanlands mun Pútín á endanum neyðast til að fara í stríð.  Hverjir ætli verði fyrir valinu???  Ég tel að það verði Bandaríkin, vegna afstöðu Obama til Pútíns.

 


mbl.is Hafa unnið í því að bæta tjónið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir frá flóttamannabúðunum á Gaza

Hér fyrir neðan er myndband frá flóttamannabúðunum á Gaza.

Hræðilegt að sjá aðbúnað fólks á þessu hrjáða svæði.


Eru ESB, SE og AGS komnir á endastöð með Grikki?

Þær aðferðir sem ESB, SE og AGS hafa beitt Grikki hafa engan veginn verið neinum til góðs.  Þvingunar aðgerðir hafa eingöngu þrengt enn frekar að efnahag Grikkja sem var nógu slæmur fyrir.  Aðferðarfræðin sem notuð hefur verið hefur eingöngu gert illt verra.

Menn hafa neitað að horfast í augu við staðreyndir og þjarmað að þjóð í vanda.  Það má líkja því við að sparkað sé í liggjandi mann sem hefur ekki möguleika á að koma vörnum við.

Með þrjósku allra hlutaðeigandi er nú svo komið að allar lausnir verða dýrari og erfiðari viðfangs.

Ég tel að eina leið Grikkja eins og málum er háttað sé sú að afskrifa skuldir þeirra að verulegu leiti, taka upp nýjan gjaldmiðil og endurskipuleggja allt efnahags og fjármálalíf þeirra.  Þeir þurfa að taka hart á allri spillingu og þjóðin öll þarf að endurnýja hugarfar sitt þegar kemur að fjárhag heimila og einstaklinga.  Ég óttast að ekkert af þessu nái fram að ganga meðan Grikkir eru í ESB.

 


mbl.is Samkomulag byggt á sandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er maðurinn í réttum flokki???

Í viðtengdri frétt kemur fram að Andrés Ingi Jónsson sé varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs.

Með tilliti til þess sem Andrés á að hafa sagt á Alþingi í dag vaknar eftirfarandi spurning hjá mér: Er Andrés Ingi í réttum stjórnmálaflokki?

Hann virðist tala á þeim nótum að hann finni ýmislegt ESB til foráttu, en það er einmitt sá félagsskapur sem formaður hans og fyrrum formaður vilja ólm komast í.  Er von að menn verði hugsi?  frown

Ætli Steingrímur J. viti af þessu?

 


mbl.is Mátti ekki skera niður til hermála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykjavíkurflugvöll á Tjörnina

Væri ekki lang skinsamlegast að fylla upp í Tjörnina í Reykjavík og flytja flugvöllinn þangað?  Það má að skaðlausu breyta Ráðhúsinu í flugstöð.  Nú, þá geta farþegar gengið beint út í miðbæinn í Reykjavík til að sinna erindum sínum þar.  Stutt fyrir þingmenn utan að landi að ganga í vinnuna.

 


mbl.is Hvassahraun kemur best út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinnustaðurinn Alþingi Íslendinga

Er að furða að ekkert gangi á hinu háa Alþingi, fundir fara ekki í annað en að gaspra um allt og ekkert undir liðnum -fundarstjórn forseta-.  Svo kvarta þingmenn undan því að komast ekki í sumarfrí.  Þeir geta sjálfum sér um kennt.  Stjórnarandstaðan hefur tekið þingið í gíslingu vegna þess að þeir fá ekki að ráða öllu sem þeir vilja.  Er ekki bara rétt að gefa stjórnarandstöðunni sumarfrí svo stjórnarþingmenn geti unnið í friði og klárað þau mál sem þarf að klára.  Ég er viss um að þeir yrðu búnir að ljúka öllum aðkallandi málum fyrir lok mánaðarins. wink

Einnig finnst mér að byrja ætti þingfundi með bæn, þar sem þingmenn legðu sjálfa sig og málefni þingsins í Guðs hendi.  Sammæltust um að vinna saman í friði með kærleika Guðs að leiðarljósi.

 


mbl.is Vill byrja þingfundi á söng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir sem voru með skrílslætin á Austurvelli töldu hvergi nærri því 2.500 til 3.000 manns.

Sem sagt, fjöldi mótmælenda var ekki á bilinu 2.500 til 3.000 eins og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum, heldur aðeins lítið brot af þeim fjölda.  Heildar fjöldi þeirra sem voru á svæðinu var sá fjöldi sem að ofan greinir, en lang, lang flestir voru þarna til að taka þátt í hátíðarhöldum, en einungis lítill hópur var með skrílslæti.

Þeir sem voru með skrílslætin á Austurvelli töldu hvergi nærri því 2.500 til 3.000 manns.

 


mbl.is Aðgreindu ekki mótmælendur frá öðrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímna tákn

Mér er oft hugsað til þess hversu gott við höfum það við sem lifum nú á okkar tímum.  Þá er mér einnig hugsað til forfeðra minna og þau kjör sem þau bjuggu við.  Hér áður fyrr reyndi fólk að gera gott úr því sem það hafði en var ekki sí og æ að amast yfir því sem það hafði ekki.

Ætli forfeður okkar hefðu ekki öfundað okkur fyrir þau gæði sem við búum við hefðu þau haft nokkra hugmynd um þær breytingar sem ættu eftir að eiga sér stað frá því þeir voru uppi. 

Svo kvörtum við og kveinum yfir öllu og engu, erum vanþakklát, öfundumst út í hvert annað og heimtum alltaf meira, meira, meira.

Páll postuli talar um okkar tíma í síðara bréfi sínu til Tímóteusar 3.kafla, en þar segir: 

1Vita skalt þú þetta, að á síðustu dögum munu koma örðugar tíðir. 2Mennirnir verða sérgóðir, fégjarnir, raupsamir, hrokafullir, lastmælendur, foreldrum óhlýðnir, vanþakklátir, vanheilagir, 3kærleikslausir, ósáttfúsir, rógberandi, taumlausir, grimmir, ekki elskandi það sem gott er, 4sviksamir, framhleypnir, ofmetnaðarfullir, elskandi munaðarlífið meira en Guð. 5Þeir hafa á sér yfirskin guðhræðslunnar, en afneita krafti hennar. Snú þér burt frá slíkum!

Hér lýsir Páll einmitt þeim tímum sem við lifum allt á þetta við í dag, en hann er að skrifa um hina síðustu daga.

 

 


Til hamingju Alþingi Íslendinga

Mikið er ánægjulegt að sjá þá samheldni sem ríkir á Alþingi vegna áforma og aðferðar ríkisstjórnarinnar við losun hafta. 

Stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar taka nú höndum saman við að leiða þetta mál til lykta.  Mætti þetta vera fyrirboði þess sem koma skal, samvinna, eining og virðing er leiði til lausnar hinna ýmsu mála sem Alþingi glímir við.

Ég segi því:  HÚRRA, HÚRRA, HÚRRA, lengi lifi íslenska þjóðin og íslenskt lýðræði.

Til hamingju Alþingi Íslendinga.

 


mbl.is Góð samstaða þingsins mikilvæg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 167485

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband