Færsluflokkur: Bloggar

"Frammámenn" heimsins beita hótunum til að ná sínu fram. Nú eru það breskir kjósendur sem verða fyrir barðinu á ósvífni þeirrar klíku.

Margir "frammámenn" heimsins keppast við að hóta Bretum öllu illu segi þeir skilið við aðild að ESB. Þegar Obama sótti England heim hótaði þeim nánast vina- og viðskipta slitum, hann er ekki óvanur því að bera fyrir sig hótunum ef menn voga sér að vera annarrar skoðunar en hann.

Við könnumst við svona hótanir eins og Bretar verða nú fyrir, reyndar voru þær hótanir sem við urðum fyrir mest megnis til meðal stjórnmálamanna og háskólasamfélagsins hér heima fyrir, en einni komu þær erlendis frá.

Við ættum eftir öllu að vera á vonarvöl, í verri stöðu en Kúba og jafnvel Norður Kórea, eftir því sem menn vildu telja okkur í trú um.

Einn úr klappliði þeirra hótana sækist nú eftir að verða forseti Íslands. Sá frambjóðandi mælist með mest fylgi samkvæmt skoðanakönnunum og sýnir það svo ekki verði um villst hve kjósendur eru fljótir að gleyma.

 


mbl.is G7 telur Brethvarf ógna vexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannlegur harmleikur. 25% þungana lýkur með fósturdeyðingu.

Hvers eiga þeir einstaklingar að gjalda sem ekki fá að vaxa og þroskast og verða fullorðið fólk, fullgildir einstaklingar? Fólk með allskonar hæfileika sem hefði nýst mannkyninu til framfara. Afleiðingin verður sú að fólki mun fækka allverulega og skyndilega, verður þess ekki langt að bíða, aðeins örfá ár þegar litið er til þess hversu langan tíma mannsskepnan hefur verið til.


mbl.is 25% þungana lýkur með fóstureyðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð og Golíat

Þegar Davíð mætti Golíat á sínum tíma sagði Davíð, "Þú kemur á móti mér með spjót og lensu, en ég kem í gegn þér í nafni Drottins". Mannlega séð var staða Davíðs vonlaus, en hann vissi að Drottinn var með honum og fór því óhræddur gegn risanum.

Í ágúst 2008, tveim mánuðum fyrir hrun, kom fólk úr ýmsum kirkjudeildum og kristnum trúfélögum hér á landi saman í þeim tilgangi að biðja fyrir þjóðinni og þeirri vá sem steðjaði að. Bankamenn, stjórnmálamenn, hagfræðingar og fleiri sáu ekki að neitt væri að og að hætta væri á ferðum, en þessi hópur kristinna einstaklinga hafði fengið aðvörun um hið gagnstæða.

Frá þeim tíma hefur hópur kristinna einstaklinga komið vikulega saman til að biðja fyrir þjóð okkar og í nafni Drottins hefur okkur sem þjóð tekist að snúa vörn í sókn. Hins vegar megum við ekki láta deigan síga, því viðsjárverðir tímar eru framundan og færi betur ef fleiri tækju sér stöðu og bæðu fyrir landi og þjóð.

 


mbl.is Davíð gegn mörgum Golíötum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vísindin sanna að mannlegt líf verður til þegar sæði manns og egg konu koma saman

Vísindamenn hafa komist að því að líf verður til þegar sæði manns og egg konu mætast, en við þann atburð verður skyndilegur ljósbjarmi sem myndast.

Vísindin sanna að mannlegt líf verður til þegar sæði manns og egg konu koma saman, en þá frjóvgast eggið og ljósbjarmi birtist, það er ljós Guðs þegar Hann gefur nýrri manneskju líf.

Hér fyrir neðan er vefslóð á grein í Science hluta The Telegraph.

http://www.telegraph.co.uk/science/2016/04/26/bright-flash-of-light-marks-incredible-moment-life-begins-when-s/

 


Er fækkun fæðinga hér á landi af völdum þess að frjósemi hafi dregist saman eða er önnur ástæða fyrir því?

Er það í raun frjósemi sem dregist hefur saman á Íslandi eða er það sú staðreynd að hinar skelfilegu fósturdeyðingar sem valda því að færri börn fæðast hér á landi.

Ef heldur áfram sem horfir á fækkun fæðinga eftir að hafa skelfileg áhrif hér á landi og reyndar víðar. Frá því að lög um fóstureyðingar tóku gildi 1975 er talið að um 40.000 einstaklingum hafi verið eytt í móðurlífi. Ef við gefum okkur það að þeir einstaklingar hefðu fengið að lifa og getið af sér önnur afkvæmi ca. 10.000 til 20.000 má gera ráð fyrir að í þjóðfélag okkar vantar á bilinu 50.000 til 60.000 einstaklinga sem væru gegnir og gildir þjóðfélagsþegnar í dag.

Með áframhaldandi deyðingu barna, einstaklinga, persóna í móðurlífi má búast við fólksfækkun í landinu á næstu áratugum. Þjóðin mun eldast hratt, færri verða til að halda þjóðfélaginu, þ.e. velferð, hjúkrun, atvinnustarfsemi gangandi, svo eitthvað sé nefnt. Svo vilja menn og konur auka möguleika á fósturdeyðingum. Það væri nær að draga úr þeirri sorgarsögu og helst af öllu að banna þær alfarið, því það er ljótur blettur á samfélagi okkar og í hinum vestræna heimi og víðar.

Guð fyrirgefi okkur þetta ranglæti sem hefur viðgengist á meðal okkar og veiti okkur náð til að snúa af þessari vondu braut dauðans og umfaðma lífið þess í stað.


mbl.is Frjósemi dregst saman á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tregða Samfylkingarinnar við að skilja hvernig lýðræðið virkar, virðist engan enda ætla að taka.

Furðulegt er að fylgjast með umræðum Samfylkingara þessa dagana, sem oftar.

Helgi Hjörvar heldur að kjósendur séu búnir að gleyma því hvernig ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem Samfylkingin með Helga innanborðs, hélt í stjórnartaumana löngu eftir að allt púður var búið í þeirri stjórn. Það sem hélt ríkisstjórn JS gangandi, þótt dauð væri, var gulrótin sem haldið var að Birgittu Jónsdóttur, var hún tilbúin að verja vinstristjórnina falli.

Nú hefur ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðis ríflegan meirihluta, en svo virðist sem stjórnarandstaðan átti sig ekki á því.

Tregða Samfylkingarinnar við að skilja hvernig lýðræðið virkar, virðist engan enda ætla að taka.


mbl.is Tregða við kosningar ógnar stöðugleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er RÚV að taka yfir saksóknara embættin og dómstóla landsins???

Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðallögfræðingur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, hefur ekki séð kæru sem lögð hefur verið fram gegn henni. Hins vegar hefur RÚV fengið kæruna í hendur og tekur að sér að fjalla um málið.

"Rík­is­út­varpið greindi frá því í gær­kvöldi að tveir sak­born­ing­ar í mál­inu, fyrr­ver­andi starfsmaður fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Nova og lög­reglumaður­inn Gunn­ar Scheving Thor­steins­son, sem sætti ákæru í mál­inu, hefðu kært Öldu Hrönn til embætt­is héraðssak­sókn­ara fyr­ir rang­ar sak­argift­ir og meint brot í starfi. RÚV hef­ur kær­urn­ar und­ir hönd­um. 

Garðar Steinn Ólafs­son, lögmaður mann­anna tveggja, staðfesti þetta í sam­tali við mbl.is."

Er nóg að leggja fram kæru hjá RÚV og láta fréttamenn þess miðils sjá um að koma kærunni í hendur dómstóls götunnar??? Ætlar RÚV að blása til mótmæla fyrir framan Lögreglustöðina á Hlemmi??? Ætlar RÚV að taka að sér að úrskurða í þessu máli??? Er það algert aukaatriði að sakborningur fái kæru um meint brot í sínar hendur???

Ef manni er illa við einhvern, er þá nóg að búa til kæru á viðkomandi og fara með það til RÚV og láta þá stofnun um restina???

Eigum við ekki bara að leggja niður saksóknara embættin og dómstóla landsins, er ekki nóg að hafa RÚV??? Það myndi spara okkur mikinn pening, við erum hvort eð er þvinguð til að greiða í RÚV-hítina.


mbl.is Þekkir ekki innihald kæranna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísraelskur Gyðingur skoðaði næturlífið á meðal "Palestínumanna". Hvers ætli hann hafi orðið vísari???

Ísraelskur Gyðingur heimsótti "Palestínskt" þorp til að sjá næturlífið þar og getum við séð á meðfylgjandi myndbandi hvers hann varð vísari. Enn fremur eru nokkur innskot sem lýsa ástandinu í Sýrlandi. Innskotin frá Sýrlandi eru þau þar sem sýrlenski fáninn birtist í myndbandinu efst til hægri. En hverjir fá mesta athygli heimspressunnar??? eru það "Palestínumenn" eða Sýrlendingar???????

 


mbl.is Árásum Palestínumanna fækkar mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni Páll, Samfylkingin er búin að hafna þér, hví situr þú enn sem formaður?

Árni Páll lýsir því yfir að vantraust þjóðarinnar á ríkisstjórninni liggi fyrir.

Ég veit ekki betur en að vantraust Samfylkingarinnar liggi fyrir hvað hann varðar sem formann flokksins, hann situr sem fastast.

Ekki er nóg með að Samfylkingarfólk treystir formanni sínum ekki, þjóðin treystir honum ekki heldur.

Ég held að Árni Páll ætti að taka sér frí og hverfa af sjónarsviði fjölmiðla, láta fara sem minnst fyrir sér.

Árni Páll, Samfylkingin er búin að hafna þér, hví situr þú enn sem formaður?


mbl.is Vantraust þjóðarinnar liggur fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 167483

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband