Færsluflokkur: Bloggar

Það sem Demókratar hafa haft um James Comey að segja

Demókratar hatast út í Trump hvort heldur hann reki yfirmann FBI eða ekki.

Hvað sem Trump gerir þá er allt ómögulegt í augum Demókrata, minnir helst á það sem sjá má á Alþingi Íslendinga. "Hate him if he does and hate him if he doesn't"

 


"Innviðagjald" hvað??????

Er borgarstjóri og meirihluti hans ekki í takt við raunveruleikann??? Lifir þetta fólk í einhverri draumsýn??????  Á endalaust að bæta gjöldum á húsnæði þannig að fólk verði sett í þrældóm við að koma þaki yfir höfuð sér?????????

Hvað er orðið af jafnaðarmennskunni í Samfylkingunni, er hún dauð, horfin að engu orðin????????  Eða er jafnaðarmennskan bara fyrir suma???? það er þá sem hafa nóg af peningum milli handanna og halda stjórnmálamönnum á spenanum?????

Er meira um vert að gera peningaöflunum til hæfis á kostnað almennings, þ.e. kjósenda??????  Það er kannski rétt áliktað hjá stjórnmálaöflunum, kjósendur ganga alltaf til sömu spýju sinnar þegar að kosningum kemur, búnir að gleyma sviknum loforðum stjórnmálamanna.  Þeir virðast líta svo á að endalaust sé hægt að ganga í vasa "fáfróðra" kjósenda. 

Er ekki kominn tími til að gefa þessu fólki frí og láta aðra sem ekki eru bundnir duttlungum fjármagnseigenda taka við?????????????


mbl.is Mun þrýsta upp íbúðaverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöndum með lífinu höfnum dauðanum.

Hvernig má það vera að "upplýst" þjóðfélag sé að eyða einstaklingum i móðurkviði og koma þannig í veg fyrir eðlilega endurnýjun þjóðfélagsins??? Það er ekkert eðlilegt við það að fósturdeyðingum fari fjölgandi hér á landi. Þjóð sem vill láta kalla sig félagslega sinnað með jafnrétti og bræðralag að leiðarljósi getur ekki verið alvara þegar kemur að þeim óhugnaði sem deyðing á fóstri (einstaklingi) á sér stað.

Tvískinnungur þjóðfélagsins er alger þegar kemur að fósturdeyðingum, þar sem einstaklingar sem aldrei hafa gert neitt rangt og hafa ekki tök á að bera hönd fyrir höfuð sé, en flestum virðist þykja sjálfsagður hlutur. Sömu aðilar geta ekki heilum á sér tekið þegar kemur að því að fólk er tekið af lífi fyrir hræðilega glæpi. Á landi okkar eru hins vegar fólk sem fremur glæpi, grófa glæpi s.s. morð, líkamsmeiðingar, nauðganir o.fl. fá mjög svo væga dóma. Fyrir morð fá gjörendur 16ára dóm og er komið út löngu áður en sá tími er liðinn. En börn í móðurkviði fá dauðadóm þrátt fyrir sakleysi sitt og það án dóms og laga.

Þetta er skelfilegt og á ekki að þekkjast í velferðarþjóðfélagi sem státar af því að allir hjálpi öllum í gegnum skattakerfið og félagslega þjónustu. Ljótur lýti á samfélagi okkar sem stendur einna best af vígi efnahagslega þegar borið saman við flest önnur lönd.

Það eru til mörg úrræði fyrir konur og börn þeirra í þjóðfélagi okkar og hægt er að gera enn betur.

Leyfum afkomendum okkar að lifa, elskum þau, veitum þeim framgang, tökum þeim opnum örmum.

Þjóðfélag sem hafnar afkomendum sínum er illa á vegi statt og á ekki von um bjarta framtíð. Dómur Guðs vofir yfir þjóðfélagi okkar snúum við ekki af þessari ljótu braut. Iðrumst synda okkar að hafa ljáð þessum ljótu aðgerðum samþykki okkar. Snúum frá þessum illu gjörðum áður en það verður of seint.

Stöndum með lífinu höfnum dauðanum.


mbl.is Fjölgun fóstureyðinga ekki óvenjuleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju að halda páska?

Fyrr í þessari viku hófst Páskahátíð Gyðinga og nú höldum við Páska. Upphaf páska átti sér stað í Egiptalandi þegar Hebrear (Ísraelsmenn) undirbjuggu brottför sína frá Egiptalandi. Móse bauð Hebreum að hver fjölskylda skyldi slátra lambi og ef eitt lamb væri of mikið fyrir eina fjölskyldu áttu tvær fjölskyldur að sameinast um eitt lamb. Þeir áttu síðan að rjóða blóði lambsins á dyrastafi húss síns, steikja lambið og eta.  Eins áttu þeir að vera klæddir ferðafötum sínum tilbúnir til að yfirgefa heimili sín um miðja nótt.

Þar sem blóði lambs hafði ekki verið roðið á dyrastafi heimila í öllu Egyptalandi fór engill dauðans um og drap alla karlkyns frumburði manna og skepna.

Ísraelar (Gyðingar) minnast þessara atburða enn í dag og hafa gert síðan þeir yfirgáfu Egyptaland fyrir mörgum þúsunda ára síðan. Jafnvel þegar Gyðingar voru tvístraðir um heim allan héldu þeir þessa hátíð eins og þeir gera enn í dag.

Páskahátíð Hebrea var fyrirboði þess sem koma skildi. Hebrear losnuðu úr ánauð er þeir yfirgáfu þrælahúsið sem þeir höfðu verið hnepptir í um fjögurhundruð ára skeið.

Guð gerðist maður og birtist okkur í Jesú Kristi.  Hann kom til eignar sinnar, en Hans eigin menn tóku ekki við honum, en öllum þeim sem tóku við Honum gaf Hann rétt til að vera Guðs börn.  Þetta er ritað í Jóhannesarguðspjalli 1.kafla 12.versi.

Jesús er Guðs lambið sem slátrað var í þeim tilgangi að leysa okkur undan ánauð syndarinnar og gera okkur frjáls. Þar sem Jesús hékk á krossinum og blóði Hans var úthelt, tók Hann á sig allar syndir okkar og skömm. Hann sem var syndlaus var gerður að synd okkar vegna. Jesaja spámaður skrifar um þennan atburð um 700 árum áður en hann átti sér stað.  Í Jesaja 53.kafla stendur skrifað :

1Hver trúði því, sem oss var boðað, og hverjum varð armleggur Drottins opinber?

2Hann rann upp eins og viðarteinungur fyrir augliti hans og sem rótarkvistur úr þurri jörð.

Hann var hvorki fagur né glæsilegur, svo að oss gæfi á að líta, né álitlegur, svo að oss fyndist til um hann.

3Hann var fyrirlitinn, og menn forðuðust hann, harmkvælamaður og kunnugur þjáningum, líkur manni, er menn byrgja fyrir andlit sín, fyrirlitinn og vér mátum hann einskis.

4En vorar þjáningar voru það, sem hann bar, og vor harmkvæli, er hann á sig lagði.

Vér álitum hann refsaðan, sleginn af Guði og lítillættan, 5en hann var særður vegna vorra synda og kraminn vegna vorra misgjörða. Hegningin, sem vér höfðum til unnið, kom niður á honum, og fyrir hans benjar urðum vér heilbrigðir.

6Vér fórum allir villir vega sem sauðir, stefndum hver sína leið, en Drottinn lét misgjörð vor allra koma niður á honum.

7Hann var hrjáður, en hann lítillætti sig og lauk eigi upp munni sínum. Eins og lamb, sem leitt er til slátrunar, og eins og sauður þegir fyrir þeim, er klippa hann, lauk hann eigi upp munni sínum.

8Með þrenging og dómi var hann burt numinn, og hver af samtíðarmönnum hans hugsaði um það?

Hann var hrifinn burt af landi lifenda, fyrir sakir syndar míns lýðs var hann lostinn til dauða.

9Og menn bjuggu honum gröf meðal illræðismanna, legstað með ríkum, þótt hann hefði eigi ranglæti framið og svik væru ekki í munni hans.

10En Drottni þóknaðist að kremja hann með harmkvælum: Þar sem hann fórnaði sjálfum sér í sektarfórn, skyldi hann fá að líta afsprengi og lifa langa ævi og áformi Drottins fyrir hans hönd framgengt verða.

11Vegna þeirra hörmunga, er sál hans þoldi, mun hann sjá ljós og seðjast.

Þá menn læra að þekkja hann, mun hann, hinn réttláti, þjónn minn, gjöra marga réttláta, og hann mun bera misgjörðir þeirra. 12Fyrir því gef ég honum hina mörgu að hlutskipti, og hann mun öðlast hina voldugu að herfangi, fyrir það, að hann gaf líf sitt í dauðann og var með illræðismönnum talinn.

En hann bar syndir margra og bað fyrir illræðismönnum.

Marga aðra ritningarstaði er hægt að vitna í og þá einkum úr Nýja Testamentinu, en ég ætla að láta þetta duga í bili.  En mig langar til að láta John Starnes eftir að flytja okkur yndislegan sálm sem hann gerir á sinn einstaka hátt.

Gleðilega páskahátið. Hann (Jesús) er upprisinn.

 


Hvað segja fyrrum múslímar um íslam? Sjá viðtal við Söndru Solomon sem býr í Kanada og horfir með hryllingi á það sem þar er að gerast.

Á sama tíma og 423 nýjar moskur eru reistar í London og 500 kirkjum lokað eru sífellt fleiri flóttamenn/hælisleitendur í Evrópu að snúa sér frá íslam til Kristinnar trúar.  Jesús Kristur er að birtast fólki í draumum og sýnum auk þess sem múslímar eru að sjá hversu ömurleg íslams trú er.  Nú fylkja ný kristnir fyrrum múslímar sér í kirkju, en finna þar fáa kristna heimamenn.  Þetta vekur furðu þeirra þar sem þeir sjá og gera sér grein fyrir þeim forréttindum sem vesturlandabúar hafa yfir að búa sem byggir á kristnum grunni, en því miður eru vesturlandabúar búnir að gleyma upprunna þess þjóðfélags og þeirra gilda sem við höfum búið við svo lengi. 

Þessir sömu fyrrum múslímar vita að þeir leggja líf sitt og limi í hættu því þeir vita að samkvæmt Kóraninum eru þau réttdræp, en öfgamúslímar taka boðskap Kóransins mjög alvarlega.

Sandra Solomon er kona sem fædd er í Saudi Arabíu og elst þar upp undir ströngum Saría lögum.  Hún gat aldrei sætt sig við sitt hlutskipti eða hlutskipti kvenna yfirleitt í heimalandi sínu.  Þannig að þegar henni gafst tækifæri til fór hún úr landi og býr nú í Kanada.  Í Kanada er hún að sjá hvernig íslam er að smeygja sér inn í þjóðfélagið og smám saman að kæfa þau gildi sem Kanadamenn hafa búið við.  Sandra varar við þeirri þróun sem hún sér eiga sér stað og þá undanlátsemi stjórnvalda gagnvart yfirgangi íslams.

Svíar eins og aðrar Evrópskar þjóðir saman ber Þjóðverjar hafa verið ofur meðvirkir gagnvart flóttamönnum/hælisleitendum og hafa ekki haft neina stjórn á eða eftirlit með því hverjir eru að koma til landsins eða hver hinn raunverulegi tilgangur einstakra aðfluttra er.  Nú urðum við vitni af hræðilegri árás í Svíþjóð þar sem mannslíf eru einskis metin af öfgafullum múslímum. 

Sandra Solomon, sem ég nefndi hér að ofan, þekkir til íslam, upprunna þess og tilgang.  Hún segir að íslam séu ekki trúarbrögð heldur stjórnmálaöfl sem nota trúarbrögð sem yfirskin í þeim tilgangi að hafa stjórn á fylgjendum sínum.

Hér fyrir neðan er myndband þar sem Sandra kemur fram og útlistir og útskýrir íslam fyrir okkur fáfróðum.  Myndbandið er nokkuð langt, en það er þess virði að hlusta á það allt í gegn.  Myndbandið skiptist í nokkra þætti þar sem tekið er á mismunandi málefnum viðvíkjandi íslam, en hún útskýrir mjög vel hvað íslam stendur fyrir og hún hjallar einnig um Múhameð og hvernig hann kom íslam á.

Ég hvet alla til að hlusta vel á Söndru á allt myndbandið, jafnvel þó hlustað sé í pörtum, en þá er gott að stoppa við kaflaskiptin og koma aftur að hlustun þegar hentar.


mbl.is 3 teknir í bíl tengdum árásarmanninum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voðaverkin leynast víða

Efnavopnaárás í Sýrlandi hefur eðlilega ollið hörðum viðbrögðum víða um heim og meira að segja hér uppi á Íslandi. Þarna urðu saklausir einstaklingar, einkum börn, fyrir barðinu á ódæðisverkum þeirra sem beita slíkum aðferðum. Hryllingurinn er svakalegur og á ekki að láta óátalið.

Hitt sem hryggir mig þó enn meir er sú staðreynd að hér á landi er um þúsund börnum slátrað árlega, þau deydd að ósekju í móðurkviði án þess að nokkur reisir rönd við og engum þykir tiltökumál.

Jarðar það þá ekki við hræsni að átelja þá sem fremja voðaverk erlendis, án þess að ég ætli mér að fara að afsaka ódæðisverkin í Sýrlandi, en líta á það sem "eðlilegan" hlut að deyða saklausa ófædda einstaklinga sem hafa ekki möguleika á að verja sig???????

Voðaverkin leynast víða.


mbl.is „Þegar þú drepur saklaus börn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær kemur að hringtorgunum???

Er ekki að koma að því að borgaryfirvöld láti byggja fjölbýlishús á hringtorgum borgarinnar??? Það styttist óðum í að búið verði að nýta öll opin svæði í þéttbýlinu og þá er ekkert annað eftir en umferðareyjur og hringtorg til að byggja á. embarassed


mbl.is 6.250 íbúðir byggðar á næstu 5 árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjöldi múslíma er að snúa sér til Krists Jesú eftir að hafa séð Hann í draumi eða sýn.

Margir múslímar í Miðaustur löndum og eins margir sem komið hafa til Evrópu sem flóttamenn
hafa verið að snúa sér til Krists.  Margar sögur eru til af þeim sem hafa séð Jesú ýmist í draumi
eða í sýn þ.e. meðan þeir eru vakandi.
Þeir sem hafa snúið sér til trúar á Jesú og lifanda Guðs sem er skapari okkar og lausnari
þekkja þá áhættu sem þeir taka með því að fylgja Jesú. Þeir segja eins og Páll postuli forðum:
"Lífið er mér Kristur, en dauðinn ávinningur".
Þetta fólk sér og hefur upplifað muninn á því að fylgja íslam og Jesú. Jesús gaf fyrirheit um frið,
innri frið, en í íslam er sífeldur ótti og reiði.
Við vesturlandabúar sem höfum alist upp í þjóðfélögum sem byggð hafa verið á kristnum grunni
höfum tapað sýn okkar á þeim veruleika. Við getum lært mikið af þeim sem hafa lifað við sífelda
ógn og óöryggi en hafa nú umfaðmað Höfðingja Lífsins, Konung konunganna og Drottinn drottnanna.
Jesús kom til að gefa okkur líf, líf í fullri gnægð og frið sem er æðri öllum skilningi.
Saga Bashir Mohammed er hér fyrir neðan, reyndar á ensku. Hún er gott dæmi um það sem Guð
er að gera á meðal fólks í raunverulegri neyð. Ég hvet þig lesandi góður til að lesa þessa stuttu
frásögn.
 
 
CBNNEWS.COM
 
The Miracle that Turned a Jihadist Into a Jesus-Follower
03-28-2017
 
 
Muslims 2 Jesus
Muslims 2 Jesus

Bashir Mohammed claims he once fought for a militant Muslim group on the front lines of the Syrian civil war. Today, he leads a Christian prayer meeting in an apartment building in Istanbul, Turkey.

In four years, according to his wife and neighbors, he went from being an angry follower of Islam ready to kill for his faith, to a man of peace who seeks to help other Muslim converts to Christianity grow in their faith.

Even he admits it's an unlikely story.

"Frankly, I would have slaughtered anyone who suggested it," he told a reporter for the Times of India.

It was a long journey that included growing dissatisfaction with the "holy war" in Syria. As a fighter for al Nusra, a splinter group of al-Qaeda, he saw death on the battlefield and the mass executions and torture of prisoners.

One day, peering through binoculars at Syrian government soldiers executing their prisoners, he realized there was no difference between him and the enemy.

Disillusioned with the idea of Muslims killing other Muslims, he deserted al Nusra and took his wife to Istanbul.

Although, he remained a passionate follower of Islam, he soon had an experience that introduced him to the power of Jesus Christ.

When his wife Rashid became seriously ill, Bashir did the unthinkable and allowed a Christian cousin living in Canada to have his prayer group pray for her over the phone.

In a few days, his wife recovered and Bashir asked his cousin to introduce him to someone who could tell him more about Christ.

After several conversations with a missionary Bashir was close to renouncing Islam to follow Jesus.

Bashir says the welcoming attitude of churches and the generous prayers of Christianity drew him to the faith. And, he says, reading the Bible brings him more peace than the Koran.

But it was dreams that he and his wife had that sealed the deal. Rashid dreamed that a character from the Bible miraculously parted the sea; Bashir dreamed that Jesus gave him some food.

Even though Muslim converts to Christ face great danger, there are many stories of converts from Islam to Christianity in the Middle East and they often include people having dreams and visions of Christ.

In one respect, Bashir's story is different because instead of trying to leave the country he is choosing to remain and face the danger to help others grow in the faith.

"There's a big gap between the god I used to worship and the one I worship now," Mohammed said. "We used to worship in fear. Now everything has changed."


Þjóðarskömm hvernig komið er fram við ellilífeyrisþega og öryrkja

Hvað er að gerast í þjóðfélagi okkar????? eru stjórnvöld vísvitandi að svelta ellilífeyrisþega og öryrkja???????? Það er vitað mál að stórum hluta þessa hóps er skammtaður skítur úr hnefa, það nær ekki að lifa af því sem þeim er ætlað. 

Ráðherrar og aðrir alþingismenn ættu að reyna að lifa af því sem þessum hópum er ætlað að lifa af.  Hvernig væri að láta kjararáð ákvarða greiðslur til þeirra???????? 

Eins og staðan er í dag er það alger hneisa hvernig komið er fram við þessa hópa.  Ellilífeyrisþegar er fólk sem hefur gengi á undan okkur og lagt þann grunn þjóðfélagsins sem við byggjum á í dag, en þeim er ætlaður annar kostur en okkur hinum, hvernig má það vera?????? 

Ráðamenn hafa litlar áhyggjur, það er búið að tryggja þeim áhyggjulaust ævikvöld, skattborgarar verða látir sjá vel um þá, þannig að þeir geta lifað við alsnægtir, það sama er ekki upp á teningnum hjá almennum ellilífeyrisþegum eða öryrkjum. 

Þetta er þjóðarskömm.

 


mbl.is Hafa ekki efni á tannlækningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvorki ríkisstjórnar þingmaður eða undirritaður erum stolt af framferði ríkisstjórnarinnar í banka- og efnahagsmálum þjóðarinnar.

Mikið hef ég slæma tilfinningu fyrir bralli þeirra frænda sem skipa forsætis- og fjármálaráðuneytið. Það getur ekki verið að þeir einir og sér geti ráðstafað bönkunum og komið þeim í hendur á óræðum vogunarsjóðum og öðrum aðilum sem hafa ekki annarra hagsmuna að gæta en að græða á okkur Íslendingum.

Hvað annað liggur að baki?? er verið að undirbúa fjármálakrísu í þeim tilgangi að selja okkur þá hugmynd að evran væri góður kostur fyrir okkur????

Ég trúi því ekki að þingið ætli að láta þá um að höndla með efnahag þjóðarinnar á þann hátt sem kæmu okkur illa þegar fram í sækir. Ríkisstjórnin hefur tæpan meirihluta og ég trúi ekki öðru en að innan þingflokka þeirra sé fólk sem vill sporna við óðagoti þeirra frænda.

Það er góðs viti að þingmaður Bjartrar framtíðar segist ekki vera stolt af framferði ráðherranna. Ég vona að þegar að því kemur að þingmaðurinn standi frammi fyrir því að þurfi að fylgja þeim orðum eftir, þá verði ekki búið að svínbeygja hann (hana).

 


mbl.is „Ég er ekki stolt af þessu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband