Hagsmunir heimilanna og efnahagsmál ekki aðkallandi að mati ríkisstjórnarinnar.

Ríkisstjórnin kýs frekar að þvargað sé um umdeildar breytingar á stjórnarskránni fremur en að ræða um hagsmuni heimilanna og efnahagsmálin. 

Það liggur í augum uppi að ríkisstjórnarflokkarnir þora ekki í þær umræður þar sem þessir flokkar hafa ekkert til málanna að leggja og fari þeir í þær umræður kæmi berlega í ljós hversu vanmegnugir þeir eru til að takast á við þau brýnu úrlausnarefni.

Sandfylkingin heldur að hún geti slegið ryki í augu fólks með því að þykjast vera að reyna að koma í gegn breytingum á stjórnarskránni, en þegar fólk áttar sig á hversu vanmegnug þessi ríkisstjórn er mun fylgið hrynja af þeim og þau verða berskjölduð.

 


mbl.is Enn rætt um fundarstjórn forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ertu ekki að snúa þessu á haus?

Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn á þingi sem ekki treystir þjóð sinni.

Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn á þingi sem ekki vill að völd færist frá þinginu til þjóðarinnar.

Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn á þingi sem ekki vill að auðlindirnar verði gerðar að þjóðareign, ástæðan er sú að flokkurinn vill víla og díla með eigur okkar frekar en að láta þjóðina njóta ávagstanna.

Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn á þingi sem vill að kvótakerfið verði óbreytt. Sem gæti orðið til þess í framtíðinni að viðlíka uppákoma og nú er í þjóðfélaginu geti endurtekið sig.

Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn á þingi sem er trúflokkur, þetta er trúflokkur í þeirri merkingu að allir flokksmenn eru alltaf sammála forystunni, alveg sama jvaða skít þeir koma með og spillingu, þá eru flokksmenn alltaf sammála. Jafnvel þó sonu fyrrverandi formanns, frændi og spilafélagi séu ráðnir í feit embætti. Allir sammála um að það sé gott.

Ætlar þú að kjósa Sjálfstæðisflokkinn? Ert þú undirlægja?

Valsól (IP-tala skráð) 7.4.2009 kl. 13:18

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Er það ekki merkilegt Valsól að á meðan heimilin brenna og hvert fyrirtækið á fætur öðru er að fara í þrot, þá vill Sandfylkingin og hinir halda áfram með breytingar á stjórnarskrá sem ætlunin er að stjórnlagaþing taki á eftir kosningar ?  Hvað er málið ?  Á ný stjórnarskrá að bjarga heimilunum núna og fá fyrirtækin nýjan og betri grunn til að byggja á núna.  Ósköp eru menn eitthvað einfaldir og blindir. 

Það liggur í augum uppi að það þarf að fara í gegnum stjórnarskrána og gera þar ýmsar breytingar, um það eru allir sammála.  En fram að þessu hafa slíkar breytingar verið gerðar í sátt og ekki undir slíkri pressu sem nú er uppi.  Breyting stjórnarskrárinnar núna kemur ekki til með að breyta neinu, nema ef þingið kæmi sér saman um breytingu á 74.gr. sem snýr að því hvernig samþykkt breytinga eigi að eiga sér stað.

Talandi um undirlægju, þú ættir ekki að kasta steinum úr glerhúsi.

Tómas Ibsen Halldórsson, 7.4.2009 kl. 13:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 75
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband