Færsluflokkur: Bloggar

Hvað eru ríkisstjórnarfrændur að bralla???????

Það er vondur fnykur af þessum aðgerðum ríkisstjórnarinnar, ég hef ekki góða tilfinningu fyrir framgöngu forsætis- og fjármálaráðherra. Hverjum eru þeir að hampa??? af hverju var gerður nýr samningur við þá sem ekki vildu semja s.l. sumar???? og af hverju fá vogunarsjóðir Arion banka á silfurfati??????

Að fjármálaráðherra skuli telja það til marks um góða stöðu að þessir sjóðir vilji hingað inn, fyllir mig EKKI öryggi nema síður sé, það fer kuldahrollur um mig.

 


mbl.is Krafist upplýsinga um kaupendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meinum við já þegar við segjum já og nei þegar við segjum nei, eða er ekkert að marka okkur??????

Með því að fara þvert gegn því sem íslensk stjórnvöld höfðu áður gefið yfirlýsingu um gagnvart aflandskrónueigendum hafa núverandi stjórnvöld stór skaðar orðspor og trúverðugleika okkar.  Hverjum dettur í hug að trúa og treysta íslenskum stjórnvöldum hér eftir eða Íslendingum sem eiga í viðskiptum við erlenda aðila????? 

Stjórnvöld verða að ganga á undan með góðu fordæmi.  Við þurfum öll á því að halda að orðspor okkar sé á þann veg að okkur sé treyst, að já okkar sé já og nei okkar sé nei, allt annað er glapræði.


mbl.is Snýst allt um trúverðugleikann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérhver einstaklingur er Guðs gjöf

Sérhvert líf, sérhver einstaklingur er dýrmætur, gjöf frá Guði. Sérhver einstaklingur á rétt á að fá að lifa, vaxa, dafna og þroskast. Sérhvert líf er heilagt og enginn, ENGINN, hefur rétt til að deyða það líf og ég tala nú ekki um líf varnarlausra ófæddra barna, einstaklinga sem ekki hafa enn fengið tækifæri til að sanna sig sem fullgildir einstaklingar, þjóðfélagsþegnar.

baby in womb - 4 month old fetus

Hversu mörgum læknum, prófessorum, rithöfundum, prestum, uppfinningarmönnum, hugsuðum, athafnamönnum, feðrum, mæðrum, vinum og svo má lengi telja, hefur verið fyrirkomið í móðurkviði????????

baby in womb - 7 months

Þjóðfélög sem leyfa fósturdráp munu, þó síðar verði, gjalda þessarar óhæfu. Vesturlönd eru þú þegar farin að finna fyrir því þar sem flestar þjóðir eru farnar að eldast, ungu fólki fækkar. Hnignun vofir yfir þeim þjóðum sem koma þannig fram við börnin sem eiga að vera afkomendur þeirra.

 


Staðgöngumæðrun var, er og verður stórt klúður og getur aldrei orðið neitt annað.

Viðtengd frétt er gott dæmi um þá flækju sem staðgöngumæðrun getur valdið. Staðgöngumæðrun er ekki einföld lausn en getur öllu heldur verið einfaldlega stórt klúður.

Staðgöngumæðrun veldur, að ég tel, í flestum tilfellum miklum sálarkvölum hjá einum eða fleiri einstaklingum og er þá barnið ómeðtalið í þeim hópi. Enginn virðist hugsa um barnið sem einstakling með tilfinningar sem á eftir að vaxa og þroskast og síðan að takast á við flóknar tilfinningar í tengslum við þá hugsun "hver er ég, hver er upprunni minn???".

Hvernig geta hlutirnir endað öðruvísi en í klúðri þegar vanvita stjórnmálamenn eru uppteknir af því að taka ákvarðanir sem þeir telja að muni afla þeim vinsælda?????? Stjórnmálamenn sem hugsa fyrst og fremst um atkvæði og vinsældir geta ekki vænst þess að þeir komi með góðar lausnir. Það munu aðrir, þótt síðar verði, þurfa að taka til eftir þá.

Staðgöngumæðrun var, er og verður stórt klúður og getur aldrei orðið neitt annað.


mbl.is Hver er móðir barnsins?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiga Vinstri grænir við málefnafátækt að stríða???????

Hvernig má það vera að stærstu og brýnustu mál Vinstri grænna er að fetta fingur út í orðalag fjármálaráðherra, Benedikts Jóhannessonar. Ekki dettur mér í hug að afsaka orðalag ráðherrans, hann má vissulega gæta að orðalagi sínu. En eru ekki brýnni mál á dagskrá Vinstri grænna????? Er svona mikil málefnaskortur á þeim bæ?????

Ekki varð ég var við að formaður VG gerði athugasemd við orðaval þingmanna sinna í garð erlends þjóðhöfðingja sem nýverið tók við því embætti. Ekki varð framganga þeirra þingmanna þeim til framdráttar.

Vinstri grænir ættu að líta í eigin barm, eins og reyndar við öll.


mbl.is Óbreytt ummæli ráðherra grafalvarleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðugra að hjálpa fólki í neyð en að fjármagna fósturdráp

Er ekki nær að þjóðir heims, þær sem eru aflögufærar eins og Ísland t.d., með Sameinuðu þjóðirnar í fararbroddi, margfaldi framlög í þeim tilgangi að hjálpa þjóðum [fólki] í neyð, eins og t.d. í Sómalíu, fremur en að setja fjármuni og það óheyrilega til að deyða ófædd börn???????

Ég held að Guðlaugur Þór og ríkisstjórnin öll ættu að leggja Sómölum og öðrum hungurhrjáðum þjóðum lið með framlögum í formi fjármuna og með því að senda matargjafir sem kæmu þeim vel, en að sleppa því að fjármagna fósturdráp.


mbl.is SÞ kallar eftir aðgerðum fyrir Sómalíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju fá sumir farþegar ekki að fljúga til Bandaríkjanna???

Þeir sem hyggjast ferðast til Bandaríkjanna vita flestir að þeir þurfa annað hvort að hafa VISA stimplað í vegabréf sitt af sendiráði BNA í heimalandi sínu eða þeir sem búa í tilteknum löndum s.s. Íslandi, sem eru hluti af svo kölluðu "VISA Waiver program" þurfa að fylla út skjal á netinu svo kallað ESTA.

Hafi farþegi á leið til BNA ekki fyllt út téð form fær viðkomandi ekki leyfi til að koma inn í landið, honum er umsvifalaust snúið við og flugfélagið sem hann kemur með sektað um háar fjárhæðir.

Það er flugfélögum í mun að vera ekki með óvelkomna farþega um borð þegar komið er til BNA. Þetta er engin nýlunda, hefur verið til staðar í marga áratugi, en ESTA er þó frekar nýlegt.

Þegar ég fór fyrst til BNA árið 1972 þurfti ég að vera með gilt VISA í vegabréfi mínu. Strangar reglur um inngöngu í BNA hafa því lengi verið til staðar. Fyrrum forseti BNA, Obama, skeytti því í engu þegar kom að innflutningi á múslímum að farið væri eftir þessum reglum. Það er annað mál. En hvað varðar múslímann frá Wales má gera ráð fyrir því að hann hafi ekki fyllt út ESTA eða hann af öðrum ástæðum þætti ekki þess verður að fá að koma til BNA. Þeir hafa sínar ástæður til að hafna tilteknum ferðalöngum.

Flugfélög verða að senda lista yfir farþega sína á leið til BNA og yfirvöld þar ytra fara í gegnum þann lista og bera saman við ESTA umsóknir. Hafi farþegi ekki sinnt því að fylla út téð form fær hann ekki inngöngu í BNA og flugfélagið sektað eins og ég nefndi hér að framan.

 


mbl.is Bandarísk forvottun í Keflavík til skoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er jarðefnaeldsneytisnotkun aðeins fyrir elítuna en ekki okkur hin???

Ég legg til að ráðamenn þjóðarinnar og embættismenn sem þurfa að sækja útlönd heim, ferðist með skútum eða árabátum. Það myndi draga verulega úr jarðefnaeldsneytisnotkun og spara þjóðarbúinu gífurlegar fjárhæðir. Þeir myndu verða fyrirmynd postula "Global warming" hreyfingarinnar sem ferðast þvers og kruss um heimsbyggðina með einkaþotum predikandi um það hversu hættulegt það er fyrir jörðina að nota jarðefnaeldsneyti. Hvað ætli sé notað á einkaþotur þeirra??????? surprised

 

 

 

mbl.is Aukið orkuöryggi, orkusparnaður og minni mengun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minningargrein um Skinsemina, en hún lést fyrir ekki svo löngu síðan.

Skinsemin lést fyrir ekki svo löngu síðan. Andlát hennar fór ekki hátt þar sem hún var ein þegar hún lést og andlát hennar vakti ekki mikla athygli.

Hér fyrir neðan er minningargrein um Skinsemina eftir einhvern sem var farinn að sakna hennar en varð þess vís að hún var látin.

Blessuð sé minning hennar.

Þú ert hvattur/hvött til að lesa minningargreinina hér fyrir neðan, en að vísu er hún á enskri tungu.

 

age


Myndband sýnir ófæddann einstakling í móður kviði.

Með sérstakri tækni er hægt að fylgjast með ófæddu barni í móður kviði.

Sjá meðfylgjandi myndband frá Channel Mum. Stórkostlegt að sjá yndislegt líf einstaklings sem er að þroskast í kviði móður sinnar. Guðs gjöf.

Svona varst þú eitt sinn smile


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband