Hvar er mannauðurinn, hvað varð um hann?????

Orðið mannauður er orð sem mikið er notað og hampað um mannleg verðmæti hér á landi. Þegar téð orð er notað finnst manni eins og sá auður sem til verður á meðal íslensku þjóðarinnar verði til úr engu, úr tóminu, þar sem margir þeirra sem fjalla um mannauð finnst sjálfsagt að eyða þessum auð áður en hann fær að fæðast, vaxa og dafna sem mannlegur einstaklingur.

Vandamálið er að svo miklum mannauði er eytt (lesist deytt) áður en sá auður fær að vaxa úr grasi.

Fóstureyðingarnar eru að bíta okkur í hælana, það kemur niður á þjóðfélaginu í heild sinni. Sá auður sem þarna fer forgörðum munum við aldrei geta notið góðs af. Þeir frábæru einstaklingar sem hefðu getað bætt þjóðfélag okkar munu aldrei geta látið gott af sér leiða, við förum á mis við svo mikið.

Þessari þróun þarf að snúa við. Leyfum börnunum að vaxa og þroskast, hlúum að þeim, byggjum þau upp, elskum þau, umföðmum þau, uppfræðum þau, þau eru framtíðin þau eru mannauðurinn sem við þurfum svo á að halda viljum við halda áfram að vera þjóð.

Nú er svo komið að Íslendingum í landi okkar fer fækkandi þar sem of fá börn fæðast. Verði ekki breyting hér á mun illa fara fyrir þeirri kynslóð sem nú er að vaxa úr grasi, við þurfum jú á endurnýjungu að halda, stöðugri endurnýjungu.

GUÐ BLESSI ÍSLAND.  GUÐ BLESSI ÍSLENSKU ÞJÓÐINA.


mbl.is Fæðingartíðni á Íslandi í sögulegu lágmarki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 162138

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband