Færsluflokkur: Bloggar

Ísraelsmenn hafa óttast nýtt indifada nú um hríð og svo virðist sem það sé á hraðri leið í uppsiglingu

Í viðtengdri frétt segir: "árás­in á rút­una er sú fyrsta þar sem skot­vopn koma við sögu".  Þessi fullyrðing er ekki rétt, því fyrir um tveim vikum síðan skutu "palestínskir" uppreisnarmenn hjón til bana fyrir framan fjögur börn þeirra.  Börnin eru á aldrinum frá átta mánaða til níu ára.

Þess ber einnig að geta að árásir undanfarinna vikna hata ekki einskorðast við "vestur bakkann" eða Gaza heldur hafa verið víðar í Ísrael, t.d. Tel Aviv sem er út við strönd Miðjarðarhafsins og hvergi nærri fyrrnefndum stöðum.

Ísraelsmenn hafa óttast nýtt indifada nú um hríð og svo virðist sem það sé á hraðri leið í uppsiglingu, en Abbas hefur verið iðinn við að hvetja "palestínumenn" til ofbeldis og þá skiptir ekki máli hvort óbreyttir borgarar verði fyrir ofbeldi eða ekki.


mbl.is Blóðugasti dagurinn til þessa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Al Fadi frá Saudi Arabíu segir sögu sína

 

Af Fadi fæddur og uppalinn í Saudi Arabíu nam verkfræði og útskrifaðist sem verkfræðingur frá Bandarískum háskóla.

Hann ólst upp með Kóraninn sér við hlið og þær kenningar sem því fylgir að vera sannur múslími.

Hlustið á frásögn hans hér fyrir neðan.

 

 


Samtökin 78 nota pólitískan rétttrúnað til að kúga menn til að lúta áróðri samtakanna.

Með pólitískum rétttrúnaði að vopni ætla samtökin 78 að hræða lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu til hlýðni við vilja sinn og kúga hann til að ger það sem þeim er að skapi.  Þeir sem hafa skoðun á líferni "hinsegin" fólks sem fellur ekki að vilja framangreindra samtaka er hótað með pólitískum rétttrúnaði og þykir þeim það í góðu lagi.  Staðreyndin er hins vegar sú að með pólitískum rétttrúnaði að vopni eru menn ofsóttir hafi þeir ekki "rétta" skoðun á mönnum og málefnum.  Ganga ofangreind samtök þar fremst í flokki.

Samtökin 78 nota pólitískan rétttrúnað til að kúga menn til að lúta áróðri samtakanna.


mbl.is Kæra embætti lögreglustjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn

Mánudaginn 21.september s.l. birtist grein eftir mig í Morgunblaðinu. Til að geta fengið greinina birta þurfti ég að stytta hana verulega, en hún mátti innihalda 5000 slög.

Hér fyrir neðan er greinin í fullri lengd.

 

Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn

Öll erum við mannanna börn breysk. Okkur verður öllum á, ýmist í hugsun, orði og verki. Allir hafa brotið af sér viljandi og óviljandi, af fyrirhuguðu ráði og eins óvart, hugsunarlaust.

Orð Guðs kennir okkur að Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð Róm.3;23.

Í Jóhannesarguðspjalli [Jóh.] segir Jesús 16Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. 17Guð sendi ekki soninn í heiminn til að dæma heiminn, heldur að heimurinn skyldi frelsast fyrir hann. Jóh.3;16-17.

Hvað er Jesús að tala um. Jú Hann talar um að frelsast og að glatast ekki. Hvað felst í glötun? Glötun þýðir að við erum eilíflega aðskilin frá Guði skapara okkar. Þegar við deyjum höldum við áfram að vera til. Orðið dauði þýðir í raun aðskilnaður, sál okkar yfirgefur líkamann eins og við þekkjum hann en heldur áfram að vera til, við fáum andlegan líkama. Jesús segir á öðrum stað 25"Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi. 26Og hver sem lifir og trúir á mig, mun aldrei að eilífu deyja. Jóh.11;25-26. Hér talar Jesús aftur um eilíft líf að þeir sem lifa og trúa á Hann munu aldrei að eilífu deyja. Er Hann þá virkilega að segja að jarðneskur líkami okkar muni ekki deyja? Nei hann er ekki að segja það, heldur að þegar við yfirgefum jarðneskan líkama okkar förum við inn í Himneska tilveru, tilvera sem er mörgum sinnum betri en sú tilvera sem við lifum hér í okkar jarðnesku tilveru. Þá er eins og við förum úr óhreinu, illaliktandi, ömurlegu herbergi inn í glæsta sali þar sem ólýsanleg fegurð, friður, gleði og hamingja ríkir. Þar er enginn sársauki, engir sjúkdómar, enginn ótti, ekkert hatur, þar mun enginn hungra eða þyrsta, ekkert ójafnvægi, allt er fullkomið. Það er þangað sem Jesús vill varða okkur veginn til.

Þegar Jesús talar um að frelsast og að glatast ekki, þá er Hann að varða okkur veginn til þessa lífs sem hér að ofan er lýst í stuttu máli og af veikum mætti. En hvað er þá að glatast? Það má segja að glötun er allt hið gagnstæða við eilífa lífið. Það er hinn eilífi dauði, sem þýðir það að við erum eilíflega aðskilin frá Guði og Hans góðu gjöfum. Hið eina sem er sameiginlegt með eilífa lífinu og glötun er sú staðreynd að við erum til og það um eilífð.

Jesús talar um glötunina, Hann segir t.d. á nokkrum stöðum: þar mun verða grátur og gnístran tanna Matteusarguðspjall [Matt.] 8;12, 13;42, 13;50, 22;13, 24;51, 25;30 og Lúkasarguðspjall [Lúk.] 13;28. Jesús talar einnig um hið ysta myrkur og eldsofninn svo eitthvað sé nefnt. Alvarlegustu orð Jesú finnst mér vera þau sem Hann segir í Markúsarguðspjalli [Mark.] 9;42-48 42Hverjum þeim, sem tælir til falls einn af þessum smælingjum, sem trúa, væri betra að vera varpað í hafið með mylnustein um hálsinn. 43Ef hönd þín tælir þig til falls, þá sníð hana af. Betra er þér handarvana inn að ganga til lífsins en hafa báðar hendur og fara til helvítis, í hinn óslökkvanda eld. [44Þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki.] 45Ef fótur þinn tælir þig til falls, þá sníð hann af. Betra er þér höltum inn að ganga til lífsins en hafa báða fætur og verða kastað í helvíti. [46Þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki.] 47Og ef auga þitt tælir þig til falls, þá ríf það úr. Betra er þér eineygðum inn að ganga í Guðs ríki en hafa bæði augu og verða kastað í helvíti, 48þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki. Hann er í raun að segja "Ekki velja þessa leið, forðist hana, það væri betra að missa hönd, fót eða auga ef það mætti verða til þess að losa við þennan óhugnandi stað sem tekur engan enda fyrir þá sem þar lenda".

Þú kannt að spyrja hvort ég sé að hræða fólk inn í Guðs ríkið. Ég er hér að benda á Orð ritningarinnar, Biblíunnar, sem ég trúi að sé Guðs Orð. Ég vitna hér að mestu í Orð Jesú Krists sjálfs. Guð gerðist fullkominn maður í Jesú Kristi, Hann kom til að taka á sig syndir okkar, það gerði Hann á páskum er Hann var krossfestur, dáinn, grafinn og reis á þriðja degi upp frá dauðum. Hann dó vegna okkar synda og reis upp vegna síns eigin réttlætis og gaf okkur mönnunum hlutdeild í upprisu sinni. Þess vegna getur Hann boðið okkur eilíft líf og það eignumst við þegar við komum fram fyrir Hann, játum syndir okkar, iðrumst þeirra [snúum frá þeim] og fylgjum Honum. Ef það þarf að hræða fólk inn í Guðs ríkið, þá er það betra en að það fari á mis við Guðs gjöf.

En getum við ekki bara lifað góðu lífi og reynt að vanda okkur, gera náunganum ekki mein, rétta hjálparhönd og vera heiðarleg í samskiptum okkar við aðra?

Þá koma á móti aðrar spurningar: Hefurðu einhvern tímann sagt ósatt, jafnvel bara "hvíta lygi"? Fyrir Guði er ekkert til sem heitir "hvít lygi", að segja ósatt er að ljúga. Hefurðu einhvern tímann tekið eitthvað ófrjálsri hendi, eitthvað sem þú átt ekki heldur einhver annar? Hefurðu talað illa um einhvern, jafnvel eitthvað sem þú telur vera sannleikanum samkvæmt? Hefurðu girnst eitthvað sem einhver annar á? Svona mætti lengi telja. Ef svarið er JÁ jafnvel bara við einni þessara spurninga, þá hefur þú brotið lögmál Guðs. Ég get upplýst það að ég get sagt JÁ við öllum þessum spurningum hvað mig varðar, ég hef brotið gegn flestum ef ekki öllum lögmálum Guðs.

En lof sé Guði, af náð Hans höfum við aðgang að Honum fyrir trúna á Jesú Krist. Þegar við játumst Honum leggjum við okkur fram um að breyta rétt og biðjum Hann að hjálpa okkur til þess.

Páll postuli skrifar í 1.Tímóteusarbréfi 1;15 15Það orð er satt, og í alla staði þess vert, að við því sé tekið, að Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn, og er ég þeirra fremstur. Páll, sem áður hét Sál, ofsótti hina kristnu, en Jesús mætti honum og líf hans breyttist. Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn segir Páll og hann sagði í Róm 3;23 eins og ég gat í upphafi Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð. Hverjir eru allir? Jú, það er ég og það ert þú.

Við þurfum öll að trúa á Jesú Krist Guðs son og fylgja Honum viljum við eignast eilíft líf, það líf sem veitir okkur eilífa gleði og hamingju. Það gerist ekki af sjálfu sér, því að sá sem trúir mun hólpinn verða, en sá sem trúir ekki mun fyrirdæmdur verða Mark.16;16. En að trúa er að fylgja Jesú, vera lærisveinn Hans.

18Sá sem trúir á hann, dæmist ekki. Sá sem trúir ekki, er þegar dæmdur, því að hann hefur ekki trúað á nafn Guðs sonarins eina. 19En þessi er dómurinn: Ljósið er komið í heiminn, en menn elskuðu myrkrið fremur en ljósið, því að verk þeirra voru vond. 20Hver sem illt gjörir hatar ljósið og kemur ekki til ljóssins, svo að verk hans verði ekki uppvís. 21En sá sem iðkar sannleikann kemur til ljóssins, svo að augljóst verði, að verk hans eru í Guði gjörð Jóh.3;18-21.

Bæn mín er sú að með lestri þínum á því sem ég hef hér ritað megir þú snúa þér til Hans sem er skapari alls, upphafið og endirinn, Konungur konunga og Drottinn drottna. Líf þitt er meira virði en svo að þú myndir vilja láta það fara til spillis. Guð elskar þig og gerði allt til þess að þú mættir eignast eilíft líf.

Þú getur gefist Guði núna með því að fara með einfalda bær og segja: Guð minn ég kem til þín eins og ég er með allar syndir mínar og birgðar. Ég bið þig að fyrirgefa mér syndirnar og taka við mér. Ég bíð þig velkominn inn í líf mitt kæri Jesús og bið þig að taka stjórnina á lífi mínu. Viltu leiða mig um rétta vegu að ég megi þóknast þér og fylgja þér. Í Jesú nafni, Amen.

Þá er mikilvægt að lesa Guðs Orð, Biblíuna, biðja reglulega til Hans og sækja samfélag trúaðra, en þar er hjálp að fá á trúargöngunni.

Guð blessi þig og gangi þér vel.

 


Hvað felst í því að vera Ísraeli?

Sjá myndbandið hér fyrir neðan.

Getur verið að þú hafir eitthvað í fórum þínum sem framleitt er í Ísrael? eða þú njótir hugvits sem upprunnið er í Ísrael?

Hvað með tölvuna þína, símann þinn t.d.?

 


Staðgöngumæðrun er ávísun upp á stórkostleg vandamál.

Staðgöngumæðrun snýst um meira en þann/þá/þau sem vilja eignast barn. Staðgöngumæðrun er meira en bara að segja það, það er dauðans alvara fyrir konuna sem gengur með barnið og ekki hvað síst fyrir einstaklinginn barnið sjálft. 


mbl.is Guðlaug gekk með barn fyrir frænda sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytt tillaga mun bara gera illt verra!!!!!

Ætlar Dagur B. virkilega að fara úr öskunni í eldinn??? Heldur hann virkilega að breytt tillaga muni gera hlutina betri??? Er maðurinn virkilega svona blindur eða stjórnast hann af heimsku???

Þegar mönnum verður á, eins og afleiðingar af afglöpum borgarstjórnar hafa sýnt fram á, eiga menn í fyrsta lagi að viðurkenna afglöp sín, biðjast fyrirgefningar og breyta því sem þeir gerðu rangt.  Í þessu tilviki að draga tillöguna til baka eins og hún leggur sig.  Þá þurfa þeir sem samþykktu þessa arfavitlausu tillögu að segja af sér.  Útlendingar, ekki bara Gyðingar, munu ekki bera traust til íslensks viðskiptasiðferðis nema borgarstjórinn og hans fylgdarlið segi af sér og það verði opinberað út um allan heim eins og tillagan vitlausa barst út um allt.

Breytt tillaga mun bara gera illt verra!!!!!


mbl.is Tvær tillögur á dagskrá borgarstjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur B. og fylgifiskar hans verða að segja af sér svo Ísland verði trúverðugt á ný.

Nú ætlar Dagur B. að breiða yfir skítinn með því að moka enn meiri skít yfir drulluna.  Það á sem sagt að stuðla að því að allir þeir "Palestínumenn" sem vinna hjá Ísraelskum fyrirtækjum missi vinnuna, en þeir eru í meirihluta þeirra starfsmanna sem vinna á téðu svæði.

Tillaga Dags um að breyta fyrri tillögu er ekki nóg.  Hann og fylgifiskar hans verða að segja af sér til þess að Ísland verði tekið trúanlegt að öðrum kosti breytist ekkert.

 


mbl.is Ætlar að draga tillöguna til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður sem flýr ofbeldi Íransstjórnar fær ekki dvalarleyfi á Íslandi

Pedarsani verður vísað á brott sennilega vegna þess að hann er kristinn.  Væri hann múslími væri honum tekið opnum örmum.

Hvar eru aðgerðarsinnar núna, þeir sem mega ekkert aumt sjá, þegar kemur að fólki sem kemur hingað ólöglega?

 

 


mbl.is „Hélt ég væri öruggur hérna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband