Jólakveðja.

Kæru bloggarar nær og fjær.

Barn er oss fætt sonur er oss gefinn. Á Hans herðum skal höfðingjadómurinn hvíla. Nafn Hans skal kallað Undraráðgjafi. Guðhetja. Eilífðarfaðir. Friðarhöfðingi.

GUÐ gefi ykkur öllum GLEÐILEGA JÓLAHÁTÍÐ.


Hver mun sjá um þig þegar þú eldist???

Í viðtengdri frétt segir: "Á næstu árum mun fólki á eftirlaunum fjölga meira en fólki á vinnumarkaði." Hér opinberast svart á hvítu afleiðing þeirra hörmulegu atburða sem fósturvíg eru. Ekki nóg með það að einstaklingar eru teknir af lífi í móðurkviði, þau í bókstaflegri merkingu þess orðs eru slitin í sundur, heldur hefur það afleiðingar hvað mannafla framtíðarinnar varðar. Eldri borgurum fjölgar á sama tíma og yngri borgurum fækkar, sem ætti að vera á hinn veginn.

Að farga ófæddum einstaklingum hefur afleiðingar. Við erum bara rétt að byrja að súpa seiðið af því að yfir 60þúsund einstaklinga vantar í þjóðfélag okkar. Íslendingar sem ekki fengu að fæðast, þau deydd meðan þau gátu enga björg sér veitt, rödd þeirra heyrðist ekki, en blóð þeirra hrópar til Himins eftir réttlæti og það réttlæti mun íslenska þjóðin þurfa að súpa seiðið af.

Að stjórnvöld ætli að víkka heimildir til fósturvíga er hrikaleg tilhugsun.

Ég hvet þig lesandi góður að ljá ófæddum börnum rödd þína með okkur hinum sem sjá þennan hræðilega atburð eins og hann er. Vill íslenska þjóðin virkilega eyða sjálfri sér?? Við erum ekki að fjölga okkur lengur. Færri íslenskir þegnar fæðast en sem nemur dauðsföllum. Fjölgunin sem á sér stað hér á landi felst í aðfluttum útlendingum.

Við þurfum okkar fólk, börnin okkar viljum við halda áfram að vera þjóð. Við þurfum að standa vörð um hin mállausu, þögulu, sem ekki hafa enn tök á að verja sig, að öðrum kosti munum við deyja út.

Hver mun sjá um þig þegar þú eldist???


mbl.is Ríkið mun ekki bæta miklu við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju gengur illa að manna hinar ýmsu starfsstéttir s.s. í heilbrigðisgeiranum???

Sá vandi sem þjóðin stendur frammi fyrir í að manna hinar ýmsu stéttir mun bara aukast. Þjóð sem drepur börn sín á enga framtíð fyrir sér. Fósturmorð með leyfi stjórnvalda leiðir bara til þess að fólki mun fækka, fyrst í stað lítillega en síðan mun fækkun stóraukast eftir því sem á líður og þjóðin eldist.

Þegar foreldrar, sem nú láta eyða börnum sínum, ná gamalsaldri munu þau ekki hafa neinn til að hlúa að sér. Í Japan fækkaði fólki á örfáum árum um eina milljón og útlit fyrir að þeim muni fækka mjög svo verulega á örfáum áratugum.

Börn eru ávalt framtíða þeirrar þjóðar þar sem þau fá að fæðast. Þjóð sem fargar afkvæmum sínum er dauð, hún á enga von enga framtíð fyrir sér.

Þess vegna þó að laun hjúkrunarfræðinga og lækna hækki mun sú lausn til að manna heilbrigðiskerfið vera skammvin, það kemur að því að ekki verði til mannskapur til að manna þær stéttir sama hversu há launin verða. Íslendingum er ekki að fjölga, það er sorgleg staðreynd, í dag stöndum við í stað. Eftir örfá ár verður okkur farið að fækka, eins og Japönum.

Ef við setjum vonir okkar á fjölda flóttamanna sem hingað munu streyma að þeir muni bjarga landi okkar, þá skulum við gera okkur grein fyrir því að langstærstur hluti þeirra eru ómenntaðir eða lítið menntaðir einstaklingar sem ekki koma til með að fylla þau skörð sem íslendingar manna í dag.

Samþykki Alþingi frumvarp Svandísar Svavarsdóttur um auknar heimildir til fósturmorða erum við að setja síðustu naglana í líkkistu þjóðar okkar.

GUÐ forði okkur frá því.


mbl.is Spurði um hærri laun hjúkrunarfræðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir sem í reynd stjórna heiminum

Í myndbandinu hér fyrir neðan er fjallað um þá sem í raun stjórna heiminum og hvernig þeir fara að því. Nú fer maður að skilja eitt og annað af því sem er að gerast.


Af tvennu illu, hvort er skárra?????? og hvort er verra??????????

Ekki ætla ég að afsaka það sem gerðist á bar úti í bæ þar sem þingmenn voru saman komnir að drykkju, væntanlega á áfengum vökva. Fyrir það fyrsta ættu menn sem ekki kunna með áfengi að fara að leita sér hjálpar. Menn sem undir áhrifum áfengis tala hátt og óvarlega eða öllu heldur með óvönduðu orðbragði ættu að forðast áfenga drykki og slíkt fólk ætti ekki að sitja á þingi.

Að því sögðu vil ég koma að tali heilbrigðisráðherra, Svandísar Svavarsdóttur. SS telur sig umkomna að gera sig breiða, sér sig geta grætt á óförum annarra. Málið er bara það að SS hyggst leggja fram lagafrumvarp þar sem heimilaðar verða mannafórnir. Hvort ætli sé alvarlegra að lögum eða sem brot á mannréttindum að talað sé illa um fólk eða fólk tekið af lífi og það án dóms og laga???????

Fósturvíg eru ekkert annað en mannafórnir, dráp af verstu sort, þar sem einstaklingar eru sundurlimaðir, lim fyrir lim.

Hvers konar villimenn erum við að verða????  Hvort er betra, illt umtal eða dráp á börnum?????  Ég lít svo á að hvortveggja sé hræðilegt, nokkuð sem ekki á að eiga sér stað, en dráp á ófæddum börnum er öllu verra að mínu viti.  Þjóð sem líflætur börn sín mun eydd verða og hverjir verða látnir sæta ábyrgð á því, þegar upp verður staðið, þegar að lokum kemur????? og við stöndum frammi fyrir dómara alls mannkyns.??????

Dr. Anthony Levatino.hefur framkvæmt yfir 1200 fóstureyðingar, hann lýsir fóstureyðingum á myndböndum hér fyrir neðan.

Þingmenn ættu að vera skyldugir til að horfa og hlusta á það sem Dr. Levation hefur að segja, hvernig hann lýsir ferlinu. Hér eru bara tvö myndbönd sem lýsa á sjónrænan hátt hvernig hlutirnir eru gerðir, en mun fleiri myndbönd eru til um þetta efni.

 

Í myndbandinu hér fyrir neðan tala þeir sem framkvæma fóstureyðingu um, BARNIÐ og fyrir þingnefnd þegar spurt er um barn sem kemur út lifandi hvað gert sé við það, á konan sem talar fyrir hönd Planed Parenhood í erfiðleikum með að svara.

 

 

Svo eru það sem ná svo langt sem SS vil heimila. Ætlum við virkilega að fara þá leið??????????????

 

 


mbl.is Full ástæða til að kalla saman siðanefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru kröfur öryrkja ósanngjarnar???

Ekki fæ ég séð að öryrkjar séu að fara fram á ósanngjarnar bætur eða sömu laun og ráðherrar eða alþingismenn.

Jafnvel þótt þeir fengju sömu krónutölu hækkun og ráðherrar fengu með úrskurði Kjararáðs, þá væru tekjur þeirra samt aðeins brot af ráðherralaununum. Er þá nokkuð ósanngjarnt að vænta þess að öryrkjar fái slíkar hækkanir??????? Eða er líf öryrkja og ellilífeyrisþega minna virði en þingmanna og ráðherra?????????????

Var Bjarni Benediktsson ekki búinn að segja, á síðasta ári að mig minnir, að greiðslur til þessara hópa ættu að ná 300.000 krónum mánaðarlega eftir næstkomandi áramót. Öryrkjar og ellilífeyrisþegar hafa verið sveltir, þeim haldið niðri á meðan stjórnmálamönnum er úthlutað fúlgum fjár.

Mér sýnist skorta sanngirni á æðstu stöðum í þjóðfélaginu. Þurfum við ekki bara að skipta þingheimi út og kjósa öryrkja á þing og sjá þá sem ráðherra?????????????


mbl.is Finna ekki milljarðana níu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju öll þessi sjálfsvíg???

Hvað segir það okkur að fjöldi ungs fólks er að taka sitt eigið líf???  Ég trúi því ekki að nokkur fari í þá vegferð án þess að hafa gengið í gegnum mikla erfiðleika. Vonleysi, tilgangsleysi, áhyggjur, kvíði, einelti, afskiptaleysi og svo mætti lengi telja eru hluti af þeim vanda sem fólk og þó einkum ungt fólk, að ég tel, á við að stríða.

Síðustu áratugi, einkum síðustu 10 til 20 ár hafa vestræn þjóðfélög, sem áður voru talin kristin, snúið frá kristni og þeim gildum sem Guðstrúin boðar okkur. Jesús sagði: "Þjófurinn (djöfullinn) kemur ekki nema til að stela og slátra og eyða (deyða). Ég (Jesús) er kominn til þess, að þeir hafi líf, líf í fullri gnægð".

Sá sem trúir á Guð á samfélag við Hann þekkir Guð og er þekktur af Guði. Þjóð, þótt kristin sé að nafninu til, sem þekkir ekki Guð og hafnar boðorðum Hans, fer á mis við allt það sem Guð hefur að gefa. Guð þröngvar engu uppá okkur.

Það er ekki nóg að hafa fullt af kirkjum, þar á meðal þjóðkirkju, ef boðskapur Guðs er ekki fluttur í þeim og eins fyrir utan þær. Ef boðskapur iðrunar og helgunar fær ekki að hljóma í kirkjunni eða yfirleitt í úti í samfélagi okkar og kirkjan er bara eins og hluti af heimsapparatinu og ef hún hefur ekkert að gefa sem er eftirsóknarvert er ekki von á góðu.

Kirkjan á að vera staður þar sem friður Guðs ríkir, nærvera Hans er til staðar, þar sem andlega og líkamlega lækningu er að fá, þar sem Orð Guðs er huggun, uppörvun og hvatning.

Nú höldum við bráðum jól, þegar við minnumst þess að Frelsari er í heiminn fæddur, Jesús Guðs sonur. Koma Jesú var ekki eitthvað út í bláinn, það var tilgangur með komu Hans. Jesús kom til að frelsa okkur frá syndum okkar og til að gefa okkur eilífa von og framtíð til heilla og blessunar, en við mannkynið höfum hafnað Honum.

Guð bíður með faðminn opinn tilbúinn að taka við hverjum þeim sem til Hans vill koma. Guð er kærleikur, Hann elskar alla, menn og konur, unga sem aldna. Hann er tilbúinn að fyrirgefa okkur syndir okkar þegar við komum til Hans í einlægni og játum syndir okkar.

Í Esekíel 18.kafla 32.versi segir: "Því að ég hefi eigi velþóknun á dauða nokkurs manns, segir Drottinn Guð. Látið því af, svo að þér megið lifa".

Og Esekíel 33.kafli 11.vers: "Svo sannarlega sem ég lifi, -segir Drottinn Guð- hefi ég ekki þóknun á dauða hins óguðlega, heldur að hinn óguðlegi hverfi frá breytni sinni og haldi lífi. Snúið yður, snúið yður frá yðar vondu breytni! Hví viljið þér deyja, Ísraelsmenn (Íslendingar)?".

Það er til von, hún felst í því að við sem einstaklingar og við sem þjóð snúum okkur til Drottins Guðs, áköllum Hann og leitum Hans vilja. Fræðumst í Orði Hans, biðjum til Hans og lofum Hann, þá munum við lifa og friður Guðs koma og fylla líf okkar. Friður heimsins sem menn eru alltaf að leita að er ekki hinn sanni friður, en fríður Guðs sem okkur er fyrirheitinn fyllir líf okkar og kemur inn í samskipti okkar við annað fólk. Sá friður er góður, notalegur, gefandi.

Megi okkur Íslendingum veitast sú náð að koma til Hans sem gefur hið sanna líf og hinn sanna frið. Það er þess virði.

Guð elskar þig, þig persónulega, ekki bara sem hluta af stærri heild, heldur þig sem einstakling. Gefðu Guði tækifæri, þú hefur engu að tapa en allt að vinna.

Guð blessi þig.


mbl.is Átta börn yngri en 14 ára frömdu sjálfsvíg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Professor Ivar Giaever, Nóbelverðlaunahafi 1973 í eðlisfræði. Sjá myndband

Á myndbandinu fjallar Ívar um hnattræna hlýnun.


Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá uppbót, en hvað með.....?????

Vissulega er gott að geta komið til móts við þá sem hingað leita og eru sannanlega að flýja ofbeldi heimafyrir, við eigum að taka vel á móti þeim. Þá er mér hugsað til Asia Bibi hinnar Pakistönsku, er ekki rétt að bjóða henni og fjölskyldu hennar hæli hér á landi???

En aftur að uppbótum þeirra sem eru að sækja um alþjóðlega vernd hér á landi, því enn er mér hugsað og nú til öryrkja og ellilífeyrisþega sem skammtaður er skítur úr hnefa.

Flestir þeirra Íslendinga sem þiggja bætur er fólk sem er hluti af þeim sem hafa farið fyrir okkur, lagt þann grunn að velferðarþjóðfélaginu sem við byggjum og njótum í dag. Af hverju eru þessir einstaklingar látnir mæta afgangi????? af hverju er ekki hugsað vel um þetta fólk svo það geti lifað áhyggjulausu lífi?????? af hverju mega þau ekki njóta og hafa borð fyrir báru í stað þess að hafa sífelldar fjárhagsáhyggjur?????? hvar er velferðarþjóðfélagið gagnvart þeim??????????

Ég fer ekki fram á að öryrkjar og ellilífeyrisþegar fái sömu laun og ráðherrar eða þingmenn, en að þeir fái sömu krónutöluhækkun og ráðherrarnir fengu með úrskurði kjaranefndar. Ef hægt er að réttlæta launahækkanir ráðherrana þá er miklu frekar hægt að réttlæta hækkanir til okkar minnstu bræðra og systra, þau eiga það skilið. Kannski eiga ráðherrarnir eða einhver þeim nákomnir að lenda í þeirra stöðu.


mbl.is Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá uppbót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Japanska þjóðin er að skreppa saman, þeim fer fækkandi. Hvað er að gerast???

Hvers má vænta þegar þjóðfélög skreppa saman, fleiri deyja en fjöldi fæðinga??? Hvaða vandamál blasa við minnkandi þjóðfélögum???

Japanska þjóðfélagið er að minnka, þeim fækkaði um eina milljón frá 2008 til 2015 og með sama áframhaldi mun þeim fækka um 20 milljónir frá 2015 til 2040. Árið 2015 voru Japanir 127 milljónir og áætlað að þeir verði 87 milljónir árið 2060. Vandamál Japana er ekki hvað síst að fjöldi ellilífeyrisþega er að stóraukast á kostnað þeirra sem yngri eru. Hlutfall 65ára og eldri er 25% og þar að auki lifir fólk mun lengur, því mun hlutfall þeirra aukast mjög hratt. Þeirra sem eru á vinnumarkaði og halda þjóðfélaginu gangandi í formi skattgreiðslna stefnir í að verða minnihluti innan fárra áratuga.

Þetta sama vandamál mun íslenska þjóðin þurfa að horfa uppá verði ekki hugarfarsbreyting hjá okkur. Í stað þess að eyða/deyða börn í móðurkviði, ættum við að hvetja til aukinna barneigna, þar sem fjöldi barna væru ekki færri en þrjú á fjölskyldu og helst fleiri.

Fóstureyðingum þarf að útrýma og ríkisvaldið á nú þegar, STRAX, hætta að greiða fyrir þær aðgerðir.

Á myndbandinu hér fyrir neðan er fjallað um vanda Japana og er athyglisvert að heyra áhyggjur þeirra og sjá hvað þeir eiga við að glíma.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.8.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 168963

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband