Færsluflokkur: Bloggar
4.4.2016 | 15:34
Nú vill málefnalaus stjórnarandstaðan setjast í ríkisstjórn, hvað sem raular og tautar.
Fari nú svo að ríkisstjórnin verði hrakin frá völdum, ætlar þá þjóðin að kjósa yfir sig sjóræningja eða sama fólkið sem sat í vinstri stjórninni sálugu sem Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon fóru fyrir????? Fáum við sömu stjórnina með sömu aðfarirnar, sem fólu meðal annars í sér hótunum í garð samherja, svik við þjóðina, undirferli og lygar????
Eru aðfarirnar að forsætisráðherra, með hjálp RÚV, eina leiðin fyrir Samfylkinguna og Vinstri græna til að ná upp glötuðu fylgi???? ekki hafa þeir neinn málstað sem getur fleytt þeim áfram, Samfylkingin tapaði málefninu sem þeir hafa barist fyrir, málefnið lenti á öskuhaugum Evrópusambandsins.
Aldrei hef ég verið sakaður um að vera Framsóknarmaður, en fyrr geng ég í Framsóknarflokkinn en að kjósa yfir mig nýja "norræna velferðarstjórn" jafnvel þó sjóræningjum verði kippt inn í hópinn til að ná meirihluta á þingi. Annars hefur það ekki þvælst fyrir vinstriflokkunum að missa meirihluta á þingi þegar þeir sitja við stjórnvöl á annað borð, þeir láta ekki svoleiðis smáræði setja sig út af laginu. Þeir sátu sem fastast þegar þeir voru búnir að fæla í burtu "óþekka" þingmenn úr sínum röðum og höfðu ekki meirihluta til að ná málum í gegnum þingið.
Nei, stólarnir voru þeim allt.
Nú vill málefnalaus stjórnarandstaðan setjast í ríkisstjórn, hvað sem raular og tautar.
![]() |
Vantraust komið fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.3.2016 | 10:31
Hvenær hafa friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna staðið vörð um frið ...
... eða réttindi þeirra sem þeir hafa átt að verja? Það eru mörg dæmi þess að þeir hafa staðið aðgerðarlausir hjá og horft upp á fólk, almenna borgara, konur og börn brytjað niður af uppreisnar- og hryðjuverkamönnum.
Friðargæsluliðar SÞ hafa ollið meira öngþveiti en öryggi víða þar sem þeir hafa verið staðsettir.
![]() |
Saka friðarliða um kynferðisbrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2016 | 19:44
Starfsmenn SodaStream eru eins og ein stór fjölskylda, vinnustaðurinn er einskonar friðar eyja mitt í ofbeldisfullu umhverfi.
Hér vinna Gyðingar, Bedúnítar og Palestínumenn hlið við hlið í sátt og samlyndi. Stjórnunarstöður falla þeim í skaut sem eru hæfir til að sinna slíkum störfum og skiptir þá ekki máli hvort um araba eða gyðing er að ræða.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Til hamingju kæri vinur, Snorri Óskarsson. Niðurstaða Hæstaréttar er rökrétt og hefði ekki getað farið á annan veg, að öðrum kosti væri tjáningarfrelsi á Íslandi úr sögunni.
Snorri vann ekki aðeins persónulegan sigur á pólitískum rétttrúnaði heldur sigur fyrir alla kennara, aðra opinbera starfsmenn og ég tala nú ekki um fyrir kristin sjónarmið og skoðanafrelsi á Íslandi. Hefði Hæstiréttur dæmt Akureyrarbæ í hag væri skoðanafrelsi á Íslandi illa statt þá gætum við öll hætt að skrifa á bloggsíður okkar og/eða skrifað í athugasemdir annarra bloggara.
Nú hlýtur skólastjórinn í Brekkuskóla og bæjarstjórn Akureyrarbæjar og ég tala nú ekki um þeir sem hófu þessa herferð gegn Snorra að biðja hann afsökunar á framferði sínu, bjóða honum að taka við starfi sínu á nýjan leik og sjá til þess að þær launagreiðslur sem hann hefur farið á mis við verði greiddar honum hið snarasta ásamt dráttarvöxtum. Annað væri óeðlilegt.
Ég trúi ekki öðru en Akureyrarbær hafi lært sína lexíu og vilji í lengstu lög forðast enn frekari niðurlægingu en bæjarfélagið hefur nú þegar orðið fyrir við staðfestingu Hæstaréttar á rétti Snorra Óskarssonar.
Snorri hefur með þolinmæði þurft að bíða þessarar niðurstöðu allt of lengi, en svona er nú réttarkerfi okkar og ég er viss um að þar sé hægt að laga ýmislegt svo menn þurfi ekki að bíða árum saman eftir að fá lausn mála sinna.
Mér liggur við að þakka Akureyrarbæ fyrir að hafa farið í þessa vegferð þó svo ég geti ekki verið þakklátur fyrir það sem þeir hafa lagt á vin minn Snorra, en nú hefur Hæstiréttur tekið af allan vafa um að við megum hafa skoðanir og láta þær í ljós þó þær falli ekki að pólitískum rétttrúnaði, þeirra sem vilja þagga niður í þeim sem ekki eru sammála ruglinu sem þar fyrirfinnst.
Akureyrarbær fór offari gegn Snorra Óskarssyni og hefur nú fengið sinn dóm.
![]() |
Snorri hafði betur gegn Akureyrarbæ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.2.2016 | 09:39
Græðgisvæðing ISAVIA
Á græðgin nú allt að drepa???? ISAVIA ætlar að stórhækka bílastæðagjöld við Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Þrátt fyrir mikla nýtingu bílastæða og allra þeirra tekna sem ISAVIA nýtur þess vegna, ætla þeir nú að hækka umrædd gjöld umtalsvert og sagt í þeim tilgangi að bæta við bílastæðum, væntanlega til að geta grætt enn meir á farþegum og öðrum sem fara um FLE, eins og þeir hafi ekki nóg af þeim sem þar eiga leið um.
Er mönnum engin takmörk sett í græðgisvæðingunni?????
![]() |
Bílastæðagjöld tvöfaldast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2016 | 15:22
Höfnum verkum dauðans og umföðmum lífið
Á vegum Planned Parenthood eru börn, einstaklingar, myrtir í móðurkviði jafnvel í fæðingu. Samtökin nota síðan líkamshluta þessara myrtu einstaklinga og selja í ágóða skini. Þetta er ekki bara gert í Bandaríkjunum heldur víða um hinn vestræna heim. Svo þykjumst við vera siðaðir og fordæmum villimennsku miðalda!!!!!
Aðferðir Planned Parenthood þola ekki dagsins ljós og þá er farið fram með hótunum og ógnunum gagnvart þeim sem leggja sig fram við að upplýsa almenning um ógeðfeldar aðferðir fósturmorða.
Guð fyrirgefi okkur þennan ljóta glæp og það andvaraleysi sem við höfum sýnt í gegnum tímann.
Við þurfum að iðrast og snúa okkur frá verkum dauðans og umfaðma lífið.
Höfnum verkum dauðans og umföðmum lífið.
![]() |
Stefna andstæðingum fóstureyðinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Svíar eru að vakna upp við vondan draum og það full seint. Vandamál sem fylgja þeim fjölda flóttamanna og förufólks eru meiri en þeir ráða við. Hvað ætla íslensk stjórnvöld að gera? ætla þau að bíða eftir að allt komist í óefni, eða ætla þau að taka á málum núna og herða landamæraeftirlitið áður en verður um seinan eins og Svíar hafa upplifað?
Svíar hafa loks áttað sig á því að þeir þurfa að herða landamæraeftirlitið hjá sér. Svíar jafnt sem borgarar annarra þjóða verða að hafa gild skilríki til að fara um landamærin, jafnvel þó þau liggi að Danmörku. Þetta þurfum við einnig að gera áður en verður um seinan.
![]() |
Innan við 100 fengu synjun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2016 | 01:14
Hvaðan eru "Palestínumenn"??? Hver er upprunni þeirra???
Hafa "Palestínumenn" alltaf verið til??? Af hverju eru þeir að berjast fyrir því að vera viðurkenndir sem þjóð fyrst núna á okkar dögum??? Hvaða komu þeir??? Hver er upprunni þeirra???
23.12.2015 | 12:19
Ungur heiðarlegur Sýrlendingur
Ungur Sýrlendingur kemur fram á myndbandi (vefslóð hér fyrir neðan) og er heiðarlegur í að segja frá ástæðu þess að hann er að flýja til Evrópu.
Muslim migrant to Europe explains his real motvations
http://www.liveleak.com/view?i=08f_1450562352#79wJfXTwrWYcJArq.99
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
flinston
-
baldvinj
-
bergthorolason
-
biggilofts
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
gattin
-
contact
-
einarbb
-
eeelle
-
emilkr
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gudbjorng
-
zumann
-
tilveran-i-esb
-
coke
-
gunnlauguri
-
gustafskulason
-
conspiracy
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
haddi9001
-
maeglika
-
harhar33
-
bordeyri
-
heimssyn
-
don
-
hordurvald
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
jakobk
-
johanneliasson
-
johann
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonl
-
bassinn
-
prakkarinn
-
thjodarskutan
-
kiddikef
-
krist
-
kristjan9
-
lifsrettur
-
loncexter
-
magnusg
-
marinogn
-
mofi
-
olof
-
pallvil
-
iceland
-
regu
-
undirborginni
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
duddi9
-
sjonsson
-
thruman
-
athena
-
stebbifr
-
stendors
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
viktor
-
villidenni
-
postdoc
-
thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar