Hverju er verið að leyna fyrir þingi og þjóð ?

Það er með ólíkindum að embættismenn, sem eru í vinnu hjá þjóðinni, skuli geta sagt þingmönnum, sem eiga sæti í þingnefnd sem fjallar um þau mál er embættismennirnir eru að sinna, að þeir megi ekki fá nema mjög svo takmarkaðar upplýsingar um það sem þeir hafa verið að vinna við.  Hverju er verið að leyna fyrir þingmönnum og ég tala nú ekki um þjóðinni ?

Eftir alla þá umræðu og kröfu þjóðarinnar um að fá upplýsingar, að fá að vita um stöðu mála og hvað er að gerast og tal Jóhönnu, Steingríms og flokka þeirra um "gagnsæi" er ótrúlegt að sjá þöggunina sem á sér stað.  Nú heldur Jóhanna sér saman sem mest hún má og opnar helst ekki munninn, nema til að stinga einhverju upp í hann og gefur þjóðinni svo langt nef.

Stjórnarhættir Jóhönnu eru verri en þeir stjórnarhættir sem hún hefur gagnrýnt hvað mest í gegnum tíðina.  Hún hagar sér eins og einræðisherra og notar jafnvel embættismenn í þeim tilburðum sínum.

Með þessu áframhaldi getur ríkisstjórnin ekki átt von á góðu.  Þjóðin lætur ekki bjóða sér svona lítilsvirðingu.  Það er með þetta eins og ESB-málið, lýðræðið er fótum troðið og það af þeim sem helst ættu að standa vörð um það.

Burt með þessa vanhæfu ríkisstjórn.

 


mbl.is Ekkert upplýst um Wyman-skýrslur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Líklega stendur það í skýrslunum sem marga grunar..

Fransman (IP-tala skráð) 28.5.2009 kl. 11:58

2 Smámynd: Sveinn Ríkarður Jóelsson

Gangsæi neyðir fram heiðarleika, það er það sem er að gagnsæinu.

Þegar allt er skýrt fæst ekki svigrúm til þess að ákveða hverju skal ljúga.

Ég er þeirrar skoðunar að á meðan leynd hvílir yfir opinberum gjörningum er verið að ljúga að mér.

Sveinn Ríkarður Jóelsson, 28.5.2009 kl. 12:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 79
  • Frá upphafi: 162498

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband