Færsluflokkur: Bloggar

Það er til lausn

Eitt af því stórkostlegasta sem ég hef séð á lífsleiðinni er þegar menn og konur sem hafa lent illa í því á lífsleiðinni, lent á ógæfubraut, orðið fangar allskonar fíkna, átt við ýmsa sjúkdóma að stríða svo eitthvað sé nefnt, en fengið lausn og lækningu erfiðleika sinna og meina hjá frelsaranum Jesú Kristi.  Þau eru ó fá dæmin sem ég hef séð þar sem fólk umbreytast, fá von í stað vonleysis, heilsu í stað heilsuleysis, gleði í stað sorgar, líf í stað dauða.

Þegar Jesús kom til Nasaret eftir að Hann hóf þjónustu sína, gekk Hann inn í samkunduna, þar las Hann úr 60.kafla í bók Jesaja spámanns, en frásöu þessa má lesa í Lúkas 4.kafla vers 18-21

16Hann kom til Nasaret, þar sem hann var alinn upp, og fór að vanda sínum á hvíldardegi í samkunduna og stóð upp til að lesa. 17Var honum fengin bók Jesaja spámanns. Hann lauk upp bókinni og fann staðinn, þar sem ritað er:

18 Andi Drottins er yfir mér,
af því að hann hefur smurt mig.
Hann hefur sent mig til að flytja fátækum gleðilegan boðskap,
boða bandingjum lausn
og blindum sýn,
láta þjáða lausa
19 og kunngjöra náðarár Drottins.

20Síðan lukti hann aftur bókinni, fékk hana þjóninum og settist niður, en augu allra í samkundunni hvíldu á honum. 21Hann tók þá að tala til þeirra: "Í dag hefur rætst þessi ritning í áheyrn yðar."

 

Jesaja sem var uppi um 700árum fyrir Krist ritar einnig í 42.kaflanum vers 1-9 en þar er Jesaja að spá fyrir um komu Jesú.

1Sjá þjón minn, sem ég leiði mér við hönd, minn útvalda, sem ég hefi þóknun á. Ég legg anda minn yfir hann, hann mun boða þjóðunum rétt.

2Hann kallar ekki og hefir ekki háreysti og lætur ekki heyra raust sína á strætunum.

3Brákaðan reyrinn brýtur hann ekki sundur, og dapran hörkveik slökkur hann ekki. Hann boðar réttinn með trúfesti.

4Hann daprast eigi og gefst eigi upp, uns hann fær komið inn rétti á jörðu, og fjarlægar landsálfur bíða eftir boðskap hans.

5Svo segir Drottinn Guð, sá er skóp himininn og þandi hann út, sá er breiddi út jörðina með öllu því, sem á henni vex, sá er andardrátt gaf mannfólkinu á jörðinni og lífsanda þeim, er á henni ganga:

6Ég, Drottinn, hefi kallað þig til réttlætis og held í hönd þína. Ég mun varðveita þig og gjöra þig að sáttmála fyrir lýðinn og að ljósi fyrir þjóðirnar 7til að opna hin blindu augun, til að leiða út úr varðhaldinu þá, er bundnir eru, og úr dýflissunni þá, er í myrkri sitja.

8Ég er Drottinn, það er nafn mitt, og dýrð mína gef ég eigi öðrum né lof mitt úthöggnum líkneskjum.

9Sjá, hinir fyrri hlutir eru fram komnir, en nú boða ég nýja hluti og læt yður heyra þá áður en fyrir þeim vottar.

Guð gerðist maður og kom fram sem Jesús Kristur.  Hann kom til að taka á sig syndir okkar, að leysa okkur undan afleiðingum þeirra og gefa eilíft líf þeim sem á Hann trúa.  En öllum þeim sem tóku við Honum gaf Hann rétt til að verða Guðs börn, þeim er trúa á nafn Hans. Jóhannes 1.kafli 12.vers.

Jesús kom einnig til að leysa fjötraða, eins Jesaja spáði fyrir um og Hann (Jesús) er enn að leysa fólk úr alls konar fjötrum, lækna og frelsa. Í Hebreabréfinu 13.kafla 8.versi stendur skrifað.  Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir.

Það er gott að vita að Guð breytist ekki.  Við mennirnir breytumst og erum sífellt að breytast, en Guð er ávalt hinn sami, Hann skiptir ekki um skoðun því Hans réttlæti er ávalt hið sama, Hann er sannur og trúr.

Það er stórkostlegt að lesa og heyra vitnisburði um það sem Guð hefur gert í lífum annarra og ekki síður að upplifa það sjálfur það sem Guð gerir í manns eigin lífi.  En ég þakka Drottni fyrir vitnisburði eins og þann sem Sigþór Jónsson gefur, Guði til dýrðar, vegna þess að ég veit að hann er sannur, þó ég þekki Sigþór ekki persónulega, en ég hef séð það sama í lífum svo margra.

Guð er góður, Hann er bara góður og elskar alla menn.  Hann er til staðar til að mæta þér, Hann er aðeins einni bæn í burtu, Hann er tilbúinn að mæta hverjum þeim sem biður/ákallar Hann í einlægni. 

Guð elskar þig.


mbl.is Landsliðsmaður á götunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hræsnin nú að opinbera síg í flokki sjóræningjanna?

Eru nú sjóræningjarnir [Píratar] með Birgittu Jónsdóttur í broddi fylkingar farnir að hvetja til þöggunar, gagnrýna þá sem vilja ræða málin og jafnvel hafa skoðun á því sem er að gerast?  Var það ekki þessi sjóræningjaflokkur sem vildi hafa allt galopið?

Er hræsnin nú að opinbera sig í flokki þeirra?

 


mbl.is Ráðherra tjái sig varlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erum við þakklát fyrir það sem við höfum? Eða kunnum við ekki að skammast okkar?

Þegar litið er til efnahags- og peningamála í Evrópu, Bandaríkjunum, Rússlandi og Kína svo nokkur efnahagskerfi séu nefnd þá lítur dæmið þannig út.  Samdráttur, atvinnuleysi, kreppa og vandræðagangur. 

Samanborið við fyrrnefnd efnahagskerfi þá stöndum við mjög vel.  Vissulega væri æskilegt að vextir væru lægri.

Það sem við höfum fram yfir nefnd kerfi þá er atvinnuleysi minna hjá okkur en þeim, almennt hafa Íslendingar það betra en íbúar þessara ríkja, meira að segja Bandaríkjanna, en Obama er búinn að rústa millistéttinni þar vestra.

Við höfum líka sjálfstæða peningamálastefnu og erum ekki undir duttlungum annarra komin hvað það varðar.  Við höfum tæki og tól til að aðlaga okkar efnahags- og peningakerfi eins og nú hefur sannast í kjölfar hrunsins. 

Við getum verið Geir H. Haarde þakklát fyrir þær aðgerðir sem hann fór í þegar hrunið átti sér stað, þær aðgerðir björguðu því sem bjargað varð, en það hefðum við ekki getað hefðum við verið í ESB.

Við getum sjálfum okkur um kennt að vextir skuli vera svo háir sem raun ber vitni, en þar hafa launahækkanir og launaskrið haft mikil áhrif.  Vissulega er fólk sem ætti að hafa það betra og fá hærri laun, en hvað gerðist nú í samningunum?  Þetta sama gamla, ef koma á til móts við hina lægst launuðu koma þeir sem hafa það þokkalegt og krefjast sömu prósentuhækanna.  Hafa opinberir starfsmenn farið þar fremstir í flokki.

Nei, ég held við ættum að hætta þessu kvarti og kveini og temja okkur að vera þakklát fyrir það sem við höfum því það er ekkert sjálfsagt í þeim efnum.  Við höfum það mun betra en flestar aðrar þjóðir.  Þurfum ekki annað en að líta rúm 100ár aftur í tímann til að sjá hvaðan við erum komin, úr torfkofum, við lítinn kost, en vorum mun þakklátari en við nú erum. 

Forfeður okkar lögðu hart að sér til að byggja það land sem við nú lifum í og njótum afrakstur erfiðis þeirra, en svo þurfum við sí og æ að finna eitthvað til að vera óánægð með.  Ég held við ættum að skammast okkar og tala ég þar með um sjálfan mig sem og aðra.


"Flóttamenn" valda ótta meðal þýskra borgara

Hér fyrir neðan er myndband frá Hannover í Þýskalandi sem sýnir "flóttafólk" massera um götur borgarinnar.  Má heyra konur ræða saman um það sem þær sjá og lýsa áhyggjum sínum.  Enskur texti er fyrir neðan myndbandið.

Á myndbandinu má sjá "flóttamennina" veifa ISIS-fánanum svarta.

WATCH: GERMAN CITIZENS PANIC, ‘THIS IS OUR FUTURE’ – AS MUSLIMS MARCH THROUGH CITY

A new video appears to show Islamists marching in the German city of Hannover while at least two girls look on and express their fears.

The video, uploaded to various YouTube channels, has had over 100,000 views and appears to show a march that took place last week.

The girls can be heard saying:

“I thought I was the only one who’s in a bad mood because of this.”

“None of us want this. We’re all scared.”

“What is this? How will this be in 100 years?”

“This is not my life. It just shows you how many of them are here already.”

“Now there’s another 1.5 million who came this year.”

“Every year 2-3 million arrive.”

“It’s generally about foreign infiltration.”

“Yes, exactly.”

“We won’t dress like we do now.”

“Here, no! They won’t take anything from me!”

“Look, when I walk through the streets of the city, it’s only foreigners!”

“There are walking 50 foreigners and I only see one European face.”

“Look at the women! They’re all veiled!”

“This is our future.”

“Merkel says we’ll make it!”

“Yes we’ll make it! We’ll make it to our collective doom!”

“No, we won’t make it.”


mbl.is „Mér er ekkert illa við útlendinga, en...“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers þjónar eru prestar kirkjunnar?

Hvaðan kemur vald kirkjunnar? Kemur það frá ráðherra eða Alþingi? Kemur það frá meðhjálpara eða söfnuðunum? Kemur það kannski frá Samtökunum 78?

Hvers þjónar eru prestar kirkjunnar? Eru þeir þjónar Samtakanna 78, þingmanna, ráðherra eða safnaðanna?  Eiga prestar ekki fyrst og fremst að vera þjónar Hans sem er höfuð kirkjunnar Almáttugur Guð, skapari alls? Eða skiptir Hann ekki máli í kirkjum landsins?

Getur verið að prestar líti ekki á Guð sem persónu sem skapaði okkur í sinni mynd?  Halda þeir kannski að maðurinn hafi skapað Guð, heiminn og allt sem í honum er?

Það er ekki gott fyrir þjóðkirkjuna ef biskup og prestar hennar þekki ekki skapara sinn, þann sem þeir eiga að þjóna eða telja þeir að Hann sé aukaatriði?  Þá er ekki að undra að kirkjusókn sé léleg og kristni hafi farið hnignandi í landinu.

Getur verið að þeir sem veljast til þjónustu innan kirkjunnar trúi ekki á þann sem á að vera höfuð hennar, þá er ég ekki að tala um frú Agnesi, heldur Hann sem við öll verðum að standa reiknisskil frammi fyrir á efsta degi.  Trúa prestarnir kannski ekki því að Guð sé Heilagur, Réttlátur og Sannur.

Það sem kirkjan þarf á að halda og reyndar þjóðin öll er VAKNING, að við snúum okkur til Hans sem skóp okkur, í stað þess að fara þá leið sem í gegnum tíðina hefur leitt til þess að dómur Guðs hefur komið yfir þjóðfélög.  Ég verð að viðurkenna að ég hef verulegar áhyggjur af framferði ekki bara íslensku þjóðarinnar heldur Evrópu allrar, Bandaríkjanna og víðar.

Synd og fráhvarf frá Guði og Orði Hans hefur afleiðingar.  Það er eins og ef þú stingur hönd þinni í sjóðandi heitt vatn, afleiðingin verður bruni.

Að hafna Guði og Orði Hans hefur afleiðingar, en þær ættu að verða til þess að við snúum okkur til Hans.  Það er mín bæn.


mbl.is Ekki heimild til að mismuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkur á villigötum

Sjálfstæðisflokkurinn er kominn langt frá uppruna sínum.  Flokkurinn stóð fyrir sjálfstæði, frelsi, mannúð, kristnum gildum, réttlæti, stétt með stétt og með lífinu.  Nú er svo komið að þessi flokkur hefur rústað öllum þessum gildum ég nefni einkum kristilegu gildin og lífið sem þeir meta einskis lengur. 

Nú er ekki bara lögð áhersla á fósturdeyðingar heldur vilja þeir standa fyrir svo kölluðu "líknar" morði.  Það virðist eins og Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið upp stefnu vinstri flokkanna, þ.e. umfaðma dauðann á kostnað lífsins. 

Mér er öllum lokið, þetta er ótrúlegt, að fullorðið fólk skuli ljá mál á svona löguðu.


mbl.is Frjálslyndið í fyrirrúmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiga samkynhneigðir alltaf að geta komið sínu fram óháð skoðunum annarra?

Er það virkilega svo að samkynhneigðir vilja endilega sækja þjónustu til þeirra sem samvisku sinnar vegna er á móti skapi að veita slíka þjónustu sem þeir fara fram á?  Er það kannski bara til að ögra?  Ögra kirkjunni og þó einkum þeim sem vilja ekki veita samkynhneigðum slíka þjónustu?  Eru samkynhneigðir í raun að reyna að koma upp sundrungarástandi á meðal þjóðarinnar?  Af hverju hafa þeir einir rétt til að hlustað sé á þá og farið eftir þeirra duttlungum?  Af hverju mega aðrir ekki hafa aðra skoðun og lifa og starfa eftir því sem þeim þykir best og í samræmi við samvisku þeirra? 

Ég veit ekki betur en samkynhneigðir geti hagað málum sínum eins og þeim sýnist.  Ekki eru kristnir, eða aðrir sem hafa þá skoðun að samkynhneigð sé óeðlileg, komnir inn á gafl samkynhneigðra til að varna þeim að fara sínu fram.  En samkynhneigðir og þeir sem fylgja þeim að málum vilja ráðskast með aðra sem eru þeim ekki sammála. 

Það er óþolandi að prestar þjóðkirkjunnar skuli ganga fram fyrir skjöldu og vilja þvinga fram vilja samkynhneigðra af hreinni meðvirkni eða til að afla sér vinsælda á meðal frjálslyndra og annarra öfgahópa.

Eru prestar ekki í því starfi til að þjóna Guðs Orði? að boða fagnaðarerindið, sem kallar eftir fylgni við Drottinn og fráhvarf frá synd? eða halda menn að  Jesús Kristur hafi komið og frelsað mannkynið frá syndum þeirra svo þeir gætu haldið áfram í synd sinni?  Vita prestarnir ekki að laun syndarinnar er dauði (eilífur aðskilnaður frá Guði)?

Prestar munu á efsta degi þurfa að standa skil á þeim boðskap sem þeir flytja.  Ef þeir þekkja ekki Guðs Orð eða vilja Drottins ráðlegg ég þeim að leita Hans vilja, því að Guðs vegir eru ekki okkar vegir og okkar vegir eru ekki Guðs vegir.

Jesaja 55.kafli vers 6-11 

6Leitið Drottins, meðan hann er að finna, kallið á hann, meðan hann er nálægur!

7Hinn óguðlegi láti af breytni sinni og illvirkinn af vélráðum sínum og snúi sér til Drottins, þá mun hann miskunna honum, til Guðs vors, því að hann fyrirgefur ríkulega.

8Já, mínar hugsanir eru ekki yðar hugsanir, og yðar vegir ekki mínir vegir - segir Drottinn.

9Heldur svo miklu sem himinninn er hærri en jörðin, svo miklu hærri eru mínir vegir yðar vegum og mínar hugsanir yðar hugsunum.

10Því eins og regn og snjór fellur af himni ofan og hverfur eigi þangað aftur, fyrr en það hefir vökvað jörðina, gjört hana frjósama og gróandi og gefið sáðmanninum sæði og brauð þeim er eta, 11eins er því farið með mitt orð, það er útgengur af mínum munni: Það hverfur ekki aftur til mín við svo búið, eigi fyrr en það hefir framkvæmt það, sem mér vel líkar, og komið því til vegar, er ég fól því að framkvæma.

Guð hefur gefið okkur sitt Orð til þess að boða það og það er hlutverk prestanna, ekki að hlaupa eftir duttlungum sérhagsmuna hópa sem vilja gera lítið úr Orði Guðs.


mbl.is Prestar vilja afnema samviskufrelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hugleiðingar, það sem íslenska þjóðin þarf á að halda

Esekíel var spámaður Drottins.  Bók hans í Gamla Testamentinu spannar um 20ára skeið frá 581-560 fyrir krist.

Þó svo að Esekíel hafi verið uppi svo löngu fyrir krist eru spádómar hans enn í fullu gildi.  Orðið sem fylgir hér fyrir neðan er tekið úr Esekíel 33.kafla 11.vers.  Þetta orð passar vel inn í þjóðfélag okkar, á vel við okkur í dag. 

Leyfum Orði Guðs að tala til okkar, tökum það alvarlega, Orðskviðir 4.kafli 22 Því að þau (Guðs Orð) eru líf þeirra, er öðlast þau, og lækning fyrir allan líkama þeirra.

Þá kemur orð Esekíels.

Esekíel 33:11

11Seg við þá: Svo sannarlega sem ég lifi, - segir Drottinn Guð - hefi ég ekki þóknun á dauða hins óguðlega, heldur að hinn óguðlegi hverfi frá breytni sinni og haldi lífi. Snúið yður, snúið yður frá yðar vondu breytni! Hví viljið þér deyja, Íslendingar (Ísraelsmenn)?


JD Farag fjallar um baráttuna milli "Palestínumanna" og Ísraels og fréttaflutning vestrænna fjölmiðla um það efni.

JD Farag er arabi fæddur í Egyptalandi en er nú prestur í Hawaii.

Í myndbandinu hér fyrir neðan fjallar Farag um það sem er að gerast í Ísrael, baráttuna milli "Palestínumanna" og Ísraela.  Hann kemur einnig í lok myndbandsins inná spádóma Biblíunnar um það sem mun gerast á hinum síðustu tímum.  Erum við að horfa uppá þá spádóma rætast í dag?  Margir vilja meina að svo sé.

 


Hvaða áhrif mun flóttamannastraumurinn hafa á fátæka og atvinnulausa í Evrópu?

Það er eins og menn séu búnir að gleyma þeim erfiðleikum sem Grikkir hafa átt við að etja án flóttamanna, hvað þá nú þegar straumur flóttamanna frá Sýrlandi og víðar hefur flætt yfir Grikkland.  Ef ESB hefði nokkru sinni þurft að koma Grikkjum til hjálpar þá er það núna.  Hvernig eiga Grísk stjórnvöld annars að sinna þörfum flóttamannanna meðan þeir geta ekki einu sinni sinnt sínu eigin fólki?

Íslensk stjórnvöld hafa nú lofað tveim milljörðum til að taka við flóttamönnum á sama tíma og öryrkjar og ellilífeyrisþegar hafa mætt afgangi nú þegar allir aðrir eru að fá launahækkanir.  Það sem öryrkjum og ellilífeyrisþegum er skammtað dugar ekki til að komast af.  Mánuðurinn og langur eða bæturnar of litlar.  Þessu verður að breyta áður en flóttafólk streymir til landsins.

Á sama tíma eru allt of margir sem eru á götunni, hafa hvergi höfði sínu að að halla.  Úrræði fyrir þetta fólk er látið mæta afgangi.

Það er ekki nóg að sýnast örlát í augum heimsins þegar að flóttafólki kemur, við verðum líka að vera örlát gagnvart þeim sem minna mega sín okkar á meðal.

Ég er ekki að segja að við eigum ekki að taka á móti flóttamönnum.  Ég er að segja að við megum ekki gleyma okkar eigin fólki á sama tíma og við erum full vandlætingar vegna þeirra sem flýja stríð og ofbeldi.

Ég styð eindregið að við tökum vel á móti þeim sem koma hingað í neyð.

En ég spyr, hvaða stöðu mun flóttamannastraumurinn til Evrópu hafa á atvinnulausa og fátæka í álfunni?  Það verður fróðlegt að fylgjast með því.  Ég óttast að afleiðingarnar gætu orðið skelfilegar, ég tala nú ekki um verði hinir fátæku og atvinnulausu látnir mæta afgangi.


mbl.is Aðstæðurnar slæmar óháð stöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband