Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

Öflugur Hezbollahliði sat í fangelsi . . .

. . . og eins og góður og gegn Múslimi fastaði, ákallaði Allah og las kóraninn, þá gerðist það að Jesús Kristur birtist honum í fangelsinu. Hvað gerðist eftir það??? hann segir sögu sína í myndbandinu hér fyrir neðan.


Sonur Hamas um stríðið milli Ísraels og Hamas

Athyglisverð nálgun á því sem er að gerast. Hér er maður sem þekkir til að segja frá því sem hann ólst upp við.


mbl.is Segja yfir 1.500 börn hafa verið drepin á Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpasamtökin Hamas.

Þegar Hamas réðst inn í Ísrael s.l. laugardag voru samtökin ekki að fara í stríð, þau voru að fara að fremja glæpi sem flokkast ekki undir stríðsrekstur. Langflestir sem urðu á vegi Hamas voru óbreyttir borgarar, fjölskyldur, börn og gamalmenni, fólk sem ekki var vopnað. .

Ísraelskir hermenn sem fóru inn í bæina þar sem Hamasliðar höfðu farið hamförum fundu fólk sem drepið hafði verið í rúmum sínum. Þeir fundu fjörutíu börn sem höfðu verið drepin og flest þeirra afhöfðuð ennfremur kona á tíræðisaldri sem hafði verið skotin í höfuðið.

Þegar innrásin átti sér stað var verið að halda útitónleika þar sem fjöldi ungs fólks var saman komið. Þetta voru Friðartónleikar. Hamassamtökin drápu þar 250 unga menn aðallega og tóku minnst 100 gísla, einkum ungar stúlkur eða konur.

Svona framkoma kallast ekki stríðsrekstur heldur helber glæpsamlegt athæfi, svona djöfullegar aðfarir gera engir nema ótíndir glæpamenn.

Það sem verra er að þetta kallar á viðbrögð sem kosta óbreytta borgara þeirra megin líf og limi, en Hamassamtökunum er skítt sama, þeir hafa sýnt það í gegnum tíðina að mannslíf er þeim einskis virði, hvorki þeirra sem tilheyra þeim eða annarra. Þetta eru djöfulleg samtök sem þarf að útrýma hið snarasta.


mbl.is Andúð á gyðingum vaxandi vandamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hatursorðræða hvað???

Upphrópanir Guðmundar Inga, Katrínar Jakobs., annarra VG og Pírata um hatursorðræðu þeirra sem eru þeim ekki sammála eru óboðlegar. Þetta fólk beitir hatursorðræðu í garð þeirra sem hafa aðra skoðun en það sjálft. Ætti þetta fólk að athuga sinn gang áður en það ásakar aðra um hatursorðræðu.

Hér á landi er fjöldi svo kallaðra flóttamanna sem koma hingað í raun til að lifa á íslensku samfélagi. Vissulega eru einhverjir þeirra sannir flóttamenn, en það þarf að greina það úr þessum stóra hópi fólks sem eru ekki flóttamenn í raun og sann.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra lét hafa eftir sér að við værum að borga 14 milljarða á þessu ári fyrir allt þetta fólk. Hvað væri hægt að gera með þessa fjárhæð til bjargar þeim Íslendingum sem í raun og veru eiga í erfiðleikum? Sannleikurinn er sá að stór hópur landa okkar fær lítil ef nokkur úrræði frá ríkinu sér til hjálpar á meðan ausið er fé í allskonar gæluverkefni ríkisstjórnarinnar s.s. stríðsrekstur í Úkraínu, kolefnisgjöld í vasa hinna ofurríku í heiminum, RÚV og "flóttamenn" sem að stórum hluta eru ekki flóttamenn.

Ef við slepptum því að ausa fé í ofangreint en stæðum okkur betur í að mæta þeim löndum okkar sem eru í þörf, þá stæði ríkissjóður mun betur að vígi en raun ber vitni.

 


mbl.is Líklega um „fordæmisgefandi úrskurði að ræða“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bull, bull, bull !!!!!

Fólk sem tekur yfirlýsingu í viðtengdri frétt trúanlega ættu að sjá myndband sem sjá má með því að velja vefslóðina hér fyrir neðan.

Hér er ekki verið með hag barna í huga. Hér er verið að vega að fjölskyldunni í heild sinni og þar eru börn ekki undanskilin. Það má vel vera að einhverjir haldi að þetta sé til góðs fyrir börnin en reyndin er önnur. í raun og veru er verið að undirbúa lögleiðingu barnaníðs og þar með talið framtíð barnanna.

Okkur sem er umhugað um börnin okkar og barnabörn ættum að taka þetta mjög alvarlega, framtíð þeirra og framtíð mannkynsins er í húfi.

Farið inná meðfylgjandi vefslóð, hægt er að velja nokkur tungumál til að hlusta á og hægt er að velja íslenskan texta sem birtist neðanmáls í myndbandinu.

https://www.kla.tv/26686


mbl.is Gefa út sameiginlega yfirlýsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leyndarmál Sameiniðuþjóðanna - það sem allir þurfa að vita.

Hér fyrir neðan er vefslóð á myndband sem fjallar um SÞ og þá aðila sem stjórna á bak við tjöldin en flestir vilja ekki vita af.

Myndbandið birtist á Rumble sem er mótvægi við YouTube. Þetta myndband fengi ekki að vera á Y-T og RÚV myndi ekki birta það frekar en meginstraums fjölmiðlanir hér á landi og erlendis.

https://rumble.com/v27ggd7-secrets-of-the-united-nations-what-everyone-should-know.html


Áhyggjur lögregluyfirvalda af öfgahyggju?????

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá greiningadeild ríkislögreglustjóra segir í viðtengdri frétt:

„Við þurf­um því að passa okk­ur á því að flytja ekki inn ógn­ina því raun­veru­leik­inn er enn sem komið er ann­ar á Íslandi".

En téður lögregluþjónn virðist ekki átta sig á því að stjórnvöld eru á fullu að flytja inn ógn við íslensku þjóðina og íslensk gildi. Íslendingum í landi okkar fer fækkandi þar sem fæðingum Íslendinga fer fækkandi og dauðsföllum landa okkar fjölgandi á sama tíma og "flóttafólki" fer fjölgandi og það allverulega.

Hverjir ætli komi til með að setja lög og framfylgja þeim hér á landi þegar fram í sækir, eftir örfá ár, ef ekkert kemur til með að breytast?????

 


mbl.is Lögreglan hefur meiri áhyggjur af öfgahyggju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það veður að fara að stöðva þennan mann . . .

. . . áður en hann rústar efnahag íslensku þjóðarinnar og þjóðfélaginu í heild sinni.

Bjarni Benediktsson segir að ríkisstjórnin stefni enn að því að selja hlut sinn í Íslandsbanka. Þá komi einnig til greina að selja hluti ríkisins í Landsbankanum, Íslandspósti og Isavia.

Hann nefnir ennfremur Landsvirkjun, þó það komi ekki fram í fyrirsögn mbl.is

Hann er búinn að rústa Sjálfstæðisflokknum og nú er það þjóðin í heild sinni. Er þetta það sem við viljum??? er þetta það sem Sjálfstæðisstefnan hefur staðið fyrir??????? Eru einhverjir sjálfstæðismenn eftir á þingi??????????????

 


mbl.is Bjarni: Til greina kemur að selja Landsbankann og Íslandspóst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhrif þessara höfðingja á framtíð okkar allra

Hér fyrir neðan er vefslóð á myndband sem fjallar um höfðingja sem láta sig ekki muna um að eyða milljörðum dollara til að "bjarga" mannkyninu.

Myndbandið er ekki á jú-túb og því er vefslóðin hér fyrir neðan. Á mannkynið skilið slíka höfðingja???

https://www.bitchute.com/video/XYYTK68rVJNB/


Elítan fær sitt á silfurfati, Kata mun eiga fyrir salti í grautinn.

For­sæt­is­ráðherra seg­ir ekki standa til að koma í veg fyr­ir hækk­un launa ráðamanna þrátt fyr­ir að verðbólga sé mik­il. Hefði Katrín verið í stjórnarandstöðu hefði hún verið með hávær mótmæli gegn spillingunni, en þar sem hún er "réttummegin við borðið" þá er þetta nauðsynlegt "réttlæti".

Það sem stjórnvöld og Alþingi hefði átt að gera er að hafa frumkvæði að því að lækka laun þessara sömu aðila um 10 til 20 prósent, það væri gott fordæmi fyrir aðra launþega og ef það gengi yfir línuna myndi verðbólga fara hratt niður. En að vitaskuld þyrfti að verja þá sem minnst hafa milli handana og hlífa þeim.

En með sífeldum vaxtahækkunum er verið að gera þeim sem hafa verið að kaupa þak yfir höfuðið, með bankalánum, erfitt fyrir ef ekki ómögulegt að standa í skilum. Með þessu áframhaldi mun fjöldi heimila missa húsnæði sitt og lenda á götunni. Þá koma stóru fasteignafélögin til "bjargar" og kaupa fasteignirnar og leigja út á yfirverði, eins og gerðist í kjölfar hrunsins 2008.

Ríkið, borgin, mörg bæjar- og sveitafélög og fjölmörg heimili eru og munu ekki geta staðið undir skuldbindingum sínum og lenda í gjaldþroti. Þá mun "stóri bróðir", einhver hinna ofurríku sem fjármagna allskonar vitleysu eins og Open border, WHO og loftslagsbullið, bjóðast til að borga skuldir þeirra og það með einu skilyrði, þ.e. að skuldunautarnir yrðu að gera allt sem þeir segðu þeim.

Það er sem sagt verið að koma fólki, sveitafélögum og ríkisstjórnum víða um heim í vandræði þannig að þau ráða ekki við eigin skuldir. Þetta sjáum við t.d. hér á landi þar sem ríkissjóður er notaður til að fjármagna stríðsrekstur og borga í svokallaðan "kolefnissjóð" en sá sjóður er örugglega í vasa þeirra ofurríku sem ætla svo að bjarga heimsbyggðinni. Allt er þetta gert til að ná tangarhaldi á þjóðríkjum jarðarinnar svo þeir, þessir ofurríku, geti stjórnað heimsbyggðinni eftir eigin geðþótta, One World Government.

Þetta er hluti að "The Great Reset" sem WEF hefur verið að undirbúa þar sem þú átt ekki neitt en verður yfir þig ánægður. Á sama tíma bera þeir á borð nýjar veirur og "bóluefni" og örugglega sitthvað fleira til þess að fækka fólki á jörðinni, einn og búið er að stefna að í marga áratugi.

En svo við komum nú aftur að Katrínu forsætis, þá er hún hluti af WEF og hlýðir Klaus Schwab eins og kom glögglega fram í janúar s.l. eftir að hún tók við fyrirmælum frá honum um að koma á lögum er taka á "hatursorðræðu" og það eftir þeirra skilgreiningu.


mbl.is Laun ráðamanna hækka um 6% í júlí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 136
  • Frá upphafi: 167084

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 83
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband