Helgi Hjörvar telur það slæman kost að viðhafa tvennar kosningar um ESB

Það kemur mér ekki á óvart að Helgi Hjörvar skildi lýsa því yfir á borgarafundi að það væri slæmur kostur að viðhafa tvennar kosningar um ESB þ.e.a.s. í fyrsta lagi hvort við eigum að fara í aðildarviðræður við ESB og síðan ef farið verður í slíkar viðræður, hvort við síðan samþykkjum niðurstöður þeirra viðræðna.  Jóhanna Sigurðardóttir var búin að leggja línurnar, "þjóðin er of vitlaus til að taka sjálfstæða ákvörðun, við verðum að gera það fyrir hana", sú er niðurstaða Sandfylkingarinnar.  Lýðræði er orð sem Sandfylkingin notar á tyllidögum, en þess á milli er Sandfylkingin á móti lýðræði, vegna þess að þegnarnir kunna ekki með lýðræðið að fara að þeirra dómi.

Það er ótrúlegt að fólk skuli ekki sjá í gegn um þessa fylkingu.  Stjórnartilburðir Sandfylkingarinnar minnir einna helst á upphafstíma Hitlers og kommúnismann austur í Rússjá.  Þeir tveir flokkar sem nú fara með völd í landinu, minnihlutastjórn á ábyrgð Framsóknarflokksins, leggja sig alla fram við að grafa undan fyrirtækjunum og heimilunum í landinu og ætla síðan að skattpína fólkið og fyrirtækin í þeim tilgangi að allir verði nú örugglega upp á náð og miskunn stjórnvalda komnir.  En að bjarga heimilunum eins og lofað var er gleymdur frasi, þó það séu nú bara 70 dagar síðan Jóhanna lofaði því hátíðlega með alvöruþunga í röddu og augabrúnir niður á kinnar.

Nei, ég held ég vilji ekki viðhalda þessum ósköpum, ég er búinn að fá nóg.  Burt með þessa stjórn, hún er vanhæf, getulaus og viljalaus.


mbl.is Tvöföld atkvæðagreiðsla „slæmur kostur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 773
  • Frá upphafi: 162088

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 482
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband