Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hvert stefna "lýðræðisríkin"???

Mörg ríki sem við höfum fram að þessu kallað lýðræðisríki eru að breytast í lögregluríki. Þetta má sjá á stöðum eins og Ástralíu, Nýja Sjálandi, Frakklandi, Kanada, Þýskalandi, Bretlandi og víða í Bandaríkjunum. Þessi ríki eru að breytast í Kína vestursins.

Hvað ætli gerist hér á Íslandi nú eftir kosningar??? munum við sjá eitthvað þvíumlíkt eiga sér stað hér????

Háværar kröfur hafa verið um að konur eigi að ráða yfir eigin líkama og að þær eigi því að geta ráðið því hvort börn sem þær ganga með eigi að fá að lifa eður ei. En þegar kemur að því að sprauta eitri í líkama okkar í nafni bólusetninga þá eigum við ekki að hafa neitt um það að segja heldur eigum við bara að hlýða.

Þetta er ofbeldi sem verið er að beita fólki víða um heim og Kata forsætis hefur kallað eftir að fólk eigi bara að gera það sem þeim er sagt og láta sprauta eitrinu í sig.

Myndböndin hér að neðan sýna brot af því sem er að gerast, þau eru tekin í Ástralíu.


VAKNIÐ !!! VAKNA ÞÚ ÍSLENSKA ÞJÓÐ !!!!!

Hvernig stendur á því að tveir þriðju smitaðra eru fullbólusettir??? hvað varð um vörnina sem bólusetningar áttu að veita fólki????? Af hverju eru fleiri bólusettir á gjörgæslu en óbólusettir??????????

Hvenær ætlar fólk að vakna og sjá að allt það sem sagt hefur verið varðandi þessa kórónuveiru og bólusetningar hefur ekki staðist, það er verið að bulla í okkur og almenningur lætur mata sig og ljúga að sér hægri og vinstri.

Það skortir gagnrýna hugsun og meira að segja fjölmiðlafólk er gersamlega úti á túni, það passar sig á að spyrja ekki óþægilegra spurninga, gleypir bara því sem að þeim er rétt, svo trúir fólk bara því sem kemur frá fjölmiðlum og lætur tvískinnunginn fram hjá sér fara. Mótsagnakenndar yfirlýsingar sóttvarnalæknis sem segir eitt í dag og annað á morgun og fólk spyr ekki hvað sé í gangi.

VAKNIÐ !!!  VAKNA ÞÚ ÍSLENSKA ÞJÓÐ !!!!!


mbl.is 35 innanlandssmit: Smitfjöldinn kominn til að vera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er réttur kvenna og hver er réttur ófæddra barna ? ? ?

Í Bandaríkjunum hafa 50milljónir börn verið tekin af lífi (myrt) í móðurlífi. Það þarf enginn að segja mér að það sé vegna 50milljónir nauðgana. Kona ein sem varð til við nauðgun hafði þetta að segja: Móðir mín var hvött til að láta eyða fóstrinu þar sem það hafði orðið til vegna nauðgunar, mamma gat ekki hugsað sér það hún leit á fóstrið sem barn, lifandi veru og ákvað að eiga mig. Átti ég að gjalda syndar föður míns, sagði hún að lokum.

Hér á Íslandi hafa um 50þúsund börnum verið eytt. Þeir sem fremstir fara í flokki þeirra sem vilja eyða börnum er það fólk sem kallar eftir réttlæti og persónulegum rétti til að velja og hafna. En hvað með börnin, þetta eru einstaklingar, lifandi persónur sem fólk lítur á sem æxli, en er það ekki.

Dómur Guðs mun vegna þessara illu athafna og óguðlegu löggjafa verður ekki umflúinn nema við snúum okkur frá þessari synd, iðrumst og viðurkennum að við höfum haft rangt fyrir okkur.

GUÐ minn fyrir gef okkur þessa blóðskuld sem hvílir á okkur, í Jesú nafni.

 


mbl.is Framkvæmdi þungunarrof þrátt fyrir bann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverra er ábyrgðin???

Hér fyrir neðan er vefslóð á myndband sem fjallar um bólusetningar, hvatningar frá frægu fólki, myndir af fólki sem hefur verið bólusett og aðvaranir sérfræðinga.

Ástæða þess að þetta myndband er ekki á YouTube er vegna þess að því hefði verið eytt af rétttrúnaðarliði þeirrar stofnunar.

https://hugotalks.com/2021/08/26/do-celebrities-have-blood-on-their-hands-hugo-talks-lockdown/

Hverjir bera svo ábyrgð á því/þeim sem fara illa út úr bólusetningunum hér á landi??? eru það ekki ríkisstjórnin, Alþingi, heilbrigðisyfirvöld, fjölmiðlar og aðrir sem þrýsta á fólk að láta bólusetja sig?????????

Ábyrgðin er mikil hjá þeim sem daginn út og daginn inn reka á eftir fólki með ótta og hræðsluáróðri að láta bólusetja sig.

Niðurstaða myndbandsins er að áhættan af bólusetningunni sé meiri en af sjálfri veirunni.


Frábærar upplýsingar frá borgarstjórn ;)

Bókhaldsfiff er notað til að bjarga meirihluta borgarstjórnar og látið líta svo út að allt sé i himnalagi í galtómum peningakassanum.

"Rekstr­arniðurstaða A-hluta, sem er að hluta eða öllu leyti fjár­magnaður með skatt­tekj­um, var nei­kvæð um 7.322 millj­ón­ir króna." segir í frétt mbl.is.

Það er að segja að borgarsjóður er búinn að eyða 7 þúsund 322 hundruð milljónum króna umfram skatttekjur á aðeins sex fyrstu mánuðum ársins. Hver ætli útkoman verði í lok árs???

Aðrar upplýsingar úr bókhaldi borgarstjórnar eru bókhaldstilbúningur, gert í þeim tilgangi að líta vel úr í augum kjósenda, borgarbúa.

Hver var að tala um að borgin væri vel rekin?????

Minnt skal á að kosningar til borgar- og sveitastjórna er á næsta ári.


mbl.is 11 milljarða afgangur á rekstri borgarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lof sé Guði fyrir Hjálpræðisherinn.

Hvar væri borgin án Hjálpræðishersis og hvar væri íslenska þjóðin án hjálpræðisverks Jesú Krists, sem Hjálpræðisherinn og aðrir Guðs þjónar boða?

Börn í 2. til 4. bekk í Fossvogsskóla mættu í …

Hér má sjá húsnæði Hjálpræðishersins sem borgin nýtur góðs af þessa dagana, en Hjálpræðisherinn þurfti að borga fyrir lóðina fullu verði á meðan önnur trúfélög s.s. múslímar fengu frían aðgang að þar sem þeir setja niður sínar moskur. Þess skal getið að Hjálpræðisherinn byggir á kristnum grunni.


mbl.is „Nú er gott að hafa Hjálpræðisherinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvort er það hjarðónæmið eða hjarðhegðunin sem þrýstir fólki í að láta "bólusetja" sig ?!?!?!?!

Heilbrigðisyfirvöld hvetja alla landsmenn til að láta bólusetja sig, ekki bara með einni sprautu heldur tveimur og þremur og jafnvel enn fleiri sprautum. Það er nefnilega svo gott að láta sprauta í sig efnum sem enn eru á tilraunarstigi og enginn veit hvaða afleiðingar þau muni hafa til lengri tíma litið og öll þjóðin er undir.

Er þetta ekki dásamlegt?!?!?!?!

Svo er til fólk sem vill ekki láta sprauta sig með þessum efnum, sem ber ekki traust til þessara óþekktu efna og neitar að láta beygja sig. Haldið þið að það sé nú !?!?!?!

Ég er einn þeirra.

Hvort er það hjarðónæmið eða hjarðhegðunin sem þrýstir fólki í að láta "bólusetja" sig ?!?!?!?!


mbl.is Þórólfur telur of snemmt að tala um Delta-bóluefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

The Great Reset og The New World Order. Hefur þú heyrt um það og veistu hvað það er???? En það skiptir þig máli!!!!

Hvað hefur Covid með The Great Reset og The New World Order að gera???? Hvaða máli skiptir það okkur. Myndbandið hér fyrir neðan gefur okkur smá innsýn inn í það hvað er að gerast og hvert stefnir. Engum er ætlað að komast undan því sem ákveðið hefur verið, þar er enginn undanskilinn hvorki þú eða ég. Þó er til lausn.


Á þetta að vera svona??? er þetta eðlilegt????

Hér fyrir neðan eru vefslóðir á tvö myndbönd. Þessi myndbönd eru af fólki sem er að kalla eftir hjálp það vill að hlustað sé á það, en fá engin svör.

Ég vona að hvorki þú né nokkur annar lendi í þeirri stöðu sem þetta fólk er í.

Seinna myndbandið er mjög átakanlegt, að hlusta á mann sem var full hraustur vera að breytast í "grænmeti". Af hverju?? Jú hann vildi leggja sitt af mörkum, yfirvöld kalla eftir því og þetta er niðurstaðan.

Ég hvet fólk til að horfa og hlusta. Er þetta eðlilegt???? á þetta að vera svona???????  Dr.Fauci sagði "Get over it" eða "harkaðu af þér"!!!

 

https://videos.files.wordpress.com/izH4FivO/we_want_to_be_heard_final_version_230_mp4_dvd.mp4

 

https://videos.files.wordpress.com/AylIs9TE/covid-vaccine-kevin-neuro_mp4_dvd.mp4


Við erum í miðju manndrápsferli og Dr. Fouci segir "Get Over It" (komast yfir það)!!!

Sérfræðingar, sem ekki eru á launum hjá elítunni, lýsa og vara við hörmulegum afleiðingum "bóluefnanna" sem verið er að sprauta í fólk.

En af hverju er verið að sprauta þessum efnum í fólk yfir höfuð. Jú, ýmsir þeir sem teljast til elítunnar, menn sem hafa ómældan auð að baki sér, hafa lýst því yfir að það þurfi að fækka fólki á jörðinni, allt of margt fólk sem "við" höfum ekkert að gera með.

Farið á vefslóðina hér fyrir neðan og sjáið og hlustið á það sem þar kemur fram og ég bendi sérstaklega á manninn sem varar við því að sprauta þessu í börnin okkar. Eins og einn sérfræðingurinn segir, það er enginn slökkvari til að aftengja það sem búið er að gera.

Það er verið að fremja glæp gegn mannkyninu.

https://www.bitchute.com/video/So3gn23tDx3q/


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 146
  • Sl. sólarhring: 197
  • Sl. viku: 231
  • Frá upphafi: 165494

Annað

  • Innlit í dag: 84
  • Innlit sl. viku: 145
  • Gestir í dag: 76
  • IP-tölur í dag: 75

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband