Færsluflokkur: Bloggar
28.12.2016 | 12:39
Háttsettur leiðtogi ISIS-samtakanna gaf Jesú Kristi líf sitt og þjónar Honum í dag

Jennifer LeClaire is now sharing her reflections and revelations through Walking in the Spirit. Listen at charismapodcastnetwork.com.
You've heard of Muslims getting saved after dreams of Jesus. Now, a high-ranking ISIS leader has reportedly given his life to Jesus after watching a Christian television broadcast.
His name is Muhammad*. After watching Leading The Way's satellite TV channel, he had a plan, according to Michael Youssef's ministry.
That plan: to kill a member of Leading the Way's follow-up team.
"Muhammad called the number on the screen. 'I need to meet with you,' he told Peter*, one of Leading The Way's follow-up team leaders," according to the ministry.
For security purposes, the ministry is strategic about vetting callers before meeting with them in person. But follow-up team leader Peter discerned God's voice urging him, "This time is different. Go and meet this manand be bold with him."
According to the ministry, Peter met with Muhammad and boldly proclaimed the gospel to him. After they parted ways, the ministry reports, God continued to speak to Muhammad, revealing Himself in a dream and bringing great conviction upon him.
"He shaved his beardthe symbol of his radical devotion to Islam," the ministry reports. "He decided to follow Christ. And he reached out to Peter once more, desperate to meet with him."
"Peter, I have a confession," Muhammad told him. "The first time I was going to meet you, I intended to kill you, and I am sorry."
With that, Leading the Way reports, the ISIS leader fell on his face and repented before the Lord.
"This former ISIS leader is now your brother in Christ," the ministry says. "His conversion happened just weeks ago, and by God's mercy and grace, he is already serving Christ where he lives. Only God can change an ISIS leader. Only God can transform heartsand yet we are blessed to join Him in His work of reaching the lost with the Good News of Jesus Christ."
*Names changed for safety purposes.
Niðurstaða PISA-könnunnar sýna að íslenskir grunnskólanemum hefur farið verulega aftur undan farin ár. Hver gæti verið skýringin á þessari lakri niðurstöðu? Ætli það sé hægt að laga þetta með því að setja meira fjármagn í skólakerfið? Hafa kennarar brugðist? Hvað með foreldra?
Á undanförnum árum hafa sífellt meiri kröfur verið lagðar á kennara, kröfur um að bæta á sig alls konar verkefnum sem koma kennslu lítið við. Kennarar sem leggja hart að sér til að fræða börnin sem þeim er treyst fyrir eru að kikna undan álagi. Kennarar eru ekki einvörðungu að kenna nemendum á bókina þeir eru uppalendur í mannlegum siðum, sáttasemjarar, huggarar og svo mætti lengi telja.
Það er eins og það gleymist að kennarar vinna ekki einvörðungu í kennslustundum við að halda fyrirlestur, láta börnin reikna, skrifa og lesa. Kennarar þurfa tíma til undirbúnings, það tekur tíma ef kennarinn vill ná góðum árangri með bekkinn sinn. Kennari þarf að fara yfir próf og önnur verkefni, meta getu nemenda og áætla hvernig hjálpa megi þeim sem er á eftir. Þessar upptalningar eru hvergi tæmandi.
Það sem mér sýnist margir ekki gera sér grein fyrir er það að mörg börn eru illa eða óuppalin. Hlutverk foreldra hlýtur að vera fyrst og fremst að ala börn sín upp, aga þau, vanda um við þau, kenna þeim mannasiði og almenna umgengni. Börn þurfa á báðum foreldrum að halda, en því miður í allt of mörgum tilfellum til þess að svo megi verða eru þau á sífeldu flakki milli húsa til að eiga þess kost að vera hjá foreldrum sínum þar sem foreldrarnir búa sitt í hvoru lagi. Slíkt flakk fram og til baka kemur niður á börnunum í stað þess að fá að alast upp hjá báðum foreldrum undir einu þaki.
Margir foreldrar ýmist hafa ekki tíma, nenna ekki eða þora ekki að ala börn sín upp. Að elska barn sitt er ekki bara að klappa því og gefa þeim gjafir, láta allt eftir þeim og/eða láta þau stjórna, en því miður er allt of mikið af slíku. Að elska barn sitt er að aga það, það er hægt að gera í kærleika án þess að barninu finnst því sé hafnað eða ekki elskað.
Börn þurfa að fá tíma með foreldrum sínum þar sem talað er við þau, hlustað á þau, leikið við þau, án þess að sjónvarp eða tölvur sé það sem tengi foreldra og börn saman.
Ef foreldrar hafa áhuga á framgöngu barna sinna sjá þau til þess að barnið sinni heimalærdómnum, hlusta á það lesa, fylgjast með því að þau sinni verkefnum, hrósa þeim um leið og þeim er leiðbeint.
Foreldrar hafa stóru hlutverki að gegna vilji þau að barn þeirra nái árangri, það er ekki bara á ábyrgð skólans. Skólinn hefur ákveðnu hlutverki að gegna en getur ekki gegnt því hlutverki sem foreldrar eiga og þurfa að gegna.
Eitt er það sem vekur furðu mína, það er símaeign barna og sú staðreynd að fjöldi ef ekki flest börn eru með rándýra síma með sér í skólunum og geta varla litið upp frá þeim. Er nema von að námsárangur sé lélegur hjá svo mörgum. Það er eins og skólayfirvöld þori ekki að banna notkun símanna í skóunum. Hvað hafa krakkar með það að gera að vera á snappkjaft, fésbók eða tölvuleikjum í tíma og ótíma og það á skólatíma. Ég vil meina að ofnotkun á símum og það í skólunum sé stór hluti vandans þegar kemur að námsárangri, það er mín skoðun.
Svo er það hlutverk sveitafélaga og skólayfirvalda á hverjum stað að gera skólunum kleift að sinna sínum störfum án þess að gera meiri kröfur til þeirra en þeir geti sinnt svo vel megi vera. Með of miklu álagi á skólana og kennara mun árangurinn verða rýrari en menn óska sér. Flestir kennarar eru tilbúnir að leggja á sig mikla vinnu (taka með sér verkefni heim til að sinna um kvöld og helgar), en það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að leggja á fólk vilji menn ekki ofgera hlutunum og hrekja góða kennara úr kennarastéttinni.
Af hverju ætli kennarar séu þegar búnir að hafna kjarasamningum tvisvar? Kennarar samþykktu síðustu kjarasamninga með semingi, en þeir þurftu að láta af hendi atriði sem þeir voru áður búnir að semja um fyrir skitinn grautavelling.
Yfirvöld verða að fara að hugsa skólakerfið upp á nýtt og jafnvel fara aftur einhverja áratugi aftur í tímann til að taka upp gamlar aðferðir. Það er ekki sí og æ hægt að vera að upphugsa eitthvað nýtt til að leggja á skólakerfið bara til að geta sagt að stjórnmála- eða embættismenn hafi komið á nýjungum, atriði sem ekki er til annars en að flækja hlutina og gera kennurum og nemendum erfiðara fyrir.
![]() |
Munurinn á við 2,5 skólaár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2016 | 20:46
Íslenska krónan er orðin allt of sterk.
Ég er hræddur um að svona sterk króna, eins og hún er orðin í dag, muni koma illilega við ferðamannaþjónustuna og útflutningsgreinar. Of sterk króna gæti leitt til hruns í ferðamannaiðnaðinum og valdið útflutningsgreinum s.s. sjávarútveginum miklum erfiðleikum, en þessar greinar, ásamt fleirum, hafa haft veruleg áhrif á velgengni okkar síðustu misserin.
Ef innflæði gjaldeyris stöðvast þá stöðvast uppgangur þjóðarbúsins og þá liggur leiðin niðurávið. Það gæti reynst okkur erfitt. Þá hrynur krónan, verðbólgan fer á fullt og kaupmáttur minnkar, þeir sem verst eru settir munu fara illa út úr því. Verðtryggð lán munu hækka, vextir munu hækka, atvinnuleysi aukast og velferðarkerfið sligast. Nýbyggð hótel og gistiheimili tæmast og svo mætti lengi telja.
![]() |
Sleppa pöbbnum vegna Íslandsferðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2016 | 12:47
Vinstrihreyfingin - grænt framboð þarf á hvíld að halda. Rétt væri að gefa þeim hlé frá stjórnarmyndunar viðræðum
Það er alveg sjálfsagt að gefa Vinstri grænum hlé frá stjórnarmyndunarviðræðum, það má glögglega sjá á Katrínu formanni að hún er orðin þreytt á fundarhöldum um stjórnarmyndun.
Með því að verja núverandi starfstjórn falli fram á vor gæti Katrín og flokkur hennar safnað kröftum og mætt til leiks við nýjar kosningar í mars eða apríl.
Glögglega má sjá þreytumerki á svip Katrínar á myndinni hér fyrir neðan.
![]() |
Vill hlé á stjórnarmyndun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.11.2016 | 15:56
Hefur embætti lögreglustjóra og ákæruvaldið ekkert betra við tímann að gera???????
Í frétt á mbl.is segir eftirfarandi:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur m.a. ákært Jón Val fyrir eftirfarandi ummæli sem birtust á blogginu 21. apríl sl.:
Fræðsla um fjölbreytileika mannsins á ekki að vera á hendi þeirra, sem hafa sína einhæfu, þröngu og skekktu sýn á kynferðismál. Samtökin 78 eru hagsmunasamtök, ekki hlutlægt og hlutlaust fræðasamfélag. Fulltrúar þessa samtaka hafa ekkert með það að gera að móta hugarfar barna, sem þeir eiga ekki [ ]
Ég skil ekki hvað í þessari færslu Jóns Vals gæti talist til hatursorðræðu. Ég verð að viðurkenna að ég er Jóni Val hjartanlega sammála í þeirri færslu sem hér birtist. Verð ég þá kærður fyrir að hafa slíka skoðun og þora að láta hana í ljósi. Eða er það pólitískur rétttrúnaður sem á að stjórna allri orðræðu hér á landi?????
Það er þjóð okkar til háðungar að láta lítinn hóp "hinsegin" (skv.þeirra eigin skilgreiningu) fólks ráða því hvað má segja og hvað má ekki segja. Ætlum við virkilega láta þetta fólk stjórna ákæru- og dómsvaldinu í landi okkar??????
Þá er illa fyrir okkur komið sem þjóð.
Hefur embætti lögreglustjóra og ákæruvaldið ekkert betra við tímann að gera???????
![]() |
Jón Valur ákærður fyrir hatursorðræðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
25.11.2016 | 11:33
Það er aðkallandi að þing komi saman
Mitt álit er að núverandi ríkisstjórn eigi að sitja áfram fram á vor. Best væri að allir flokkar myndu verja hana vantrausti. Efna síðan til kosninga í apríl eða maí.
Það liggur orðið á að þing komi saman og ljúki fjárlagagerð.
Stjórnmálaflokkarnir verða að taka á sig rögg og kyngja eigin stolti og hroka og leggjast á eitt, að vilja þjóðinni heill. Menn hljóta að geta komið sér saman um hluti sem skipta máli fyrir landslýð, beygja af hér og þar og miðla þannig málum að allir geti vel við unað.
Ég held að flestir geri sér grein fyrir því hvað skiptir máli, þ.e. heilbrigðis- og velferðarmálin, svo er hægt að vinna að öðrum málum sem mörg hver eru einnig aðkallandi.
![]() |
Enginn einn flokkur fær umboðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.11.2016 | 12:31
Tyrklands forseti Erdogan
Forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, leggur allt kapp á að líkjast starfsbróður sínum í Norður Kóreu, Kim Jong Un. Erdogan er óðum að taka upp takta félaga síns og lætur einskis ófreistað að verða eins og hann, Kim Jong Un.
Guð blessi Tyrki.
![]() |
Hreinsanir halda áfram í Tyrklandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.11.2016 | 09:57
Öfgastjórnmálaflokkar
Í forsetakosningum sem haldnar verða, væntanlega á næsta ári, í Frakklandi er gert ráð fyrir því að öfgahægriframbjóðandinn Marine Le Pen muni etja kappi við frambjóðanda Repúblikanaflokksins sem er öfgamiðhægriflokkur. Ekki er gert ráð fyrir að Francois Holland forseti eða aðrir úr röðum sósíallista muni setja mark sitt á forsetakosningarnar, en þeir eru öfgavinstrimenn.
Í bandarísku forsetakosningunum sem fram fóru 8.nóvember s.l. báru öfgaRepúblikanar sigur á öfgaDemókrötum.
Í þingkosningum á Íslandi í lok október voru það öfgaSjálfstæðismenn sem urðu sigurvegarar kosninganna en næstir komu öfgaVinstri grænir, aðrir öfgaflokkar náðu ekki langt og síst þó öfgaSamfylkingin sem gæti allt eins þurrkast út við næstu kosningar með sínar öfgaskoðanir. Nú er reynt að mynda ríkisstjórn sem myndi innihalda öfgamiðhægriViðreysn og Pírata, Bjarta framtíð, Samfylkingu og Vinstri græna sem allt eru öfgavinstriflokkar.
![]() |
Sarkozy heltist úr lestinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.11.2016 | 22:03
Það er til lausn á vatnsskorti í heiminum.
Sjá myndband hér fyrir neðan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.11.2016 | 01:25
Viðtal við John Pilger: Af hverju vann Trump, hvert var hlutverk fjölmiðla og margt fleira sjá viðtalið á meðfylgjandi myndbandi.
Athyglisvert að hlusta á John Pilger. Ég held að flestir hefðu gott af því að heyra hans álit á heimsmálunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
flinston
-
baldvinj
-
bergthorolason
-
biggilofts
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
gattin
-
contact
-
einarbb
-
eeelle
-
emilkr
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gudbjorng
-
zumann
-
tilveran-i-esb
-
coke
-
gunnlauguri
-
gustafskulason
-
conspiracy
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
haddi9001
-
maeglika
-
harhar33
-
bordeyri
-
heimssyn
-
don
-
hordurvald
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
jakobk
-
johanneliasson
-
johann
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonl
-
bassinn
-
prakkarinn
-
thjodarskutan
-
kiddikef
-
krist
-
kristjan9
-
lifsrettur
-
loncexter
-
magnusg
-
marinogn
-
mofi
-
olof
-
pallvil
-
iceland
-
regu
-
undirborginni
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
duddi9
-
sjonsson
-
thruman
-
athena
-
stebbifr
-
stendors
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
viktor
-
villidenni
-
postdoc
-
thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar