17.10.2022 | 19:36
Að ætla sér að hafa vit fyrir skaparanum
Það er nú einu sinni svo að smíðagripur getur ekki breytt skapara sínum sama hversu mikið hann leggur á sig. Eins getur fólk sem skapað er af Guði ekki breytt Honum eða fengið Hann til að skipta um skoðun eða breyta ætlunarverki sínu.
Hugsanir og skoðanir fólks á Guði breytir ekki því hver Hann er. Guð var til löngu áður en við mannfólkið urðum til. Í Davíðssálmi 139 segir: "...Hann þekkti mig (þig) meðan ég enn var ómyndað efni, ævidagar mínir (þínir) voru ákveðnir áður en nokkur þeirra var til orðinn og allir skráðir í bók þína (Guðs)...", og svo vill fólk segja Guði fyrir verkum!!!!!
Við erum mold búin til úr leiri jarðar og þangað mun hold okkar aftur hverfa. En við sem persónur, einstaklingar, erum eilíf sköpun og munu gerðir okkar og trú eða trúleysi ákvarða framtíð okkar eftir þá daga sem við lifum í þeim líkama sem Guð hefur gefið okkur.
Í Hósea (í Gamla Testamentinu) 4.kafla versi 6 segir: "Líður minn verður afmáður af því hann hefur enga þekking". Skortur okkar á þekkingunni á Guði gerir okkur berskjölduð gagnvart hinu illa. Í Jóhannesarguðspjalli 17 kafla segir "...en það er hið eilífa líf að þekkja þig Hinn eina sanna Guð og þann sem þú sendir Jesú Krist...". Í bók Jesaja er talað um að við breytum því sem er gott og teljum það illt og það sem er illt teljum við gott, það er einmitt það sem við horfum uppá í dag.
Það er nú þannig að við sem erum vond réttlætum sjálf okkur í okkar eigin augum og við réttlætum sjálf okkur í augum annarra, en Guð sem allt sér og allt veit, jafnvel okkar dýpstu hugsanir, það er ekkert sem fer framhjá Honum, frammi fyrir Honum munum við þurfa að standa og gera reiknisskil lífs okkar, allar okkar hugsanir, öll orð okkar og allar gjörðir okkar þurfum við að svara fyrir á efsta degi. Rómverjabréfið 3.kafli segir okkur að "allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð, en þeir réttlætast af náð Hans fyrir trúna á Jesú Krist".
Við þurfum öll að frelsast frá syndugu eðli okkar viljum við eiga dýrlega framtíð í faðmi frelsara okkar Jesú Krists, en þeir sem hafna Honum munu eyða eilífri framtíð á stað þar sem Jesús sagði að þar væri "grátur og gnístran tanna" þ.e. ömurlegur staður sem Guð vill ekki að nokkur lendi á, en það er val þess sem þar mun dvelja.
Íslenska þjóðin þarf á fagnaðarerindinu að halda, vitandi það að Jesús Kristur kom til að frelsa synduga menn og er ég þar fremstur, eins og Páll ritaði.
Við þurfum að iðrast synda okkar snúa okkur til Drottins og hver sem ákallar Drottinn mun hólpinn verða.
GUÐ BLESSI ÍSLAND.
![]() |
Boðorðin eru sígild og alltaf í gildi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.10.2022 | 00:14
Háttsettur starfsmaður Pfizer, J. Small, viðurkenndi fyrir nefnd á vegum ESB þingsins . . .
. . . að tilraunir hafi ekki verið gerðar á því hvort "bólusettir" myndu ekki eða myndu ekki dreifa Covid vírusnum, en því hefur verið haldið fram að fólk þyrfti að láta "bólusetja" sig til að verja aðra, að dreifa ekki veirunni jafnvel þó þeir væru ekki með veiruna.
Lygin mun alltaf opinberast og hún gerði það heldur betur í gær. En skandallinn endar ekki þar. ESB, með forseta sambandsins Ursula von der Leyen í fararbroddi hefur fest kaup á 4,5milljarða skammta sem þýðir um 10 skammta fyrir hvern einstakling. ESB þingið hefur ekki verið upplýstu um kostnaðinn en hann mun væntanlega nema mörg hundruðum milljörðum evra.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2022 | 20:04
Þessi kona, Tulsi Gabbard, var fulltrúadeildar þingmaður Demókrata fyrir Hawaii . . .
. . . þar til hún sóttist eftir útnefningu Demókrata sem forsetaefni þeirra í kosningunum 2020. Það var Joe Biden sem náði útnefningu flokksins en Tulsi ásamt fleirum sem sóttust eftir útnefningu heltist úr lestinni fljótlega í útnefningar ferlinu.
Hér er Tulsi Gabbard í meðfylgjandi myndbandi að fjalla um flokkinn sinn sem hún barðist fyrir og var fulltrúi fyrir í Fulltrúadeildinni.
Þess skal getið að Tulsi hefur nú sagt sig frá Demókrataflokknum, ekki vegna þess að hún tapaði fyrir Joe Biden heldur vegna þess að flokkurinn sem hún starfaði með og barðist fyrir er ekki lengur sá sami, heldur hafa gildi flokksins breyst á þann veg sem henni er ekki að skapi.
Hlustið á það sem hún hefur að segja um stefnu flokksins í dag og þau gildi sem hann stendur fyrir sem er gjörsamlega andstætt því sem hún barðist fyrir.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2022 | 18:24
Hvernig fyndist þér að lifa á pöddum, en hafa ekki aðgang að þeirri fæðu sem þú hefur vanist hingað til ???
Ef ykkur finnst Covid hafi tekið á líkama, sál og allt annað í lífinu, hvað fyndist ykkur um að hafa pöddur á matarborðinu í allar máltíðir alla daga vikunnar allt árið um kring??????????
Þetta er það sem World Economic Forum (WEF) er í alvörunni að tala um á sama tíma og þeir tala um "The Great Reset" (Endurræsinguna miklu), því þeir vilja eyða búfénaði öllum, nema því sem þeir sjálfir vilja njóta, og ætla öllum öðrum að lifa á skordýrum.
Nú hafa Bresk stjórnvöld um nokkurt skeið verið að gera tilraunir með skordýrafæði fyrir fátæk börn í Afríku. Börnin eru tilraunarverkefni svo hægt sé að sjá hvaða áhrif slík fæða muni hafa á mannfólkið yfir höfuð. Afríkubúar og einkum börnin eru tilraunardýr í augum elítunnar, en meiningin er að koma öllum á bragðið að lifa á pöddum, fyrir utan elítunnar sjálfrar.
Þetta hafa þeir hjá WEF lýst yfir með Klaus Schwab og Bill Gates í fararbroddi.
Sjá upplýsingar um tilraunaverkefnið í Afríku á myndbandinu hér fyrir neðan.
The U.K. government is experimenting on African children by feeding them a bug-based diet
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
flinston
-
baldvinj
-
bergthorolason
-
biggilofts
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
gattin
-
contact
-
einarbb
-
eeelle
-
emilkr
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gudbjorng
-
zumann
-
tilveran-i-esb
-
coke
-
gunnlauguri
-
gustafskulason
-
conspiracy
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
haddi9001
-
maeglika
-
harhar33
-
bordeyri
-
heimssyn
-
don
-
hordurvald
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
jakobk
-
johanneliasson
-
johann
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonl
-
bassinn
-
prakkarinn
-
thjodarskutan
-
kiddikef
-
krist
-
kristjan9
-
lifsrettur
-
loncexter
-
magnusg
-
marinogn
-
mofi
-
olof
-
pallvil
-
iceland
-
regu
-
undirborginni
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
duddi9
-
sjonsson
-
thruman
-
athena
-
stebbifr
-
stendors
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
viktor
-
villidenni
-
postdoc
-
thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar