Færsluflokkur: Löggæsla

Skelfing Blaðamannafélagsins

Í viðtengdri frétt segir meðal annars:

„Blaðamanna­fé­lagið hef­ur ít­rekað bent á að um störf fjöl­miðla gilda önn­ur lög og regl­ur en önn­ur störf, vegna hlut­verks fjöl­miðla og mik­il­væg­is þeirra fyr­ir lýðræðis­lega umræðu. Hlut­verk umboðsmanns er að tryggja rétt ein­stak­linga gagn­vart stjórn­völd­um og því mik­il­vægt að fá úr því skorið hvort brotið hafi verið á rétti blaðamann­anna fjög­urra í þessu til­viki. Blaðamanna­fé­lagið minn­ir á mik­il­vægi fjöl­miðla í því að tryggja al­menn­ingi rétt til upp­lýs­inga og að frjáls frétta­flutn­ing­ur og vernd heim­ild­ar­manna séu grund­vallar­for­send­ur fyr­ir því að fjöl­miðlar geti gegnt hlut­verki sínu í lýðræðisþjóðfé­lagi,“ seg­ir Sig­ríður Dögg enn frem­ur.

Þá höfum við fengið það staðfest að Blaðamannafélagið telur að "blaðamenn" geti beitt bolabrögðum og hvaða öðrum aðferðum sem verða vill eins og aðförum að lífi og heilsu fólks, en það er einmitt það sem lögreglustjóraembættið á Norðurlandi hefur haft til rannsóknar. Og hvað er lögreglan að skipta sér af því að byrlun manns sem lá milli heims og helju meðan "blaðamennirnir" stálu farsíma viðkomandi til að geta búið til "frétt" þeim að skapi, jú þeir, "blaðamennirnir" áttu að fá verðlaun fyrir "vel unnin störf". Það var ekki "blaðamönnunum" að þakka að umræddur maður lifði aðförina af.

Er ekki kominn tími til að taka til í þessum ranni svo kallaðra "blaðamanna"??

 


mbl.is Umboðsmaður skoði mál lögreglu gegn blaðamönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annarshugar ökumenn

Ég verð oft var við, sérstaklega á heimleið úr vinnu, að ökumenn eru að tala í símann.  Þetta er mjög bagalegt þar sem þeir greinilega eru ekki með fulla einbeitingu við aksturinn.  Í flestum þeim tilvikum sem ég verð var við þetta eru ökumennirnir (oftast kvenfólk, en ekki alltaf) í hörku samræðum, með aðra hönd á símtólinu við eyrað og hina á stýrinu og ekið er löturhægt á vitlausri akrein.

Ég held að það væri ástæða til fyrir lögregluna að nota þau ákvæði sem heimila sektir vegna þess arna, ríkissjóður myndi stórgræða og hver veit, kannski rétta úr kútnum Wink

 


mbl.is Ökumenn annarshugar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögmanni ofbíður, hvað með okkur hin ?

Ég treysti mér ekki til að vera dómari í máli Baldurs Guðlaugssonar, en einhvern veginn finnst mér vera lykt af þessu, eins og svo mörgu öðru sem er að gerast í þjóðfélagi okkar.

Af hverju þarf hann einn að upplifa kyrrsetningu eigna sinna, á meðan stórþjófar þeir er settu okkur öll á hausinn valsa um heiminn með ránsfenginn og koma sér vel fyrir í glæsivillum á okkar kostnað ?

Það er eins og með blessuðu konuna sem stal innan við 100 miljónum, hún verður látin sæta ábyrgðar gjörða sinna, ekkert athugavert við það, en þeir sem stálu milljörðum ef ekki tugum eða hundruðum milljarða eru látnir óáreittir ?

Nei, smá krimmarnir, s.s. þeir sem taka lambalæri úr Bónus, eru látnir sæta ábyrgðar gjörða sinna, á meðan Bónusfeðgarnir í kompaníi við aðra, hafa rústað hverju fyrirtækinu af fætur öðru og hirt úr þeim öll verðmæti, fá nú enn á ný með aðstoð Ara Jóns (eða Arðráns) eins og sumir kalla nýja bankann, að leika sér með milljarðatugi, í skjóli bankans.

 


mbl.is Lögmanni Baldurs algjörlega ofboðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rannsaka umboðssvik og ólögleg lán hjá FL

Voru ekki allir löngu búnir að sjá þetta ?  er ekki kominn tími til að taka á þessum fuglum ?  Hannes Smárason er ekki einn um svona vinnubrögð, það vita allir.  Rannsóknir ganga allt of hægt og aðgerðir koma allt of seint.

 


mbl.is Umboðssvik og ólögleg lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húsleit ? núna ?

Hversu oft ætli þessir höfðingjar séu búnir að hreinsa út úr húsakinnum sínum síðan í haust ?  Í haust átti strax að framkvæma þessar húsleitir, áður en mönnum gafst tími til að losa sig við allt sem gat orkað tvímælis.

Þessar aðgerðir núna sýna svo ekki verður um villst hversu aum og lélegt íslenskt réttarkerfi er.  Íslenskt réttarkerfi getur tekist á við umferðarlagabrot, hnupl, einstaka innbrot og þess háttar, en þá er það nánast upptalið.

Það eru komnir nærri níu mánuðir síðan hrunið varð.  Meðgöngutíminn sem tók að hefja, það sem hefði átta að vera alvöru rannsókn og forgangsverkefni, er jafnlangur og móðir ber barn undir belti.  Þetta er hreint ótrúlegt.  Erlendis voru menn sóttir heim og leiddir út í járnum, strax og grunur lék á einhverju misjöfnu.  Hér fá menn allan þann tíma sem þarf til að koma gögnum undan.

 


mbl.is Húsleit gerð á 10 stöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stúlkurnar gáfu sig fram

Það er gott mál að stúlkurnar, sem réðust á fimmtán ára gala stúlku í Heiðmörk í gær, hafi gefið sig fram við lögreglu.  Þó að þær hafi gefið sig sjálfviljugar fram við lögreglu á það ekki að draga úr þeirri refsingu og þeim úrræðum sem beita þarf í tilfelli sem þessu.  Ungt fólk og fólk almennt þarf að gera sér grein fyrir afleiðingum gerða sinna, löggjafar- og dómsvaldið má ekki gefa neinn afslátt vegna slíkra fólskulegra aðgerða.

 


mbl.is Gáfu sig fram við lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir eiga þeir hrós skilið

Lögreglan, tollgæslan, landhelgisgæslan og allir þeir sem komu að málinu, handtóku glæpamennina og lögðu hald á allt góssið, eiga hrós skilið og hljóta að eiga Fálkaorðuna skilið.

Gott hjá ykkur og takk fyrir þjónustu ykkar.

 


mbl.is Seglskútan heitir Sirtaki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í fangelsi með þá

Er ekki kominn tími til að eiturlyfjasalar, barnaníðingar og aðrir morðingjar verði látnir bera ábyrgð gerða sinna, þeim stungið í steininn, það er í hegningarhús en ekki betrunarhæli og látnir dúsa þar í 25 ár hið minnsta.  Áður en dómur í máli þeirra sem rökstuddur grunur leikur á að séu sekir gangi ekki lausir.  Eigur þeirra sem stunda eiturlyfjasölu verði gerðar upptækar og þær notaðar til að efla fíkniefnadeild lögreglunnar og til forvarna.

Ég vil hrósa lögreglunni fyrir vel unnin störf upp á síðkastið og hvetja þá til dáða.  Á sama tíma vil ég hvetja hið háa Alþingi að samþykkja lög sem kveða á um að framangreindir aðilar fái þunga dóma, eins og ég sagði 25 ár, að byggt verði rammgert fangelsi þar sem þeir verða geymdir, upptöku eigna fíkniefnasala og verði mökum þeirra og börnum gert að sanna eignarétt á því sem kann að vera skráð á þeirra nafni.  Þeir sem gripnir eru við sölu fíkniefna fyrir aðra fái mildari dóm ef þeir geta bent á þann sem hefur hag af sölunni og leitt til handtöku hans.

Þetta er það sem gert er víða erlendis.  Vægir dómar þar sem menn eru vistaðir á 5 stjörnu "betrunarhæli" er ekki að skila neinum árangri, lögin verða að vera letjandi fyrir þessa menn, en ekki hvetjandi eins og nú er.


mbl.is Hald lagt á 650 kannabisplöntur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 36
  • Sl. sólarhring: 173
  • Sl. viku: 745
  • Frá upphafi: 162021

Annað

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 473
  • Gestir í dag: 25
  • IP-tölur í dag: 25

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband