Færsluflokkur: Bloggar
29.10.2016 | 13:12
Nú er allt á suðupotti...
...hjá Demókrataflokknum og einkum í herbúðum Hillary Clinton.
Reyndar eru forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á jarðskjálftasvæði sem er mjög virkt þessa stundina og ómögulegt að vita hvaða afleiðingar sá stóri mun hafa á útkomu þeirra.
Fyrir um tveim árum heyrði ég konu að nafni Glenda Jackson spá því að það verða ekki haldnar kosningar nú 2016 að Obama muni með einhliða ákvörðun slá þær af og halda áfram sem forseti. Við skulum sjá hvað setur.
Sjá viðtöl og viðbrögð við nýjustu upplýsingum sem komu frá James Comey yfirmanni FBI í gær.
Þar að auki komu upplýsingar í dag frá Julian Assange um að þeir 30.000 tölvupóstar sem HC var búin að eyða úr tölvum sínum ætli þeir nú að opinbera fyrir 1.nóvember.
Það verður að segjast eins og er að maður hefur aldrei séð annað eins og manni hryllir við.
Kosningarnar hér í dag hafa fyrst og fremst áhrif hér á landi, en kosningarnar í Bandaríkjunum hafa ekki bara áhrif í Bandaríkjunum heldur út um allan heim.
![]() |
Rannsaka tölvupósta Clinton á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.10.2016 | 18:59
Reykjavíkurborg er ekki þekkt fyrir...
... að láta lög eða dóma, jafnvel dóma Hæstarétts, þvælast fyrir sér. Meirihluti borgarstjórnar fer sínar eigin leiðir hvað sem tautar og raular. Meirihlutinn sem lofaði samræðupólitík, lýðræðispólitík og fá borgarana með í lið, lætur það ekki trufla sig þegar meirihluti borgarbúa vill allt annað en borgarstjórnar meirihlutinn, þá bara fara þeir sínar eigin leiðir eins og ekkert hafi í skorist enda óþarfi að hafa áhyggjur af kjósendum, í bili.
![]() |
Borgin synjar íbúum Brynju enn um bætur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.10.2016 | 09:53
Það er gott að vera Sýrlenskur flóttamaður í Þýskalandi, sérstaklega ef þú átt margar konur og börn í samræmi við það. Getum við ekki gert betur???
Ghazia 49ára Sýrlenskur flóttamaður, múslími, kom til Þýskalands í fyrra, árið 2015, ásamt fjórum eiginkonum sínum og 23 börnum þeirra. Ghzia ásamt fjölskyldu sinni fékk hæli í Þýskalandi og þiggur nú styrki frá Þýska ríkinu. Styrkirnir sem Ghazia fær nú eru á ársgrundvelli um 360.000 evrur eða sem svarar um 45.000.000 íslenskra króna miðað við gengið í dag.
Ég er að hugsa um að flýja til Þýskalands ef kosningarnar á laugardaginn fara illa, ásamt eiginkonu minni, börnum mínum og mökum þeirra og barnabörnum. Ég geri ráð fyrir að gefa fengið svipaða upphæð frá Þýska ríkinu og Ghazia, annað væri ósanngjarnt. Er það ekki.
Þessar upplýsingar eru fengnar úr Das Bild.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fáránlegar eru ásakanir Bandarískra stjórnvalda þess efnis að Rússar séu að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.
Þess ber að minnast að það voru Bandaríkjamenn að tilstillan Obama forseta sem reyndu að hafa áhrif á þingkosningar í Ísrael ekki alls fyrir löngu og átti að koma í veg fyrir að Netanyahu yrði áfram við völd í Ísrael.
Bandarísk stjórnvöld hafa haft áhrif á skipun stjórnvalda víða um heim og komið fólki frá völdum sem þeim eru ekki hliðhollir. Obama og Hillary Clinton hafa ekki veri barnanna best í þeim efnum. Því er það grát broslegt að heyra kvartanir þeirra yfir meintum afskiptum Rússa af forsetakosningum vestra, en þau reyna hvað sem er til að sverta Trump í von um að fólk sjái "saklausa" Clinton í harðri baráttu um Hvíta húsið. Sannleikurinn er hins vegar sá að óþvera slóð fylgir henni langt aftur í tímann, löngu áður en Bill maður hennar varð forseti 1992.
Uppljóstranir um fortíð HRC og hver hún í raun er, er að valda því að Demókrataflokkurinn er að fara á taugum.
![]() |
Ásakanir um afskipti Rússa móðursýki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2016 | 09:35
Hvers vegna eykur Sjálfstæðisflokkurinn fylgi sitt milli kannana, nú rétt í aðdraganda kosninga?
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur þess að fólki hryllir við þeirri tilhugsun að Sjóræningjar og aðrir vinstri- ESB-sinnar verði við völd eftir kosningar. Það er ekki það að fólk sé svo ánægt með Sjálfstæðisflokkinn að fylgi hans eykst milli kannana heldur óttinn við óvissu og aðra eins óreiðu og við höfðum með "Norrænu velferðarstjórnina" sálugu.
![]() |
Sjálfstæðisflokkur með 25,1% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.10.2016 | 21:26
Hvað erum við að gera???
Dr. Anthony Levatino lýsir því hvernig fóstureyðing fer fram á einfaldan og myndrænan hátt. Lavatino hafði framkvæmt 1200 fóstureyðingar þegar augu hans opnuðust allt í einu og hann áttaði sig á því hvað hann var að gera.
Ég hvet alla til að skoða myndbandið hér fyrir neðan, það er holt fyrir okkur öll að vita í raun hvað fram fer þegar fóstri er (d)eytt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2016 | 09:43
Hvað er til ráða fyrir útigangsfólk nú þegar Hjálpræðisherinn er ekki lengur til staðar í Kirkjustræti?
Er ekki tilvalið að beina útigangsfólki í Ráðhúsið, það er miðsvæðis, þar er gott eldhús og þar getur það fengið meira en bara súpu. Mér skilst að þar sé mikill og góður matur á boðstólum.
Því hlýtur að vera tekið fagnandi af þeim sem þar vinna.
![]() |
Vilja starta súpustrætó í borginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.10.2016 | 12:16
Tveir slæmir kostir sem Bandaríkjamenn standa frammi fyrir í kosningum 8.nóvember n.k.
Það eru tveir slæmir kostir sem Bandaríkjamenn standa frammi fyrir þegar kemur að forsetakosningunum þann 8.nóvember n.k. Annars vegar Hillary Clinton og hins vegar Donald Trump. Hvorugur kosturinn er betri en hinn, en annar kosturinn er verri en hinn.
Meðan Clinton var utanríkisráðherra, árið 2012, var sendiherra Bandaríkjanna í Benghazi Libýu myrtur ásamt þremur sérsveitarmönnum sem voru honum til halds og trausts. Sendiherrann var margsinnis búinn að biðja um frekari vernd þar sem hann mat ástandið í landinu svo að ógn stafaði að þeim. Einn sérsveitarmaðurinn sagði í símtali við móður sína daginn áður en ráðist var á þá að hann myndi deyja og var í raun að kveðja móður sína. Clinton sinnti þessu í engu. Sérsveitarmaður sagði frá því að hann og sveit sú sem hann tilheyrði voru tilbúnir að fara til Benghazi þegar kallið kæmi frá utanríkisráðherra, en skilaboðin frá ráðuneytinu voru þau að þeir ættu ekkert að aðhafast, umrædd sveit var stödd á Ítalíu og því ekki mjög langt að fara.
Clinton ákvað í trássi við allar reglur að hafa netþjón heima hjá sér þar sem öll tölvusamskipti hennar á vegum ráðuneytisins færu í gegn. Hún sendi og tók á móti mikilvægum trúnaðarskjölum í gegnum sinn eigin "server" sem hakkaður var og upplýsingar komust út um allt þar á meðal ríkisleyndamál sem varðaði ýmis mál sem óvinveittar þjóðir gátu nýtt sér. Ítrekað laug hún til um tölvupósta sem hún hafði sent eða tekið á móti póstar merktir sem trúnaðarskjöl og hún þóttist ekki hafa vitað hvaða merkingar þær voru sem á póstunum voru, þrátt fyrir að hafa verið í opinberri þjónustu í áratugi og farið var yfir allt slíkt áður en hún var svarin inn sem ráðherra.
Með þessu framferði sínu stefndi hún öryggi Bandaríkjanna og þegna ríkisins á erlendri grund í stór hættu.
Í ljós hefur komið að hún hefur notað tölvupósta sína til að selja aðgang að stjórnvöldum þó einkum utanríkisráðuneytinu. Þeir sem gáfu stórar upphæðir í "Clinton Foundation" fengu sér meðferðir og margir þeirra fengu samninga sem þeir gátu notað til að hagnast á á kostnað ríkisins, en Clinton sjóðurinn bólgnaði út í sífellu. Þetta vildi Clinton að ekki kæmi fram í ráðuneytinu sjálfu og var því með sinn eigin server heima hjá sér í trássi við lög og reglur. Saudí Arabar reiddu fram 25milljónir dollara í sjóð hennar og út á það voru þeim seld vopn fyrir 60milljarða dollara, vopn sem að stórum hluta ef ekki öllu leiti fór beint til ISIS og hún vissi vel hvað hún var að gera.
Clinton þáði mörg hundruð milljóna ef ekki milljarða dollara í mútur meðan hún var utanríkisráðherra.
Sérsveitarmenn sem gættu öryggis Clinton hjónanna í Hvíta húsinu þegar Bill var forseti, hafa komið fram á sjónarsviðið og lýst ástandinu í Hvíta húsinu á þeim tíma og hafa þeir ekki fagrar sögur að segja af þeim hjónum og þó einkum Hillary. Einn þeirra segir frá því að þegar myndavélar voru á lofti var ásýnd hennar allt önnur en þegar engar myndavélar voru sjáanlegar. Ýmsar sögur fara af atferli hennar á þessum tíma sem sérsveitarmenn hafa opinberað nú þegar þeim hryllir við þeirri tilhugsun að HC verði forseti. Ætla ég ekki að fara út í að hafa það eftir hér frekar en orðið er.
Trump er ófágaður maður og hefur hrjúfa framkomu. Það sem fólki vestra líkar við hann er að hann kemur til dyranna eins og hann er klæddur. Fólk vill sjá breytingar í Bandaríkjunum, en í tíð Obama hefur efnahagslífið, atvinnuástandið og mórall þjóðarinnar farið hnignandi, en með því að kjósa HC sér fólk ekki fram á breytingar. Með því að kjósa Trump eygir það von um breytingar og að öryggi borgaranna verði haft í fyrirrúmi og von um aukna atvinnumöguleika og betra efnahagslíf. Í dag eru yfir 45milljónir á svo kölluðum "Food Stamps" sem er fjárhagsleg aðstoð til fólks svo að geti keypt sér mat. Atvinnuleysi er margfalt meira en opinberar tölur segja til um, en reiknislegar blekkingar eiga sér stað til að sýna allt annað en hin raunverulega staða er.
![]() |
Hún er ógeð, hún er norn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2016 | 22:22
Ekki er hátt risið á meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur. Litlir flokkar og lítið fólk sem þrífst á því að níðast á þeim sem minna mega sín.
Vinstri hjörðin er söm við sig, hún bregst ekki að sýna sitt rétta eðli, eðli sem óþefur er af. Skömm meirihluta borgarstjórnar á eftir að koma þeim sjálfum í koll.
Ekki er hátt risið á meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur. Litlir flokkar og lítið fólk sem þrífst á því að níðast á þeim sem minna mega sín.
![]() |
Köld kveðja til Hjálpræðishersins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
flinston
-
baldvinj
-
bergthorolason
-
biggilofts
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
gattin
-
contact
-
einarbb
-
eeelle
-
emilkr
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gudbjorng
-
zumann
-
tilveran-i-esb
-
coke
-
gunnlauguri
-
gustafskulason
-
conspiracy
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
haddi9001
-
maeglika
-
harhar33
-
bordeyri
-
heimssyn
-
don
-
hordurvald
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
jakobk
-
johanneliasson
-
johann
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonl
-
bassinn
-
prakkarinn
-
thjodarskutan
-
kiddikef
-
krist
-
kristjan9
-
lifsrettur
-
loncexter
-
magnusg
-
marinogn
-
mofi
-
olof
-
pallvil
-
iceland
-
regu
-
undirborginni
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
duddi9
-
sjonsson
-
thruman
-
athena
-
stebbifr
-
stendors
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
viktor
-
villidenni
-
postdoc
-
thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 167482
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Það er sannanlega verðugt og þarft verk að upplýsa fólk um alvarleika þess að myrða börn, hvort heldur þau eru fædd eða ófædd. Ein ástæða þess að Guð vildi útrýma Kanaanítum á sínum tíma var sú staðreynd að þeir fórnfærðu börnum sínum á altari Móloks. Í dag er börnum fórnað á altari félagshyggjunnar og fólki finnst það ekkert tiltöku mál. Það er eins og fólk haldi að fóstur [einstaklingur á fyrsta þroskaskeiði lífsins] sé eins og einhverskonar graftarkýli eða fílapensill sem má kreist út. Fólk virðist blint á þá staðreynd að um einstakling, persónu með tilfinningar, með sitt eigið hjarta, lungu, heila og sínar eigin æðar og blóð sem er annað og jafnvel annar blóðflokkur en blóð móðurinnar.
Það er sorglegt til þess að vita að læknar, vísindamenn, stjórnmálamenn og margir aðrir líti á einstaklinginn í móðurlífi eins og einhvern aðskotahlut sem megi losa sig við. Þá er vert að minnast þess að þetta sama fólk var eitt sinn í þeirri stöðu að vera slíkur aðskotahlutur, en það fékk tækifæri til lífs og er nú í þeirri stöðu að ákveða að aðrir einstaklingar skuli ekki fá þann sama rétt til lífs.
Lífið er okkur gefið af Guði og við þurfum að varðveita lífið og vernda líf lítilmagnans.
Eigi fólk í erfiðleikum og sjá ekki fram á að geta framfleytt nýjum einstaklingi, þá má minna á að til eru úrræði sem eru betri en að eyða lífi.
Veljum lífið. Jesús sagði: "Ég kom til að gefa yður líf, líf í fullri gnægð". Mætti okkur auðnast að umfaðma sérhvert það líf sem Guð gefur.