Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

Hvað gera Ísraelsmenn Sýrlendingum sem til þeirra leita?

Margir Sýrlendingar hafa leitað yfir landamærin til Ísraels einkum þeir sem hafa særst af völdum stríðsins sem þar geisar. Hvort heldur um börn er að ræða, óbreyttra borgara, hermenn eða jafnvel uppreisnarmenn, allir fá læknisþjónustu, lífum er bjargað og þessum einstaklingum hjálpað til að komast á fætur á ný. Þannig er Ísrael.

Sjá myndband eftir Ísraelskan ungan læknir í Ísraelska hernum, en hann hefur komið að því að hjálpa fjölda Sýrlenskra ríkisborgara.

 


Mark Taylor vissi, löngu áður en Donald Trump bauð sig fram til forseta, að hann yrði forseti Bandaríkjanna.

Einu og hálfu ári áður en Obama var kjörinn í annað sinn til forseta Bandaríkjanna vissi Mark Taylor að Donald Trump yrði forseti.

Hér fyrir neðan á meðfylgjandi myndbandi er sagan bak við það hvernig Mark Taylor fékk þá þekkingu.



mbl.is Vill rannsókn á kosningabaráttu Clinton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver Demókratinn af fætur öðrum snýr nú baki við og fjarlægir sig Hillary Clinton

Nú opinberast hvert hneykslið á fætur öðru hjá Hillary Clinton. Dana Brazil fyrrum forystukona í Demókrataflokknum hefur nú stigið fram og lýst því hvernig HC stal útnefningu Demókrata í forvali þeirra til forsetakjörs 2016.

Ekki nóg með það. Hvert málið á fætur öðru opinberar spillinguna sem hún er hefur vafið sig inní, lygina, undirferlið, svikin, peningaþvætti, lögbrot og Guð má vita hvað.

Sean Hannity ásamt gestum fjalla um ótrúleg mál hennar. Engin skáldsaga jafnast á við það sem þessi kona hefur komið í kring.

Sjá þátt Sean Hannity hér fyrir neðan.

 

 


Hillary Clinton telur vandræði sín öllum öðrum að kenna en henni sjálfri

Í bók sinni What Happened finnur Hillary sök á tapi sínu fyrir Donald Trump hjá öllum öðrum en sjálfri sér.

Í meir en ár hafa Demókratar ásakað Trump og samstarfsmenn hans um að hafa verið í tengslum við Rússnesk stjórnvöld vegna aðstoðar Rússa við kjör Trumps. Þrátt fyrir ítalegar rannsóknir og sérstakan saksóknara með fjölda lögfræðinga sem voru stuðningsmenn Clintons hafa þeir ekkert fundið, en gera má ráð fyrir því að eitthvað verði búið til til að koma í veg fyrir sneipuför Demókrata í garð Trumps.

Þegar kemur að ásökunum Hillary í garð allra annara en sjálfrar sín, þá fer hún villu vegar. Hún ein á sök á því hvernig fór fyrir henni. Nægir þar að minna á feril hennar sem utanríkisráðherra í tíð Obama á fyrra kjörtímabili hans. Þar fór hún offari á mörgum sviðum, braut lög, en enginn þorir að ákæra hana, hún virðist ósnertanleg. En eitt er víst að konan er gerspillt.


mbl.is Erfiðleikar hjá Clinton-hjónunum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrópandi þögn ESB elítunnar er alla að æra

Innan Evrópusambandsins er lítil þolinmæði fyrir lýðræði. Spænsk stjórnvöld gera allt sem í þeirra valdi er til að koma í veg fyrir að íbúar Katalóníu tjái vilja sinn gagnvart veru þeirra í Spænska "lýðveldinu". Lögreglu er beint gegn lýðræðislegum rétti fólks til að tjá vilja sinn og þeim sem vinna að téðum kosningum hótað öllu illu. Á sama tíma heyrist ekki orð frá ESB elítunni, ekki eitt aukatekið orð. ESB lætur stjórnvöld í Madrid um skítaverkin og lýsir velþóknun sinni með hinni hrópandi þögn sem frá Brussel kemur.

Eru ESB-sinnar á Íslandi sáttir við "lýðræðisást" ESB????


mbl.is 465 særðir eftir átök í Katalóníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ræða Mosab Hassan Yousef á ráðstefnu "Mannréttindaráðs" Sameinuðu þjóðanna 25.september 2017

Mosab Hassan Yousef, sonur stofnanda Hamas, Sheikh Hassan Yousef, gerði sendinefnd "Palestínu" orðlausa á ráðstefnu "Mannréttindaráðs" Sameinuðu þjóðanna, en hann var einn af sendimönnum þeirra. Mosab hélt þar þrumandi ræðu 25.september s.l.


CNN er komið í öngstræti með Falskan Fréttaflutning sinn.

CNN er að vakna upp við vondan draum, Falskar Fréttir þeirra varðandi tengsl Trump og/eða aðstoðarmanna hans við Rússa og rannsóknir þar af lútandi hafa ekki leitt til eins eða neins. Allur fréttatilbúningur CNN og annarra "fréttamiðla" hafa ekki gert neitt annað en að rýra traust almennings á þessum "fréttamiðlum".

Tengsl Trump við Rússa hafa verið til rannsóknar í nærri heilt ár án þess að það hafi leitt til nokkurs, en allt er gert fyrir málstaðinn þ.e. að koma Trump frá völdum. Raunin virðist hinsvegar vera sú að spilling Demókrataflokksins er að verða öllum ljós og sitja umræddir fjölmiðlar uppi með Svarta Pétur.

Ég er hræddur um að fleiri "fréttamenn" eigi eftir að fjúka áður en langt um líður.

CNN er komið í öngstræti með Falskan Fréttaflutning sinn.

Svo er það myndbandið sem afhjúpar "fréttaflutning" CNN. John Bonifield viðurkennir allt á falinni myndavél.

Að CNN skuli kallast fréttamiðill er til háðungar.


mbl.is Hættu eftir að grein var afturkölluð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sannleikurinn getur verið sársaukafullur, fyrir suma.

Hverjir ætli finni mest fyrir sársauka við þau sannindi sem hér eru birt???


Dæmi um hvernig CNN og aðrir "frétta" miðlar búa til falskar fréttir

Áhugavert að sjá hvernig hinir svokölluðu "viðurkenndu frétta miðlar" búa til falskar fréttir sem hafa ekkert með sannan fréttaflutning að gera.


mbl.is Ríki íslams lýsir yfir ábyrgð á árásinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 251
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 200
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband