Færsluflokkur: Bloggar

Ofsóknir skólayfirvalda á hendur Snorra Óskarssyni

Snorri vinur minn Óskarsson hefur enn einu sinni orðið fyrir barðinu á ofsatrú pólitísks rétttrúnaðar.  Menn þola ekki að heyra það sem þeim fellur ekki í geð og þá er brugðið á það ráð að ofsækja þann sem hefur dug og þor að hafa skoðanir og koma þeim á framfæri. 

Skólayfirvöld á Akureyri og bæjarstjórn setur verulega niður verði þeirri ákvörðun að reka Snorra úr starfi ekki umsvifalaust snúið við.  Ég fullyrði að með því að reka Snorra Óskarsson úr starfi er Brekkuskóli að missa sinn allra besta kennara.

En ef ég þekki Snorra rétt mun hann ekki bugast eða láta þetta á sig fá heldur mun hann eflast í því að boða fagnaðarerindið eins og honum er lagið.

 


mbl.is „Menn skeindust á sálinni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er fólki, sem þarf að leita á leigumarkaðinn eftir húsnæði, sýnd sanngirni eða eru menn að reyna að græða á slæmri stöðu annarra???

Óréttlætið gagnvart þeim sem eru í nauð virðist ekki ætla að linna.  Þeir sem ekki hafa efni á að borga af íbúðalánum og missa íbúðir sínar þess vegna er att út á leigumarkaðinn þar sem þeim er ætlað að borga mun hærri húsaleigu en sem svaraði greiðslu íbúðalánanna.  Hvernig má þetta vera???  hvar er réttlætið???  hvar er jafnaðarmennskan???  hvar eru stjórnvöld???  eru þau öll komin í frí, út í sólina á meðan þeir sem minnst hafa og ekki geta eru krafðir um miklu meira???

Þeir sem eiga húsnæði sem þeir leigja út þurfa að gæta sanngirni í leigutöku, láta ekki græðgina ná tökum á sér, en vera hógværir í garð þeirra sem þurfa oft á tíðum af illri nauðsyn að leita til þeirra um húsaskjól. 

Sýnum meðbræðrum okkar virðingu og skilning, tökum ekki meira en sanngjarnt er, virðum þá sem eru í nauð, notfærum okkur ekki slæma stöðu þeirra, verum þeim til blessunar en ekki bölvunar, það mun bara hitta okkur fyrir, þó síðar verði.

Hvernig væri að bankarnir og aðrir sjóðir sem eiga íbúðir út um allt,  taki sig nú til og leigi þeim sem eru í nauð, á sanngjörnu verði, ekki með okri græðginnar heldur með mannúðar sjónarmið að leiðarljósi.

 


mbl.is Mikil spenna á leigumarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir voru að kíkja í pakkann, til að athuga hvað væri í honum, þegar skyndilega þeir duttu ofan í hann.

Ráðamenn í Búlgaríu, Tékklandi, Ungverjalandi, Lettlandi, Litháen, Póllandi og Rúmeníu voru að kíkja í pakkann þegar skyndilega þeir duttu ofan í hann.  Nú reyna þeir hvað þeir mest geta að klóra sig upp úr pakkanum, því það svo ógeðslegur fnykur ofan í honum sem er að kæfa þá.

Ríkisstjórn Íslands hyggst stökkva ofan í pakkann og taka upp Evruna þegar búið verður að leggja hana af. Blush

 


mbl.is Vilja losna undan evrunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju var hundurinn ekki þegar tekinn ...

... af eigenda sínum og hann aflífaður samkvæmt reglum þeim sem í gildi eru.  Er einhver vafi á því hvað lög og reglur segja???? eða eiga hundar í Mosfellsbæ meiri rétt en bréfberar????

Ekki á eingöngu að aflífa hundinn heldur ber eiganda að greiða bréfbera skaðabætur, laun á meðan viðkomandi er án vinnu sökum meiðsla þeirra er hún varð fyrir og miska vegna þess áfalls sem hún varð fyrir.

Ég verð að segja að það er allt of algengt að hundar ganga lausir.  Ég kalla það að ganga laus þó svo að eigandi sé nærri, en hundur óbeislaður.  Annars á hundahald ekki að tíðkast í þéttbýli, það er mín skoðun.

 


mbl.is Verði með munnkörfu utandyra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smælingjarnir fá dóm fyrir litlar sakir, játi þeir brot sín greiðlega....

....en þeir sem brjóta mikið af sér, ég tala nú ekki um setji þeir heilt þjóðfélag á hliðina, er þeim hampað af ríkisvaldinu, dómsvaldinu og bönkunum, þeim klappað á bakið og hvattir áfram. 

Á meðan Arion banki þarf að afskrifa milljarða á milljarða ofan af skuldum Bónusfeðga, þeim afhentir Hagar aftur á silfurfati, svo þeir geti haldið áfram að taka lán sem síðan þarfa að afskrifa, þá er ólánskona dæmd vegna þess að hún viðurkennir brot sín greiðlega og vegna þess að brot hennar var ekki stórvægilegt í samanburði við brot útrásarvíkinganna.

Er þetta réttarkerfið eins og við viljum hafa það ????  ég bara spyr!!!! Blush

 


mbl.is Dró sér fé úr afgreiðslukassa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

I save, You save, IceSave

I save, You save, IceSave.

Hvað væri hægt að gera við allt þetta vatn

Ég fór vestur á firði um helgina.  Sem fyrr er ég fór um Vestfjarðakjálkann var mér hugsað um allar þær vatnsuppsprettur sem eru á Vestfjörðum og allt það hreina og tæra vatn sem streymir ofan af heiðum og út úr klettunum og rennur í stríðum straumum til sjávar.  Þá var mér hugsað til þeirra milljarða manna sem skortir hreint og tært vatn og líður vatnsskort. 

Ég hugsaði: ef hægt væri að safna öllu þessu vatni saman í einn gríðarstóran geym eða eitt gríðarstórt stöðuvatn, hvað ætli slíkt stöðuvatn gæti satt marga einstaklinga ?

Við erum gífurlega rík að eiga svona mikið vatn og það hreint, tært og heilnæmt vatn.  Ef fólk frá löndum er líður vatnsskort kæmi og sæi allt það tæra og hreina vatn er rennur óhindrað í sjó fram, myndi eflaust verða frá sér af undrun og telja það mikla sóun að láta það renna svona óhindrað í sjóinn.

 


Bætur greiddar út eftir helgi

Atvinnuleysisbætur verða ekki greiddar út fyrr en eftir helgi, eða 4.maí.  Þetta er til háborinnar skammar !!!! Angry

Hvar er heilög Jóhanna núna ???

 


mbl.is Bætur greiddar út eftir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er líkt með víkingum og útrásarvíkingum ?

Þeir fóru um rænandi og ruplandi og skildu eftir sig sviðna jörð.

En hver er munurinn á víkingum og útrásarvíkingum ?

Víkingar voru klæddir vopnum til að drepa.  En útrásarvíkingarnir voru velklæddir lymsku og blekkingum.


mbl.is Ráðherra í víking
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 22
  • Sl. sólarhring: 41
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 167528

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband