Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
20.2.2018 | 16:53
Hvað með limlestingar barna sem enginn virðist þora að takast á við, en flestum þykir hið eðlilegasta mál???????
Hvað með þá líkamsárásir sem framkvæmdar eru daglega þar sem börn verða fyrir slíkum limlestingum sem ekki yrði liðið ef um fullorðna væri að ræða. Ég er þar að tala um þær limlestingar sem börn, bæði drengir og stúlkur verða fyrir þegar ráðist er inn á þau þar sem friðhelgi þeirra ætti að vera öllum ljós, en þau bútuð í sundur af svo kölluðu "heilbrigðis" fólki. Af hverju er slíkt löglegt?????????? af hverju má búta börn í sundur á þjáningarfullan hátt í móðurkviði???????????? af hverju varðar það ekki við lög?????????????
Sá sem við öll munum þurfa að standa frammi fyrir og gera skil gjörða okkar á efsta degi mun kveða upp sinn dóm þegar þar að kemur. Erum við sem einstaklingar og sem þjóð tilbúin að mæta þeim úrskurði sem bíður okkar????????????
Við ósköpumst yfir þeim hryllilegu atburðum sem eiga sér stað í stríðshrjáðum löndum eins og Jemen, Sýrlandi og víðar þar sem börn verða fyrir miklum þjáningum af manna völdum, en lyftum ekki litlafingri yfir þeim órétti og þeirri þjáningu sem börn verða fyrir í móðurlífi þegar þau eru svipt lífi og framtíð þeirra hér á jörð tekin frá þeim og það í okkar "góða" landi. Fósturmorð er ekki síður glæpur í augum Guðs. Svo er víst.
![]() |
Umskurður drengja þegar refsiverður? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.2.2018 | 10:09
Ef þingmaðurinn er að reyna að gera sig merkilega í augum kjósenda hefur henni mistekist hrapalega.
Það er sorglegt þegar þingmenn stíga fram og ætla að slá keilur sjálfum sér til heiðurs en hafa ekki hugsað málið til enda. Umskurður drengja er allt annar en umskurður stúlkna og ætti ekki að bera það saman á nokkurn hátt. Umskurður drengja hefur tíðkast frá tímum Abrahams og hefur ekki á nokkurn hátt skert kyngetu eða ánægju þeirra karla sem umskornir hafa verið, en það sama á ekki við um þær konur sem limlestar hafa verið með umskurði þeirra.
Hafi Silja Dögg áhyggjur af því að drengir séu umskornir án þess að þeir hafi nokkuð um það að segja, þá ætti hún að líta til allra þeirra einstaklinga, drengja og stúlkna, sem tekin eru af lífi í móðurlífi án þess að þau hafi tækifæri til að bera hönd fyrir höfuð sér, þau eru ekki spurð. Tugir þúsunda einstaklinga hafa þannig verið tekin af lífi án þess að þau hafi verið spurð en ætla má að fjöldi drengja sem hafa verið umskornir hér á landi sé lítið brot af þeim fjölda sem líflátin hafa verið án saka.
Berjist Silja Dögg ekki fyrir því að fósturdeyðingar verði aflagðar hér á landi er lítið mark á henni takandi.
Ef þingmaðurinn er að reyna að gera sig merkilega í augum kjósenda hefur henni mistekist hrapalega.
![]() |
Vonaði að kirkjan stæði með börnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2018 | 14:54
Feneyjar norðursins
Vinstri menn og meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur er ekki þar undanskilinn, hafa miklar áhyggjur af hlýnun jarðar af mannavöldum. Með áframhaldandi "hlýnun" bráðna allir jöklar og valda hækkun sjávarmáls.
Nú er svo að vinstri stjórnin sem stýrir borginni vill koma sem flestum fyrir í miðborginni og þeir líta til Vatnsmýrarinnar sem tilvalinn byggingareit þar sem hægt væri að planta tugum þúsunda einstaklinga niður.
Fari svo sem "globalistar" og aðrir "hlýnunarsinnar" eru að spá fyrir um fæ ég ekki betur séð en allar nýju byggingarnar sem verið er að troða niður í miðborginni og setja á í Vatnsmýrinni verði undir vatni eða umluktar vatni á allar hliðar eftir örfáa áratugi.
Kannski er meiningin hjá Degi og hans fylgifiskum að gera Reykjavík að Feneyjum norðursins.
26.1.2018 | 11:28
Eru Samtökin78 best til þess fallin að uppfræða börnin okkar??????
Hvaða allsherjar bull er í gangi hjá Hafnarfjarðarbæ og nú Reykjavíkurborg og ef til vill fleiri sveitarfélögum, að ætla sér að afhenda Samtökunum 78 aðgang að börnunum okkar???????? Eru stjórnendur þessara sveitarfélaga ekki öllum mjalla??????? og nú eiga þessi öfga samtök að fá að innræta börnum á leikskólaaldri þetta óeðli sem samtökin standa fyrir. Þetta jaðrar við eða jafnast á við barnaníð.
Að sveitarstjórnarmenn skuli láta þetta viðgangast er með ólíkindum, þeir bera ekki hag barna okkar í fyrirrúmi, en eru firrtir af pólitískum rétttrúnaði.
Ég hvet fólk til að taka vel eftir hvaða borgar- og bæjarfulltrúar samþykkja þessa vitleysu og láta þau finna fyrir því í komandi kosningum.
Höfum hagsmuni barna okkar í fyrirrúmi, látum þau ekki í hendur öfgasamtaka á borð við Samtökin 78. Að hugsa sér að á sama tíma fá börnin okkar ekki að taka á móti Nýja Testamentinu úr hendi Gídeonmanna!!!!! bókina sem hefur orðið mörgum sálum til blessunar í gegnum tíðina.
![]() |
Samið um hinsegin fræðslu í leikskólum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.12.2017 | 15:12
Hvað á að gera við svona menn?????
Af hverju eru menn sem teljast "hælisleitendur", staðnir að þjófnaði, svikum og öðru glæpsamlegu athæfi látnir lausir???? er það til þess að þeir geti haldi áfram þeirri iðju sem þeir eru staðnir að???????? Eiga þeir ekki að taka út refsingu hér og eða þeir afhentir þeim yfirvöldum þaðan sem þeir koma?????? þarf að taka það fyrir í einhverri nefnd lögfræðinga svo að þeir, lögfræðingarnir, geti fengið uppbót á lág laun sín????????
Eða á, eins og sumir virðast vilja, að heiðra þessa menn fyrir vel unnin störf sem flótta-, förumenn og hælisleitendur??????????
![]() |
Erlent þjófagengi handtekið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.12.2017 | 14:08
Hvað með okkar minnsta bróður/systur????
Það er ánægjulegt að ríkisstjórnin gat brugðist við með þessum hætti nú, sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, að afloknum ríkisstjórnarfundi í morgun.
Það væri ánægjulegt ef ríkisstjórnin og fjárveitingarvaldið gæti í eitt skipti fyrir öll brugðist við með ótvíræðum hætti að leiðrétta hlut öryrkja og ellilífeyrisþega, ekki bara hælisleitendur. Þeirra sem hafa ekki nóg handana á milli og þurfa að velta hverri krónu fyrir sig og það oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Íslendingar sem flestir hafa í gegnum tíðina lagt sitt af mörkum til reksturs ríkisins, en eru nú í þeirri stöðu að þurfa að vera uppá lífeyrissjóði og Tryggingastofnun komnir.
Fjárveitingavaldið hefur það í hendi sér að koma til móts við þá sem ekki hafa kost á að bjarga sér sjálfir, þótt þeir svo sannanlega vildu.
![]() |
Fá viðbótargreiðslu í desember |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.11.2017 | 14:19
Ögmundur telur Geir í raun ekki hafa tapað.
Þakka þér Ögmundur Jónasson. Heiðarleiki þinn gerir þig að meiri manni. Betur væri að fleiri þeirra sem að málum komu í upphafi tækju í sama streng. Ég tek ofan fyrir þér.
![]() |
Telur Geir í raun ekki hafa tapað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.11.2017 | 15:53
Það væri algert glapræði að fórna meiri hagsmunum fyrir minni
Erlendir dómstólar og þar með talinn EFTA-dómstóllinn bera íslenska sérhagsmuni ekki fyrir brjósti og íslenskir sérhagsmunaaðilar bera ekki heldur íslenska sérhagsmuni fyrir brjósti, en stjórnast af græðgisvæðingu.
Það hljóta að vera hagsmunir þjóðarinnar að hér sé til staðar öflugt matvæla öryggi. Fari svo að heimskreppa leiði til skorts á matvælum á heimsbyggðinni, þá verðum við ekki í neinum sérhagsmunahópi hvað fæðuöflun snertir séum við háð innflutningi matvæla. Við verðum, okkar sjálfra vegna, að hlúa að íslenskum landbúnaði og matvælaframleiðslu, við megum ekki fórna meiri hagsmunum fyrir minni, það væri algert glapræði.
![]() |
Dómur EFTA geti ógnað lýðheilsu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.11.2017 | 13:51
Fyrir hvað stendur Framsóknarflokkurinn???
Í viðtengdri frétt segir: "Þá sagði Sigurður (Ingi) í samtali við mbl.is að hann teldi þá stjórn ekki svara kalli um pólitískan stöðugleika og breiða skírskotun." en þá er verið að vísa til hugsanlegs samstarfs BDFM. Mér sýnist Sigurður Ingi gefa hér til kynna að hann hafi ekki áhuga á að starfa með Miðflokknum. Þessi ummæli Sigurðar Inga vekja furðu þar sem Framsóknarflokkurinn og Miðflokkurinn eru þeir tveir flokkar sem eiga mest sameiginlegt. Ekki sýnist mér heldur Flokkur fólksins vera með hugmyndir sem Framsókn ætti erfitt með að taka undir, eða hvað?
Það er kannski ekki kappsmál fyrir Framsókn að vinna að þeim málum sem þeir telja okkur trú um að þeir vilji helst berjast fyrir. Eru það bara ráðherrastólarnir sem skipta máli og þá skiptir ekki máli með hverjum svo framalega að SDG sé ekki með í leiknum? Er það virkilega svo að Framsókn vilji leiða Steingrím J. og Svandísi Svavars til sætis í stjórnarráðinu?????
Fyrir hvað stendur Framsóknarflokkurinn???????
![]() |
Hefur ekki heyrt í neinum í vikunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.11.2017 | 14:42
Hvers vegna er Framsóknarflokkurinn annars í stjórnmálum????????
Það hefur legið fyrir frá því áður en viðræður VBSP hófust að meirihluti slíkrar stjórnar væri tæpur. Varð sá meirihluti eitthvað tæpari eftir samræðurnar í gær????
Hvaða leikaraskapur er í gangi???? Eru Framsóknarmenn í þessum viðræðum af einhverri alvöru eða hvað????? eða er eitthvað sjónarspil í gangi af þeirra hálfu??????
Annars er ég sjálfur á því að BDFM væri besti kosturinn. En hvað veit maður hvað Framsókn gæti tekið uppá í slíkri stjórn.
Hvers vegna er Framsóknarflokkurinn annars í stjórnmálum????????
![]() |
Boltinn er hjá formanni VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
flinston
-
baldvinj
-
bergthorolason
-
biggilofts
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
gattin
-
contact
-
einarbb
-
eeelle
-
emilkr
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gudbjorng
-
zumann
-
tilveran-i-esb
-
coke
-
gunnlauguri
-
gustafskulason
-
conspiracy
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
haddi9001
-
maeglika
-
harhar33
-
bordeyri
-
heimssyn
-
don
-
hordurvald
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
jakobk
-
johanneliasson
-
johann
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonl
-
bassinn
-
prakkarinn
-
thjodarskutan
-
kiddikef
-
krist
-
kristjan9
-
lifsrettur
-
loncexter
-
magnusg
-
marinogn
-
mofi
-
olof
-
pallvil
-
iceland
-
regu
-
undirborginni
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
duddi9
-
sjonsson
-
thruman
-
athena
-
stebbifr
-
stendors
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
viktor
-
villidenni
-
postdoc
-
thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.7.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 169
- Frá upphafi: 167788
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 153
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar