Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

Hvað er að gerast í Kína ???

Er það sem Kínverskur almenningur er að upplifa eitthvað sem við eigum eftir að sjá hér á landi ???

Stjórnvöld þykjast vera að berjast gegn Covid, en eitthvað annað hlýtur að vera hér að baki.

Sjáið myndbandið hér fyrir neðan.

 


Hugrakkir læknar í Ástralíu funduðu um síðastliðna helgi, þeir lögðu starfsframa sinn að veði.

Læknar í Ástralíu og víðar um allan heim eru að stíga fram og ræða það sem öllum ætti að vera augljóst. Þeir leggja starfsframa sinn að veði þar sem ályktanir þeirra falla ekki að pólitískum rétttrúnaði.

Óskandi væri að íslenskir læknar sæju ljósið og gerðu slíkt hið sama.

Hér fyrir neðan er vefslóð á frétt um þetta mál og myndband er þar til staðar þar sem fréttamaður ræðir við nokkra lækna sem standa að fundinum í Ástralíu.

https://www.rebelnews.com/brave_doctors_speak_out_to_reclaim_medicine?utm_campaign=ay_doctorsunion_091322&utm_medium=email&utm_source=therebel

 


Af hverju fjölgaði dauðsföllum um 40% árið 2021 spyr Dr. Kelly Victory.

Áleitnar spurningar sem Dr.Kelly Victory kemur með í þessu viðtali.         Sjá myndband.

 


Greg Hunter átti viðtal við Dr. David Martin sem upplýsir okkur um margt af því sem við ekki vissum um Covid19.

Greg Hunter átti viðtal við Dr. David Martin núna seinnipartinn í júní þar sem hann afhjúpar það sem enginn þorir að segja og enginn má segja um kórónuveiruna, uppruna hennar og hverjir stóðu að baki hennar.

Þetta viðtal má enginn láta fara framhjá sér. Það sem hér kemur fram gæti orðið mörgum til hjálpar að skilja hvað um er að vera. Margt af því sem hann hefur að segja er ekki uppörvandi en upplýsandi.

Þar sem viðtalið er ekki á YouTube þá er vefslóðin hér fyrir neðan og hvet ég alla til að hlusta og það með opnum huga.

 

https://rumble.com/v1acoaa-up-to-100-million-will-die-from-cv19-vax-by-2028-dr-david-martin.html

 

GUÐ BLESSI ÍSLAND.


Myndband sem bannað er á YouTube, af hverju heldurðu að það sé???

Hér fyrir neðan er vefslóð á myndband sem lokað hefur verið á á YouTube.

Ég hvet alla til að horfa á og hlusta á það sem þar kemur fram. Myndband þetta var gert fyrir ári síðan, en það sem þar kemur fram snertir okkur öll enn í dag, glópalistarnir hafa ekki enn sagt sitt síðasta.

https://www.brighteon.com/58b6aaac-321e-48f6-8eb4-76ea2adc6ee6


Af hverju fjallar mbl.is ekki um svona fréttir?????

Ég er svo sem ekki hissa þótt RÚV okkar landsmanna eða svo er sagt eða Stöð 2 og Bylgjan og allir fjölmiðlar á ríkisspenanum fjalli ekki um svona mál, en að Morgunblaðið (mbl.is) sem í gegnum tíðina hefur reynt og sýnt fleiri en eina hlið mála, þegir nú þunnu hljóði.

Farið inn á vefslóðina hér fyrir neðan og lesið fréttina sem þar birtist.

https://frettin.is/2022/05/30/nysjalenskir-laeknar-bidja-logrelgu-ad-rannsaka-daudsfoll-og-veikindi-eftir-bolusetningar/


Hvað er nú á dagskrá??? erum við tilbúin að mæta því sem er í vændum?????

Í september eða október 2019 var haldin viðbragðsæfing vegna kórónuveirufaraldurs sem gæti komið yfir heimsbyggðina. Tveimur til þrem mánuðum síðar kom kórónuveiran og hrellti heimsbyggðina á augabragði.

Í mars 2021 komu sömu aðilar saman til að halda aðra viðbragsæfingu og nú vegna apabólu. Á þessari æfingu var gert ráð fyrir að apabólan myndi koma fram á sjónarsviðið og hrella heimsbyggðina þann 15.maí 2022.

Hvílíkar tilviljanir, er það ekki??? eða var búið að ákveða þetta fyrirfram???

Sagt er að bóluefni sé ekki til fyrir apabólu, en vitið til að áður en langt um líður verður búið að deila "bóluefnum" víða um heim. Það munu kannski líða nokkrir mánuðir og tilkynningar um dauðsföll þar af lútandi munu verða það sem almenningur mun fá að heyra af í fjölmiðlum sem boða það eitt sem að þeim er rétt af WHO, alþjóða heilbrigðisstofnuninni og ótta þannig sáð í líf fólks svo það verði tilbúið að beygja sig undir yfirráð WHO.

Þeir sem ekki vita það þá er akkúrat þessa dagana, frá 22.til 29.maí, er ráðstefna á vegum WHO þar sem 194 lönd munu framselja WHO yfirráð yfir heilbrigðisstofnunum sínum og þeir einir munu hafa allt vald yfir farsóttum, viðbrögðum þeirra, hvað skal gera, hvað má gera og hvað ekki má gera. Íslensk stjórnvöld eru þar ekki undanskilin, en þau hafa ekki frætt landsmenn um áform þeirra né hvaða áhrif þetta mun hafa á almenning hér á landi.

Þessi áform stjórnvalda, Alþingis og forseta eru LANDRÁÐ þar sem þetta stangast á við og brýtur gegn Stjórnarskrá Íslands.

Þau áform sem hér um ræðir mun snerta hvert einast mannsbarn ekki síður en "kórónuveiru" faraldurinn.

Hinn eini og sanni faraldur sem við stöndum frammi fyrir er faraldur ofstækis og stjórnunarsinna, þeirra sem í siðblindni sinni ætla sér að stjórna heiminum og ráðgast með almenning eins og um húsdýr væri að ræða.

Þetta eru svik við hinn almenna borgara og má ekki líðast. Það sem þarf að gerast númer eitt tvö og þrjú er að fólk vakni til vitundar um hvað er á seiði og láti ekki kúga sig til hlýðni gagnvart þeim sem ekki einu sinni hafa fengið umboð frá kjósendum þar um.

GUÐ BLESSI ÍSLAND og ÍSLENSKU ÞJÓÐINA.


mbl.is Líklegt að apabóla berist til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðan landinn er upptekinn af úrslitum sveitastjórnarkosninga eru þeir blindir á það sem er að gerast fyrir framan nefið á þeim. VAKNA þú Íslenska þjóð.

Hið eina sem forustufólk stjórnmálaflokkanna hefur uppá að bjóða er að grafa undan lýðveldinu Ísland.

Nú eftir nokkra daga stefnir í að forsetinn, ríkisstjórnin og þingheimur eins og hann leggur sig muni fremja landráð, já LANDRÁÐ. WHO, alþjóða heilbrigðisstofnunin, hefur kallað til ráðstefnu í Sviss þar sem 195 þjóðir munu gefa stofnuninni heimild til að fara með heilbrigðisstofnanir þessara þjóð eins og þeim sýnist. Tedros og Bill Gates geta upp á sitt eindæmi ákveðið hvað teljist til faraldurs og geti í kjölfarið gert eins og Kínverjar sett útgöngubann á heimsbyggðina, skipað öllum að bera grímur og láta "bólusetja" sig út í hið óendanlega.

Samþykki ríkisstjórn Íslands með blessun forsetans og þingsins hefur LANDRÁÐ verið framið og það er einmitt það sem ég óttast að muni gerast. Íslenskir stjórnmálamenn eins og víðast annarsstaðar hafa verið keyptir af þeim ríkustu af þeim allra ríkustu og þora ekki að standa með þjóð sinni.

En þess skal getið að LANDRÁÐ er alvarlegur glæpur.

Sveitastjórnakosningarnar og úrslit þeirra er bara hjóm í samanburði við það sem liggur fyrir.

Fjölmiðlar fjalla ekki um þennan væntanlega glæp, fólkið í landinu má ekki vita af því. Það á að halda okkur fáfróðum um það sem er að gerast. En eitt af því sem framundan er af hálf elítunnar er að koma á hungursneið, svelta hundruð milljóna ef ekki milljarða í hel.


Hvað gerist 22. til 28. maí næst komandi??? . . .

. . . hvaða áhrif um það hafa fyrir þig og mig????? hvað hafa íslensk stjórnvöld upplýst okkur um að muni gerast??????? ÞAU VITA HVAÐ ER Í VÆNDUM!!! en þú áttir ekki að fá að vita það fyrr en búið er að negla þann gjörning.

Það sem í vændum er er landráð og það snertir alla heimsbyggðina.

Sjáið viðtal við Michele Bachmann en vefslóð á viðtalið er hér fyrir neðan. Þetta er ekki á YouTube því það yrði tekið út af þeirri stofnun, þeir leyfa ekki að sannleikurinn um yfirgang hinna ofurríku fái hljómgrunn.

https://153news.net/watch_video.php?v=28O2HXS5KG58


Í viðtengdri frétt skortir nauðsynlegar upplýsingar!!!!!

Þess er ekki getið hversu margir af þessum hundrað og einum einstaklingum hafi verið bólusettir.

Hversu margir voru fullbólusettir, hversu margir höfðu fengið örvunarskammt, hversu margir einn skammt og hversu margir voru óbólusettir.

Þetta eru upplýsingar sem þurfa að liggja fyrir og fréttamenn eiga að spyrja útí og ganga hart eftir svari.


mbl.is 101 andlát tengt kórónuveirunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 162493

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband