Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
13.12.2018 | 16:23
Af hverju gengur illa að manna hinar ýmsu starfsstéttir s.s. í heilbrigðisgeiranum???
Sá vandi sem þjóðin stendur frammi fyrir í að manna hinar ýmsu stéttir mun bara aukast. Þjóð sem drepur börn sín á enga framtíð fyrir sér. Fósturmorð með leyfi stjórnvalda leiðir bara til þess að fólki mun fækka, fyrst í stað lítillega en síðan mun fækkun stóraukast eftir því sem á líður og þjóðin eldist.
Þegar foreldrar, sem nú láta eyða börnum sínum, ná gamalsaldri munu þau ekki hafa neinn til að hlúa að sér. Í Japan fækkaði fólki á örfáum árum um eina milljón og útlit fyrir að þeim muni fækka mjög svo verulega á örfáum áratugum.
Börn eru ávalt framtíða þeirrar þjóðar þar sem þau fá að fæðast. Þjóð sem fargar afkvæmum sínum er dauð, hún á enga von enga framtíð fyrir sér.
Þess vegna þó að laun hjúkrunarfræðinga og lækna hækki mun sú lausn til að manna heilbrigðiskerfið vera skammvin, það kemur að því að ekki verði til mannskapur til að manna þær stéttir sama hversu há launin verða. Íslendingum er ekki að fjölga, það er sorgleg staðreynd, í dag stöndum við í stað. Eftir örfá ár verður okkur farið að fækka, eins og Japönum.
Ef við setjum vonir okkar á fjölda flóttamanna sem hingað munu streyma að þeir muni bjarga landi okkar, þá skulum við gera okkur grein fyrir því að langstærstur hluti þeirra eru ómenntaðir eða lítið menntaðir einstaklingar sem ekki koma til með að fylla þau skörð sem íslendingar manna í dag.
Samþykki Alþingi frumvarp Svandísar Svavarsdóttur um auknar heimildir til fósturmorða erum við að setja síðustu naglana í líkkistu þjóðar okkar.
GUÐ forði okkur frá því.
![]() |
Spurði um hærri laun hjúkrunarfræðinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.11.2018 | 21:35
Japanska þjóðin er að skreppa saman, þeim fer fækkandi. Hvað er að gerast???
Hvers má vænta þegar þjóðfélög skreppa saman, fleiri deyja en fjöldi fæðinga??? Hvaða vandamál blasa við minnkandi þjóðfélögum???
Japanska þjóðfélagið er að minnka, þeim fækkaði um eina milljón frá 2008 til 2015 og með sama áframhaldi mun þeim fækka um 20 milljónir frá 2015 til 2040. Árið 2015 voru Japanir 127 milljónir og áætlað að þeir verði 87 milljónir árið 2060. Vandamál Japana er ekki hvað síst að fjöldi ellilífeyrisþega er að stóraukast á kostnað þeirra sem yngri eru. Hlutfall 65ára og eldri er 25% og þar að auki lifir fólk mun lengur, því mun hlutfall þeirra aukast mjög hratt. Þeirra sem eru á vinnumarkaði og halda þjóðfélaginu gangandi í formi skattgreiðslna stefnir í að verða minnihluti innan fárra áratuga.
Þetta sama vandamál mun íslenska þjóðin þurfa að horfa uppá verði ekki hugarfarsbreyting hjá okkur. Í stað þess að eyða/deyða börn í móðurkviði, ættum við að hvetja til aukinna barneigna, þar sem fjöldi barna væru ekki færri en þrjú á fjölskyldu og helst fleiri.
Fóstureyðingum þarf að útrýma og ríkisvaldið á nú þegar, STRAX, hætta að greiða fyrir þær aðgerðir.
Á myndbandinu hér fyrir neðan er fjallað um vanda Japana og er athyglisvert að heyra áhyggjur þeirra og sjá hvað þeir eiga við að glíma.
19.11.2018 | 13:18
Þeir sem hæst hafa!!!
Ungbarnadauði var mikill hér á landi alveg framundir þarsíðustu aldamót. Slæmur aðbúnaður, léleg heimkynni og farsóttir voru helstu ástæður þess hversu mörg börn dóu í bernsku. Nú á tímum er aðbúnaður mun betri og farsóttir hafa ekki verið að hrella ungviðið í sama mæli og áður fyrr.
Stærsta ógn sem blasir við ungviði okkar í dag erum við, mannfólkið, þar sem yfir eittþúsund börn deyja árlega af manna völdum, fyrir hendi þeirra sem eiga að verja þau og hlúa að þeim. Fósturmorð er hið mesta böl sem blasir við yfir þúsund einstaklingum á ári hverju.
Margir sem eru í fararbroddi þeirra sem berja sér á brjóst yfir bágindum barna erlendis og þeim hörmulegu skilyrðum sem þau búa við, vegna stríðs og af öðrum orsökum, eru þeir hinir sömu sem tala hvað hæst fyrir því að börnin okkar séu tekin af lífi í móðurkviði.
![]() |
Ungbörn fjórðungur þeirra í garðinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.11.2018 | 10:17
Börn eru blessun, tökum vel á móti þeim, þeirra eru framtíðin, þau eru framtíð þjóðar okkar.
Börn eru framtíð þjóða. Þegar fæðingum barna fækkar og verða færri en sem nemur dauðsföllum, þá fækkar fólki. Þegar börn eru óvelkomin og þau deydd í móðurkviði og slíkt athæfi samþykkt af yfirvöldum eru yfirvöld og þjóðfélagið allt að kveða upp eigin dauðadóm.
Þjóðfélög þar sem fósturmorð eru samþykkt og talin eðlileg eiga ekki rétt á að kallast þjóðfélög, þau tortíma sjálfu sér, við getum kallað það þjóðfélagslegt sjálfsmorð.
Til að viðhalda mannkyninu þurfa börn að fæðast og þau boðin velkomin í þennan heim. Börnin þurfa á elsku, hlýju, alúð, aga og umvöndun að halda.
Sjálfur ólst ég upp við það að mamma var heima og annaðist um okkur systkinin og þannig var það á flestum heimilum þeirra sem eru á mínu reki og eldri.
Síðan fóru mæður í auknum mæli að vinna úti, bæta fjárhagsstöðu heimilisins. Eftir því sem fólk hafði meira handa á milli jókst græðgin og mikill vill meira. Þetta kom niður á heimilishaldi fólks, en fólk varð ekkert hamingjusamara við það, heldur fór að bera á því að börnin fóru að vera fyrir, þau voru farin að vera vandamál foreldra sinna þar sem þau voru að keppast við að eignast sífellt meira og meira af veraldlegum hlutum.
Börnin eru hluti af samfélaginu og fjöldi barna er blessun en ekki öfugt. Vilji þjóðfélagið eiga framtíð þurfa börn að fæðast, einstaklingar sem taka við af okkur og viðhalda þjóðinni með fleiri fæðingum barna sem tekið er á móti fagnandi og þau elskuð.
Snúum af braut sjálfstortímingar og fögnum og umvefjum hvern þann einstakling sem fær að fæðast inn í þennan heim. Vermdum lífið, tortímum því ekki. Elskum lífið og elskum GUÐ sem gaf okkur líf.
Börn eru blessun, tökum vel á móti þeim, þeirra eru framtíðin, þau eru framtíð þjóðar okkar. Án barna er ekkert þjóðfélag, engin framtíð.
![]() |
Makalaus fækkun fæðinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.11.2018 | 15:11
Hvað er til ráða þegar við höfum gleymt drengjunum og stúlkum okkar.
Vandi drengjanna okkar og stúlkna er vandi þjóðarinnar allrar.
Hér áður fyrr léku börn sér úti, meir en nú er gert, mörg fóru snemma að vinna t.d. í fiski, sum voru í sveit á sumrin, þau höfðu ýmislegt til að dunda sér við og þá helst úti við.
Í dag eru börn á unga aldri sett framan við sjónvarpið, síðan kemur tölvan, svo koma allskonar óæskilegar bíómyndir og tónlist sem er krefjandi á að hlusta.
Fæst börn eru uppfrædd í Guðs Orði, kenndar bænir eða farið með þau í kirkju og sunnudagaskóla. Biblíusögur og kristinfræði hafa verið fjarlægð úr skólunum, ekki má gefa skólabörnum Nýja Testamentið, en hinsegin fólki hleypt í skólana þess í stað með sinn heilaþvott og áróður á börnin.
Upplausn heimila og hjónaskilnaðir hafa vissulega áhrif á börnin og í mörgum tilfellum mjög djúpstæð áhrif.
Allt þetta hefur áhrif á stöðu fólksins í landinu og þó einkum ungviðis okkar. Þegar Guð er tekinn út úr samfélaginu er ekki von á góðu. Þegar sá sem gefur frið er tekinn út og sá sem fyllir fólk ófriði, stressi og streitu, óhemjuskap og græðgi fær yfirhöndina, þá uppsker þjóðfélagið það sem til er sáð.
Alþingi getur ekki breytt þjóðfélaginu, en þingmenn geta sett fordæmi með sínum eigin gjörðum og verið fyrirmynd fyrir samfélagið allt.
Leitum fyrst Guðs ríkis og Hans réttlætis, þá munum við njóta blessana Hans.
![]() |
Höfum við gleymt drengjunum okkar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.11.2018 | 23:40
Þær lifðu af, dauðinn varð að gefa eftir.
Mikið er talað um sjálfsákvörðunarrétt kvenna og að þær ráði yfir eigin líkama, réttindi kvenna þurfi að hafa í heiðri, en hvað um réttindi þeirra kvenna sem deyddar eru í móðurlífi? Konan hefur þann rétt að hafna því að hafa mök við einhvern af hinu kynin, það er hennar réttur, hún gæti orðið ólétt, þau konan og maðurinn ættu að hafa það í huga. Konan hefur ekki rétt til að ákveða að líf annarrar persónu sé ekki þess virði að leyfa þeim einstaklingi að lifa. Barn sem verður til í móður kviði er ekki konan sjálf, barnið er sjálfstæður einstaklingur sem hefur lífsgöngu sína í kviði móður sinnar.
Fóstureyðingar eru á sama plani og útburður barna var hér á öldum fyrr, eða þegar sveinbörn átti að myrða á þeim tíma þegar Móses fæddist, eða þau börn sem myrt voru á hrottalegan hátt um það leiti sem Jesús Kristur fæddist. Getur verið að fóstureyðingar á okkar tímum segi okkur eitthvað um þann tíma sem við nú lifum? Erum við sem einstaklingar tilbúnir að vera þátttakendur í þeim hildarleik sem fóstur víg eru? erum við tilbúin að vera sett á sama stall og Hitler, Stalín og Maó??????????
Fósturmorðin eru ljótur og hræðilegur atburður sem ekki ætti að eiga sér stað í "siðuðu" þjóðfélagi.
Bæn mín til Guðs almáttugs er sú að augu Svandísar Svavarsdóttur og allra þeirra sem taka undir með henni opnist og þau sjái hversu illar þessar aðgerðir eru.
Hér fyrir neðan eru myndvönd er fjalla um tvær konur sem lifðu fóstureyðingu af. Það sem þær hafa að segja ættu allir að heyra.
Fyrsta myndbandið sýnir er Gianna Jessen talar fyrir bandarískri þingnefnd og síðasta myndbandið er einnig með Gianna þar sem rætt er við hana og hún segir sína sögu.
Annað myndbandið er viðtal við Melissa Ohden, en móðir hennar vissi ekki að hún hafði lifað fóstureyðinguna af, þær hittust árum síðar.
![]() |
Sjálfsákvörðunarréttur kvenna sé skýr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.11.2018 | 16:09
Kaldhæðni örlagana
Yfirlæknir á spítalanum, Jeffrey Cohen, þar sem Bowers fékk aðhlynningu var sá sem fór fyrir teyminu sem hlúði að honum. Læknirinn er gyðingur og meðlimur Tree of Life safnaðarins þar sem ódæðið átti sér stað. Bowers fékk bestu aðhlynningu sem völ var á og það úr hendi eins þeirra sem hann hefði hugsanlega drepið, hefði hann ekki staðið vaktina á sjúkrahúsinu þegar glæpurinn átti sér stað.
Kaldhæðnislegt!?!?!
Jesús sagði: "Elskið óvini yðar, biðjið fyrir þeim sem ofsækja yður".
![]() |
Neitar sök í skotárás í bænahúsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.10.2018 | 11:37
Hryllingurinn sem við höfum öll lokað augum okkar fyrir
Margt fólk, konur og karlar, hafa tekið þátt í að eyða börnum í móðurlífi. Augu sumra þessara einstaklinga hafa opnast fyrir hryllingnum sem þau hafa tekið þátt í, en aðrir eru kaldlindir og sjá ekkert rangt við það sem það er að gera, jafnvel þegar börnin koma lifandi út og hægt væri að bjarga þeim, þá eru þau bara látin deyja eða þau tekin af lífi strax í fæðingunni.
Þetta er hryllingur sem verður að stöðva. Sorglegt er að margir þeirra sem hugsa með hryllingi til glæpa sem eiga sér stað í stríðsátökum og eru sannarlega hryllilegir, sjá ekkert athugavert við morðin sem framin eru í skjóli laga og "heilbrigðiskerfis".
Myndböndin hér fyrir neðan segja sína sögu, þau eru öll á ensku. Mörg önnur myndbönd eru til sem fjalla um þann hrylling sem fóstureyðingar eru og sum þeirra treysti ég mér ekki til að birta á bloggi mínu.
28.5.2018 | 13:33
Margir Írar fagna "sigri" nú skal veita þeim "lagalega" heimild til að drepa börn sín.
Nú fagnar myrkva höfðinginn og allir hans árar, lífið er honum einskis virði né margra foreldra sem þó hafa sjálf öðlast "líf" og fengið að "lifa".
Hér á landi hafa aftökur átt sér stað á yfir 40 þúsund einstaklingum án þess að fólk almennt geri sér grein fyrir því. Auður fólks sem væru nú þegar að skila þjóðfélaginu miklum verðmætum ekki aðeins fjárhagslega heldur í einstaklingunum sjálfum sem myndu hafa auðgað mannlífið okkar á meðal.
![]() |
Sex ára baráttu lauk með sigri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.2.2018 | 20:43
Homminn Adam Hood ákallaði Guð mitt í samkynhneigðum athöfnum.
Ramin Parsa fyrrum múslími ræðir við Adam Hood fyrrum homma sem ákallaði Guð mitt í samkynhneigðum athöfnum sínum. Hvað gerðist síðan er það sem hann segir okkur frá í meðfylgjandi myndbandi.
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
flinston
-
baldvinj
-
bergthorolason
-
biggilofts
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
gattin
-
contact
-
einarbb
-
eeelle
-
emilkr
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gudbjorng
-
zumann
-
tilveran-i-esb
-
coke
-
gunnlauguri
-
gustafskulason
-
conspiracy
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
haddi9001
-
maeglika
-
harhar33
-
bordeyri
-
heimssyn
-
don
-
hordurvald
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
jakobk
-
johanneliasson
-
johann
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonl
-
bassinn
-
prakkarinn
-
thjodarskutan
-
kiddikef
-
krist
-
kristjan9
-
lifsrettur
-
loncexter
-
magnusg
-
marinogn
-
mofi
-
olof
-
pallvil
-
iceland
-
regu
-
undirborginni
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
duddi9
-
sjonsson
-
thruman
-
athena
-
stebbifr
-
stendors
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
viktor
-
villidenni
-
postdoc
-
thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.5.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 70
- Frá upphafi: 167356
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 46
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar