Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
12.12.2016 | 15:33
Hælisleitandi á vegum Barnaverndarnefndar Reykjavíkur veldur usla
Í fréttum á mbl.is kemur fram að hælisleitandi sem dvelur á vegur Barnaverndarnefndar Reykjavíkur hafði nauðgað konu 11.mars s.l. Það eru akkúrat 9 mánuðir síðan eða jafn langur tími og líður frá getnaði þar til barn fæðist að öllu jöfnu.
Ef ég skil fréttina rétt er fyrst núna að Hæstiréttur er búinn að úrskurða "barnið" í farbann, en ég spyr, gengur hann laus??? er hann ekki undir eftirliti??? hvað er hann búinn að áreita margar stúlkur, konur síðan í mars???
Enn fremur kemur fram í fréttinni að Útlendingastofnun hafi hafnað "barninu" um hæli. Er þá málið að nauðga konum og verða þar með úrskurðaður í farbann og getur þar af leiðandi verið kyrr í landinu??????????? Af hverju er hann ekki látinn sitja inni í fangelsi til að tryggja í fyrsta lagi að hann áreiti ekki fleiri konur og í öðru lagi að hann "flýi" ekki land, landið sem hann ólmur vill búa í en er að skipta sér af athæfi hans?????
Er ekki þörf á að efla löggæslu í landinu, tolla- og landamæraeftirlit og snúa þeim við á Keflavíkurflugvelli og/eða Seyðisfirði sem koma með fölsuð vegabréf eða eru vegabréfslausir og hleypa þeim alls ekki inn í landið. Gera flugfélögum skylt að flytja ekki til landsins fólk sem er vegabréfslaust eða með fölsuð vegabréf og gera þau (flugfélögin) ábyrg fyrir slíkum farþegum. Þú kemst t.d. ekki til Bandaríkjanna sem Íslendingur nema að hafa gilt vegabréf ellegar verður flugfélagið að fljúga með þig til baka þaðan sem þú kemur og flugfélagið sektað fyrir að koma með "óæskilegan einstakling" til landsins.
En svo ég snúi mér að málefni tengdrar fréttar. Hvernig í ósköpunum stendur á því að það tekur 9 -níu- mánuði að taka á "barni" (einstaklingi, karlmanni sem er hér á vegur Barnaverndarnefndar Reykjavíkur) sem brýtur af sér sem þessi tiltekni einstaklingur hefur gert??? Var kannski saksóknari of upptekinn við að eltast við "hatursorðræðu" Jóns Vals Jenssonar, Pétur Guðlaugssonar o.fl. sem ekki eru haldnir pólitískum rétttrúnaðarskoðunum????????????
![]() |
Hælisleitandi ákærður fyrir nauðgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.5.2013 | 12:54
Frysting íbúðalána hjálpaði fæstum
Úrlausnir fráfarandi ríkisstjórnar fyrir skuldsett heimili landsmanna kom fáum að gagni. Nú eru menn að átta sig á því að frysting á greiðslu lána er ekki að hjálpa neinum. Vandi skuldara hvarf ekki, hann minnkaði ekki, hann jókst og gerir það að verkum að skulda- og greiðslubyrðin verður meiri.
Fráfarandi ríkisstjórn þrjóskaðist við að taka á vandanum á ábyrgan og raunhafann hátt. Það mátti ekki hlusta á tillögur Framsóknarmanna um leiðréttingu skulda með því að færa þær niður um 20%. Nú hafa meira að segja fráfarandi ráðherrar lýst því yfir að það hafi verið mistök að fara ekki þá leið.
Skuldsettum heimilum verður ekki hjálpað með því að selja ofan af þeim og þröngva út á leigumarkaðinn, sem er allt of dýr. Eina leiðin til að hjálpa skuldsettum heimilum er að leiðrétta þann forsendubrest sem varð og færa lánin niður. Hvort færa eigi lánin niður um 20% eða 35-40% verður tíminn að leiða í ljós, en enginn ætti að þurfa að vera með íbúðalán sem eru yfir 80% af raunvirði. Svo kallaða 110% leið var enn eitt ruglið sem kom frá fráfarandi ríkisstjórn, hún var og er ósanngjörn gagnvart þeim sem eru að reyna að basla og leggja mikið á sig til að halda í "eign" sína og þaki yfir höfuðið.
Fólk er að leggja mikið á sig til að bjarga heimilum sínum og þar með fjölskyldulífi, en þá eru það stjórnvöld sem gerir líf fólks óbærilegt.
Þannig eru stjórnvöld sem kenna sig við félagshyggju, velferð og réttlæti. Þannig stjórnar Samfylkingin, svo vitnað sé í orð formanns þeirra er kom fram í auglýsingu þeirra fyrir kosningar.
![]() |
Frysting hjálpar ekki öllum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.3.2013 | 10:09
Ráðherrar keppast nú um vinsældir af hálfu kjósenda
Hver skyldi nú vera ástæðan fyrir framlagningu frumvarps sem þessa, mínútu fyrir þinglok?? Það liggur í augum uppi að engin meining er á bak við þetta frumvarp. Hefði einhver vilji verið til staðar hjá ráðherranum að hjálpa þeim sem eru svo sannanlega í erfiðri stöðu þegar kemur að lánsveði hjá foreldrum eða öðrum ættingjum og vinum, þá væri ráðherrann löngu búinn að leggja slíkt frumvarp fram og búið að afgreiða það og fólk nú þegar farið að njóta góðs af.
Sjáum til í kosningabaráttunni sem framundan er, hvort ráðherrann komi ekki fram og segist hafa lagt þetta frumvarp fram en það ekki náð framgang, sennilega vegna þess að stjórnarandstaðan hafi staðið í gegn því.
Nei, ríkisstjórnin dælir inn allskonar málum eftir eindaga sem þau þykjast vilja ná í gegn en vita að of skammur tími er til að vinna faglega að þeim málum. Þetta eru sýndartillögur (frumvörp) mörg hver, ætluð til að blekkja kjósendur.
Það er þjóð okkar til háðungar að vinnubrögð sem þessi skuli vera viðhöfð á Alþingi Íslendinga. Er að furða að virðing Alþingis sé í lágmarki??
Nú er hafinn tími vinsældarveiða á meðal kjósenda.
![]() |
Aðferðin er óvenjuleg og fáheyrð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.3.2013 | 10:06
Guð forði okkur frá því að hafa Össur Skarphéðinsson og hans líkan í áhrifastöðu eftir kosningar
Þegar maður hefur horft til Evrópu og sérstaklega evrusvæðisins hefur maður haft þá tilhneigingu að hugsa "Aumingjans mennirnir að þurfa að standa í þessu, að reyna að bjarga þessum þjóðum út úr vandræðum þeirra", en nú sé ég að þessar umræddu þjóðir ekki bara "lentu" í erfiðleikum, erfiðleikarnir hafa verið lagðar á þessar þjóðir vísvitandi. Með því að þrengja að þeim, hafa búrokratanir í Brussel náð að setja pressu á ríkisstjórnir þessara landa og nánast ráðskast með þær eins og þeim sýnist. Með því að hneppa fólkinu í þessum löndum í fátækt munu þeir geta á komandi tímum ráðskast með fólkið líka eins og þeim sýnist.
Það sjá það allir, sem vilja sjá og viðurkenna, að aðferðafræði sú sem hefur viðgengist í ESB og þó einkum á evrusvæðinu, gengur ekki upp, hún er ekki til þess fallin að bjarga einu né neinu, hún er til þess fallin að færa enn meiri völd til Brussel.
Það er óþolandi að horfa uppá utanríkisráðherra Íslands ganga fram með þeim hætti sem hann hefur gert og virðist ætla, með góðu eða illu, að koma okkur inn í Evrópusambandið og láta okkur taka upp evruna, sem hefur verið mesti bölvaldur flestra þeirra ESB þjóða sem hafa tekið hana upp.
Guð forði okkur frá því að hafa Össur Skarphéðinsson og hans líkan í áhrifastöðu eftir kosningar.
![]() |
Óhjákvæmilegt að ganga í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.2.2013 | 20:42
Sorgleg niðurstaða, Sjálfstæðisflokkurinn hafnar kristi
Þegar menn hafna gildum lífsins, þá eru þeir að velja hið gagnstæða þ.e. gildum dauðans. Það mun verða Sjálfstæðisflokknum til ógæfu að hafa hafnað hinu augljósa, að öll lagasetning í kristnu landi skuli byggð á kristnum gildum. Því miður höfum við horft upp á það undanfarin ár og áratugi að kristnum gildum hefur verið ýtt til hliðar til þess að fullnægja þeim gildum sem ekki eru til lífs.
Það kann að vera að Sjálfstæðisflokkurinn muni vinna sigur í kosningunum í vor, en það mun hvorki verða flokknum né þjóðinni til blessunar. Með því að hafna gildum lífgjafans eru menn sjálfkrafa að umfaðma verk þess sem tekur líf og leiðir menn inn á blekkingarvegi. Hér er ekki um hótanir að ræða heldur andleg sannindi, en ég geri ekki ráð fyrir að allir skilji það.
Bæn mín er sú að við fáum fólk á þing og í stjórnarráðið sem hefur kristin gildi að leiðarljósi, að öðrum kosti óttast ég um framtíð þjóðar minnar.
![]() |
Tillaga um kristin gildi felld út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.2.2013 | 16:50
Furðulegur málflutningur utanríkisráðherra
Að halda því fram að ESB sé hundleitt á EES-samningnum, samningi þeirra við Sviss og ef til vill öðrum samningum, lýsir ekki ábyrgðarfullri stofnun sem hann vill þó meina að ESB sé. Ef ESB er ekki tilbúið að standa við þá samninga sem það gerir eða er orðið hundleitt á samningum sem það gerir við sjálfstæðar og fullvalda þjóðir, þá hafa slíkar þjóðir, s.s. Ísland, ekkert inn í slíkt þjóðasamband að gera.
Það er gott að utanríkisráðherra, sem hefur lagt ofurkapp á að koma okkur inn í Evrópusambandið með "samningum", skuli opinbera eðli ESB með þeim hætti sem hann nú gerir. En hvernig getum við þá treyst því að þeir samningar haldi þegar fram í sækir, verður ESB ekki orðið hundleitt á slíkum samningi við okkur í tímans rás???????
Það er furðulegt að ráðherra sem upplifir slíkt af hendi ESB skuli leggja slíkt ofurkapp á að við göngumst undir "samninga" við slíka aðila.
Er ekki kominn tími til að kippa þessum manni út úr utanríkisráðuneytinu og helst út af Alþingi. Við höfum ekkert með svona mann að gera sem fulltrúa okkar í samskiptum við erlendar þjóðir. Við þurfum mann sem stendur með hagsmunum íslensku þjóðarinnar en ekki með einhverjum ótilgreindum ESB hagsmunum, sem eiga að vera honum persónulega til framdráttar þegar honum hefur tekist að véla okkur inn í ESB-skrímslið.
Það er þó gott að hann opinberi sjálfan sig og ESB með þeim hætti sem hann gerir nú á Alþingi. Ég vona að fólk, með bæði augu opin, sjái tvískinnunginn hjá Össuri utanríkis og sjái til þess að hann verði ekki endurkjörinn á þing nú í vor.
![]() |
ESB hundleitt á EES-samningnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.1.2013 | 16:53
Davíð og Golíat
Enn á ný er það Davíð [í þessu tilfelli íslenska þjóðin] sem sigrar Golíat [nýlenduríkin Holland og Bretland og svo Evrópusambandið og þeir innlendir aðilar sem þrýstu á að við beygðum okkur undir ofurvald fyrrnefndra ríkja].
Dómsniðurstaða EFTA-dómstólsins er sigur íslensku þjóðarinnar og þeirra sem stóðu í lappirnar allan tíman, en ekki ríkisstjórnarinnar og þeirra sem buguðust í Icesave III.
Til hamingju Ísland.
Áfram Ísland - ekkert ESB
![]() |
Ætlið þið að biðjast afsökunar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.1.2013 | 09:45
Ætlar íslenska þjóðin láta Samfylkinguna hafa sig að fífli?
Ég hlustaði á utanríkisráðherra í Kastljósi í gærkveldi. Þar talar hann um kröfur sem íslenska samninganefndin setti fram í viðræðum við ESB. Ekki nefndi hann hverjar þær kröfur væru eða hvað í þeim fælust. Ráðherrann sagði einnig að búið væri að semja um 11 kafla, þeir semsagt frágengnir. Ég velti því fyrir mér hvaða kröfur íslenska samninganefndin hafi sett fram í samningum þeirra kafla og hvað ESB hafi verið tilbúið að semja við okkur Íslendinga um, á hvaða sviði gaf ESB eftir og hvað fengum við út úr þessum köflum? Hvernig væri að leyfa okkur almenningi að kíkja í þennan margumtalaða pakka og sjá hvað nú þegar hefur komið þar í ljós? Hvað hefur Össur séð í pakkanum sem hann er svo afskaplega hrifinn af að hann er tilbúinn að afsala þjóðinni fullveldisrétti til búrókrata í Brussel? Af hverju er svona mikil leynd yfir því sem verið er að semja um? ef þá verið er að semja um nokkuð yfir höfuð.
Össur staðhæfði að næsta ríkisstjórn, hver svo sem hún yrði, myndi ekki slíta "samningarviðræðunum" við ESB því það myndi kosta okkur svo mikinn álitshnekki. Ef við yrðum fyrir miklum álitshnekki við það að slíta viðræðum við ESB um innlimun okkar inn í það apparat, þá er sá álitshnekkur alfarið á kostnað Samfylkingarinnar númer eitt og Vinstri grænna sem hafa látið hafa sig að fífli Fylkingarinnar, Samfylkingin hefur aldrei þorað að spyrja þjóðina álits á því hvort sækja ætti um aðild að ESB. Við göngum ekki bara inn í ESB vegna þess að við myndum skammast okkar fyrir að eyða öllum þeim tíma og fjármunum sem það hefur kostað okkur að uppfylla draumóra Samfylkingarinnar. Þjóðin vill ekki inn í ESB sama hvað Jóhanna, Össur, Árni Páll eða hvaða krati sem er segja. Íslendingar láta ekki hafa sig að fífli.
![]() |
48,5% vilja ljúka viðræðum við ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.12.2012 | 23:18
Atvinnuveganefnd Alþingis sýnir bændum hina mestu lítilsvirðingu
Með ólíkindum er sú framkoma sem fulltrúum bænda og bændasamtökunum í heild sinni er sýnd af atvinnuveganefnd Alþingis, en hinir fyrrnefndu höfðu verið boðaðir á fund nefndarinnar og lögðu fulltrúarnir á sig langt ferðalag til að mæta á téðan fund. Aðeins tveir þingmenn sem sæti eiga í nefndinni sáu ástæðu til að mæta. Ekki veit ég hvers vegna hinir þingmennirnir sem sæti eiga í nefndinni sáu ekki ástæðu til að mæta, en hafi þeir ekki þeim mun betri afsökun fyrir því að vera fjarstaddir, þá er skömm þeirra mikil.
Alþingi hefur enn sett niður, langt niður fyrir þau mörk sem teljast ásættanleg, þegar kemur að virðingu Alþingis og þegar kemur að því að sinna skildum sínum gagnvart þjóðinni sem þeir eiga að vinna fyrir.
![]() |
Aðeins tveir þingmenn mættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.11.2012 | 14:10
Formaður á brauðfótum.
Þegar Bjarni og Sjálfstæðisflokkurinn var tilbúinn að samþykkja Icesave III, sagði ég mig úr flokknum. En ekki var það einvörðungu Icesave-klúðrið sem fældi mig úr flokknum heldur hefur afstaða formannsins til ESB ekki verið sannfærandi. Mér hefur fundist Bjarni ekki standa föstum fótum í mikilvægum málefnum og ekki hvað síst þegar kemur að ESB-aðlöguninni.
Síðan virðast mér mál sem ég vil helst ekki fara út í hér, er varðar stjórnarformennsku hans í N1um og önnur viðskipti, hvort heldur þau megi teljast lögleg, eðlileg eða ekki, þá hafa þau áhrif á trúverðugleika formannsins.
Þar sem ég er ekki skráður í flokkinn lengur, mætti ég ekki í prófkjörið. Væri ég enn í flokknum hefði ég mætt og trúlega valið Elínu Hirst í fyrsta sætið. Bjarni og Ragnheiður hefðu ekki komist á blað hjá mér.
Þar af leiðandi á ég úr vöndu að ráða þegar kemur að kosningum að vori, það virðast ekki vera neinir góðir kostir í stöðunni. Það finnst mér graf alvarlegt.
![]() |
Getur verið kalt á toppnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
flinston
-
baldvinj
-
bergthorolason
-
biggilofts
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
gattin
-
contact
-
einarbb
-
eeelle
-
emilkr
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gudbjorng
-
zumann
-
tilveran-i-esb
-
coke
-
gunnlauguri
-
gustafskulason
-
conspiracy
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
haddi9001
-
maeglika
-
harhar33
-
bordeyri
-
heimssyn
-
don
-
hordurvald
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
jakobk
-
johanneliasson
-
johann
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonl
-
bassinn
-
prakkarinn
-
thjodarskutan
-
kiddikef
-
krist
-
kristjan9
-
lifsrettur
-
loncexter
-
magnusg
-
marinogn
-
mofi
-
olof
-
pallvil
-
iceland
-
regu
-
undirborginni
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
duddi9
-
sjonsson
-
thruman
-
athena
-
stebbifr
-
stendors
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
viktor
-
villidenni
-
postdoc
-
thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.7.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 173
- Frá upphafi: 167792
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 154
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar