Færsluflokkur: Bloggar

Skárri kosturinn af tveimur slæmum varð ofaná.

Af tveim slæmum kostum varð skárri kosturinn ofaná. Hillary tapar nú í þriðja sinn. Skoðanakannanir hafa sýnt að yfir 60% Bandaríkjamanna treysta henni ekki og þess vegna ætti þetta ekki að koma á óvart. Hins vegar hafa helstu fjölmiðlar vestra hamast við að birta skoðanakannanir sem sýna hana hafa yfirburði, en þeir, fjölmiðlanir, voru flestir á hennar bandi.

Skárri kosturinn af tveimur slæmum varð ofaná. Vonandi mun þessi niðurstaða verða Bandaríkjunum og heimsbyggðinni allri til blessunar.

Donald Trump kjörinn forseti


mbl.is Donald Trump kjörinn forseti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búið er að birta niðurstöður forsetakosninganna í Bandaríkjunum, það var gert óvart.

Donald Trump hefur undanfarna mánuði verið á fullu að ferðast milli fylkja og halda kosningafundi þar sem í mörgum tilfellum tugir þúsunda hafa safnast saman til að hlusta á hann. Trump hefur daglega að jafnaði haldið þetta 3 til 5 kosningafundi, á sama tíma hefur Hillary Clinton að mestu haldið sig til hlés til að hvíla sig og reynt að ná heilsu, en alvarleg veikindi virðast hafa verið að hrjá hana.

Hillary þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af niðurstöðum kosninganna, sem fram fara núna á þriðjudaginn 8.nóvember, nú þegar hafa verið birtar niðurstöður kosninganna. WRCBtv stöðin sem er í nánu samstarfi við NBC birti niðurstöður kosninganna óvart 1. eða 2. nóvember s.l.

Wikileaks opinberuðu um daginn tölvupóst sem sent var til Barack Obama frá Hvíta húsinu nokkrum dögum fyrir kosningarnar 2008, en þar er fjallað um hvernig undirbúa þurfi valdaskiptin þegar Georg Bush lætur af störfum og Obama tekur við. Sem sagt áður en kosningarnar fóru fram var búið að ákveða að Obama myndi (ætti) að vinna kosningarnar.

Málið er að það er engin raunveruleg barátta um Hvíta húsið, þetta eru allt tómar blekkingar. Það er löngu búið að ákveða að Hillary verði næsti forseti. Ef hins vegar FBI og öðrum stofnunum tekst að stöðva hana, fólkið sem vinnur hjá þeim stofnunum vita hvaða mann hún hefur að geyma, mun Obama grípa inní setja herlög og sitja áfram.

Hér fyrir neðan er myndband sem fjallar einmitt um kosninganiðurstöðurnar sem átti að birta eftir kosningarnar. Auk þess eru til ýmis myndbönd sem sýna hvernig kosningasvindl eiga sér stað, en þar á Georg Soros stórann þátt auk margra einstaklinga sem Demókrataflokkurinn notar til hins arna. Jafnframt má geta þess að milljónir látinna einstaklinga hafa þegar kosið og svo eru einstaklingar sem kjósa í meira en einu fylki svo eitthvað sé nefnt.


mbl.is Á harðaspretti að Hvíta húsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningafundir Hillary Clinton og Donald Trump, hver er munurinn á þeim?

Sjá samanburð á kosningafundum þeirra Hillary Clinton og Donald Trump á myndbandinu hér fyrir neðan.


mbl.is Clinton og Trump keppa um lykilríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trump mun ekki leyft að sigra í forsetakosningunum

Donald Trump verður ekki leyft að sigra í forsetakosningunum í Bandaríkjunum, elítan, bankaeigendur, fjölmiðlaeigendur og aðrir áhrifamiklir aðilar munu ekki leyfa að hann sigri.

Clinton glæpagengið er þessa dagana að afhjúpast, jafnvel síðustu klukkustundir hafa verið að koma upp ótrúlegustu hlutir sem eiga eftir að valda hryllingi hjá fólki.

Það yrði hryllilegt fyrir heimsbyggðina verði HRC næsti forseti Bandaríkjanna. FBI, NSA og fleiri stofnanir eru að vinna hörðum höndum að rannsaka spillinguna í kringum þetta fólk og koma þeim á framfæri svo hægt verði að ákæra og loka inni þau sem flækt eru í þá ógeðfelldu hluti sem eru að líta dagsins ljós.

En hvað verður ef Hillary verður neydd til að hætta og/eða Trump vinnur kosningarnar? Obama mun grípa inní ferlið og fresta eða aflýsa kosningunum og halda sjálfur áfram þvert á lög og reglur og sjálfa stjórnarskránna, en hann er ekki óvanur því að brjóta þær reglur.

Viðtalið við Julian Assange hér fyrir neðan er fróðlegt fyrir magar sakir.


mbl.is Clinton tekur forystuna á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er Huma Abedin, nánasti starfsmaður Hillary Clinton, sú sem er inn í öllu því sem Hillary gerir og tekur sér fyrir hendur???

Hér fyrir neðan er upplýsandi myndband um nánasta starfsmann Hillary Clinton, þann aðila sem gæti haft afdrifarík áhrif á helstu ákvarðanatökur verði HC kosinn forseti Bandaríkjanna.


James Comey er ekki öfundsverður fyrir að vera yfirmaður FBI í dag

Demókratar ásaka James Comey fyrir að vinna vinnuna sína. Staðreyndin er sú að við rannsókn á Anthony Weiner, eiginmanni Huma Abedin, en Huma hefur verið nánasti starfsmaður Hillary Clinton, kom í ljós að 650.000 tölvupóstar fundust í tölvu sem Anthony og Huma notuðu bæði heima hjá sér. Tölvupóstar þessir voru vistaðir í möppu sem þau kölluðu "Live insurance" eða lífstrygging. Sumir vilja meina að þessi "líftrygging" hefði átt að vera til staðar snérist Hillari gegn þeim, en þau þekkja vel til handbragða hennar.

Það er ekki að undra að allt leiki á reiðiskjálfi í Demókrataflokknum. Margir virðast styðja HRC til forseta jafnvel þó flestir þeirra ef ekki allir vita hversu spillt hún er.

Hún vissi vel að það sem hún var að gera með því að vera með netþjón heima hjá sér var hún að stofna öryggi Bandarísku þjóðarinnar í hættu, en einmitt í gegnum þennan netþjón láku öryggisupplýsingar og þjóðar leyndarmál til helstu óvina þeirra. Hún þóttist ekki vita að hún mætti ekki notast við þennan netþjón á sama tíma og hún fullyrðir að hún hafi góða þekkingu og fullan skilning á öllum öryggisatriðum er varðar þjóðina.

Hún telur sig vera best til þess fallna að vera þjóðhöfðingi bandarísku þjóðarinnar, en enginn hefur orðið ber að því að fara svo illa með hin viðkvæmustu mál sem hún.

Margir sem orðið hafa vitni að hegðun hennar og reiðiköstum og þar með taldir fyrrum starfsmenn Clinton hjónanna hafa verið að koma fram á sjónarsviðið, þrátt fyrir að leggja líf sitt og limi í hættu, vegna þess að þeir geta ekki haft á samviskunni að þegja yfir því hvaða mann hún hefur að geyma verði hún kjörinn forseti, vonandi að uppljóstrun þeirra verði til þess að fæla kjósendur frá því að kjósa hana.

Sennilegast er talið að netþjónninn umræddi hafi fyrst og fremst verið til þess notaður að hagnast persónulega og til að afla Clinton-sjóðnum fé, en HRC notaði aðstöðu sína til að selja aðgang að bandarískum stjórnvöldum, einkum þó utanríkisráðuneytinu sem hún stjórnaði.

Sjóliði einn sem var um borð í kjarnorkukafbáti tók mynd í kafbátnum, hann vildi geta sýnt foreldrum sínum, var dæmdur til fangelsisvistar fyrir athæfi sitt. Það sem Hillary hefur gert er margfalt alvarlegra en það sem þessi sjómaður gerði, en hún hefur verið látin afskiptalaus og komist upp með glæpinn.

Það virðist sem svo að engin lög nái yfir gjörðir hennar, hún yfir allt og alla hafin, meðan öðrum er refsað fyrir minni sakir.


mbl.is FBI í hringiðu kosningabaráttunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún var rekin frá CNN

Brazile var rekin frá CNN, en fréttastofan lét hjá líða að segja frá því í heilar tvær vikur. 

Donna Brazile tilkynnti í gær að hún starfi ekki lengur sem...

Ástæða þess að Donna ver rekin er sú að Wikileakes upplýsti almenning um það að Donna hafði látið Hillary Clinton í té spurningar sem hún yrði spurð í kappræðum við Donald Trump.  Bættist þar með enn eitt hneykslið í safn Demókrata í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum, en sukkið og svínaríið í kring um HRC er alveg ótrúlegt. Hillary virðist telja að lög og reglur eigi ekki við hana heldur alla aðra, að hún sé ósnertanleg. Svo kemur fólk eins og Donna Brazile og gerir allt fyrir Hillary vitandi það að sú síðarnefnda hefur yfir fúlgu fjár að ráðskast með í gegnum Clinton Foundation sem á að vera góðgerðarstofnun, en góðgerðir þeirrar stofnunar snýst um að vera góð við Clinton fjölskylduna.

Þegar Wikileaks opinberaði uppljóstranir sínar um vinnubrögð Donna Brazile ákvað CNN að reka hana til að reyna að halda einhverri smá virðingu eftir, en CNN hefur stundum verið kallað Clinton News Network og það ekki að ástæðulausu.


mbl.is Brazile hætt hjá CNN
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki rétt að láta kjararáð um að ákveða greiðslur til öryrkja og ellilífeyrisþega

Þeir virðast sjá fullt af peningum fyrir aðra hópa s.s. ráðherra, þingmenn og opinbera starfsmenn. Stjórnmálamenn hafa átt í erfiðleikum með að finna fjármagn fyrir eldri borgara og aðra þá sem minna mega sín, en alltaf er nóg að hafa fyrir þá og flokka þeirra.


mbl.is Jafna laun þingmanna og dómara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru forseti, ráðherrar og þingmenn meira virði en öryrkjar og ellilífeyrisþegar?

Það mætti halda að líf og tilvera þingmanna, ráðherra og forseta séu meira virði en líf ellilífeyrisþega, þeirra sem hafa lagt grunninn að því velferðarþjóðfélagi sem við byggjum.

Laun forsætisráðherra hækka um ca. tvöföld laun ellilífeyrisþega, þeirra sem ekki hafa haft því láni að fagna að hafa greitt í lífeyrissjóði þingmanna og ráðherra.

Líta ráðamenn á öryrkja og ellilífeyrisþega bara sem einhverskonar ruslalýð sem má bara kasta skiptimynt í svona þegar þeim hentar???? Á meðan ráðamenn fá launahækkanir sem eru á við margföld mánaðarlaun hinna öldnu og öryrkja eru síðarnefndi hópurinn látinn bíða í meira en ár eftir smánar leiðréttingu.

Það er skammarlegt hvernig komið er fram við þá sem stóðu í eldlínunni fyrir okkur og byggðu landið sem við erfum. Viljum við að afkomendur okkar komi svona fram við okkur þegar við verðum gömul og þurfum að þiggja lífeyri vegna aldurs eða örorku??????


mbl.is Laun forseta hækka um hálfa milljón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vangaveltur í kjölfar Alþingiskosninga

Píratar vildu bjóða landsmönnum uppá annan valkost en þann sem við höfðum í fráfarandi ríkisstjórn. Landsmenn höfnuðu valkosti Pírata svo um munar. Eftir að hafa mælst með hreinan meirihluta og stjórnarmyndunar viðræður hafnar við Vinstri græna, Samfylkinguna og Bjarta framtíð, sáu landsmenn sig tilknúna til að taka af skarið. Fólk sem var ekki öruggt með hvað það ætti að kjósa sá sig tilknúið að kjósa Sjálfstæðisflokkinn þar sem hann var einn í þeirri stöðu að vera mótvægi við þá ógn sem önnur vinstristjórn var fyrir landsmenn. Flestir landsmenn gátu ekki hugsað sér annað eins tímabil og við höfðum á árunum 2009 til 2013, þ.e. þeir sem enn muna það tímabil.

Sjálfstæðisflokkurinn sem var vanur að hafa fylgi á bilinu 35 til 42% hefur nú um langt skeið mælst um og innan við 25% í skoðanakönnunum. Niðurstaðan eftir kjördag var hins vegar 29% og vil ég meina að það sé vegna þess að fólki óaði við nýrri vinstri stjórn. Þökk sé Pírötum fyrir að hafa opnað augu almennings fyrir þeim möguleika.

Það ætti að vera formanni og forustu Sjálfstæðisflokksins umhugsunar efni af hverju flokkurinn sé ekki stærri en raun ber vitni. Flokkurinn fékk ekki 29% vegna þess að fólk sé svo ánægt með Bjarna sem formann heldur sú staðreynd að ógn steðjaði að þjóðinni frá vinstri væng stjórnmálanna og þess vegna ákváðu margir á ögurstundu að ljá flokknum atkvæði sitt. Það er ekki nóg fyrir Bjarna að benda á að kratarnir í Sjálfstæðisflokknum hafi yfirgefið flokkinn og stofnað nýjan krataflokk, en stór hluti Samfylkingaratkvæða trúi ég að hafi farið yfir á Viðreisn.

Fyrir síðustu kosningar, árið 2013, lofuðu stjórnarflokkarnir að leiðrétta og laga hag örorku- og ellilífeyrisþega. Aðgerðir sem Bjarni kynnti nú fyrir stuttu voru allt of litlar leiðréttingar og komu allt of seint, öryrkjar og ellilífeyrisþegar láta ekki bjóða sér upp á slíka smán né launa vanvita stjórnmálamönnum með atkvæði sínu. Öryrkjar og ellilífeyrisþegar eiga að hafa nóg, eiga ekki að þurfa að lifa við það að rétt skrimta. Það er skömm hvernig komið er fram við þá sem minna mega sín í samfélaginu. Á sama tíma og laun opinberra starfsmanna, embættismanna, alþingismanna og ráðherra voru hækkuð upp úr öllu valdi var ekkert gert fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega. Hefði Sjálfstæðisflokkurinn haft bein í nefinu og komið mynduglega til móts við þessa hópa hefði Sjálfstæðisflokkurinn náð fyrri styrkleika sínum.

Framsóknarflokkurinn má muna sinn fífil fegri, en eftir árásir RUV og stjórnarandstöðunnar á fyrrum formann flokksins ákvað stór hópur innan flokksins að taka þátt í aðförinni í stað þess að standa með formanni sínum og láta ekki drulluna yfir sig ganga. Framsóknarflokkurinn getur því sjálfum sér um kennt hvernig fór og misstu því stóran hluta þeirra atkvæða sem þeir höfðu haft af Vinstri grænum 2013 yfir til þeirra á nýjan leik.

Björt framtíð vann varnar sigur í þessum kosningum og á ég ekki gott með að sjá hvers vegna, ekki nema kannski vegna þess að sumir þeir sem voru búnir að gefast upp á Samfylkingunni kusu þá.

Píratar sem hafa lengi vel mælst stærstir í skoðanakönnunum hlutu afhroð. Það þarf enginn að segja mér að þeir hafi ekki vænst 23ja til 25% fylgi, að þeir séu bara sáttir við sitt. Staðreyndin er sú að almenningur treystir þeim ekki, þeir sem eru eldri en tvívetra gera sér grein fyrir því að hugmyndir þeirra eru barnalegar og ganga ekki upp.

Viðreisn er nýtt afl með fólki sem haldið er ESB-glíu og hefur það sama markmið og Samfylkingin að koma okkur þangað inn, þrátt fyrir gersamlega vonlausa stöðu Evrópusambandsins. Þau halda að evran geti bjargað einhverju hér á landi, en hvernig á hún að gagnast okkur á sama tíma og hún gagnast fæstum í Evrópu???????? Viðreisn tók fylgi bæði frá ESB-sinnuðum Sjálfstæðismönnum og eins frá Samfylkingunni.

Gengi Vinstri grænna vekur mér furðu. Flokkur sem hefur sýnt að honum er ekki treystandi, sem vinnur gegn eigin stefnu að þá dugi að setja fram konu með fallegt bros og þá kikni allir í knjánum og kjósa hana. Ég held að það sé eitthvað alvarlegt að þegar svo er komið að fólk kjósi slíkan flokk.

Þetta eru mínar vangaveltur eftir kosningarnar 2016 og þá er bara að sjá hvernig flokkarnir spila úr niðurstöðunni. Við þurfum á sterkri stjórn að halda, en hún þarf kannski ekki að lifa af fjögur ár, það gæti verið gott að kjósa aftur eftir tvö ár eða fyrr í von um skírari niðurstöðu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband