27.6.2016 | 11:03
Tveir krataflokkar í tilvistarkreppu
Stefnir í að Breski Verkamannaflokkurinn hljóti sömu örlög og systurflokkur hans hér uppi á Íslandi, Samfylkingin?
Það var áfall fyrir Verkamannaflokkinn að breskir kjósendur skyldu hafna ESB. Áfall Samfylkingarinnar er sú staðreynd að íslenskir kjósendur höfnuðu þeim flokki í síðustu kosningum, ekki síst fyrir þrýsti þeirra og blekkingarleik að koma Íslandi inn í upplausnarsambandið. Skoðanakannanir sýna að Fylkingin er enn að tapa fylgi og gæti þurrkast út í næstu kosningum.
Tveir krataflokkar í tilvistarkreppu.
Corbyn að missa tökin á flokknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.6.2016 | 09:20
Til hamingju Bretland
Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu um veru Breta í ESB er sigur lýðræðisins yfir ólýðræðislegum tilburðum ESB og fylgifiska þeirra.
Til hamingju Bretland.
Bretar kjósa að ganga úr ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.6.2016 | 14:09
ESB elítan virðist fyrst nú vera að fatta að Brexit gæti gerst með ákvörðun breskra kjósenda á morgun.
Það mætti halda að evrukratar í Brussel séu að vakana upp við vondan draum. Þeir virðast fyrst vera að átta sig á því núna að svo gæti farið að Bretar yfirgefi ESB og í annan stað að löggjöf og starfsaðferðir ESB eru meingallaðar og þurfi endurbóta við.
Í viðtengdri grein segir:
Krossa puttana í Brussel
Í Brussel segja menn hins vegar að burtséð frá því hvernig atkvæði falla á morgun, þá sé þörf á endurskoðun á Evrópusambandinu. Ráðherraráð Evrópusambandsins og yfirmenn í höfuðstöðvum NATO eru engu að síður sagðir krossa puttana um að Bretar kjósi að vera áfram í ESB.
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, hefur varað við því að yfirgefi Bretar ESB valdi það ekki bara skjálfta í samstarfi ESB-ríkja, heldur kunni það einnig að vera upphafið á endilokum vestræns stjórnarsamstarfs. Tusk ítrekaði einnig að hvernig sem atkvæði falli, þá sé þörf á endurbótum og löngum umræðum um framtíðarhlutverk ESB.
Af hverju eru menn fyrst nú, þegar komið er að þjóðaratkvæðagreiðslu Breta um hvort þeir eigi að vera eða yfirgefa ESB, að tala um að gera endurbætur á sambandinu? Ef þeim er virkilega alvara með þessum yfirlýsingum væru þeir löngu farnir af stað í slíkt ferli og hefðu sýnt fram á raunverulegan vilja til að bæta sambandið. En getur það verið að valdagræðgin hjá þessum mönnum sé og hafi verið viljanum til endurbóta sterkari?
Þeir í Brussel geta krossað puttana fram í rauðan dauðan, ég er viss um að ekkert mun breytast hvort heldur Bretar verði áfram í ESB eða ákveði að yfirgefa það. Það hentar elítunni ekki að breyta neinu þegar kemur að ákvörðunartökum innan sambandsins, þeir vilja ráða og nota sýnar aðferðir til þess hvort heldur almennum kjósendum líki betur eða verr.
Allir óttast Brexit nema Pútín | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2016 | 16:05
Jóga og hindúismi eru eitt og hið sama, óaðskiljanleg hvort frá öðru
Án jóga er enginn hindúismi og án hindúisma er ekkert jóga. Hindúismi og jóga eru óaðskiljanleg. Jóga er tilbeiðslustellingar í hindúisma. Fyrir hindúa er jóga ekki nein leikfimi eða teygjur, heldur tilbeiðsluaðferðir.
Teygja sig og beygja á alþjóðlega jógadeginum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.6.2016 | 22:49
Þjóðsöngur okkar heillar
Kemur mér ekki á óvart að þjóðsöngur okkar hitti í mark, enda er hann lofsöngur til Guð vors lands og lands vors Guðs. Það er ekki bara hljómurinn af laginu heldur andinn í textanum og laginu í heild sem hefur þau áhrif sem fólk lýsir á Twitter í viðtengdri frétt þar sem hann nær inn í anda og sál þeirra sem hlusta með opnu hjarta.
Þjóðsöngurinn féll vel í kramið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.6.2016 | 19:44
Það er slæmt að missa góða menn af þingi, við megum ekki við því.
Það verður mikill missir að missa Frosta Sigurjónsson af þingi. Frosti hefur verið einn af stólpum sitjandi þings. Það eru því miður ekki margir efnilegir menn og konur sem gefa sig út í þetta starf, enda oft vanmetið og óvægnar árásir sem þingmenn verða fyrir.
Ég óska Frosta velfarnaðar á nýjum vettvangi. Hefði óskað þess að njóta starfa hans áfram á þingi, traustur og heiðarlegur sem Frosti er, en það er hans að ákveða og skil ég ákvörðun hans svo sem mæta vel.
Frosti hættir á þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
- axelaxelsson
- flinston
- baldvinj
- bergthorolason
- biggilofts
- skinogskurir
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- gattin
- contact
- einarbb
- eeelle
- emilkr
- ea
- fannarh
- lillo
- gesturgudjonsson
- gudbjorng
- zumann
- tilveran-i-esb
- coke
- gunnlauguri
- gustafskulason
- conspiracy
- halldorjonsson
- hallurhallsson
- haddi9001
- maeglika
- harhar33
- bordeyri
- heimssyn
- don
- hordurvald
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- thjodfylking
- astromix
- jakobk
- johanneliasson
- johann
- islandsfengur
- jonsullenberger
- jonl
- bassinn
- prakkarinn
- thjodarskutan
- kiddikef
- krist
- kristjan9
- lifsrettur
- loncexter
- magnusg
- marinogn
- mofi
- olof
- pallvil
- iceland
- regu
- undirborginni
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- duddi9
- sjonsson
- thruman
- athena
- stebbifr
- stendors
- valdimarjohannesson
- skolli
- viktor
- villidenni
- postdoc
- thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.5.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 44
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar