Óþarfa áhyggjur Guðlaugs Þórs utanríkis.

Hvaða friðarviðræður hefur Guðlaugur Þór áhyggjur af????? Það hafa ekki verið neinar friðarviðræður í gangi. Meðan Ísraelar ganga ekki að öllum kröfum "Palestínskra" yfirvalda fyrirfram vilja þeir síðarnefndu ekki ræða við Ísraela um frið.

"Palestínumenn" hóta intifata til að hafa áhrif á umræðuna þeim í vil. Intifata hafa "Palestínumenn" framið án þess að Bandarísk yfirvöld eða önnur yfirvöld hafi viðurkennt Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels. Hryðjuverk þeirra hafa verið viðloðandi hvort sem tilefni, að dómi "sérfróðra", hafa gefist eða ekki, tilefni hefur ekki ráðið för hingað til.

Þannig að við þurfum ekkert að láta koma okkur á óvart í þeim efnum, jafnvel þó Trump hefði látið það ógert að lýsa Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels.

Guðlaugur Þór getur alveg látið það ógert að hlaupa eftir duttlungum þeirra sem stjórnast af illvilja í garð Ísraelsmanna. Hann mun ekki fá neitt blóm í hnappagatið fyrir það. Nær væri að ríkisstjórn Íslands tæki undir með Trump og lýsti Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels.


mbl.is Vona að áhyggjurnar reynist óþarfar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband